Vísir - 07.07.1970, Blaðsíða 1
Jörð til sölu fyrir 20 milljónir
00. ásg. — firrðjudagur 7.
Eins og
— 150. tbl.
— Svimandi verðlag á laxveiðiréttindum og sumarbústaðalandi
■ íslendingar búa í stóru
Iandi, en þó virðist eitthvað
farið að þrengja að okkur a.
m. k. hér í nágrenni Reykja-
víkur. Verð á sumarbústaða-
löndum hækkar sífellt frá
ári til árs og mun komið í
100 þús. krónur hektarinn í
nágrenni Reykjavíkur á góð-
um stöðum. Þá er verð á lax-
veiðiréttindum orðið svim-
hátt, enda laxakílóið komið
síldarhrota eystra
í uppundir 400 kr. og stöngin
í sæmilegri á f 3—4000 kr.
Með ofangreint í huga er ekki
að furða þó að eigandi jarðar-
innar Alviðru undir Ingólfsfjalli
telji sig geta verðlagt jörð sfna
nokkuð hressilega. Jörðin er nú
til sölu og mun verða verðlögð
í 20 milljónir króna, enda hefur
hún bæði sumarbústaðaland á-
gætt og 30 — 40% af veiðirétt-
inum i Soginu, Sumarbústaða-
landið er í Skógtanga, sem er
skóglendið suður af Þrasta-
skógi. — VJ ^
— unnið um helgar og til 11 á kv'óldin — Mesta fiskiri um áraraðir
Þessa dagana er engu líkara
en sfldarvertíð standi yfir á
Austfjörðum. í gærkvöldi var
unnið fram til klukkan ellefu og
tólf á flestum eða öllum Aust-
fjarðahöfnum við verkun fisks.
Sfðustu tvær vikurnar hefur
verið unnið fram til klukkan
ellefu á hverju kvöldi í frysti-
húsunum á Seyðisfirði og Nes-
kaupstað. Að sögn Jóhanns K.
Sigurðssonar, framkvæmda-
stjóra Síldarvinnslunnar á Nes-
kaupstað hefur þar verið eitt-
hvert mesta fiskirí, sem kekkzt
hefur í áraraðir.
Mikil vinna hefur einnig verið
á Eskifiröi, Fáskrúðsfirði, Stöðvar
firði, Djúpavogi, Breiðdalsvík og á
Höfn í Homafirði. Karlamir hafa
dregið allt að tveimur skippundum
á færi yfir daginn, en fiskvinnslan
þar eystra byggist víða mikið á
trillufiski.
Togbátar hafa fengið mjög góð-
an afla úti fyrir SV-landi, eða um
og yfir 100 tonn á fimm dögum eða
svo. Þrír bátar eru gerðir út á tog
veiðar frá Neskaupsstað og kom
einn þeirra Börkur inn í morgun
með 80 tonn. Einn bátur er gerður
út á grálúðuveiðar frá Norðfirði
og kom hann inn f gær með 60
tonn eftir sex lagnir.
Humarveiði hefur verið góð úti
af Hornafirði, en nokkrir Aust-
fjarðabátar stunda þar veiðar og
ellefu humarbátar hafa lagt upp
á Hornafirði.
Vinnur nú hver sem vettlingi get
ur valdið í Austfjarðaplássunum,
um helgar og fram á kvöld, og
sums staðar er aökomufólk komið
og setzt að í gömlu síldar„brögg-
unum“ til þess að vinna í fiski.
I - JH
Talsverðar lóðningar 60
mílur út af Langanesi
— Sennilega kolmunni — Norðmenn með 3
kolmunnaleitarskip eystra -r- Sild úr Norður-
sjó til Djúpavogs i dag
Norskur grálúðuveiðari sem
kom inn til Seyöisfjarðar í gær
sagöi frá taisveröum lóðningum,
sem hann hefði orðið var við um
60 mílur SSA af Langanesi. LóÖn-
ingarnar hefðu veriö á 15 faöma
dýpi og mikill fugl yfir.
Að líkindum mun hér hafa verið
um kolmunna að ræða, því að leit-
arskipin sem hafa verið úti af
Austurlandi, bæði norsk og íslenzka
leitarskipið Árni Friðriksson hafa
ekkj orðið vör við neina síld, en
hins vegár talsverðar dreifðir
af kolmunna.
Þrjú lítil norsk skip, sem leita
kolmunna austur af landinu komu
Bretar á barmi
ofdrykkju
— Sjá bls. 8
einnig inn til Seyðisfjarðar nú á
dögunum, Ytterstad, Borgarsker og
Merkantor. Öll áherzla gr nú lögð
á að finna kolmunnann, þar sem síld
in virðist ekki ætla að verða til
mikilla fanga í sumar.
