Mosfellsblaðið - 01.02.2001, Page 11

Mosfellsblaðið - 01.02.2001, Page 11
GLEYHDI GÖiXGI stíga, þökuleggja og meira að segja gróður- setja tré út um allt. Þætti mér gaman að vita á hvaða fjárhags- og framkvæmdaáætl- un Höfðahverfið hefur verið á fyrst göngu- stígar í Reykjahverfi eru ekki komnir á áætl- un. Með von um svar Ibúi í Krókabyggð, Mosfellsbœ Þingvallavatn - Yiövönm Jafn- tefli gegn Fram ann 10. febrúar síðastliðinn hófst keppni í Esso-deildinni að nýju eftir hlé sem gert var vegna Evrópukeppni landsliða í Svíþjóð. Þrátt fyrir góðan tíma sem liðið hefur haft til að undir- búa sig, þá hefur sá dans sem menn vildu, ekki verið á rósum. Málshátturinn segir, leynt mein skal leynt bera, en það fer ekki milli mála að margir sterkir leik- menn hafa verið meiddir upp á síðkastið og það hefur veikt leik liðsins. Má þar nefna Þorkel Guð- brandsson sem reif vöðva í innan- verðu læri, Bjarki Sig. fór í spegl- un í janúar vegna hnémeiðsla sem tóku sig upp hjá honum, Hjörtur Amarsson þurfti einnig að leita á náðir lækna vegna meiðsla sinna í hné. Einnig má hér nefna Magn- ús Már og Reyni markvörð en þeir hafa báðir átt við meiðsli að stríða. Afturelding og Fram áttust við fyrir skömmu að Varmá í Mos- fellsbæ. Leikurinn var spennandi lengi vel en þó er óhætt að segja að heimamenn hafi verið betri lengst af í frekar slökum leik. Magnús Már stóð sig afbragsvel sem og Reynir Reynisson mark- vörður, en hann bjargaði liðinu á köflum meistaralega vel. Lokamínútur leiksins voru spenn- andi, einn leikmaður Fram fékk m.a. að líta rauðaspjaldið en það dugði ekki leikmönnum Aftureld- ingar og endaði leikurinn 23-23. Páll Þórólfsson á förum? Þær fréttir um að Páll Þórólfs- son muni yfirgefa herbúðir Aftur- eldingar í vor breiðast nú eins og eldur í sinum um íþróttaheiminn. Sagt er að Grótta-KR hafí haft samband við hann en eins og margir vita þá býr Páll ásamt fjöldskyldu sinni í vesturbænum. Páll hefur ekki gefið neina form- lega yfirlýsingu um málið en óvíst er hvort hann leikur með Aftureldingu á næsta leiktímabili. Meðfylgjandi mynd er tekin á lóð- armörkum Krókabyggðar 4-16 og Leikskólans Reykjakot sem er við Krókabyggð 2. Þessi göngustígur er svo gleymdur að hann er ekki einu sinni á fjárhags- áætlun hjá Mosfellsbæ! Eg er íbúi í Krókabyggð og húsin hér eru öll byggð á árunum í kringum 1990 og finnst mér frekar undarlegt að þessi eini göngustígur sem liggur að lóðunum okkar sé ekki á fjárhags- áætlun. Þegar ég hringdi á bæjarskrifstof- umar og spurðist fyrir um þetta var mér fyrst tjáð að byggingaraðilinn að húsunum ætti að ganga frá þessu, en ég sætti mig nú ekki alveg við þau svör þar sem þetta er lóð Mosfellsbæj- ar en ekki okkar íbúðareigenda hér, svo þá var mér bent á að hringja í Ahaldahúsið og tala við þann sem þar sæi um þessi mál og viðkomandi tjáði mér það að þessi göngustígur væri ekki á áætlun ársins 2001 en mögu- leiki á því að hann væri á áætlun 2002 en var samt ekki viss. Eg á frekar erfltt með að sætta mig við þetta þar sem maður keyrir hér um sveitina og þá einna helst ef maður fer í nýjasta hverfíð, Höfðahverfi, og þar er búið að gera gangstéttar, göngu- Isalög á Þingvallavatni hafa verið furðuleg þennan vetur, ís festir ekki svo heitið geti. Vatnið hefur lagt tvis- var en rifið af aftur eftir fáa daga. Vatnið hefur ekki náð að kólna í eðli- legt horf vegna hita í vetur, ennfremur er ekki vitneskja um heita vatnið frá Nesjavöllum, sem rennur niður í hraunið, hvar það kemur í Þingvalla- vatn og hvaða áhrif það hefur á hita- stig vatnsins. Það þótti því óvarlegt þegar sýnt var í sjónvarpi er Omar Ragnarsson lend á flugvél sinni á Þingvallavatni, en ísinn var farinn tveimur dögum seinna. Þó ís sé yfir eru víða vakir og vatnið því stórhættulegt yfirferðar þennan vetur. Séra Heimir Steinsson sendi oft viðvörun í útvarp um hættulegan ís meðan hans naut við, en nú eru Þing- vellir enn í eyði og enginn prestur. - S.l. haust var fellt í atkvæðagreiðslu sameining Þingvallahrepps við Grafn- ing og Grímsnes þar sem m.a. fóru saman hagsmunir um sameiginlegan skóla, en nú stendur fyrir dyrum að sameinast Laugardalshreppi og Bisk- upstungnahreppi, sem landfræðilega gengur ekki saman, sagði Jóhann Jónsson í Mjóanesi í viðtali við Mos- fellsblaðið. Tíundi behhur í bíiaþrítum Fyrstu helgina í febrúar, frá fimmtu- degi til sunnudagskvölds, tóku nem- endur úr 10. bekk Varmárskóla að sér að þvo og bóna bfia fyrir bæjarbúa. Matthí- as Ottósson hjá Mottó ehf hjálpaði þeim á allar lundir, lagði fram allt efni, tæki og aðstöðu í tveimur húsum, Flugumýri 24 þar sem fram fór tjöruhreinsun og þvott- ur og Flugumýri 14, þar sem ryksugað var og bónað. Einnig gaf Matthías þeim pitsur hvem dag. Krakkamir gátu tekið fyrir um 10 bfia í einu í „bónstöðinni" en það er nýtt iðn- aðarhúsnæði. Þar var unnið af krafti við dúndrandi diskómúsík og þau afgreiddu um helgina 87 bfla. Bæjarbúar tóku vel í þetta ágæta framtak hjá nemendunum, en þeir em að safna fyrir útskriftarferð við skólalok í vor. Hér er bónfólkið, yfir 20 talsins að taka við kennslubíl í bón. Stœkkun sund- laugarinnar Tækninefnd bæjarins hefur lagt það til við bæjarstjóm að samið verði við tvær til þrjár arkitektastofur að koma nteð tillögur um breytingar á sund- lauginn að Varmá og hönnun á for- byggingu við íþróttamiðstöð sam- kvæmt fyrirliggjandi forsögn um mál- ið. Drög að forsögn um endurbætur á Varmárlaug hafa þegar verið sam- þykktar af íþrótta-og tómstundanefnd. DÚKLAGNINGAMEIS1ARINN ehf. 40-60 % afsláttur aflinoleum dúkum henta vel á heimili eða skrifstofur ATH! Takmarkað magn - hafið samband Guðmundur gsm 821 3400 Magnús gsm 821 3401 MOSFELLSÍ /BLAÐIÐ

x

Mosfellsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mosfellsblaðið
https://timarit.is/publication/1

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.