Mosfellsblaðið - 01.02.2001, Qupperneq 8

Mosfellsblaðið - 01.02.2001, Qupperneq 8
Gróska hjá Leikfélagi Mosfellssveitar Leikfélag Mosfellssveitar vinnur um þessar mundir að uppfærslu Disneyævintýrsins Fríða og dýrið í leikstjóm Bjameyjar Lúðvíksdóttur. Þetta er að ræða margrómað ævin- týri um unga og bókhneigða stúlku sem býr hjá föður sínum. Ævintýrið gerist í litlum bæ og nærsveitum bæjarins. Uti í sveitinni er gríðarlega stór og mikill kastali sem hnepptur var í álög sökum hugsunarleysis prinsins sem þar bjó. Ibúar kastalans em fastir í álögum og húsbóndi þeirra er Dýrið. Ef Dýrið nær ekki að sýna ást og fá hana endurgoldna áður en hann nær að verða tuttugu og eins árs verður kastalinn og íbúar hans í álögum um aldur og ævi. Faðir Fríðu, gamall upfmningamaður tekst á hen- dur ferð til að kynna nýja uppfinningu. Ekki vill betur til en svo að hann villist og lendir í klóm Dýrsins. Allir sem fyrir augu Dýrsins koma eiga ekki afturkvæmt úr kastal- anum. Fríða leitar föður síns og finn- ur hann í kastalanum. Gaston nokkur, heimskulegur upp- skafningur sem allt þykist vita, ætlar að giftast Fríðu án þessa að hún hafi nokkuð um það að segja. En Fríða er aldeilis ekki tilbúin að kyngja hverju sem er. Margar bráðskemmtilegar persónur prýða sýninguna og er ekkert til spar- að varðandi búninga, lýsingu og sviðsmynd. Það sem prýðir sýning- unna ennfremur er frábær tónlistar- flutningur - en í sýningunni er lifandi tónlist. Utfærsla tónlistar og hljómsveitar- flutningurer í höndum Birgis Tryggvasonar og félaga. Sýningin er ekkert síður fyrir fullorðna en börn enda um skemmtilegan leik og söng að ræða. Fyrirhugað er að sýna um helgar tvær sýningar á dag. Frumsýning er fyrirhuguð 2 mars. Um 20 manns leika í sýningunni ásamt auk íjölda fólks er starfar við uppfærsluna. Leikfélag Mosfellssveitar kynnir um þessar mundir nýjung í leikhús- lífinu. Hægt er að gera svokallaðan leihússamning við Leikfélag Mos- fellsveitar þar sem fyrirtækjum og stofnunum gefst kostur á að semja um leiksýningar fyrir ýmsa minnihluta- hópa í þjóðfélaginu t.d. krabba- meinssjúk börn, hjartveik böm og langveik börn svo eitthvað sé minnst á. Kynning á verkefninu hefur farið fram í nokkrum stæiri fyrirtækjum við mjög góðar undirtektir. Frekari upplýsingar um leikhús- samninginn er hægt að fá hjá Leik- félagi Mosfellsveitar. Sínti: 566-7788. Tryggið ykkur miða í tíma. Mosfell á Sellossi Kiwanisklúhburinn Mosfell í Mosfellsbæ hélt nýlega sameiginlegan fund í Gesthúsum á Selfossi með klúbb- unum Búrfelli á Selfossi og Gullfossi ofan úr Hreppum. Þetta var hinn skemmtilegasti fundur og mikið rætt og skrafað, en ræðumaður kvöldsins var Guðni Agústsson, Iandbúnaðarráðherra. A myndinni má sjá Guðna ásamt eiginkonu hans, Margréti Hauksdóttur. Erfndi frá Leigjendasam- tökunum fellt Meirihluti bæjarstjórnar hafnaði erindi frá leigjendasamtökunum varðandi gjaldskrá húsaleigu. I bókun frá meirihlutanum segir að aðeins sé verið að miða við að leigugjald af