Vísir - 07.07.1970, Page 3
VlSIR . Þriðjudagur 7. júh' 1970.
í MORGUN UTLONDI MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND
Umsjón: Haukur Helgason
CERNIK rekinn
úr kommúnktafíokknum
— Reyndi oð oðsfoðo flóttamenn
Fyrrverandi forsætisráð-
herra Oldrich Chernik hef
ur verið rekinn úr komm-
únistaflokki Tékkóslóvak-
Cernik.
íu, að því er hermt var í
Prag í gærkvöldi. Cernik
var forsætisráðherra þegar
Alexander Dubcek var leið
togi kommúnistaflokksins,
og hélt Cemik embætti um
hríð eftir fall Dubceks.
Brottreksturinn þýðir, að Cernik
er sjálfkrafa vikið úr miðstjórn.
Útvarpið í Prag ákærði í gær-
kvöldi hinn 49 ára Cemik fyrir að
hafa reynt að vemda tékkneska
flóttamenn i útlöndum, sem væru
óvinir ríkisins. Hafi Chemik verið
afhjúpaður, þegar hann skipaði
Antonin Liehm, kunnan frjálslynd-
an blaðamann, fulltrúa kvikmynda-
iðnaðar landsins í Paris. Hafi þá
Liehm þegar verið flúinn úr landi.
Með þessum ákærum er talið, að
enn sé verið aö þvo fyrri leiðtog-
um Tékkóslóvakíu upp úr sakar-
giftum um „gagnbyltingu".
Talið er, að brottvtsun Cerniks
hafi verið ákveðin 1 júní, enda vék
Cernik úr siðustu stöðum sinum
i rikisstjóm tveimur dögum fyrir
fund miðstjómar kommúnista-
flokksins þá.
Cernik er nú sagður „atvinnu-
laus“ eins og Dubcek.
ÁRANGURSLAUS LEIT I 365 ÁR. Myndin sýnir menn drottningar gera leit undir brezka
þinginu, áður en Elisabet drottning flutti hásætisræðu sína fyrir helgi. Þessi Ieit er gerð
reglulega við hverja setningu þings, og er upphaf hennar, að Guy nokkur Fawkes kom þar
fyrir sprengiefni hinn 5. nóvember 1605. Ætlaði hann að sprengja í loft upp þingið og
Jakob I konung, en mistókst. — Þetta er að sjálfsögðu eitt af hinum mörgu skringilegu
uppátækjum þeirra í Bretlandi, sem þeir hafa haldið í heiðri öldum saman, 'þótt tilgangur-
inn sé annars oft ekki augljós.
FYLGI KOMMÚNISTA
KOM Á ÓYART
— Einingarflokkurinn náði ekki hreinum
meirihluta á Kýpur
Tveir stærstu hægfara
flokkarnir á Kýpur kunna
að verða neyddir til að
hafa samstarf við aðra
vegna fylgisaukningar
kommúnista í kosningun-
um í fyrradag.
Hægfara einingarflokkurinn
hlaut 15 þingsæti i kosningunum
og skorti aðeins þrjú sæti til að
fá hreinan meirihluta hinna 35 full-
trúa, sem grískir menn kjósa á
þingið. — Tyrkir kjósa svo 15
fulltrúa.
Kommúnistar komu flestum á
óvart með því að fá níu þingmenn
kjöma, sem var aukning um fjóra.
Tvo þingmannanna fengu kommún
istar I höfuðborginni Níkósiu, en
þar hafa þeir verið fylgislitlir til
þessa.
Segja fréttamenn, að kommún-
istar hafi hagnazt á því, að atkvæð
um hinna hægfara var dreift milli
margra flokka og tveggja óháðra
frambjóöenda
Nú mun einingarflokkurinn lík-
lega reyna að hefja samstarf við
framsóknarbandalagið, sem er
lengra til hægri en einingarflokkur-
inn, en bandalagið fékk sjö þing-
menn. Komist slíkt samstarf á lagg
imar, mun ríkisstjóm þessara
flokka hafa fimm þingsæta meiri-
hluta á þinginu, meðal griskra
manna.
Ótti við bein átök ísraels-
manna og rússneskra ráðunauta
ísraelsmenn héldu því
fram í gær, að rússneskir
sérfræðingar hefðu sjálfir
skotið eldflaugum að flug-
vélum ísraels frá eldflauga
stöðvum í Egyptalandi.
