Vísir - 04.10.1969, Side 16
RITSTJÓRN
LAUGAVEGI 178
SÍMI 1-16-60
Sviðiö við gas á nokkrum
stöðum úti á landi
• Á nokkrum stöðum úti á
landi er nú hætt að svfða mat-
væli við olíueld og propangas
notað til þeirra hluta í staðinn
Sagði landlæknir blaðinu frá
þessu f gær, og skýrði frá því um
leið, að áframhald á þessari þróun
yrði í ár, og á næstu árum.
Kvað hann engin fyrirmæli vera
tij, sem heilbrigðiseftirlitið gæti
beitt fyrir sig í þessu efni. Þessum
breytingum á sviðingu matvæla
hefði verið vel tekið hér í Reykja-
vfk og úti á landi hafi þegar verið
breytt um aðferð við svfðlngu mat-
/æla á nokkrum stöðum.
„Ætluðum uð þjóna þessu fólki"
segir forstjóri oliuverzlunarinnar
□ íbúar í Silfurtúni
munu eflaust fjölmenna
á fundinn, sem haldinn
verður í barnaskóla
Garðahrepps klukkan 4
í dag, en þar á að ræða
bensínstöðvarmálið við
sveitarstjóra Garða-
hrepps og hreppsnefnd-
ina.
Blaðið hafði samband við
Önund Ásgeirsson, hjá Olíu-
verzlun íslands í gær, og spurði
hann um afstöðu Olíuverzlunar-
innar til deilumálsins, sem kom-
ið hefur upp í Silfurtúni.
— Okkar afstaða er náttúr-
lega sú, að við ætluðum að
þjóna þessu fólki, með því að
setja upp bensínafgreiðslu. Nú-
verandi stöð á aö fara undir
hraðbraut og er í rauninni verið
að flytja þá stöð til. Staðsetning
in er hins vegar ákveðin af
skipulagsyfirvöldunum og
hreppsnefndinni, og er mér
ekki kunnugt um möguleika á
annarri staðsetningu en þessari,
sem okkur hefur verið úthlutað.
Þá sagði Önundur m. a., að
ekki hefði verið kvartað yfir
ófriði af bensínstöðinni í Lyng-
holti, sem Olíuverzlunin hefur
rekið í Silfurtúni og að enginn
ófriður yrði af bensínstööinni
nýju.
— Það er yfirleitt svo, að
menn fagna því að fá svona
hverfisstöð, heldur en hitt, svo
að það er eitthvað óvenjulegt
við þetta, sagði Önundur að
lokum.
■
ihn i k/jtttninn
rots
■ ■
4 •• b
* s* * . f
Gerðardómurinn fór
beint í ruslakörfuna
— Flugliðar höfðu fyrir l’óngu samið við
flugfél'ógin — Þeir fengu a.m.k.
„prentarasamninga"
■ Gerðardómur í deilu flugmanna og flugvélstjóra við flugfé-
lögin var kveðinn upp i september. Löngu áður höfðu verið
»erðir samningar milli þessara aðila og fór það hægt. Gerðardóm-
írinn fékk því fijóta relsu beint í ruslakörfu viðkomandi aðila.
Þó má ekki telja útllokað, að einhverjir hafi geymt plaggið til
ninningar um sögulega deilu.
Eins og lesendur rekur minni til
>oðuðu flugmenn tveggja sólar-
iringa verkfall seinni hlutann í júni
■il að fvlgja eftir kröfum sínum
im mjög verulegar kauphækkanir.
Verkfall þetta var bannað með
>ráðabirgðalögum, sem varð til
þess að mikil „veikindi" sóttu að
flugmannastéttinni og voru þeir all-
tr „veikir" í þá daga, sem þeir höfðu
boðað verkfall.
Að loknum þessum veikindum
voru haldnir þriggja daga samninga
fundir með deiluaðilum og voru
gerðir leynisamningar að þessum
samningum loknum. Erfitt er að fá
•uppgefið, hvað flugmenn fengu úr
þessum samningum, en þeir munu
ekki hafa fengið minna út úr samn-
ingunum, en prentarar fengu nú í
haust, en þeir fengu eins og kunn-
ugt er 20—30% launahækkun.
