Vísir - 21.07.1970, Page 16
Ekki fallið úr dagar síBan / apríl
— atvinnuleysisdraugurinn gjórsamlega kveb-
inn niður á Raufarhöfn — 30 bátar landa þar nú
VISIR
Héraðsmótin
falla niður
J • Akveðið, hetur verið, að hér-
aðsmót Sjálfstaeðisflokksins,
sem halda átti i sumar, falli niöur
jafnframt hefur verið ákveðið, að
Sjálfstaeðisflokkurinn efni til lands
málafunda vfðsvegar um land
seinna i sumar. Verður nánar skýrt
frá j>vi siðar.
„Hér hefur varla fallið
úr vinnsludagur síðan í
apríl,“ sagði Karl Ág-
ústsson, framkvæmda-
stjóri á Raufarhöfn, en
þar hefur nú verið mikil
vinna að undanförnu og
eru það mikil viðbrigði
frá því sem áður var.
Um 30 trillur og dekkbátar
landa nú afla sínum hjá frysti-
húsinu Jökli, Bárarnir eru allir á
handfæraveiðum og hafa fengið
þetta upp í tonn á færi yifir dag
inn að undanförnu. Síðustu dag
ana hefur heldur dregið úr,
einkum vegna ógæftanna, en
norðangarri var á Raufarhöfn í
morgun og varla meira en 3—4
stiga hiti. Sjötíu manns hafa
unnið í frystihúsinu við fisk-
vinnsluna. — Auk trillubát-
anna landar togskipið Jökull
afla sínum á Raufarhöfn og
hann kom núna um daginn með
83 tonn eftir skamma útivist.
— Þetta hefur allt færzt til
betri vegar eftir að við hættum
að bíöa eftir síldinni sagði Karl
en þeir Raufarhafnarbúar leggja
nú allt kapp á að endurskipu-
leggja efnahagslífið og koma i
veg fyrir atvinnuleysið, sem hef
ur veriö mjög mikið þar undan-
farin ár, eða frá og með síldar-
leysinu. —JH
ÁTVR flytur starfsemi sinar
Blandað í nýju
stöðvunum í gær
Starfsemi Afengisverzlunarinnar,
önnur en skrifstofan, er nú flutt
að Draghálsi í Árbæjarhverfi, og
var unnið að lokaflutningum um
Helgina, samkvæmt upplýsingum
sem Pétur Maack Jónsson á skrif-
stofu Áféngisverzl. gaf blaðinu f
morgun. Hafá þessir flutningar
gengið mjög vel, en fyrir nokkru
var mikilí hluti birgðageymslunn-
ar þar upp frá tekinn í notkun. Er
þama mun betri aðstaða fyrir alla
starfsemi verzlunarinnar og skapar
hún nýja og meiri möguleika í
framleiðslunni. Hefur verið til um
ræðu að hefja framleiðslu á ýms-
um nýjum vintegundum, m. a. á
bláberjavíni, en ennþá hefur ekki
verið ákveðið hvenær sú fram-
leiðsla hefst. Þá sagði Pétur að
fyrsta blöndunin ( hinum nýju
birgðastöðvum hefði farið fram í
gær. —ÞS
AB gefur út jurtabók
Komin er á almennan markað
JURTABÓK AB, en Almenna
bókafélagið hefur lertgi haft hug
á að láta taka saman bók um
íslenzkar jurtir, er væri yfir-
gripsmlkil og auðveld í notkun.
Samið var við Áskel Löve,
jurtafræðing og prófessor, um rit-
un bókarinnar, en Áskell hefur
um langt skeið verið þekktur vis-
indamaður i sinni fræðigrein.
Þessi bók er nú komin út og heit
ii; Islpnzk ferðaflóra og hefur pró-
fessor Áskéll borið allan veg og
vanda af textarituninni. Frú Dór-
fsí Löve, sem einnig er jurtafræð
mgur, hefur teiknað skýringarmynd
imar f v fyrsta yfirlitskaflann, en
annars .eru allar myndimar i bók-
mni eftir Dagny Tande Lid f Osló,
sem höfundur telur „einhvem fræg
asta listamann á þessu sviði".
Jurtabók AB er víðtækust þeirra
bóka er Komið hafa út hérlendis
um jurtafræði, þvf þár er „lýst
öllum tegundum téðri jurta, sem
vitað er, að vaxi villtar á Islandi og
J>eim slæðingum, sem örugglega
hafa numið hér land". Þá er og að
finna I inngangsgreinum sitthvað
sem varðar fslenzka grasafræði al-
mennt, og loks er skrá yfir íslenzk-
ar jurtategundir sem nýlega hafa
verið friðlýstar með lögum .Alls er
bókin á 5. hundrað bls. og f henni
eru aamtals 650 myndir.
