Vísir - 04.09.1970, Page 8

Vísir - 04.09.1970, Page 8
8 V í SIR . Föstudagur 4. september 1970. Otgefanií Reykjaprent hf. Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson Ritstjóri • Jónas Kristjánsson Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson Ritstjórnarfulltrúi: Valdimar H. Jóhannesson Auglýsingar: Bröttugötu 3b. Símar 15610 11660 Afgreiösla- Bröttugötu 3b Simi 11660 Ritstjóra • Laugavegi 178. Sfmi 11660 f5 linur) Áskriftargiald kr 165.00 á mðnuði innanlands I lausasölu kr. 10.00 eintaklö Prentsmiðja Vfsis — Edda hf. Hressandi gustur gtjórnmálin á íslandi í ár hafa einkennzt af tilraun- um til að opna stjórnmálaflokka, gefa almennum flokksmönnum og kjósendum kost á að verða virk- ir aðilar að vali frambjóðenda og að mótun flokks- stefnu. Prófkjör einkenndu undirbúning sjálfstæðismanna í mörgum sveitarfélögum fyrir kosningamar í vor og þóttu yfirleitt gefa prýðilega raun. Sérstaklega var glæsilegt prófkjörið í Reykjavík, sem var öllum opið og var með bindandi úrslitum. Þá höfðu fram- sóknarmenn víða skoðanakannanir í vor. Þær gáfu nógu góða raun til þess, að þær eru nú orðnar að reglu hjá þeim, eins og prófkjörin hjá sjálfstæðis- mönnum. En prófkjörin eru ekki hið eina, sem gerzt hefur. Stjórnmálaákvarðanir eru nú í meiri mæli en áður teknar fyrir opnum tjöldum og fjölmiðlar gefa betri innsýn í þær en áður var. Birtar voru atkvæðatölur allra efstu mannanna í skoðanakönnun þeirri, sem gerð var í fulltrúaráði sjálfstæðismanna í Reykjavík um skipan manna á væntanlegan prófkjörslista vegna næstu alþingis- kosninga. Engin leynd hvíldi yfir því, hve mikinn stuðning hver maður hlaut í þeirri atkvæðagreiðslu. Þá voru birtar atkvæðatölur kosningarinnar, sem fór fram í þingflokki sjálfstæðismanna um, hver skyldi vera forsætisráðherraefni þingflokksins. Allir vita, hvemig atkvæði féllu. Sumir óttast, að nýbreytni af þessu tagi valdi úlf- úð og klofningi innan flokka. Þeir óttast, að skoð- anabræður berist á banaspjótum í stað þess að snúa bökum saman. Þetta er ekki rétt. í öllum stjóm- málaflokkum er valdabarátta. Er ekki heilbrígðara, að hún fari fram á yfirborðinu og eftir lýðræðis- legum aðferoum, en að hún fari fram sem leyni- ) ) ) l( f v\ u makk? ii Andstæðingar sjálfstæðismanna útmáluðu í vor, að / átök og úlfúð hefðu fylgt prófkjöri þeirra í Reykja- ) vík. Samt varð ekki annars vart, en sjálfstæðismenn ) væru einhuga um þann lista, sem þannig var mynd- \ aður. í sumar hefur líka verið spáð miklum illind- ( um út af vali á eftirmanni Bjama heitins Benedikts- ( sonar forsætisráðherra, en ekkert bendir í þá átt. / Vitað er, að í Sjálfstæðisflokknum em margir hæfi- / leikamenn, sem geta gegnt hinum erfiðustu störf- ) um í þágu þjóðarinnar. í því er fólgið mikið öryggi. \ Eðlilegt er, að menn séu ekki allir sammála um, hver \ þessara manna sé beztur. En það kemur ekki að sök, ( þegar menn em nógu lýðræðislega sinnaðir til að /f virða leikreglurnar og snúa bökum saman að keppni / lokinni. ) Sumir flokkar þola ekki hinn hressandi gust, sem \ fylgir hinu opna stjómmálastarfi. En þeir, sem þola \ hann, vaxa að þrótti. ( Úrslitakos gerast margir merkustu viöburðir heimsstjómmáil- anna á bak við lokaöar dyr. Þegar stærstu örlagaatburðir eru að gerast, þar sem ákvarö- anir eru teknar, sem ráöa kannski úrslitum fyrir framtíð heiilla þjóöa eða allrar veraldar- innar er það venja, aö umræð- ur valdhafanna, hugleiðingar þeirra, ráðuneyti og