Vísir - 07.07.1970, Síða 8
I
5
VISIR
Otgefanii: Reykjaprent hf.
Framkvæmdastjóri: Sveinn R Eyjólfsson
Ritstjóri: Jónas Kristjánsson
Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson
Ritstjómarfulltrúi: Valdimar H. Jóhannesson
Auglýsingar: Bröttugötu 3b Simar 15610 11660
Afgreiðsla: Bröttugötu 3b Sími 11660
Ritstjóra: Laugavegi 178. Simi 11660 (5 línur)
Áskriftargjald kr 165.00 á mánuði innanlands
{ wt*v»«ölu kr. 10.00 eintakið
rrentsmiðja Visis — Edda hf.
Tvö metár
„Lengra verður ekki komizt“, hugsuðu margir,
þegar birtar voru tölur um afkomu íslands í fyrra.
Þær sýndu jákvæða þróun á flestum sviðum þjóðar-
búskapsins. Þær sýndu meira að segja jákvæðan við-
skiptajöfnuð, sem er ákaflega sjaldgæft. Vafasamt
er, að þjóðarhagur hafi nokkru sinni áður batnað
jafnmikið á einu ári.
En fyrri hluti ársins 1970 hefur verið enn hagstæð-
ari. Fyrstu þrjá mánuði ársins gerðist það ótrúlega,
að allar tegundir jafnaðar gagnvart útlöndum voru
hagstæðar, jafnvel vöruskiptajöfnuðurinn. Hann var
370 milljón krónum betri en á sama tíma í fyrra. Og
þjónustujöfnuðurinn var 235 milljónum krónum betri.
Samtals var því viðskiptajöfnuðurinn, sem sýnir
heildarviðskiptin við útlönd, 605 milljón krónum betri
fyrstu þrjá mánuðina í ár en í fyrra.
Þetta hlýtur að teljast gífurlegur bati á aðeins einu
ári. 270 milljón króna halli hefur breytzt í 335 milljón
króna umframtekjur. Árangurinn varð m.a. sá, að
gjaldeyrisstaðan batnaði um 570 milljón krónur á
þessum þremur mánuðum, án þess að skuldir lands-
ins gagnvart útlöndum ykjust neitt.
Sundurliðaðar tölur fyrir næstu þrjá mánuði, apríl
—júní, eru ekki enn til. En þær tölur, sem til eru, sýna,
að sama hagstæða þróunin hefur haldið áfram. Ef tal-
ið er frá áramótum, nam hinn jákvæði vöruskipta-
jöfnuður 35 milljón krónum 1. apríl, en var kominn
upp í 285 milljón krónur 1. júní. Athyglisvert er, að
á sama tíma í fyrra var hann óhagstæður um 1.090
milljón krónur. Umskiptin til batnaðar nema hvorki
meira né minna en 1.375 milljón krónum.
Á þessum fimm mánuðum hefur gjaldeyrisvara-
Sjtiður þjóðarinnar aukizt um 1400 milljón krónur,
sem er næstum því eins mikið og aukningin á öllu
árinu í fyrra. Miðað við þessa byrjun ætti árið 1970
því að verða enn meira framfaraár en árið 1969 var.
En kjarasamningarnír nýju valda því, að þjóðarhag-
urinn mun senniicga batna hægar seinni hluta ájsins.
Þjóðin hefur ákveðið, að nú sé kominn tími til að
njóta ávaxtanna af þespum hagnaði í þjóðarbúskapn-
um. Allt kaup hefur hækkað um 15% eða meira í
samningunum Það sem eftir er ársins mun því neyzla
án efa aukast hlutfallslega á kostnað fjárfestingar.
Jafnframt munu mörg fyrirtæki, sem hafa búið við
velgengni að undanförnu, horfast í augu við stórauk-
inn kostnað og jafnvel hallarekstur.
