Vísir - 07.07.1970, Síða 7
PfSMu Þriðjudagur 7. júlí 1970.
7
cTMenningarmál
**
Hjörleifur Sigurðsson skrifar um myndlist:
I Listasafni
| ...
og Bogasal
T istasafn Islands sýnir mynd
^ ir tíu málara vegna Lista-
hátíðar. I fremsta salnum hitt-
um við Jön Stefánsson og Þór-
arinn B. Þorlákson. Þórarinn
mun vera elztur sýnenda og
tengir nítjándu öldina við þá
tuttugustu. Áning — er vafalítið
mesta verk hans þarna. Hún
sannar hve langt hann komst á
góðum stundum. Smáatriðin
urðu Þórarni hvergi að fóta-
kefli. Samt lifði hann í þröngu
og myndvana umhverfi. Ég
minnist þess ekki að hafa séð
fyrr gullfallega mynd. sem Þór
arinn nefnir Vestan úr Dölum.
Aldrei stígur hann nær samtíð
okkar en einmitt í slíku verki.
Listasafnið klófesti á réttum
tíma Útigangshesta og Höfn
Jóns Stefánss. Báðar þessar fág
uðu myndir hanga í hliðarherb
erginu fremst til vinstri og eru
teknar að lifa annað eða þriðja
blómaskeið sitt í augum málar-
anna.
unnlaugur Soheving fyllir
rösklega hálfan næsta salinn.
Langmest ber á gríðarlega stóru
verki hans af sjómönnum. Það
er ekki aðeins hiti í átökum
karlanna heldur einnig í hring
sóli litatónanna. Hver keðjan
tekur við af annarri unz stóri
hringurinn lokast og veröur að
spenntri grind. Litlu málverkin
eru mildari og þægilegri í um
gengni en ég er ekki viss um
að grásprengd yfirferö litanna
komi að fullu í stað blikunnar
sem lifði í kaldri og hrjúfri
sjón. Kirkjan útj við dyrnar vík
ur ekki fyrir nýju myndunum.
Þeir virðast ólíkir gömlu fé-
lagarnir: Snorri Arinbjarnar og
Gunnlaugur. Engum dylst til
lengdar að hinn síðartaldi er
mjög háður fyrirmyndum sínum
og umhvenfi þeirra. Aftur á móti
gætu ókunnugir látið sér detta
í hug, að Snorri hefði stuðzt við
gafla húsanna og bogalínur skip
anna aðeins til málamynda. En
það er ekki nema háLfur sann-
leikurinn. Rökin fyrir uppdikt-
uðu tilgátunni mega þó teljast
augljós: Flestar af myndum
Snorra líkjast hreinni ab-
straktsjón með guulnlm blæ
einfaldrar og hlýrrar uppistöðu.
Þessa uppistöðu átti málarinn
til æviloka . ... og engum hefur
sfðan tekizt að herma hana eft-
ir. Veggur Snorra sýnir aðeins
hluta af styrkleik hans. Hvers
vegna? Menn voru of seinir að
skilja þennan fína málara —og
enn er hann tæpiega metinn að
verðleikum sinum.
Nina Tryggvadóttir sló hins
vegar í borðið og skipaði mönn
um að leggja við hlustirnar —
eða réttara sagt horfa einarð-
lega í flötinn þar sem litirnir
hrönnuðust upp í sveigum og
búntum. Þessi gáfaða og skap-
ríka kona er honfin sjónum
löngu fyrir eðlilegan burtfarar
tíma. í dag hlýtur það að gleðja
okkur sérstaklega, að safnið
vildi og gat eignazt syrpu henn
ar um leiö og sagan gerðist. —
Flokkur Nínu er heilsteyptasta
eignin og samfelldasta runan.
|7ngilberts og Kjarval, eiga
þeir heima hlið við hlið? Ef
til vil! i tuttugu daga, varia
Gunniaugur Scheving: Sjómenn.
Jón Engilberts í Listasafni Islands.
lengur. Madame er glæsileg
kona enn i dag þótt hún hafi
byrjað að taka þátt í samkvæm
islífinu fyrir stríð. Svipað má
segja um breiðu kollana á stóra
verkinu við hlið hennar. En mað
ur saknar svo ótalmargra þráða
í myndum Jóns: Fínna og sterka
einfaldra Og flókinna á sömu
stund og Kjarval byrjar að orka
á skynfærin. I safninu bessa
dagana getur að líta fjölmörg
tilbrigði við leiftur meistarans
en ótrúlega sjaldan verkin, sem
óumdeilanlega skyldu prýða
veggina. Ásgrímur í heild lið-
færri bæði i geymslu og sölum
— kemur betur til skila: Heklu
myndirnar tvær, jökullinn auk
þriggja vatnslitamálverka. —
Myndir Jóns Þorleifssonar og
Gunnlaugs Blöndals falla prýði-
lega saman innbyrðis en ég er
ekki sannfærður um, að þær
hafi átt erindi á sýningu Lista-
safnsins .. . eins og henni var
skorinn stakkur frá upphafi.
T Bogasal ríkja tólf listamenn
4 fyrrj alda. Bezta og mesta
verkið er að líkindum altaris-
taflan frá Reykjum í Tungusveit.
Guðmundur smiður i Bjarna-
stáðahlíð er höfundur hennar.
En gesturinn stendur líka undr
andi frammi fyrir handaverkum
og listbrögðum séra Hjalta í
Vatnsfirði, einkum málverkinu
af Þórði biskupi og konu hans.
Sæmundur Magnússon Hólm
var afbragðs teiknari, ef til viH
einhver allra bezti á íslandi fyrr
og síðar. Portrett Sveins fjórð-
ungslæknis Pálssonar er skil-
merkilegt dæmi um leikni hans
og hæfileika til að láta yfirborð
ið spegla kjarna verksins. Mynd
ir Sigurðar málara Guömunds-
sonar eru að vísu mjög vand-
virknislega gerðar en þurrar og
hugmyndasnauðar. Hið síðar-
nefnda er dálítið undarlegt, þar
eð Sigurður lét sér jafnan detta
margt gott og upprunalegt í hug
í öðrum máluni.
Ég held að honum hafi leiðzt
að teikna og mála er fram í
sótti. Stutti Jóhannes, Svein-
unga Sveinungasonar víkkar
listasögu okkar ... bráðskemmti
leg mynd. Hallgrímur Jónsson
smiöur gerði nokkrar indælar
altaristöflur. Þeirra skemmtileg-
asta tel ég Ufsa-myndina. Lit-
imir glóa í mannamyndum Am
gríms Gislasonar en mótun foim
anna vefst stundum fyrir hon- óska eftir víðtækari kynningu
um En þetta ei orðin þreytandi þessara gömlu og forvitnilegu
upptalning. Mættj ég að iokum myndlistarmanna okkar.
wm
Ámundi Jónsson: Altaristafla frá Odda, 1783.
UTSALA
Verzlunin hættir.
Allar vörur seldar á heildsöluverði.
Verzlunin DORIS Lönguhlíð.
BÍLASKOÐUN & STILLING
Skúlagötu 32
HJÓLASTILLINGAR
MOTORSTILLINGAR l JÚSASTILLINGAR
Látið stilla i tíma. 4
Fljót og örugg þjónusta. B
13-10 0