Vísir - 04.12.1969, Blaðsíða 2

Vísir - 04.12.1969, Blaðsíða 2
V í SIR . Fimmtudagur 4. desember 1969. Sníðaþjónusta Pfaff ' S.l. mánudag tók til starfa sníðaþjónusta Pfaff 1 húsa- , kynnum verzlunarinnar, Skólavörðustíg 3. Þar geta ' konur fengið aðstoð við snið eftir Pfaff sníðakerfinu gegn vægu verði. Aðstoðað verður við snið á öllum venjulegum kven- og barnafatnaði. Fyrst um sinn verður sníða þjónusta Pfaff opin kl. 2—5 á mánudögum og föstudögum. PFAFF Skólavörðustíg 3 - Sími 13725 1 unx\ óö, -- - " _ • ® © j HEIMILISTÆKI STEREO-TÆKI eru þekkt fyrir tóngæði. Umboðsmenn um ailt land £/unnu't íP&^eitMon h.f. • ■ ' SuflufUmhbratrt 16 ReyVjáviV - Slmnutni: iValysrc - Simi 35200 Guðmunaur ógnar veíai Oskars! Búizt við spennandi keppni þeirra i milli á fyrsta Reykjavikurmótinu i lyftingum • Ekki er ólíklegt að hörð keppni verði á fyrsta Reykjavíkurmótinu í lyfting- um, sem háð verður í Tóna- bæ laugardaginn 13. desem- ber n.k. Guðmundur Sigurðs- son hefur nú náð að komast í milliþungavigt, sama flokk og Óskar Sigurpálsson, og hefur verið mjög mjótt á mun unum milli þeirra félaga á æf- ingum að undanförnu, báðir náð ágætum árangri. Búast má við sannkölluðu metaregni í öllum flokkum keppninnar, en á síðasta móti voru sett 13 íslandsmet og er því spáð að þau verði ekki færri nú. Dómaravandamálið hefur ver- ið leyst, því nýlega voru útskrif aöir fyrstu íslenzku dómararnir í greininni, sem er frumskilyrð- ið til að hægt sé að keppa við löglegar aöstæður. Veröur fróö- legt að sjá hvemig þeim tekst upp. Ástæða er til að hvetja í- þróttaunnendur að koma og sjá þessa nýju grein, sem getur verið skemmtileg á aö horfa, ekki sízt þegar reynt er við mörg met, eins og nú verð- ur. Keppnin hefst kl. 15 annan laugardag, 13 des. og eru þátt- takendur í keppninni beðnir að láta skrá sig hjá Brynjari Gunn arssyni í síma 52806 fyrir laug- ardaginn 6. des. /# Lokað" innan- hússmót firma Á sunnudaginn kemur 7. des. fer fram innanhússknattspyrnumót á vegum knattspymuklúbbs fram- reiöslumanna í íþróttahúsinu á Sel tjamamesi og hefst kl. 14.00. Eftirtöldum fyrirtækjum var boð- in þátttaka í mótinu: Flugfélag Is- lands, Loftleiðir, BP, Kristján Ó. Skagfjörð, Sláturfél. Suöurlands, SÍS, Prentsmiðjan Edda, Vffilfell, Bæjarleiðir, Bræðumir Ormson, Landsbankinn, ísal, og A og B lið framreiðslumanna. Þetta er 1 annað sinn sem fram- reiðslumenn halda firmakeppni inn anhúss, en sfðast sigruð'u Faxar (lið Flugfél. íslands). ’ Öll þessi lið æfa knattspyrnu innanhúss og meöal þeirra em margir þekktir knatt- spyrnukappar. í leikhléi fara fram tveir knatt- spymuleikir, milli barþjónaklúbbs Islands og matsveina Sælkerans í Hafnarstræti (sælkerar við sælkera) og hljómsveitar Ragnars Bjarna- sonar og Roof-Tops, en þeir slöar- nefndu leika fyrir dansi um kvöldiö í Sigtúni. Þar fer einnig fram verð launaafhending og verða veitt 1. 2. og 3. verðlaun. Knattspyrnulandsliðið á ferðalagi I síðasta mánuði. Leikmenn skoða aðalstöðvar Sþ. Ekki kom- ust allir, sem valdir höfðu verið, í Bermudaferðina, því ferðalög, þótt ókeypis séu, kosta alltaf eitthvað af heimilispeningunum. Styrkjum landsliðið! FJÁRSÖFNUN er að hefj- ast á vegum dagblaðanna til að gera för landsliðsins í handknattleik sem vegleg asta í febrúarlok. Það er alkunna að íslenzk lið hafa oft verið illa útbúin í utan- landsferðum, læknis- og nuddaralaus, svo dæmi sé nefnt, og að auki hafa leik- menn veríð með lífið í lúk- unum vegna þess að þeir hafa vitað að þeir tóku þátt í „Iúxus“, sem þeir og fjölskyldur þeirra höfðu ekki beint efni á. Sumir leikmanna höfðu e.t.v. tek ið út öll sín frf og því kauplausir á vinnustaö. Fjölskyldan heima hef ur e.t.v. ekki of mikið að bfta og brenna. Þannig em okkar íþrótt- ir, meöan úreltar „áhuga“ manna- reglur gilda. Hvernig er annars -hægt að hafa áhuga á íþróttum, þeg ar slíkar reglur em að flækjast fyrir Dagblöðin safna því fé 1 því skyni að styrkja t.d. eiginkonur og fjölskyldur þeirra leikmanna, sem þurfa að fóma tíma, fé og fyrir- höfn til aö berjast fyfir iandsins hönd, en einnig til að landsliðið megi fara sem bezt búiö til keppni. Greinilegt er að einstaklingar og starfshópar hafa áhuga á málefn inu og verður tekiö viö gjafafé á afgreiöslum blaðanna. Skrifstofa Vísis í Aðalstræti 8 mun taka við framlögum.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.