Vísir - 21.07.1970, Side 1
VÍSIR
—-N.t.uinHmn^ipaiiiiMHirtiM——<.1——
Dular-
fullt
hvarf
Enn ekkert uppv'ist
um rússnesku risa-
þotuna — Erfið
samskipti við rússnesku
flugliðana vegna málsins
Fjöldamargar þjóöir hafa boðið
fram aðstoð sína við leitina að
rússnesku risaþotunni, sem týnd-
ist á leiðinni milli Keflavíkur og
Halifax í Kanada á laugardaginn,
en leitin hefur hins vegar verið
borin uppi af flugvélum frá Kana-
da og Vamarliðinu á Keflavíkur-
flugvelli og vél frá dönsku stjóm-
inni á Grænlandi, en auk þess hafa
• nokkur skip leitað á þessum slóð-
um. Víðtæk leit og eftirgrennslan
á þessum slóðum hefur hins vegar
engan árangur borið enn sem kom
ið er.
Hvarfið á þessari risastóru þotu
virðist mjög dularfullt.
Yfirlýsingin frá talsmanni rússn
; eska sendiráðsins í Lima hefur vak
> ið mikla furðu en eftir honum er
haft að flugvélarhvarfið sé upp-
spunj og til þess gerður að spilla
fyrir hiálparstarfinu.
Að sögn Arnórs Hjálmarssonar,
sem stiómar leitinni að Antonov
héðan frá íslandi, hafa viðskipti
við rússnesku flugliðanna verið dá
Iftið enfið vegna málsins en þeir
eiga yfirleitt í erfiðleikum með að
skilja ensku, sem er algilt mál í
fluginu hér. Auk þess er tækjabún
aður allt annar heldur en við eig-
um að venjast Leiðsögukerfið í
rússnesku þotunum mun til dæmis
vera allt annað en KAO-kerfið
sem notað er í öllu alþjóölegu
flugi. -
Norðangarrinn hrekur ferða-
menn að norðan og austan
Snjóaði niður i skóglinu eystra
Ferðafólk, sem að undan-
förnu hefur streymt í stór-
um hópum norður og aust-
ur um land, hefur heldur
betur fengið gustinn móti
sér undanfarna daga.
Út yfir tók þó í nótt, en þá snjó-
aði niður í miðjar hlíðar sums stað
ar á norð-austurlandi. Til dæmis
snjóaði niður í miðja Gagnheiðina
og alveg niður í skóglínu, sem er
mjög óvenjulegt um hásumar.
Mikið hefur verið af ferðamönn-
um á Egilsstöðum, en þangað hafa
verið farnar átta flugferðir á dag
og sfðan eru rútuferðir á firðina
f sambandi við flugið. Fólk hefur
hrakizt úr tjöldum sínum vegna
kuldans og hafa hótelin notið góðs
af. Mjög mikil aðsókn hefur verið
að hótelinu í Valaskjálf á Egils-
stöðum að undanförnu.
Fólk hefur staldrað stutt við þar
eystra vegna kuldans, ekki búið
undir neinar safariferðir. Til dæmis
hrakti norðangarrinn norrænu
hjúkrunarkonumar til baka, en þær
komu að Egilsstöðum nú á dögun
um og hurfu aftur suður um hæl.
Snemm^ í morgun var aðeins
tveggja stjga hiti á Egilsstöðum, og
æði svarraleg noröanátt og allt ann
aö en sumarlegt. — «EH
Skiptimiðakerfíð
aftur komið í gang
Starfsemi SVR er nú óðum að
komast f fyrra horf eftir brunann
á Kirkjusandi. Nýjar skiptimiða-
vélar komu með flugvél frá Sví-
þjóð um helgina og eru komnar í
notkun. í haust á SVR von á 10
nýjum strætisvögnum, sem hafa
verið pantaðir, og um sama leyti
verður komið upp 40 fermetra bið-
skýli, sem verður staðsett á Hótel
Heklu-lóðinni við Lækjartorg, en
er nú í smíðum.
