Vísir - 07.07.1970, Blaðsíða 2

Vísir - 07.07.1970, Blaðsíða 2
HVlTA TJALDINU 1 síðasta mánuði var frumsýncH kvikmynd er verið hefur mjögj umtöluð og beðið eftir með 6-/ þreyju. Það er myndin „Myra^ Breckinridge.“ Er kvikmyndahúsið er myndini var frumsýnd í, opnaði, hafði þegí ar safnazt fjölmennur hópur þart fyrir framan og beiö stjömu^ kvölí^sins. Og stjarna kvöldsins^ var aÁþessu sinni ekki sú er að-(| alhlutvfc-kiö lék { myndinni, Raqu'* el Welcn, heldur hin sjötuga Maeí West. 60 lögreglumenn þurfti til aö( halda lýðnum frá er leikkonank kom til kvikmyndahússins, og(j margir reyndu aö grípa í föt hennV ar, éinkum varð hún að verja( sinn langa silfurref fyrir fingraÁ löngum aðdáendum. Eftir að Mae( West var komin inn í húsið koml aðaHeikkona myndarinnar Raqu-( él, en fáir höföu áhuga á að eltaí hana, hvað þá að svipta hanajj klæðum. aaaoDDDODQ 1 bænum Orune, á SardiníuJ fæddist fyrir skömmu bam eri nefnt var Maria Antonietta CampN ana. Stúlka þessi er fimmta bam; Ceciliu Campana og útlægs eigjj inmanns hennar, Giuseppe Camp) ana. ' Giuseppe hefir verið efstur ál ttsta eftirlýstra manna á SardiníuL en hann flýði til fjalla fyrir 5 ár-( um eftir að fjárhirðir einn hafðik verið drepinn. Yfirvöki bjóða( fram V/2 milljón fsl. króna fyrirk) upplýsingar er leiði til handtöku Giuseppe. Maria litla er þriðja' bam Campana-hjónanna síðan hann flúði til fjalla. Ættingjar1 hans hafa komið upp merkja kerfi til að tilkynna honum um hvort fæðzt hafi drengur eða stúlka: Riffilskot ef það er dreng ur — skambyssuskot ef það var, stúika. Lögreglan er nú alveg að missa þolinmæðina yfir háttalagi Giuseppe og ættingja hans og hefi ur sett strangan vörð um heimili konu hans. T.d. var engu skoti hleypt af er María fæddist. □□□□□□□DOD Leikarinn og leikstjórinn, Denn is Hopper, sá er frægastur varð fyrir sinn þátt í myndinni „Easy Rider“ hefur verið handtekinn austur í Taos, sakaður um að hafa ráðizt á mann vopnaður. Lögreglustjór'nn sem sá um handtökuna sagði að Hopper heföi „ásamt tveim öðrum miðað byssu á hóp fólks." Peter Fonda, leikari og leik- stjóri, samstarfsmaður Dennis x Hopper að „Easy Rider“ hefir núv höfðað mál á hendur þessum fyrr verandi félaga sínum fyrir að stela undan einhverju af ágóða sínum af kvikmyndinni. □□□□□□□□□□ Danska fagblaðið Politiken sver og sárt við leggur aö stúlka ein hafi verið í kennslustund í ensku um daginn og reis hún þar upp og fór með eftirfarandi þulu: Good news, bad news Agnews .. kannski hefur þetta átt aö vera fyndiö hjá henni, og þó ... Lengi hefur staðiö til í Hollywood að gera kvikmynd um Patton hershöfðingja. Patton þessi er með frægari hershöfðingjum Bandaríkjamanna, Og þ.vi jvat mikið up,p Júr því lagt, að þegar ráðizt yrði í gerð myndarinnar, yrði ekkert til sparað. Og nú er loksins komin ærið hressileg mynd um kempuna Patton. T>að ér Práriknn Jt Schaffér serii gérir niyndifia eftir lívikmýridaharid'riti ‘Fraricis Förd Coppola og Edmund H. North. George C. Scott leikur aðalhlutverkið, sjálfan hers höfðingjann. Einnig leika þeir Karl Malden og Michael Bates í myndinni, Bates leikur brezka hershöfðingjann Montgomery. Á meðfylgjandi mynd sést hvar Patton er kvikmyndaður er hann stígur á land. SIR ALEC ÞREYTTUR Sir Alec Guinness sá stórkost legi leikari, hefur á sínum langa leikferli, en hann hefur starfaö að leiklist í meira en 37 ár, gætt lífi fjölmarga skrýtna persónu- leika. Þó hefur hann sennilega aldrei leikið eins óvenjulegt hlut Verk og hann gerir nú þessa dag ana. Það er £ kvikmynd er verið er að gera eftir sögu Dickens, „A Christmas Carol", en í mynd inn{ leikur Guinness anda Marl- eys. Guinness hefur lagt mikla vinnu í að gera anda þennan eins raun verulegan og hægt er, en, eins og hann sjáifur segir, „persónur Dickens eru svo litríkar, aö mað ur freistast gjaman til að ofleiká. Ég bókstaflega neyddist til að „útþynna" Marley smávegis. Slr Alec segir oft að honum finnist miklu skemmtilegra aö vinna að hlutverkum sínum, forma persónurnar, heldur en aö leika þær eftir á. Tilraunimar em alltaf það skemmtilegasta, „þá finnst mér ég vera leikari, því eftir á er bara þreytandi aö fást vtö hlutverkin — sannleikurinn er víst sá, að ég ’er þreyttur á aö leika. Ég nýt þess ekki lengur. Þetta verður erfiðara og erfiöara eftir því sem aldurinn færist yf- ir. Þess vegna er ég ekki líkt þvl eins góður og ég eitt sinn var. Hæfileikar leikara em mis- jafnir og öllum eru takmörk sett. Mínir hæfileikar em alveg £ lágmarki, núna flýt ég að mestu á reynslu og ýmsu þvi öðru er ég bý að siðan á yngri árum. Eina löngun m£n nú er að finna auðveldari og auöveldari hlutverk." Þetta eru féleg tlðindi fyrir okkur aödáendur Guinness, eða hitt þó heldur, en hvað um það, eflaust verður-gaman að sjá hann leika anda Marleys, en kvikmynd in verður nefnd „Scrooge“ og frumsýnd um næstu jól. Aðalhlut verkið leikur Albert Finney, hann hljóp á sfðustu stundu í skarðiö fyrir Rex Harrison sem hafði lofað að leika í myndinni en varð að hætta við á síðustu stundu. Siðlausir Bretar „Æskan í Bretlandi lætur ekki að neinni stjórn, ungar stúlkur ganga um götur Lundúna næst- um allsnaktar, og margt fleira er hægt að benda á um' spillingu æskunnar“, sagöi forseti Malawi Hastings Kamuzu Banda á blaða mannafundi í Blantyre fyrir skömmu. „Það sem ég sá til æsk unnar i London vildi ég óska að ég hefði ekki séð.“ Þetta sagöi Banda við fréttamenn eftir aö hafa dvalizt mánuð i Bretlandi. „Ungmennin spyrja um alla skap aða hluti, og stúlkur klæðast ekki siðlega lengur", hélt forsetinn á- fram, en hann bannaði ptnu-pils i Malawi fyrir mörgum mánuð- um. „Farið til London ef ykkur langar", sagði hann að lokum, „horfið ef ykkur fýsir, en flytjið ekki slíka ósiði með ykkur heim aftur.“

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.