Vísir - 21.07.1970, Page 2

Vísir - 21.07.1970, Page 2
Nektardýrkendur í Danmörku eiga f deilum við yfirvöld vegna þess að hin síðarnefndu leyfa ekki berrössuðum að baða sig á ströndinni við Lyngbo, en Lyngbo er tjaldstæði til almenningsnota. Þeir beru sitja nú á samninga- fundum með borgaryfirvöldum, og á myndinni er Jens Kristian Kristinsen borgarstjóri að ræöa málin við formann nektarfélags- ins. Louis Lauridsen. ,,Ég hef ekkert á móti því að fólk baði sig nakið", sagði borgarstjórinn „bara ef ég fæ sjálfur að vera f buxunum". Maxi heldur velli Maxi tízkan virðist ætla að verða lífseig. Hvarvetna eygja tízkufrömuðir möguleika á að ota sfnum maxi-klæðum að. Nú eru það ekki aðeins samkvæmis- kjólar sem eru orönir öklasíðir eður vetrarkápur: Sundbolir eru meira að segja að ná útbreiðslu á hinum sólrfku baðstöðum Suð- ur-Evrópu. Þessi stúlka er reynd ar ekki að spóka sig við Miðjarð- arhafiö, heldur er það Eystrasalt- ið sem glyttir á bak við hana. Hvað sem karlmenn nú bölsót- ast yfir öklasíðum klæðum kvenna, svona rétt f kjölfarið á pínu-pilsunum, þá virðist sem maxi-baðföt séu bara vinsæl í þeirra hóp. Ekki þannig að karl- ar séu famir að klæðast síðum sundbolum, heldur verða konur í næfurþunnum rennandiblautum maxi-sundkjól mjög æsandi... eða svo er sagt. ilSi I| SsSSpííf slí :,iía! , -., ...' “ CpSW 1:1 ’ ‘ ”a' 5' ' ® ^ ' ,- i. .. J ÉflMl -i ! 1 “■ -.................... loforð sitt Sari Dewi var fjórða kona Súkamós fyrmm forseta Indó- nesfu og sú er hann elskaöi mest, ef marka skal það sem hann sjálfur sagði. Eftir að Súkarnó hafði verið steypt af stóli var honum komið fyrir í stofufangelsi, en Sari Dewi flýöi til Parísar þar sem hún bjó við ágæt kjör með dóttur þeirra Súkamós, Kartika. Þegar Súk- arnó svo dó, var henni tjáð að hann hefði á banabeðinu óskað eftir því að Sari og dóttir þeirra yrðu við útförina. Súhartó, sá sem steypti Súkarnó, lofaði að veita henni fullt ferðafrelsi um landið og leyfa henni að hverfa aftur til Parísar að útförinni af- staðinni. Vinir Sari f París ráð- lögðu henni að fara hvergi, þetta væri bara lýgi í Súhartó, hann mundi fangelsa hana ef hún færi til Indónesíu. Sari Dewi trúði þeim hins vegar ekki og fór og var viðstödd jarðarförina. Varla var útförin afstaðin, en menn Súhartós komu og settu Sari og dóttur hennar í stofufangelsi. Og nú grætur Sari frelsi sitt og eiginmann, jafnframt þvl sem hún bölvar Súhartó. Súhartó á- kærir hana fyrir að hafa stolið 3500 milljónum sem Japanir greiddu Indónesíu í stríðsskaða- bætur. Sari Dewi er japönsk að þjóð- erni og var dansmær áður en Súkamó kvæntist henni. DANSKIR PRESTAR HAFA ÞAÐ SKÍTT Það er víðar en á íslandi sem langskólamenn kvarta yfir slæm um kjörum. Prestlingur einn í Danmörku, Niels Ebbe Schmidt Huus lauk námi fyrir nokkrum ár um. Hann gat þó ekki séð fyrir sér og konu sinni og börn- um þeirra tveimur með prests- starfinu einu saman, því i Dan- mörku er litið á klerkdóminn sem hæfilegt hálfsdagsstarf. Huus fékk sér aukastarf við að kenna við kennaraskóla einn. Hann hafði hins vegar svo lítinn tíma dag hvern til aö sinna kennsl- unni, því í reynd þurfti hann allan daginn til að gegna embætti sínu í þágu drottins. Þá varð hann að fara að vinna á nóttinni. Ekki gat hann bætt á sig auka- tímum við kennaraskólann, því að skóli starfar ekki um nætur. Séra Niels Ebbe varð því aö fara að aka leigubíl um nætur til þess að fjölskyldan hefði i sig og á. Þannig gekk þetta í tvö ár og þá gafst presturinn upp. Hann sagð- ist ekki einu sinni banni- séð fjölskyldunni farþorða og greitt námslán sín. Hann hefur um það bil 36.000 danskar krónur 1 árslaun og skuldar 80.000 frá þwí á námsárunum. Séra Ebbe ákvað því aö skiljast við fjölskyldu sfna um tíma og fara til Grænlands I byggingavinnu. I Grænlandi æfclar Ebbe að vera i 2 ár og heldur að þá verði hann búinn að nurla sam- an fyrir námslánunum, en aHar tekjur eru skattfrjálsar I Græn- landi.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.