Vísir - 06.01.1970, Page 10

Vísir - 06.01.1970, Page 10
Io Vörubíll færði birtu í húsið Vörubifreið, sem ekið var eftir Hringbrautinni í morgun meö fyrir- ferðarmikla maskínu uppi á vöru- pallinum, rakst á ljósasíaur og beygði hann niöur ... eða öllu held- ur kræktist maskínan, sem stóð út fyrir pallinn báðum megin, í ljósastaurinn. Ljósastaurinn sveigðist niður og beint 'fyrir útgöngudyr íbúöarblokk- ar svo að íbúar þar áttu hreint ekki greiöan gang út eða inn. Ekki slokknaöi þó á ljósinu á staurnum við þetta, þvert á móti sýndist flestum, sem ljóskerið hefði aldrei varpað skærari birtu á um- hverfi sitt. Viðgerðarmenn frá Raf- veitunni voru fengnir til þess að rjúfa strauminn, svo aö engin hætta stafaði af. Álfaþjóð og vætfir á ferli — á þrettándaskemmtunum i kv'óld Jólin eru á enda. Þrcttándinn er haldinn hátíðlegur með brennum og blysförum víða. Mikil álfa- brenna verður inni við Skautahöll- ina þar sem fram koma álfakóng- ur og drottning. Þrettándinn er einn þeirra daga, sem hvað mest felur i sér hjátrú og hvers konar bindurvitni. Þá eru álfar á stjái, og fólkiö hans Faraós kastar sels- hömunum og stigur á land. Jóla- sveinarnir hverfa úr byggð. Þá er líka hvers kyns hyski og vættir á ferli, svo sem á jóla- og nýársijótt. Þrettándagleöi í Háskólabíói verð ur að sögn tileinkuð „vættum, jólasveinum, dráúgum og öðrum skottum.“ Þar mun Öskar Hall- dórsson cand. mag. rneðal annars segja draugasögur. — Danshús borgarinnar verða opin til klukkan eitt eftir miðnætti. Ekih á pilt á hifhjáli í morgun Við gamla Kennaraskólann rák- ust á í morgun bifreið, sem ekið var niöur Barónsstíg, og piltur, sem ók á bifhjóli frá Hringbraut eftir Laufásvegi. Ökumaöur bifreið- i arinnar sveigði til vinstri, þegar hann kom á gatnamótin, þar sem ríkir biðskylda vegna umferðarinn- ar á Laufásvegi, og lenti þá bif- hjólið framan á bílnum. Pilturinn skall í götuna og var hann fluttur á slysavarðstofuna, en meiösli voru ekki . fullkönnuö, þegar-blaöiö iór í prentun í morgun. Sigríður Ólafsdóttir, Lindar- götu 24, Iézt 30. des. 1969, 65 ára aö aldri. Hún verður jarðsung- in frá Fossvogskirkju kl. 3 á morg Ástríður Skagan, 19 Royai Avenue S. W. 3. London, lézt 23. des. 1969, 36 ára að aldri. — Hún verður jarðsett frá Fossvogskirkju kl. 13.30 á morgun. Auðunn Oddsson, sjómaður, Hrafnistu, lézt 29. des. 1969, 76 ára að aldri. Hann verður jarð- sunginn frá Fossvogskirkju kl. 10.30 á morgun. Tssiigtlækeiingavakt- mm Siaidið áfra-m næsta ntánuð — aðsókn fór upp i 20 manns á dag yfir jólin 9 Tannpína er böl, sem margur þolir illa, enda sýndi það sig yfir jólin í öllu sætabrauðsátinu, þegar allt að 20 manns leituðu suma dagana til tannlæknavaktar- ’nnar, sem Tannlæknafélag Reykja víkur kom af stað yfir hátíðarnar ásamt Heilsuverndarstöð Reykja- víkur. Áðsóknin var annars þetta 5 — 20 manns. © Nú . hefur verið ákveðið að hafa tannlæknavaktina opna næsta mánuð til þess að reyna hver þörfin er í þessum- efnum og byrjar hún í kvöld, en verður ’opin kl. 9—10 alla virka daga nema laugardaga kl. 5 — 6. Þessi þjónusta er rekin í húsakynnum gömlu slysa varðstofunnar í Heilsuverndarstöð inni og þangað getur fólk nú sem sagt leitað á kvöldin með hvers kyns munnangur, tannpínu, tann kýli og aðra slíka kvilla. Getraunospó — »-»■ 2. síöu sinn á White Hart Lane gegn sínu gamla félagi, en hann var fyrir- liði Toltenham um langt árabil. Liðin hafa ekki mætzt í deilda- keppninni ,f 16 ár og leikurinn er afar opinn. W.B.A. — C. Palace 1 Palace hefur ekki unnið leik á útivelli enn þá, gert 6 jafntefli í 12 leikjum, en WBA hefur nú unnið fjóra leiki heima eftir mjög lélega byrjun. Palace hefur styrkt lið sit.t, fengið landsliðsmanninr Bobby Tampling lánaðan frá Chelsea en það er eitt af þessu skrýtna í ensku knattspyrr.