Of snemmt er að spá um, hve mikil neikvæð áhrif
þetta mun hafa. Við verðum annars vegar að vera
undir það búin, að hin hagstæða þróun hægi á sér
og hverfi jafnvel, og mundi slíkt ekki lofa góðu um
árið 1971. Við getum hins vegar vonað, að ekki dragi
nema lítillega úr velgengninni. Það kemur í ljós á sín-
um tíma. En altént er þegar Ijóst, að árið 1970 verður
metár í svipuðum mæli og árið 1969, hvað sem fram-
tíðin kann að bera í skauti.
I
v
VÍSIR . Þrlðjudaguf 7. júb' 1970.
Bretar á
barmi of-
drykkjunnar
Við hugsum okkur
sannan Englending með
tebolla í hendi. Bretar
drekka þó ýmislegt ann-
að, sem engum kemur
á óvart sem þangað
hefur slæðzt. í nýútkom
inni bók um drykkju-
menningu eða — ómenn
ingu Breta segir, að með
álmaður þurfi PA lítra
af vökvun daglega. Bret
ar verji hins vegar yfir
400 milljörðum króna á
ári í „dýra vökva, sem
komi í stað vatnsins og
eru ekki allir áfengir“.
Vatnið „endurnotað
skólp“
Höfundurinn, Derek Cooper,
hefur áður tekið til bæna fæðu
Bretans, og kallaði hann þaö
verk „handbók um vondan
mat“. Þessi bók naut vinsælda,
ekki sízt meðal þeirra, sem
voru í megrun og misstu mat-
arlyst við lesturinn. Lýsingin á
vökvum þeim, sem fara niöur f
Bretann, er ekki geðslegri.
Cooper kallar vatn I London
„endurnotað skólp". Vatn er
notað í te. Hann viðurkennir
þó, að sum fyrirtæki hafi sér-
staka brunna, og ætti te frá
þeim að vera fremur öruggt.
Mjólkin er ekki betri, segir
greinarhöfundur. Mönnum til
hrellingar nefnir hann dæmi
um húsmóður, sem fann hluta
af kjálkabeini úr rollu í mjólk-
urpottinum sínum. „Munnurinn
virtist glotta framan i hana,“
sagði ákærandi f réttarhöldum,
sem spunnust vegna þessa
máls.
8V2 lítri af bjór á
klukkustund
Bretar drekka hins vegar
margt annað en vatn og mjólk,
og líklega ekki af ástæðulausu,
ef marka má Cooper. Methafi
llllllllllll
Umsjón: Haukur Helgason
heimsins í tedrykkju kom niður
tuttugu og einum bolla á hálfri
klukkustund, en heimsmeistar-
inn í bjórdrvkkju skolaði niður
átta og hálfum lítra af þeim
vökva á einni klukkustund. Var
það níu bama faðir, 37 ára, sem'
þetta afrek vann. Bjórverðið
hækkar, og sömuleiðis vex bjór-
drykkjan. Ýmsir leggja sitt að
mörkum, þótt þeir standi meist-
aranum ekki á sporði.
Höfundur bókarinnar segir
hins vegar, að bjórknæpur hafi
versnað um allan helming. Fær-
ir bjórdrykkjumenn telji, að
„sannar knæpur" hafi ekki kom
ið til sögunnar síðan 1914.
Þannig sé hin sanna brezka
bjórmenning að fara f hundana.
Segir Cooper ýmsar sögur af
óhreinum veitingamönnum, skít
ugum vínum eða þá svo frosn-
um, að flaskan sé eitt gler.
Mest heimabrugg
Því kemur ekki á óvart, að
heimabrugg tfðkist mjög f Bret-
landi, meira en f nokkru öðru
landi. Margir telji, að bezt sé
heima hvað. Þannig hræri menn
saman hvers kyns sulli heima
hjá sér. Cooper gerir gys að
hreðkuvíni, peruvfni og ýmiss
konar blóma- og baunavfni, sem
hann hefur komizt í kynni viö.
