Vísir - 01.04.1970, Qupperneq 2
Ný'jasta hugmynd
dr. Barnards:
Heila-
flutningur
er fjar-
stæða
— segja sérfræðingar
Þegar dr. Christian Bamard á
sínum tíma gerði kunnugt, að
hann hygðist reyna að skipta
um hjarta í lifandi manni, brugð
ust menn misjafnlega við.
Og sumir læknar fordæmdu þá
tilraun og kölluðu hana glæpsam
lega o. fl. á meðan frumrannsókn
ir væru ekki lengra komnar í
þeim efnum.
Enn á ný hefur dr. Bamard orð
ið til þess að espa vísindamenn
upp með því að ummæli hafa
verið birt í blöðum, þar sem haft
er eftir honum, að hann telji að
senn verði skipt um heila í mönn-
um.
„Þetta er brjáiæði“, sagöi kunn
ur danskur heilaskurðlæknir,
John Riishede hjá Rigshospitalet,
þegar danskir blaðamenn leituðu
álits hans á ummælum dr. Barn-
ards, sem birtust í „Daily Parisi
en.“ „Þetta er aðeins hugarfóst-
ur duglegs skurðlæknis, sem orö-
inn er hungraður í umtal og
frægðarljóma", sagði danski lækn
irinn, og svipuð orð viðhafði
taugasérfræðingurinn Poul Hede-
gaard, hjá Bispebjerg Hospital.
Dr. Christian Bamard, sem nú
er á ferðalagi um Evrópu, vegna
útgáfu bókar hans „Ævi mín“,
hafði sagt:
„Eitt sinn sögðu vísindin, að
ðmögulegt væri að gefa mann-
eskju nýtt hjarta. — Það hefur
okkur samt tekizt, og því skyld-
um við þá ekki geta flutt heila á
milli manna?"
Hinn frægi hjartasérfræðingur
sagði þetta nánast sem uppá-
stungu eða varpaði því fram sem
hugmynd, en meira þurfti ekki
til að blöðin blésu þetta upp, og
viðbrögðin létu ekki á sér standa.
„Þetta er óframkvæmanlegt",
sögðu læknar. „Eigi að flytja
heila úr manni yfir í annan, þarf
að deyða heilagjafann aðeins
augnabliki áður en aðgerðin yrði
gerð. svo að heilinn væri starf-
andi þegar hann væri fluttur á
milli. Til slikra verka munum við
aldrei grípa."
„Vísindin hafa ekki til að bera
þekkingu til þess að tengja sam
an mænuna, ef hún rofnar ein-
hvers staðar. Því verður bezt lýst
Hollywood kallar á hana, en Paris á eiginmanninn
Dr. Bamard og kona hans eru nú á ferðalagi um
Evrópu, vegna útgáfu bókar hans, „Ævi mín“.
Ingrid Bergman er í skilnaðar-
1 hugleiðingum, segja þeir sem nán
ast til hennar þekkja, og aðalmál
gagn stjörnuborgarinnar Holly-
wood Reporter, tekur undir þenn
an orðróm.
Ástæðan ku vera Hollywood,
borgin, sem aila seiðir til sín, er
haldnir eru leikarabakteríunni.
Hollywood hefur gripið Ingrid
Bergman tökum eins og svo
fjöldamarga aðra, og hana lang-
ar til að setjast þar að, en eigin
maður hennar, hinn sænski leik
húsmaður, Lars Schmidt, sem
undanfarið hefur starfað í París,
getur starfa sfns vegna ekki flutt.
Kunnugir telja, að það hafi verið
kvikmyndin „Kaktusblómið",
sem hlaut afbragðsdóma í fyrra
og þá einkum leikur Ingrid Berg
man í henni, sé upphafið að þess-
um hugleiðingum leikkonunnar.
Þegar Ingrid Bergman sneri
aftur til Hollywood eftir 20 ára
fjarveru vegna andúðar almenn-
ings á hjónabandi hennar og Ro-
berto Rossellini, var henni fagnað
sem þjóðhetju, og meðan á dvöl
hennar stóð þar, var „Kaktus-
blómið" kvikmyndað og einnig
önnur mynd „Gönguferð í vorrign
ingu“, sem enn hefur ekki verið
frumsýnd.
„Kaktusblómið" vakti á nýjan
leik upp frægð Bergmanstjöm-
unnar og henni líkaði vel við
Hollywood, enda lofaði hún vin-
um sínum, þegar hún fór, að
koma aftur og leika í fleiri mynd
um.
Lars Schmidt er þriðji eigin-
maður Ingrid Bergman, en á
fjórða tug aldarinnar giftist hún
lækninum Aron Petter Lind-
ström, en þau skildu svo 1950 og
hún giftist Rossellini, eins og
frægt varð. 1958 giftist hún svo
Lars, en skilnaðurinn vofir yfir
þeim, þar eð framavonir frúarinn
ar [ Hollywood spilla fyrir. Færi
hún til Hollywood og tæki til
við kvikmyndaleik af fullum
krafti, mundu samverustundir
hjónanna verða næsta fáar. Þau
mundu hreinlega aldrei sjást —
og þetta sjá þau bæði fyrir.
með þvi að nefna augun sem
dæmi, en þau eru tengd heilanum
með tugþúsundum af taugaþráð-
um, sem við gætum aldrei tengt
saman. Þannig er heilinn allur —
eitt samsafn taugaþráða.
Að setja heila í mann væri
það sama og setja síma í hús, en
setja hann svo ekki í samband
við umheiminn.“
Sumir læknar, er voru spurðir á-
lits á þessum möguleika, sem
dr. Barnard impraði á, töldu að
læknirinn hefði einungis látiö sér
þetta um munn fara til þess að
halda sjálfum sér áfram í sviðs-
ljósinu og afla þeirri baráttu, sem
hann hvagst helga sig í framtíð-
inni, meira brautargengis, en dr.
Barnard hefur látið að* því liggja,
að framvegis muni hann láta út-
rýmingu kynþáttamisréttis meira
til sín taka.
„En heilaskipti! Algjör fjar-
stæða“, segja sérffæðingar.
INGRID BERGMAN
1 SKILNAÐI?