Um áramót er þess vænzt, að
nýbygging SVR á Kirkjusandi verði
tekin í notkun, en þar verður verk-
stæði strætisvagnanna og skrif-
stofuhúsnæði á efri hæð. Fram-
kvæmdum við þessa byggingu verö
n r hrnAíiA Aftir fönanm on Vinn
átti ekki að verða tilbúin fyrr en
með næsta vori.
Skúli Halldórsson, skrifstofu-
stjóri hjá SVR, skýrði blaðinu frá
þessu í morgun, og sagði hann enn-
fremur, að verið væri að hreinsa
til eftir brunann á Kirkjusandi og
reynt að nýta það, sem gagnlegt
sé. SVR hafi önnur verkstæði f öðr-
um húsum og því sé viðgerðar-
.starfseminni haldið áfram með eðli-
legum hætti. Sagði Skúli, að þessir
mánuðir nú væru léttastir hvað
snerti umferð með strætisvögnun-
um, þar sem engir skólar væru,
margir í sumarfríi og í vinnu úti
á landi. Ef bruninn hefði orðið um
hávetur hefði SVR orðið mjög erf-
itt um vik að halda áfram eðlileg-
20 kr. fyrir
síldarkílóið
úr Norðursjó
Meðalverðið á síldinni, sem ís-
lenzk skip selja um þessar mundir
í Danmörku og Þýzkalandi er nú
orðið nærrj 20 kr. íslenzkar og er
það betra meðalverð en fengizt hef
ur til þessa í sumar. Um 35 skip
munu nú vera komin á miöin við
Orkneyjar og í Skagerak. í síðustu
viku lönduðu 26 skip í Danmörku
í Hirtshals og 5 skip seldu afla
sinn f Þýzkalandi, Samtals varð
afli þessa 31 skips 935,7 tonn og
fengust fyrir hann 18,6 milljónir
fsl. kr. Verðið á markaöinum ytra
virðist vera nokkuð stöðugt, en
hefur heldur stigið. Skipin sem fóru
suður í Norðursjó frá Reykjavfk í
vikunni sem leið eru ekki farin að
landa ennþá, en hver veiðiferó tek
ur venjulega upp undir vik-utíma.
—úH
Þannig fór um sjóferð þó....
Hún endaði ekki burðuglega bátsins gerði þeim nefnilega
ferðin hjá félögunum fjórum úr þann óleik að hætta allri starf-
Reykjavík, sem brugðu á leik í emi, þegar leikurinn stóð senr
sólskininu í gærdag á litlum hæst. Eftir nokkrar árangurs-
trillubáti á ytri höfninni. Vél lausar tilraunir til aö
koma henni í gang aftur tóku
þeir það ráö, að grípa tH ár-
anna og róa í höfn, en áttu
tveir fullt f fangi með það, þar
sem töluvert hvasst var orðið
um þetta leyti og þungur róður-
inn. En þá var það, sem 'hafn-
sögumenn sáu aufur á fjórmenn
ingunum og fóru til móts við
þá á einum hafnsögubátnum og
drógu þá síðan í land. Myndin
er tekin í þann mund, sem
hafnsögubáturinn er að draga
trilluna inn um hafnarkjaftinn.
HERMANN HYLLTUR
Loksins vann Island „alvöru“ landsleik, — „frændur vorir“
Norðmenn urðu að bíta i það súra epli að tapa fyrir íslandil
með 0:2 í gærkvöldi, og sannarlega voru fslendingar mun betri
aðilinn i Ieiknum. En sínum augum Iítur hver á silfrið, — NTB
sendi hingað fréttamann, og sama gerðu stærstu dagblöðin
einnig, — Hallur Símonarson segir frá leiknum á bls. 4. og 5
í dag, og þar segir frá furðulegum fregnum NTB af leiknum.
Myndin: Hermanni Gunnarssyni veittist erfitt að komast af
leikvanginum í gær fyrir aðdáendum. Hann skoraði bæði mörkin
—ÞJM