Vísir


Vísir - 06.01.1970, Qupperneq 4

Vísir - 06.01.1970, Qupperneq 4
\v^*\\V£ v Y.\\\W^\y£.\\ % \jw^\ \^wy Skákaði páfanum Loris Fortuna, ítalskur þing- maður, sem lagði fram frumvarp að lögum, er leyfa mundi hjóna- skilnaði, skákaði sjálfum Páli páfa VI. 1 samkeppni, sem ítölsk tímarit efndu til um vin- sælasta ítala ársins. Hann hreppti 2227 atkvæði blaðamanna, meðan páfinn, sem hafnaði í öðru sæti, hlaut aðeins 314 atkvæði. Svona í leiðinni má geta þess, að frumvarpið bíður afgreiðslu þingsins ennþá. Rasmus Sörensen meö „Skelfi sjösofendanna“, sem vakið gæti upp heilan borgarhluta. r Hann sefur sko ekki yfír sig þessi! Hvaða dauðlegur maður, annar en Rasmus, gæti fest blund vit andi af þessu náttborði við hliðina á rúmi sínu? Hvernig er sambúð ykkar og vekjaraklukkunnar? Líkar ykkur einnig við hana á morgnana? Við vitum i mann, sem þyk- ir bara vænt um vekjaraklukkur ... jú, jú, víst er það alveg satt! Hann safnar þe:' og reynir með- al annars að láta þær hringja allar í einu. T. d. hefur hann ein- ar 35 vekjaraklukkur standandi á náttborðinu hjá sér. Maðuririn, sem hefur þetta ein- kennilega söfnunaræði, heitir Rasmus Sörensen, Dani, sem kom ínn er á eftirlaun og býr í Mes- ing Skanderborg. Hann fékk áhugann á þessum hryllilegu tækjum, þegar hann var 7 eða 8 ára gamall, en þá var honum gefin vekjaraklukka, sem einhver hafði fleygt. Eins og allir hafa einhvern tíma gert, tók hann grininn í sundur stykki fyrir stykki, en hann lét bara ekki þar við sitja, heldur setti hann hana saman aftur, og fékk hana til þess aö ganga rétt. — Klúkkan gengur enn þann dag í dag innan um hinar 100 klukk- urnar, sem hann á. Pað er því sosum ekki að undra, þótt þeir í Mesing kaili hann Klukku Ras. í safni hans er að finna allt frá Borgundarhólmsklukkum til rafmagnsklukkna, en perlan f safninu er 300 ára gömul vegg- klukka. Flestar eru þær þó fram- leiddar einhvem tíma á tímabil- inu frá 1920. Tvær klukkar á hann, sem kallaöar hafa verið „Skelfir sjösofendanna“, en á þeim em fjórar bjöihir, sem nægja mundu til að vekja heiit hverfi. Annars á hann sýnishom af alls konar vekjaraútbúnaði, sirenuvæl og sönglög — svo eftt- hvað sé nefnt. Yon Rosen dylst í skóginum með flugu- menn á hælunum Hvar er von Rosen? Þessari spumingu leituðu margir þekkt- ustu blaöamenn álfunnar svars við og einkalögreglumenn voru leigðir til þess að reyna að hafa upp á þessum manni, sem svo mörgum lék hugur á að hitta aö máli, en þrátt fyrir lúsaleit flestum hótelum Portúgal og Frakklands, var ógerningur að ná nokkurs staðar til hans. En Carl Gustaf von Rosen ku lifa við beztu heilsu, þótt menn óttuðust um afdrif hans, þegar hvergi spurðist til hans, enda op- inbert leyndarmál, að flugumenn hafa verið sendir honum til höf- uös, og fullyrt, að Nígeríu-stjórn hafi heitið um 75.000 krónum dönskum þeim, sem geti komið von Rosen fyrir kattarnef, en það eru í kringum 8,3 milljónir ísl. kr. Hvar hann heldur sig, er vel varðveitt leyndarmái, sem aðeins tveir eða þrír nánustu trúnaðar- menn þekkja, en menn þykjast nú vissir um, að hann dyljist í frum- skógum Bíafra, og hætti sér að- eins þaðan út í dulargervum, og undir fölsku nafni. , Militrainer-vélarnar hans eru í ágætu ásigkomulagi og aðeins ein þeirra hefur eyðilagzt, en önn ur veriö' fengin í staðinn. Þær hafa valdið Nígeríu tjóni, sem metið er á 750 milijónir kr. dansk ar, með eyðileggingu flugvéla, flugvalla og olíuvera. „Ertu ekkert hræddur um að fá kúlu í bakiö,“ spurði sænskur blaðamaður, Pelle Birde að nafni, sem náði tali af flugkappanum nýlega f Bíafra, meðan aðrir leit- uðu í Portúgal. „Eitt sinn skal hver deyja, og þá er ekki aðalatriðið, hver dauðdaginn er,“ svaraði von Ros- en. „Ég hef horfzt í augu viö dauðann nokkrum sinnum, og smám saman venst maður af því að hugsa til hans.“ í viötalinu við sænska blaöa- manninn ijóstraði von Rosen því upp, að hann hygðist leggja út í ótakmarkaðan hemað með flug- sveit sinni gegn stjórn Nígeríu - og erlendu olíufélögunum, sem hagsmuna hafa að gæta í iand- inu. Með því hyggst hann þrengja svo að þessum áhrifavöldum aö þeim verði enn meira kappsmál að binda enda á stríðið, og beiti sér meir i þá átt gagnvart stjóm Nígerfu. Hins vegar neitaði von Rosen mjög einarðlega spumingn blaða- mannsins um, hvort hann væri á háum launum fyrir sinn þátt í styrjöldinni.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.