Vísir - 04.10.1969, Side 9

Vísir - 04.10.1969, Side 9
VISIR. Laugardágur 4. október 1969, 9 JON HJARTARSON skrifar mánaðarannál: j£nn biðu nokkrir eftir sumr- inu, en sumarið lét ekki •inu sinni sjá sig undir septem- bersól og hann hélt áfram að rigna oní hrakin heyin. Bændur mæna nú bara í Bjargráðasjóð- inn. Þar er mikill jarmur. Nú fer mörg ásetningsgimbur í sláturhúsið og lambæmar tví- stí£3 með sárum jarmi við fjár- &&SG&T. □ Hins vegar hreyta bóndakonur nú æ dýrari mjólk úr kúnum. Hver sopi má sín mikils í víta- mfnleysinu og eymdinni fyrir sunnan. — Velþynnt mjólk og misheppnaður saltfiskur veröur hvundagur vesalinganna hér á mölinni, hvalkjöt og dagseytt rollubuff til skiptist á sunnu- dögum. — Ojæja. □ Var það að furða þótt blómi þjóðarinnar legðist í víking að Og nú er mikill slagur í siáturhúsinu. CPTtMBCRSOL hætti forfeðranna og hyggi strandhögg í skipasmíðastöðvum og öðru fabrikkeríi heimsstór- iðjunnar — með íslenzka verk- menningu og aldalanga lýsis- drykkju að bakhjarli? □ Á meðan framtakssamir snikk arar gengu á mála hjá stór- iðjuhöldum álfunnar, réði ríkiö til sín fáeina skrifara og pent- listamenn. — Nú er þess að vænta aö nýr hundadagakon- ungur verði skrifaður í 19. launaflokki. Menn ættu fjanda- korniö að geta bögglað saman nokkru klámi upp á samtíðina fyrir þann pening, hnoðað sam- an ferskeytlu skammlítið ellegar barið til dulítinn ádeiluskúlptúr. □ Hafi „Litla ljóta klíkan" ekki læst klónni um kúnstina ætti myndlistin að hafa alla mögu- leika á aó þróast og margfaldast, sitt í hverju horni, á meöan kaupmenn líta á malerí sem vísitölutryggingu og hlaöa þe m með velþóknun upp í rekka i kjöllurum sínuin, .Þannig geta gamlir heimskommúnistar og Marxistar haldið áfram að vera gáfaöir í skjóli hfns argasta kapítalisma. — Svo geta menn átt hugsjónir heima hjá sér eftir klukkan sex. □ Það er kreppa segja menn. Milljón tonn síldar týnd og tröllum gefin norðuríDuinbshafi niðurskurður og svelti í svéit- um — Nú á efnahagurinn sér helzt von í kaupstefnum og js- lenzkum iðnaði. Sýningadömur hafa ekki undan að fara úr óg í. íslenzki risinn ryðst fram á heimsmarkaðinn. Spurning dags- ins snýst um það hvort unnt verði að anna eftirspurn í Fær- eyjum. □ Heimurinn er að uppgötva ísland. íslenzkar sýningastúlkur eru uppgötvaðar suður í Sviss. Bandaríkin eru vitlaus í íslenzk- armérár. Japanir halda íslenzka póstmenn ríkulega hjá sér í sex vikur og skipa þeim í öndvegi ótal nefnda. Áliö rennur út á heimsmarkaðinum eins og heitar lummur og kísilgúrinn gerir lukku undir merki Johns Man- ville . □ En bændur þrífast ekki i þessu landi nema þeir geti piss- áð í einhverja sprænu af landar- eign sinni og selt hana útlend- ingum, að þeir geti húkkað þar bröndur. Fyrir þær bröndur, sem ekki veiðast má svo höfóa skaðabótamál við raforkuverin. — Og svo vaknar sú stóra spurning,; hver eigi botnleirinn. Bændur við Mývatn heyja nú : : hatrammt stríð við íslenzk- erlenda auðhringa um botnleir- inn. Þar er auðvitað um aö ræða prinsipmál. Kannski kemur þaö svo í ljós, að bændastéttin í landinu á ótæmdar auðlindir í forarvilpum sínum og ófæru- flóum. 