fé- lagslegu húsnæði taki breytingum samkvæmt vísitölu neysluverðs eða lánskjaravísitölu. Með þessu sé Mos- fellsbær aðeins að gera fyrirkomulag hækkana á þann hátt sem almennt gerist á markaðnum. Hákon Bjömsson fulltrúi Sjálfstæð- ismanna í bæjarstjórn lagði þá til í ljósi óska forystu verkalýðshreyfing- arinnar um að draga úr eða afturkalla gjaldskrárhækkanir til að verðbólgu- markmið kjarasamninga náist, að bæjarstjóm legði sitt að mörkum og samþykkti að afnema allar vísitölu- tengingar í gjaldskrám bæjarins. Þessi tillaga var felld. Hús undlr félags- starf aldraðra? Upp hefur komið sú hugmynd að byggja hús yfir félagsstarf aldr- aðra hér í bæ. Lagt hefur verið til að þetta myndi hús muni rísa við Lækjar- hlíð í nánum tengslum við Lágafells- skóla. Hafa menn hugsað sér húsið sem félagsmiðstöð fyrir bæði eldri borgara hér í bæ og nemendur Lága- fellsskólans. Þannig mætti hugsa sér að koma þama upp sérgreinastofum s.s. handavinnustofu, tölvuveri og matreiðslustofu sem gætu nýst félags- staifinu og vaxandi námsskeiðahaldi. Þá gæti þetta húnæði orðið miðstöð fullorðinsfræðslu hér í bænum. Tillagan var rædd á síðasta bæjar- stjórnarfundi og lagt að leitað yrði umsagnar fræðslunefndar og for- stöðumanns fræðslu-og menningar- sviðs. Sjálfstæðismenn lögðu fram breyt- ingartillögu þar sem þeir fóm fram á að kannaður yrði frekar sá möguleiki að gera ráð fyrir fjölnota rými sem nýta megi fyrir félagsstarf aldraðra í menningarmiðstöð sem fyrirhuguð er á Hlégarðssvæðinu. Þessi tillaga Sjálfstæðismanna er í samræmi við vilja meirihluta aldraðra hér í bæ sem tóku þátt í könnun um framtíð félagsstarfs aldraðra. Ágætu Mosfellingar. Bestu þakkirjyrir það brautargengi sem þið veittuð mér í prófkjöri sjálfstæðismanna þann. 9.Jeb. s.l. Ég mun hér eftir sem hingað til vinna þau störfsem mér verða falin afjestu, krafti og heilindum. í mínum huga em þetta Jyrstu skrefin, næstu skref tökum við saman semfiest til þess að ná því markmiði að sjájstæðismenn sitji við stjómvölinn eftir 25. maí n.k. Bestu kveðjur, Ragnheiður Rikharðsdóttir Kís reiðhöll I hesthúsahverfinu á Varmárbökkum? Hestamannafélagið Hörður hefur haft fmmkvæði að því að reyna að fá reista reiðhöll á athafnasvæði hestamanna hér í bænum. Jafnframt hafa þeir farið fram á að hesthúsa- hverfið verði stækkað til vesturs með fimm nýjum hesthúsalengjum. Gert er ráð fyrir að reiðhöllin sem á að verða um 2400 fm rísi á miðju at- hafnasvæðinu. Tillaga um þessar breytingar liggur nú fyrir skipulags- og byggingamefnd Mosfellsbæjar. Harðarmenn vonast til að Mosfells- bær konti að uppbyggingu reiðhallar- innar en félagið ætlar þó að fjármagna framkvæmdina að mestu leyli. Rekst- ur reiðhallarinnar verður í höndum fé- lagsins. Aætlaður byggingarkostnaður er á bilinu 60-65 milljónir króna. MOSFELLS 8 BLAÐIÐ

x

Mosfellsblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mosfellsblaðið
https://timarit.is/publication/1

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.