Bókin er „ætluð skólanemend-
um og fróðleiksfúsri alþýðu og yf-
irleitt öllum sem þykir það nokk-
urs virði að kynnast þeim jurtum
sem verða á vegi þeirra . . seg-
ir höf. f formála. Vafalaust kemur
bók þessi f góðar þarfir náttúru-
skoðara, þvf nú er helzti ferða-
tími ársins og náttúruskoðendur
keppast við að komast út að sinna
áhugamálum sinum. — GG
KJARVALSHÚS
jSTENDUR
i
\ — en Kjarval
)
í • Margir hafa velt því fyr-
/ ir sér hvað gera ætti eða
J hvað hefði verið gert við
l Kjarvalshúsið svokallaða á
\ Seltjarnamesi, þ. e. hús það
\ er byggt var á ríkisins kostn-
í að og Jóhannesi S. Kjarval
t listmálara var siðan fengið
/ til umráða. Húsið stendur nú
; autt, aB þvi er virðist, en eitt-
1 hvert dót mun þó vera _þar,
\ sem listmálarinn á.
Svo sem kunnugt1 eir, ‘ varð
Kjarval ekkert sérlega uppnæm
ENN AUTT
gætir lyklanna
jr, er hann frétti af því að nú
ættj að fara að gefa honum nús,
en hann tók þó við lyklinum og
hefir hann þvf fullan umráðarétt
vfir því.
Kjarval er á sjúkrahúsi núna
og getur þvf ekki búið í húsinu,
og kannskj vafasamt hvort hann
muni nokkru sinnj gera það.
Uppástunga hefir komið fram
um,,að lána húsið er.lendum mál
urum sem hér vilja dveljast
gegn því að íslenzkum málurum
verði veitt svipuð fyrirgreiðsla
f útlandinu. —GG
4 skátastúlkur frá Sviss komu í nótt. Þær eru fyrstu skátarnir, sem til mótsins koma erlendis
frá, og auðvitaS var þeim boðið skyr: Stórkostlegt! sögðu þær.
Skátastúlkum boðið í skyr!
SKÁTAR eru nú að hópast til
landsins erlendis frá, og til-
efnið er auðvitað skátamótið,
sem halda á að Hreðavatni
i Borgarfirði vikuna 27. júlí
til 3. ágúst. — Stúlkurnar
á myndinni, sem hér fylgir
komu fljúgandi til Reykjavík-
ur í nótt, en þær eru frá
Sviss.
Stúlkurnar eru hinar fyrstu af
útlendmgunum, sem til mótsins
koma en reyndar hafði spurzt
til nokkurra Þjóðverja sem
komu til mótsins með Gullfossi
f gær, en þeir létu lftiö'af sér
vita og hurfu þegar úr Reykja-
vík á bifreið sinni.
Svissnesku stúlkurnar munu
dvelja nokkra daga, eða áður en
þær halda til mótsins að Hreða-
vatni, og verða þær á heimilum
íslenzkra skáta. Þær ætla og að
ferðast eitthvað um Suðurland.
Er þær komu til landsins í nótt
var þeim tekið með kostum og
kynjum, meðal annars boðiö
skyr, sem þeim fannst frábær
matur. Þær eru talið frá hægri:
Marianne Forster (20 ára), Bar-
bara Custer (17), Bettina Ricklin
(17) og Denise Wermeille (31).
Á mótinu við Hreðavatn verða
um 1500 skátar. 157 þeirra eru
erl. og koma útlendingarnir
frá 7 löndum: Sviss, USA, Fær-
eyjum Danmörku, Noregi,
Þýzkalandi og nokkrir banda-
rískir af KeflavíkurflugvelH en
stærsti hópurmn kemur frá Eng
landi. —GG
EKKI HÆGT AÐ TELJA
»
HREINDÝR VEGNA SNJÓA
— og beðið eftir að Bjórn Pálsson komi
frá að fljúga með dónsku prinsessuna
Veiðitímj hreindýra hefst þann
7. ágúst i ár það er að segja ef
menntamálaráðuneytið veitir leyfi
til veiðanna. Leyfisveitingin miðast
við það, hvort stofninn þolir veið
arnar og því verður að fara íram
talning á dýrunum fyrir þann tíma
Dýrin eru jafnan.talin með þvi að
flogið er yfir allt það svæði sem
dýrin er að finna á og ljósmyndir
teknar. Síðan eru dýrin talin af
mvndunum.
Það er Ágúst Böðvarsson land-
mælingamaður sem i ár telur dýr-
in en hann hefur haft þann starfa
undanfarin 5 ár. Ágúst sagði við
Visi i morgun aö fyrirhugað hefði
verið að hann flygj þarna yfir meö
Birni Pálssyni um síðustu helgi
en þá var svo mikill snjór á öræf
unum að talning reyndist ekki
mögulegt. Núna er Björn Pálsson í
Grænlandj að fljúga með dönsku
krónprinsessuna og mann hennar,
og veröur því að bíða með talning
una unz hann kemur aftur, en á-
ætlað er að talningin fari fram núna
fyrir helgina. Það tekur a.m.k. 2
daga að telja dýrin, því þau dreifa
sér um rnikið svæði eða
allt frá Hornafiröi austur að Vopna
j firði. —GG