1 □ Sá sjaldgæfi atburður gerist í septemberlok að gáfnaprófi var skellt á heilt byggðarlag. Gaflaramir gengu hiklaust að kjörborðinu og stóðust prófið að fiestra dómi og geta nú þar fyrir drukkið sitt brennivín innan bæjarmarkanna án þess að laum- ast til þess. — Einhverjir eru reyndar að reyna að koma því inn hjá almenningi að þeir séu ekki svona gáfaðir í Firðinum sem af er látið og halda því á lofti að þeir ha-fi staðizt prófið með blekkingum og svindli. □ íslendingar töþuðu frábærlega fyrir Frökkum í knattspymu suður í París. — Öil fótbolta- forustan er á eiriu máli um að íslenzkt 'iið hafi sjaldan eða aldrei tapað með slfkum ágæt- um. Drengirnir sýndu svo sann- arlega hvað í þeim bjó og að- sóknin að véllinum sannaði það enn einu sinni, hvað íslendingar eru vinsælir andstæðingar. □ Allt útlit er nú fyrir aö þessir fáu, sem ennþá reyktu pró- fessjónalt verði nú líka að fara að vefja, úr því heimsmarkað- inum stafar hætta af fslenzka krabbanum. Sá stimpill mun raunar vera svo óhuggulegur að sögn tóbaksframleiðenda að þeir hinir sömu myndu hætta hvort eð væri. □ Og svo fór hann að snjóa. Þetta sumar, sem aldrei kom, er á enda. Mjöllin breiðir sig yfir hvanngræn grösin, sem aldrei voru slegin og menn verða róm- antískir og þunglyndir heldur en ekki neitt — Þá eygja menn einna helzt huggun í spila- klúbbum og fölskum tékkum, skammgóðum vermi velferðar- rfklsins SkálaS fyrir aurunum hennar Guðrúnar minnar frá Lundt. LESENDUR JHAFA ORÐID □ „Hókus pókus4* Þið þama á Vísi virðist vera eina heiðariega dagblaðiö sem birtir fréttir, sem virðast stund um vera óþægilegar fyrir þann stjómmálaflokk, sem þið virðist þó óneitanlega styðja (ég held raunar, að heiðarleg frétta- mennska sé alltaf til góðs, -rit skoðun hinna dagblaðanna eýrtr aðeins trúverðugleika þeirra.) Þið birU«ð f'étt á baksíðu biaðsins á dðgunom, tjer sem skýrt var frá kjön*»«> vwJúpta- fræðinga, bæði f þjájrxistw hins opinbera og einkaÞ»t> tkja. Þar kemur fram, að aígengustu árslaun eru 300—350 þús. kr. og virðist mega ráða, að laun einhverra viðskiptafræðinga séu þama töluvert fyrir ofan. Nú er mér spum: Hvemig getur við- skiptafræðingur í þjónustu hins opinbera haft, segjum 400—500 þús. kr. f ársiaun, meðan útborg að mánaðarkaup í þeim stöðum, sem flestir viðskiptafræðingar skipa, er einhvers staðar nálægt 20.000 kr. Hvaða „hókus pók- us“ getur þama nær tvöfaldaö árslaun þeirra? „Opinber láglaunamaður". □ Pop-blöð og sorprit Þessi svonefndu pop-blöð, sem að undanfömu hafa skotið upp kollinum eins og gorkúlur svo og sorprit ýmiss konar, em að verða ein mesta skömm þessarar þjóðar. Blöð þessi em undantekningar lítið illa skrifuð og eyðileggja aö mestu viðleitni fslenzkra skóla til að bæta málþroska og málfar nemenda sinna. Sagt er að skynsamir ungling ar lesi ekki slfk blöð. Málið er bara ekki svo einfalt. Vitað er úr sálfræði, að skynsemin ein ræð- ur ei gjörðum okkar, og kemur einnig til þáttur tilfinninga og hvata. Unglingar á 13—16 ára aldri em afar viðkvæmir, hvað varðar hvatir og tilfinningar, þannig að heilbrigð skynsemi fær oft litlu ráðið um gjörðir þeirra. Á slfka strengi spila ein- mitt útgefendur þessara ómenn ingarblaða og ættu þeir að skammast sín og mættu allir að ósekju hverfa af Iandi brott nú þegar. Hið háa Alþingi á hins vegar að sjá sóma sinn f þvf að búa þannig um hnútana, að menn sem standa fyrir útgáfu blaða til dreifingar ungu fólki á við- kvæmum breytingaaldri séu sæmilega skrifandi á fslenzkt nútímamál. Brandur. □ Fer byggingarlistinni aftur? Danskur vinur minn, sem er arkitekt, sagði við mig um dpg- inn: „Hann er nú meira ófétið þessi stormur, sem gekk yfir Noröurlöndin um daginn. Tókstu eftir þvf, að það vora nýju bygg ingarnar, sem sáust hálfhmndar og skemmdar f dagblöðunum og sjónvarpinu. Þær sem voru byggðar fyrir fimmtfu ámm, þær Iétu ekkert á sjá, það hrandi ekki einn einasti múrsteinn af þeim." Steinkassabflf. HRINGID í SlMA 146-60 KL13-15

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.