ákvaröanir eru frámkvæmdar leynilega. Engar upplýsingar er hægt að fiá um, hivað raunverulega hafi gerzt, eða í hæsta lagi, að menn reyni að geta sér til um rökin aftir þeim framkvæmum, sem á eiftir fylgja. Þaö er þá sjaldnast fyrr en mörgum árum seinna, sem einhver leysir frá skjóð- unni, þegar atburðimir eru orðnir liðin saga, en frásögnin getur þá enn snert þá, sem persónulega minnast enn hinnar miklu alvömstundar, þegar all- ur heimurinn hékk svo sem í bláþræði skelffingarinnar. Einnig geta þær frásagnir verið merki- legur leiðarvísir og sýnishom af margvísiegum mannlegum viðbrögðum. Þær geta sýnt, hvemig sífelldur reipdráttur fer fram milii valdh., hvemig þeir lei'ka sér að því eins og tröllin að kasta fjöreggj þjóðanna milli sín. Hvernig sumir heimta miskunnarlausar aðgerðir,- stríð og blóð, meðan aðrir ráðleggja hógværð og ábyrga umhugsun. Þær geta lí'ka sýnt okkur vel inn i kerfi og starfsskipulag þjóðfélaga og landsstjórna og dregið upp athyglisverðar mynd ir aif þeim valdfaöfum sem enn í dag standa við stjórnvölinn og hafa líf þjóðanna í hendj sér. Slík rit um það sem gerzt hefur á bak við tjöldin eru aifar vinsæl meðal stórþjóðanna, þau eru ómissandi þáttur í árlegri bókaútgáfu og skapa almennari þekkingu á innihaldi líðandi heimsmála. Nú em þau til dæmis orðin óteljandi ritin, sem fjallað hafa um, hvað gerð- ist á bak við tjöldin í stjórnar- ákvöröunum Hitlers, sömuleiðis rit um Churchill gamila. í þess- um hópj má einnig telja rit Milovan Djilas í Júgóslavíu, sem gaf mjög ýtarlegar o-g merkilegar upplýsingar um kúg- unaraðgerðir Rússa gegn Júgó- siövum og þann ágreining sem kom upp innan júgóslavnesku fomstunnar um það, favort þeir ættu að beygja sig fyrir kröfum Rússa eða fara út á hina hæt-tu- legu sjiálifstæöisbraut. Enn mætti minna á þær stórfróð-legu upplýsingar sem Robert Kennedy ,ga-f á slnum tíma um einstaka atburði í Kúbudeilunni, bæði um innrásina I Svínaflóa og hina harðwítugu eldflauga- deilu við Krúsjeff. Af ritum, sem s-tanda okkur nokkuð nær mæt-ti til dæmis nefna upplýs- ingar Þær sem Halvard Lange og aðrir I Nore-gi hafa gefið um atvik að þátttöku Noregs í stofnun Atlantshafsbandalags- ins svo nokkuð sé nefnt. ITitt hefur alltaf reynzt miklu örðugra að afla slíkra upp- lýsinga um viðburði i einræðis- ríkjunum austan jámtjaids. Þar I sveit er sl-ík ú-tgáfa sannra heimildarrita gersamilega úti- lokuð. Þar tíð-kast það sem í öðrum ein-ræðisníkjum, að allar mikilvægustu ákvarðanir em tsknar á lokuðum valdhafa- fundum, sem líkt og koma al- menningi ekki nofckum skapað- an hilut við. Þar er heldur eng- in söguri-tun leyfð nema hin opinbera, sem aldre; kemst nið- ur fyrir yfirborð-sskelina, og rís aldrei hærra i andanum en væmin og innifaaldslaus lofgerð- a-rro-lla um þá se-m fara með völdin á faverjum tíma. Þess Ulbricht foringi austur-þýzkra kommúnista. vegna þóttu það slík stórtiðindi þegar dóttir Stalins fór að gefa út og græða miiljónir á því sem hún vissi. í bók hennar voru noifckur merkileg atriði, aðallega varöandi einkalíf og fjöl- skyldumeðlimi hópsins í kring- um Stalin og þar var að finna áhrifamikla lýsingu á dauða hins harðskeytta einræðisherra, föður hennar, en aö öðm ley-ti var bók hennar fremur ó- merkileg, vegna þess hve grunnt hún risti. Síðar kom svo að vísu dálítil glufa á þennan upplýsingaskort, þega-r Tékkar fóm á hinu skammvinna frjáls- ræðist-ímabiíli að rifja upp hin óhugnanlegu gléepaverk, sem höfðu1 