Leitarskipið Árnj Friðriksson hef
ur að undanförnu verið á hrygning-
arsvæði sunnanlandssildarinnar
milli Hornafjarðar og Ingólfshöfða,
og sagðj Jakob Jakobsson að þar
hefði orðið vart við talsvert af síld
á leið þangað til þess að hrygna.
Skipið mun nú halda aftur austur
fyrir land og kanna þar svæðið úti
fyrir.
Margir bátar eru sem kunnugt er
{ Norðursjó við síldveiðar og einn
þeirra var í dag væntanlegur meö
síld í 1200 kössum til Djúpavogs,
þar sem allar konur { plássinu
verða nú kallaðar í síld í dag til
þess að salta. Hér er um að ræða
um 40 tonn sem söltuð verða fyrir
Finnlandsmarkað. — JH
KONA
LOKAST
INNI Á
SÖGU
— Braut rúðu til þess
að komast út klukkan
hálf fjögur
Þaö var orðið ósköp tómlegt {
veiziusöiunum, þegar ung, ein-
mana kona bjóst tii brottferðar af
Sögu í gærkvöldi, eöa 'i nótt öllu
heldur, engin birta í salnum nema
örlítil skíma af bjartri nótt gegn-
um gluggatjöidin, gestirnir farnir,
hljóöfærin þögnuö og þjónarnir sá-
ust ekki einu sinni.
Einhverra hluta vegna varð
þessi eini gestur viðskila við sam
kvæmið í húsinu um stundarsakir
og áttaði sig ekki á lokunartíman-
um. Varð henni að vonum bilt
við, þegar hún vaknaði ein 1 þess-
um stóru tómu sölum. Hún fór
niður í anddyrið og barði þar á
dyr til þess að komast út. Á end
anum braut hún rúðuna og skarst
við það á hendi, en þá loks varð
einhver var við hana. Lögreglan
kom á staðinn, en konan var flutt
á slysavarðstofuna. Þá átti klukk
an skammt eftir í fjögur. — JH
np • * •
Iveir goðir
• Tveir góöir á Laugardals-
vellinum í gær, Jorma
Kinnunen, finnski heimsmethaf-
inn í spjótkasti, og Jóel Sigurðs
son (til hægri) Islandsmethafinn
i greininni. Kinnunen hefur kast
að 92,70 m en í kuldanum í gær
kastaöi hann spjótinu 10 m
styttra, en þó var það stór-
glæsileg sjón, aö sjá spjótið
svifa vel yfir 80 m. — Met Jó-
els er elzta íslandsmctið, 66,99
m, sett 1949, og hefur ekki ver
ið ógnaö ennþá. Og Jóel heföi
sigrað írann í gær og veitt hin-
um — sema Kinnunen — harða
keppni með þeim árangri, sem
hann náöi hér á árum áöur. —
Sjá íþróttir bls. 4 og 5.
Saigonhermaður skað-
brennist / Krísuvík
— Engar hættumerkingar á staðnum, en
Þorvaldur Guðmundsson hefur boðið Hafnar-
fjarðarbæ girðingarefni ókeypis
Honum fannst það hálf
súrt að slasa sig í hinni frið-
sömu náttúru, bandaríska
ferðamanninum, sem skað-
brenndi sig á báðum fótum
I Krísuvík í gær. Fyrr um dag
inn hafði hann verið að prísa
sig sælan fyrir að vera ný
sloppinn úr hernum í Saigon
i Víetnam, þar sem hann
hafði dvalið við litla hrifn-
ingu í eitt ár.
Bandaríski ferðamaðurinn
brenndist, þegar hann steig ofan
í hver með báða fættir, en eng-
ar hættumerkingar eru á þessu
fjölsóttasta hverasvæði lands-
ins. — Við erum orönir lang-
þreyttir á þvi að hafa engar
viðvaranir né girðingar á þessu
svæði, sagði Kristján Jónsson
í Ferðakynningu í viðtali við
Vísi í morgun. Hafnarfjarðar-
bær, sem hefur umráðarétt yfir
þessu svæði hefur ekk{ fengizt
til að gera neitt, jafnvel ekki,
þó að Þorvaldur Guðmimtís-
son forstjóri Hótel Holts hafi
boðizt til þess aö gefa bænum
girðingarefni, ef hann vildi
setja girðingar upp.
Ég geri mér fyllilega ljóst, að
ekkj er hægt að giröa af alla
hveri landsins, en það ætti að
vera hægt að girða af fjölsótt-
ustu hverasvæðin eða koma þar
upp aðvörunum, sagði Kristján.
— VJ