Vísir - 01.04.1970, Side 16
Hin heimsfrægu hjónakorn John og Yoko hjúfra sig sarnan, svo
að ljósmyndari Vísis nái góöri mynd af þeim — síðan var Yoko
farin að vörmu spori út í bæ að kaupa skautbúning.
Allir textar við kvik-
myndir gerðir hér heima
Nýtt fyrirtæki getur sparað 10-12 millj. kr. i gjald-
eyri á ári hverju— Kvikmyndahúsin fá betri bjónustu
Nýtt fyrirtæki mun með haust-
inu taka við allri gerð á textum
með kvikmyndum kvikmynda-
húsanna í Reykjavík. Til þessa
hafa textarnir verið gerðir í Hol-
landi, Danmörku, Noregi og enn
víðar um lönd, og hefur þessu
fylgt aukinn kostnaður fyrir
húsin, en segja má, að nú orðið
séu alfar erlendar kvikmyndir
með íslenzkum textum.
Forríðamenn fyrirtækisins Texta
hf. skýröu blaöamanni Vísis frá
að þeir vonuðust ennfremur til
aö fá verkefni frá Bandaríkjunum
til að vinna hér, enda gætu þeir
boðið lægra verð á vinnu sinni en
fyrirtæki bæöi í Evrópu og Ame-
ríku.
Þeir kváöust og vonást til að
geta boðið kvikmyndahúsunum hér
heima lægra verð á textasetningu,
og einnig betrj vinnu. Eigendur
kvikmyndahúsanna eru að vonum
ánægðir með þessa nýju þjónustu,
ekki sizt aö nú geta þýðendur
fylgzt með verkinu, sem ekki hefur
áður verið hægt, en er nauösynlegt
að hægt sé að gera.
Sænsk tæki verða flutt inn í
sumar og kemur sérfræöingur með
og vinnur með starfsmönnum
Texta hf. í Síöumúla 14 til að
byrja meö. Tækin kosta 5 milljón-
ir króna, en kostnaður kvikmynda
húsanng á ári hveriu mun vera
10—12 míiljónir við textasetningu
á ca. 250 — 270 myndum, þannig að
fyrirtækið kemur til með að spara
drjúgan gjaldeyri. —JBP—
Miðvikudagur 1. apríl 1970.
Námskeið
haldin fyrir
stjórnendur
fyrirtækja
RÍKISSTJÓRNIN hefur ákveðiö
nð koma á föstu námskeiða-
haldi á vegum iðnaðarráðuneyt-
isins í stjórnun fyrirtækja, sem
verður utan hins almenna skóla-
kerfis.
Ætlunin með fræöslustarfsem-
inni er að leysa úr brýnni þörf og
gefa starfandi og veröandi stjórn-
endum fyrirtækja kost á að afla
r.ér hagnýtrar og fræðilegrar þekk |
ingar um stjórnun og fyrirtækja- |
rekstur, en viðurkennt er, að á *
sviði stjórnunar fyrirtækja sé hér
mörgu ábóiavant.
Með aðiid íslands að EFTA hef-
ur m.a. umræddu máli verið hrund
ið í framkvæmd.
Iðnaöarráðherra hefur faliö þrem
ur mönnum aö veita forstöðu skipu
iagsbundnum stjórnunarnámskeið-
um. Formaður nefndarinnar er
Jakob Gíslason form. Stjórnunar
félags Islands en meðstjórnendur
Sveinn Bjömsson framkvæmda-
stjóri Iðnaðarmálastofnunar ís-
lands og Árnj Vilhjálmsson pró-
fessor í viðskiptadeild Háskóla Is-
lands.
Námskeiðið verður skipulagt sem
röð sjö sjálfstæðra námskeiöa, er
til samans mynda eina heild, 160
kennslustundir, en jafnframt er þó
unnt að taka þátt í hverju nám-
skeiði út af fyrir sig.
Áformað er að námskeiðahaldið
hefjist að áliðnu þessu ári. Stefnt
er að því að geta haldið einstök
námskeið utan Reykjavíkur eftir
þörfum. -SB-
Landsspítala-
söfnunin urðin
um 6 niiiij. kr.