verið framin þar í landi á Stalinstímanum, en á fáu öðm hefur verið mikið mark takandi. Nú um þessar m-undir er hins vegar að koma ú-t víða um lönd aiHmerki-leg bök, eftir pólskan mann að nafni Erwin Weit, sem félck á síðastliðnu ári leyf; til að fara þaðan úr landi. Maður þessi gegnd; um m’argra ára skeið starfi sem einkatúlkur pó-lska kommúnista- foringjans W-ladislaw Gom-ulka og hafði í þvi starfj einstakt tækilfæri til að fylgjast með þvi sem geröist á æðstu stöðum i Austur-Evrópu og greinir hann margt frá því f bók sinni. Kannski hafa menn haft laus- legar hugmyndir um sumt af þvi sem þar kemur fram, en Wei-t gerir þessu efni svo ýt- arleg skil, að h-ver sem les, verður miklum mun fróðari um stjórnmál Austur-Evrópu og þá menn persónulega, sem þar eru að verki. Hann segir af eigin kynnum frá ó-tal ráðstefnum og fundum heimsóknum og per- sónu-legum viðræðum, þar sem til dæmis æöstu núverandi ráða. menn Sovétríkjanna koma rnjög við sögu, og fá menn m. a. af því greinargóða mynd af sjálfum Bresnév. sem þar er nú hvað mestur valdamaður. Hafa þættir úr bók Weits birzt að undanförnu í þýzka viku- blaðinu Spiegel. JYJeðal þess sem Weit lýsir þar og vekur favað mesta atfaygli e,r ráðstefna Varsjár- banda-lagsins, sem haildin var einmitt í Varsjá, höfuðborg Pó-liiands, 14. júlí 1968, en þar voru mjög örlagaríkar ákvarðan ir teknar um það, hvað gera skyld; í Tékkóslóvakiumálinu. Var þaö verk þessarar ráðste-fnu að semja úrslitakosti til Tékka um það, að þeir yrðu að stöðva gagnbyltingarþróunina í landi sínu bræðraþjóðimar I Austur- Evrópu myndu ekfci sætta sig við slí'ka þróun, heldur grípa í taumana með einhverjum hætti. Það er til dæmis athyglis- vert í frásögn Weits, aö allir þátttakendur í þessari ráö- stefnu voru mjög andvígir þeirri þróun. s-em orðið hafði í Tékkóslóvakíu að undanfömu. Það er t.d. ekki rétt sem sum ir hafa haldið, að Gomulka hafi reynt að bera blak af Tékkum og afsakað frjálsræðisþróun- ina. En kannski er ekki fylli- lega að marka þessa einhliða afstöðu ráðstefnunnar, vegna þess að Mos-kvuvaldið hafði þegar talað og því var ekki lengur unnt þar í hópi að bera brigður á það, að gagnbylting in í Tékkóslóvakíu ógnaði öðr- um kommúnistastjómum. Sér- staða Gomulka var aðallega í þvi fólgin, að hann vildi að Tékkar fengju áfram að gera upp reikningana í landi sinu vegna glæpaverka Stalins-tím- ans og fórnardýmm þeirra ógna yrðu greiddar skaðabætur. En svo virðist sem A-Evrópu-leið- togar, svo sem fulltrúar Rússa hafi ekki verið hrifnir af slík- um skaðabótum, sennilega af því að slík stefna gæti haft geigvænleg efnahagsleg áhrif um alla Eustur-Evrópu, þar sem fórnardýr Stalin-tímans, er máttu þola fangabúðavist og pyntingar skipta milljónum. Weit skýrir frá því, að harð- astir í kröfunum um hemaðar- íhlutun í Tékkóslóvakíu hafi þeir veriö Shivkov frá Búlgaríu og Ulbricht frá Austur-Þýzka- landi. En ákveðnasti andstæð- ingur slíks ofbeldis var Janos Kadar frá Ungverjalandi. — Gomulka var harðorður um þró un mála í Tékkóslóvakíu, en vildi forðast sem lengst valdbeit ingu. Svo komu rússnesku full- trúarnir. fremstur í hópnum Bresnév, og varð Ijóst af ræðu hans, að Rússar höfðu þegar tekiö ákvörðun um að beita vopnum. Hinn herskái armur framkvæmdaráðsins hafði náð meirihluta, en fulltrúi hinna, Kosygin, sat fundinn én hafði hægt um sig. Meðal þess sem gerðist á fundinum var aö Janos Kadar

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.