Kaffi og te koma Bretum í
sérstakt hugarástand. Þessir
drykkir vekja göfugar tilfinning
ar. „Kaffi,“ segir Cooper, vek-
ur hjá Bretanum lýsingarorðin
„gáfaður", „efnaður", „mið-
stéttar", og te vekur aftur á
móti lýsingarorðin „glaður",
„holdugur", „miðaldra", „ör-
látur", „rólyndur" og „gamal-
dags“. Tepotturinn á vélinni er
tákn ástar og heimilis.
... og þó
Eftir allan þennan lestur er
þó, Bretum til gleði, sagan af
fjölskyldunni, sem fór til Frakk-
lands. Þar var bifreið þeirra
stöðvuð af annarri brezkri bif-
reið. „Gamli minn," sagði að-
komumaðurinn, „ég var að velta
því fyrir mér, hvort þú hefðir
ekki með þér eitthvað af ensku
vatni. Við höfum verið á Spáni
f hálfan mánuð, og við erum að
deyja af löngun f eitthvað ann-
að en vín." Svo vildi til, aö
fjölskyldan hafði meðferðis smá
lögg af ensku vatni, sem gefiö
var af fúsum vilja og- drukkið
af lyst. Skildust Bretamir sæl-
ir að svo búnu.
Þeir segja...
Vopn handa Suður-
Afríku.
„Ákvörðunin að selja vopn til
Suður-Afríku ... er snögg breyt
ing á utanríkisstefnunni.
Ef Sir Alec selur hvíta minni
hlutanum í Pretöríu vopn, þá
brýtur hann í bága við sam-
þykktir Sameinuðu þjöðanna.
Hann móögar svarta meirihlut-
ann um alla Afriku. Hann hrind
ir frá sér hlutlausum ríkjum í
Evrópu, og hann nálgast að
missa hollustu ríkjanna í brezka
samveldinu, Forsætisráðherrar
samveldislandanna munu ef til
vill fyrirgefa Bretum þetta, en
ef til vill munu þeir ekki gera
það.
Guardian (London).
Nýja andlitið í
Frakklandi.
„Hin löngu persónuleika-
stjórnarár de Gaulle hershöfð-
ingja eyöilögðu hefðbundna
stjórnmálaflokka og gerðu
stjómmál Frakklands hættulega
háð baráttunni milli erfingja
hins fallna foringja annars veg-
ar og kommúnista hins vegar.
Það er mikilvægt fyrir heil-
brigði í frönskum stjórnmálum,
að nýtt afl skuli koma til skjal-
anna til þess að skapa jafnvægi
milli öfganna tveggja. Tilraunir
til að vekja til lífs hægfara kristi
legan flokk um hinn aðlaðandi
persónuleika Lecanuets mistók-
ust.
Það er feikilegt verkefni að
reisa af grunni eitthvað af
þessu tagi, en Servan-Schreib-
er hefur byrjað það starf með
miklum ákafa og bjartsýni."
EI Mercurio (Santiago, Chile).
Gildi Kambódíuher-
ferðarinnar.
„Raunverulegt gildi Kam-
bódíuherferðarinnar mun vænt-
anlega ekki koma í ljós um
margra mánaða skeið, en þá
mun verða séð, hvemig komm-
únistum tekst að endumýja að-
flutningsleiðir sinar. Á því er
enginn efi, að það hefur orðið
Bandaríkjastjóm og Saigon-
stjóm mjög mikilvægt, að rík-
isstjórn Lon Nols falli ekki fyT-
ir kommúnistum. Að því leyti
hefur herferðin orðið til þess
að auka verkefni Bandaríkja-
manna og Suður-Víetnama.
Ætla má, að kommúnistar séu
ólfklegri en nokkru sinni til að
fallast á endumýjað tilboð Nix-
ons um samninga."
Daily Telegraph (London).