Landspítalasöfnuninni, sem nem
ur nú sex milljónum króna berast
enn framlög. Fyrir skömmu af-
henti Kvenréttindafélag íslands
söfnuninni 40 þúsund krónur, sem
var ágóði af sölu blaðsins 19. júní
og auk þess framlag nokkurra
kvenna. -SB-
— sagdi erkibitillinn John Lennon 1 viðtali
við Visi i morgun
9 „Ég vissi varla hvaðan á
mig stóð veðrið, þegar
mér barst í hendur í fyrradag
símskeyti frá John Lennon,
þess efnis, að hann kæmi til
Reykjavíkur miðvikudagsnótt
ina 31. marz, og ég vinsam-
legast beðinn um að mæta á
Hótel Sögu til viðræðna við
hann, um hugsanlega sam-
vinnu við gerð söngleiks.“
Það var hinn landskunni gít-
arleilcari og lagasmiður Gunn
ar Þórðarson í Trúbroti, sem
þetta mælti á meðan við bið-
um eftir að John léti sjá sig
í Grillinu á Sögu um klukk-
an tíu í morgun, en þar höfðu
þeir Gunnar og hann mælt
sér mót.
John hafði, að því er okkur
var sagt í anddyri hótelsins,
farið fyrir um það bil klukku-
tíma síðan í stutta gönguferð
um nágrennið en var væntan-
legur aftur á hverri stundu. Á
meðan við biðum fékk ég Gunn-
ar til að segja mér frá því,
hvernig honum ha-fði tekizt aö
stofna til kynna við hinn heims-
fræga bítil.
„Það byrjaði allt á því, að ég
hitti Paul McCartney á skemmti-
stað í London er ég var stadd-
ur þar í borg við upptöku ásamt
Hljómum, sem þá voru og hétu.
Það urðu aðeins stuttar viðræð-
ur okkar á railli, en þó
langar til þess að ég gat skýrt
honum í stórum dráttum frá
hugmynd minni að söngleik, sem
ég gekk — og geng — með i
maganum. Ég hélt satt að segja,
að þetta samtal mitt við Paul
mundj engan ávöxt bera, enda
ekkj við því að búast, en það
ótrúlega skeði þó, að Tony Bran-
well, sérlegur erindreki Apple-
fyrirtækis Beatles, kom að máli
við mig í fyrra, er hann var hér
staddur í boðj Karnabæjar-
skemmtunarinnar í Austurbæj-
arbíói, og tjáði hann mér, að
John Lennon hefði fengið að
heyra hugmynd mína að söng-
leiknum og hefði hann fullan
hug á að setja sig í samband við
við
uppbyggingu verksins. Síðan
þetta skeði er liðið heilt ár og
ég var orðinn úrkula vonar um
að heyra frá honum, þegar mér
barst skeytið frá honum. —
Ég hef gert ráðstafanir til að
fá Hálogalandsbraggann á leigu
um tíma, til að við John getum
byrjað að fikra okkur áfram með
verkið, en það er hugmynd hans
að vinna söngleikin á sviðj frá
byrjun og þar er ég honum fylli-
lega sammála, því þau vinnu-
brögð setja mann strax í miklu
sterkara samband við endanlegt
form leiksins, Við verðum að
sjálfsögðu að prófa margt fólk,
bæði innlent og erjent, áður en
við getum farið af stað meö
æfingar, en þess ætti samt ekki
að verða langt að bíða, að þær
geti hafizt af fullum krafti, því
John er mikill vinnuforkur, og
vill láta hlutina ganga hratt
fyrir sig, t.d. vill hann að við
förum strax eftir hádegi að líta
á Hálogalandsbraggann og skipu
leggja þær breytingar sem gera
þarf á salarkynnum áður en
hægt er að fara þar inn með
æfingar."
Rétt í þessu gekk John í sal-
inn ásamt lífverði, sem saman-
stóð af þrem prúðbúnum, eldri
mönnum, en sjálfur var John
í bláum gallabuxum og £ svartri
æfingatreyju. Hann gekk rakleitt
að borðinu til okkar, er hann
hafði komiö auga á Gunnar og
settist án formlegrar kynninar
— lét eitt stutt ,,Hello“ nægja,
og gaf lífvörðum slnum um leiö
bendingu um að setjast við
næsta borð.
„Ég er að koma úr stuttri
gönguferð,“ sagði hann og
kveikti sér í sígarettu. „Ég fæ
mér alltaf morgungöngur þegar
ég mögulega get, sérstaklega ef
ég er í framandi umhverfi. Þetta
er mjög falleg borg sem þið
eigið, en mér finnst ákaflega
fyndið hvað öll húsin eru lítil.
Ég held ég hafi verið að komast
niður á melódíu í nýtt lag undir
m>—> 10. siöa
John og Gunnar skeggræða fyrirhugaða uppfærslu á söngleiknum
íjfverðirnir þrír sitja við næsta borð. — Ljósm. Bjarnleifur.
„Herra hvíí skyrta og bindi“