Flugmenn Loftleiða voru komnir
í einkennisbúninga sína áður en
gerðardómurinn var felldur, en
samkvæmt upplýsingum hjá Flug-
félaginu eru þeirra flugmenn ennþá
í sínum „Kóróna-fötum".
Blaðið hefur hins vegar fregnað,
að flugmenn Flugfélagsins muni
fljótlega upp úr mánaðamótunum
fara í einkennisbúningana.
> ^ ...................................»!iiiirV ^
. A. . ''***n '*“■ i
lYerður unnt að smíðai
I j
I minkabúrin hérlendis? i
Hérmann Bridde, bakara-
meistari, hefur keypt til lands
ins fyrlr hönd Loðdýra hf.
fyrstu minkabúrin. Heyrzt
hefur, að veiddir hafl verlð
villiminkar hér i íslenzkri
náttúru, og verði þeir beztu
settir í búrin bráðlega. Þá er í
athugun, hvort ekki sé unnt
að smiða þessi búr hérlendis
og veita fjölda manns vinnu
við það.
Hermann Bridde sagði í gær,
að minkabúrin væru hin full-
komnustu, og teldi hann þau
hæfa vel íslenzkum aðstæðum.
Hann hefur fengið minkabúr,
flutningskassa og veiðigildrur. í
búrunum eru sérstakir unga-
kassar, eða hreiðurkassar.
Tollurinn á búrunum er 70%
hinn sami og á búrum fyrir
kanarffugla, að sögn Hermanns,
og mikil nauðsyn, að hann verði
Iækkaður, eigi að eflast ræktun
loðdýra hér á landi í náinni
framtíð.
Skaðinn af stórhríðinni
ekki uærri fullkannaður
í gær. Það gæti hugsazt að féð hafi
farizt í stórum stíl. Féð var mjög
illa farið og gat ekki hreyft sig,
hraktist í skurði og læki. Við höf-
um ekki orðið varir við að neitt
hafi farizt hjá okkur, en einhver
brögð munu hafa verið að því vest-
an til í Mýrdalnum. Þetta var ó-
trúlega mikill snjór — með ólík-
indum á þessum tíma, sagði Páll.
Samkvæmt upplýsingum, sem
Vísir fékk þar fyrir austan í gær
var vitað um 10—20 kindur, sem
farizt hefðu heima viö bæi og þó
sennilega fleiri, þar sem veðrinu
slotaði ekki fyrr en í fyrrinótt og
lítið var hægt að huga að fénu fyrr
en I gær. Ekkert hafði verið farið
upp í heiðamar, þar sem búizt er
við að féð hafi leitað skjóls í hvilft-
um og lautum og fennt í hópum
jafnvel. •
Bændur bjástruðu viö féð á
fimmtudaginn í vitlausu veðri og
reyndu að ná því heim á bæi og
áttu margir illa nótt — aðfaranótt
fimmtudagsins, bæði menn og
skepnur.
• Fjalakötturinn viö Aðalstræti auglýsir hið bezta „program“
25. 26. og 27. april 1908, eins og sjá má. Þessi skemmtilega aug-
lýsing blasti viö þegar járnplötur voru rifnar af húsinu í gær-
morgun og birtum við mynd af plakatinu, sem vonandi hefur
i'erið komið fyrir ískjalasafni borgarinnar.
• Enn er ekki vitað, hve mik-
ill fjárskaðinn hefur orðiö f stór
hrfðinni austur f Mýrdal á
fimmtudaginn. Nokkrar kindur
hafa fundizt dauðar f skurðum
og lækjum og fullvíst er talið af.
allmargt fé hafí fennt uppi í
heiðunum.
— Þetta er hvergi nærri full-
kannað ennþá, sagði Páll Pálsson,
bóndi, Litluheiði, í viðtali við Vísi