Yfirmaður herráðs Israels
Hayam-Bar-Lev kvað á blaöamanna
fundi í gærkvöldi ekki ólíklegt, að
rossneskir menn hefðu nú þegar
skotið SAM-3 eldflaugum á flug-
vélar frá Israel. Hann kvað það
einnig hugsanlegt, aö Rússar hefðu
beðið bana í loftárásum Israels-
manna á egypzkar stöðvar við
Súezskurð.
Bent er á, að yfirmaöurinn hélt
blaðamannafund 1 eigin nafni, og
sýndi þetta, hversu alvarlegt ísra-
elsmenn telja ástandið vera, er þró-
unin gæti leitt til beinna átaka
milli þeirra og rússneskra her-
fræðinga.
Herforinginn lagði áherzlu á, að
Israeismenn væru staðráðnir að
halda viglínu sinni við Súezskurð-
inn. „Við emm tilbúnir að gera
allar nauðsynlegar ráðstafanir,"
sagði hann. Svo virðist, að orrustu-
þotur ísraels hafi ekki ráðizt á
þær SAM-3 stöðvar, sem eru langt
frá skurðinum. Hins vegar hafa
flugmenn ísraels sagt, að ekki færri
en tvær af eldflaugum, sem skotið
var að þeim, hafi verið af gerð-
inni SAM-3.
Herforinginn sagði, að meðfram
skurðinum væri kerfi sovézkra eld-
flauga, um það bil tólf af gerðinni
SAM-2 og tvær af gerðinni SAM-3.
Þúsund kommúiíistar
sitja um bæinn Saang
Utanríkisráðherra Bandaríkjanna
William Rogérs, sagöi i morgun,
að stjórnin í Washington mundi
gera allt, sem i hennar valdi stæði,
til að hjálpa Kambódíu bæði efna-
hagslega og hernaðarlega. Fréttir
berast frá Phnom Penh, að her-
sveitir Víetkong undirbúi enn á-
hlaup á bæinn Saang, sem er 28
kílómetrum suðvestur frá höfuð-
borginni.
Rogers kom fram á blaðamanna-
fundi, áður en hann hélt frá Saigon,
en þar hafði hann setið ráðstefnu
meö bandamönnum S-Víetnama í
stríðinu. Rogers ræddi i gær við
Kuon Wick utanríkisráðherra
Kambódíu. Eftir fundinn gaf hann
í skyn, að hernaðaraðstoö Banda-
ríkjanna við Kambódíu yrði I formi
léttra vopna, sprengjuvarpa og eld-
flauga.
Þrjár sveitir stjórnarhers Kamb-
ódíu halda nú bænum Saang, eftir
að þær hröktu kommúnista úr hon-
um. Sagt er, að 1000 kommúnistar
hafi safnazt rétt utan bæjarins,
og hafi þar meðal annars 120 milli
metra sprengjuvörpur.
Hinum síðastnefndu sé eingöngu
stjórnað af Rússum, en SAM-2
stöðvunum stýri Egyptar, að því
er talið er. Einnig þar séu þó rúss-
neskir ráðunautar til aðstoðar.
Herforinginn sagði, að væntanlega
ýttu þessir ráðunautar ekki sjálf-
ir á hnappana, en þeir sæju þó
um, að Egyptar þrýstu á hnappana
í tæka tíð.
Kairóblaðið A1 Ahram, sem er
málgagn egypzku stjórnarinnar,
neitaði í gær, að sovézkir sérfræð-
ingar störfuðu við skuröinn. Hann
sagði, aö egypzkir hermenn einir
bæru ábyrgð á þvi, er ísraelskar
flugvélar voru skotnar niður í fyrri
viku. Segir blaðið, að þetta sé ráöa
mönnum i ísrael vel kunnugt, en
þeir reki upp mikið harmakvein til
þess aö afsaka það, að vélarnar
voru skotnar niður.
Bílar til s Dodge Dart — 1967 ölu
Rambler American station — 1966
Glæsilegir einkabílar til sölu og sýnis í dag.
Vökull hf.
Hringbraut 121 — Sími 10600.
Hjólastillingar
Lú!:nsverkstæðið
Suðurlandsbraut 10 . Sími 81320