Mosfellsblaðið - 01.02.2001, Qupperneq 6

Mosfellsblaðið - 01.02.2001, Qupperneq 6
Efllrlllsneftid með fjármálum sveltarfé- laga leltar upplýslnga Eftirlitsnefnd með fjármálum sveit- arfélaga hefur sent Mosfellsbæ bréf þar sem farið er á upplýsingar um þróun fjármála sveitarfégsins á árinu 2001. í bókun meirihlutans um þetta mál kemur fram að það hati legið fyr- ir „að ef takast á að einsetja grunn- skóla bæjarins innan tiltekins frests, getur Mosfellsbær ekki uppfyllt öll þessi viðmið á meðan á þeirri upp- byggingu stendur. Þetta mun breytast í framtíðinni. Bent er á að nýsam- þykkt fjárhagsáætlun bæjarsjóðs er í samræmi við áðursamþykkta þriggja ára áætlun sem eftirlitsnefndi hefur yfirfarið án athugasemda". Minnihlutinn lét bóka af þessu til- efni: „Sjálfstæðismenn vilja benda á að nýsamþykkt tjárhagsáætlun bæjar- ins er ekki í samræmi við áðursam- þykkta þriggja ára áætlun eins og haldið hefur verið fram í bókun meiri- hlutans. Ennfremur vilja Sjálfstæðismenn benda á að rekstur bæjarsjóðs á árinu 2001 fór verulega fram úr samþykktri áætlun þess árs eins og hún var kynnt fyrir efdrlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga." Hællur á reiðleiðum Hestamenn hafa komið að máli við blaðið og bent á ýmsar hættur á reið- leiðum í bænum. Tvær slfkar eru sýndar hér á myndum. Það er ótrúlegt skilningsleysi bæjaryfir- valda í göngu- og reiðleiða- málum að uppfylla ekki bet- ur þarfir fólks í þessum efn- um. Fólk biður alls ekki um neina árekstra hvert við ann- að, né að ganga vísvitandi á rétt eða öryggi annarra í þessum málefnum. Þessar ábendingar eru aðeins brot af vandamálum sem eru óleyst í þessum efnum. Útsýnisskilti staðsett milli göngnstígs og reiðleiðar við Leirvog. Hestamenn óttast slys ef hestur fer lít úr reiðstígnum af einhverjum ástœðum. Skiltið er úr málmi með hvassar bránir. Hér sést malbikaður göngu- stígur, sem lagður ergegn um reiðleið. Halli er á stígnum, liann er háll og hœttulegur hestum við aðstœður sem þessar, jafnvel í bleytu þó ekki sé ísing. Saga Mosfells- bæjar lcemur út á næstu árum Um árabil hefur staðið til að rita sögu Mosfellssveitar og Mos- fellsbæjar enda af mörgu að taka. Samningur um ritun sögunnar var undirritaður fyrir skemmstu og er áætlað að lokið verði við handrit fyrir l.júlíárið 2004. Þeir Bjarki Bjamason og Magnús Guðmundsson munu skrá söguna, en í samningunum er kveðið á um að verkið verði um 400 síður og taki til sögu bæjarins frá landnámi til vorra daga. Fyrir verkið fá þeir félagar heilar 9 milljónir sem greiðist á því 30 mánaða tímabili sem vinna á verkið. Mundi ogfélagar ísigurvímu. Ewópumót í handknattieik Gífurleg spenna var nieðal íslensku þjóðarinnar meðan Evrópuniótið í handknattleik fór frani og íslenska landsliðið gekk sína sigurgiingu. I Mosfellsbæ lögðu niargir leið sína á Aslák sveitakrá, þar sem er breið- tjald fyrir íþróttaviðburði sem þennan og var þar oft glatt á hjalla þessa daga og mikil spenna í lofti eins og niyndirnar bera með sér. Albert Rátsson bauð upp á kampavín í velgengni íslenska landsliðsins og hér er skálaðfyrir sigrum og ósigrum. Nokkrirframbjóðendur íprófkjöri Sjálfstœðisflokksins ogfleiri létu sig ekki vanta ogfylgdust með EM. MOSFELLS 6 BLAÐIÐ

x

Mosfellsblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mosfellsblaðið
https://timarit.is/publication/1

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.