únni, að leikmenn eru stundum lánaöir á milli liða — þótt það sé h*s veg ar mjög, óvenjulegt milli liða í 1. deild. En þetta eru nágrannalið í L'ondon og gróðj fyrir Chelsea að Palace haldi sætj sínu í 1. deild. Huddersfield—Leicester 1 Þessi lið í 2. deild hafa ekki leikið saman undanfarin ár, en Leicester fél! niður í fyrra. Hudd- ersfield er í efsta sæti með ágæt- an árangur heima 8 vinninga, 2 jafnteflj og eitt tap — en Leicest- er hefur tapað 5 af 13 útileikjum, fjögur jafntefli. VlSIR . Þriðjudagur 6. I I DAG B i KVÖLD | Er ég kannski vön að koma og klaga yfir þessari drepandi kyrrð og þögn niðri hjá yður? VEÐRIÐ Norðan gola, létt skýjað með köfl- um. Frost 5 — 8 stig. TILKYNNINGAR Tönabær — Tónabær. Félags- starf eldri borgara í Tónabæ fellur niður frá 6. jan til mánu- dagsins 19. jan., vegna kynningar starfsemi æskulýðsfélaganna í Reykjavík, sem þar verður. Ásprestakall. Barnaskemmtun kvenfélags Ásprestakalls verður í Laugarásbíói kl. 13.30 i dag, þrettándanum. SKEMMTISTAÐIR • Röðull. Hljómsveit Magnúsar Ingimarssonar, söngvarar Þuriður Sigurðardóttir, Pálmi Gunnars- son og Einar Hólm. Opiö til kl. 1. Sigtún. H.B.-kvintettinn ásamt Helgu Sigurþórs og Erlendi Svav arssyni leika og syngja. Dans- mærin Sascha Delamere skemmt ir. Opið til kl. 1. Hótel Saga. Skemmtikvöld. — Ragnar Bjarnason og hljómsveit leika. Ómar Ragnarsson og Karl Einarsson skemmta. Opið til kl. 1 Þórscafé. Sextett Ólafs Gauks ásamt Vilhjálmi leika og syngja. Glaumbær. Roof Tops leika frá kl. 9-1. Alþýðuhúsið. Ævintýri leikur frá kl. 9-12.30. HEILSUGÆZLA • SLYS: Slysavarðstofan 1 Borgarspítal- anum. Opin allan sólarhringinn. Aðeins móttaka slasaðra. Slmi 81212. SJÚKRABIFKEBE): Sími 11100 I Reykjavík og Kópa- vogi. Simi 51336 í Hafnarfirði. LÆKNIR: Læknavakt. Vaktlæknir er í síma 21230. Kvöld- og helgidagavarzla lækna hefst hvem virkan dag kl. 17 og stendur til kl. 8 að morgni, um helgar frá kl. 13 á laugardegi til kl. 8 á mánudagsmorgni, sími 2 12 30. I neyðartilfellum (ef ekki næst til heimilislæknis) er tekið á móti vitjanabeiðnum á skrifetofu læknafélaganna 1 síma 1 15 10 frá kl. 8—17 alla virka daga nema laugardaga frá kl. 8—13. Almennar upplýsingar um lækn isþjónustu í borginni em gefnar í símsvara Læknafélags Reykjavík ur, símj 1 88 88. Þökkum innilega auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför móður minnar, tengdamóöur minnar og ömmu okkar. SVÖVU JÓNSDÓTTUR Siguröur Halldórsson, Sigrún Magnúsdóttir og börn F>v -.maður minn ELÍAS BJARNASON fyrrverandi yfirkennari andaöist í Landspítalanum sunnudaginn 4. janúar. Pálína Elíasdóttir Bridge-fólk 3ja kvölda tvímenningskeppni Tvímenningskeppni (Barometer) TBK hefst fimmtu- dag 8. jan. kl. 8 stundvíslega í Domus Medica. Nokkur pláss laus. Þátttaka tilkynnist í síma 35156. .BBSffl

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.