Vísir - 07.09.1970, Síða 4
Vi'SIR . Mánuaagur /. septemDer fV70.
Loks sigraði Everton eftir
verstu byrjun meistaraliðs
□ Eftir verstu byrjun, sem um getur hjá ensku
meisturunum, tókst Everton loks að sigra á
laugardaginn eftir sex leiki í röð án vinnings. í
sjöundá leiknum mættu meistararnir Bobby Moore
og félögum hans í West Ham á Upton Park í Aust-
ur-London og sigruðu eftir skemmtilegan leik með
2—1, þar sem eitthvað varð undan að láta, og er
West Ham nú eina liðið — ásamt því neðsta, Burn-
ley — sem ekki hefur sigrað í 1. deildinni í þeim
sjö umferðum, sem leiknar hafa verið. Everton
hafði yfirburði í fyrri hálfleik og þá skoruðu Joe
Royle og Jimmy Husband — en í síðari hálfleikn-
um tókst West Ham að skora eitt mark og var
sjálfur Bobby Moore þar að verki. Það er ekki á
hverjum degi, sem þessi frægasti varnarm^ður
heims skorar í leik — hann skoraði ekkert mark á
síðasta leiktímabili, en tvö tímabilið þar á undan.
Tölvan, sem raðar niður leikj-
unum — hvað gera tö'lvur ekki
í dag? — sfeeWti saman á laugar
daginn úrslitaliðunum frá bik-
arkeppnunum í vor, Leeds og
Ghelsea á leifeveili Yorkshireliðs
ins, og Manch. City og WBA á
Main Road í Manchester. Þetta
voru ójafnir leifeir — einkum
þó á Main Road. Bobby Hope,
skoz-ki • landsliðsmaöurinn hjá
WBÁ, sfcpfaði fyrsta mark leiks
ins, en síðan náðu leikmenn
City alveg yfirhöndinni og
ensku landsiliðsmennirnir þrír i
framlínunni, Francis Lee, Colin
Beil (2) og Mifee Summerbee
tryggðu sigurinn.
Á Elland Road i Leeds var
hvert saet; skipað, þegar bikar
meistarar Chelse komu í heim-
sókn, og leikmenn Leeds voru
ákveðnir að hefna fyrir ófarirn
ar í vor, þegar ailt geifck á aftur
fótunum hjá þeim og von um
sigur ' deildinni i bikamum og
Evrópubifearnum varð að engu á
nofckrum vifeum. Og þeir höfðu
tögl og hagldir ailan tímann i
ieiknum á laugardaginn, og úr-
slitin 1—0 segja aðeins hálfan
sannleikann. Leeds var nær
stanzlaust í sókn báða hálfleik
ina, en frábær markvarzla Peter
Bonetti í Chalsea-markinu kom i
veg fyrir stórsigur liðsins. En
eitt mark, sem Alan Ciarke skor
aði á 19. min. i s.h. eftir mikla
pressu, tókst honum ekki að
koma í veg fyrir. Mark Leeds
komst varla í hættu aiian leik
"inn —'og eftír þísl&umfefðír
WlM HSð þfiggfla™
stiga forskoti og það verður
sepnilega erfitt að brúa, þó svo
Manch. City, sem er í öðru sæti
hafi leikið einum leik minna. En
við skulum nú llta á úrslitin i
1. deiid á laugardaginn, en allir
leikirnir þar voru á íslenzka get
raunaseðlinum.
Arsenal—Tottenham 2—0
Biackpoo'l—Southampton 0—3
Coventry—Huddersfield 0—0
C. Palace—Nottm. Forest 2—0
Derby — Newcastle 1—2
Ipswich—Burnley 3—0
Leeds Utd.—Chelsea 1—0
Liverpool—Manch. Utd 1—1
Manch. City—WBA 4—1
West Ham—Everton 1—2
Wolves—Stofce City 1 — 1
Stórliðin í Norður-London,
Arsenal og Tottenham, mættust
á Highbury og áttu leikmenn
Arsenal létt með að finna veik
leika í vörn Tottenham. George
Armstrong skoraði tvö mörk
meö mínútu millibili, hið fyrra
á 15. mín. og átti ágætan leik
ásamt Radford. En bezti maður
liðsins var þó fyrirliðinn Frank
McLintook, hann tók „risann"
Martin Ohivers alveg úr urnferð
og þar með broddinn úr sókn
Tottenham.
Manch. Utd., sem sigraði Ever
‘ ton í vifeunni 2—0 með mörkum
George Best og Bobby Charlton
iéfe nú aftur gegn Liverpool-liði
á laugardaginn og náði jafntefli
á Anfield, en það var varla verð
skuldáð. United lék prýðilega
fyrstu 20 mín. og þá skoraði
Brian Kidd — en Alun Evans
jafnaöi aðeins tveimur mínútum
síðar og eftir það hafði hið
unga Liverpool lið yfirburði, en
tókst ekki að nýta þá f mörk.
Derby County gaf Newcastle
í byrjun tvö „felaufamörk“, og
tókst aldrei að jafna þann mun.
Keith Dyson skoraði fyrra mark
ið eftir misheppnaða sendingu
bakvarðar til Green markvarðar
og hið síðara skoraði David
Young, enn einn nýliði, sem lei'k
ið héfur með Newcastle að und
aiiföfflu •, ‘með;'t „meinlausri"
f spftrpui aJj.iöngUf færi.. Jphn 0‘,,
Har.e tókst að laga stöðuna í
1—2 fyrir hilé, en fleiri urðu
ekki mörkin. Blackpool tapaði
illa fyrir Southampton á heima
velli. Leikmenn Blaokpool voru
í stöðugri sókn fyrsta hálftím-
ann, og Eric Martin, markvörð
ur bjargaði þá fjórum sinnum
sniildarlega — en svo skoraði
O’Neil fflM-t í einu og rétt á eft-
ir var dæmd vítaspyrna, sem
Ron Davies skoraði úr. Þannig
er knattspyman — miskunnar-
laus á stundum — og Mike
Ohannon sfeoraði þriöja mark-
ið eftir mikinn einleik.
Lundúnaliðið Crystal Palace,
sem rétt varðist faili f vor, er
nú í þriðja sæti ásamt Arsenal
Alan Birchenall og Bobby Tampling, sem gjörbreytt hafa
liði C. Palace..
og kaup á þremur mönnum hafa
gjörbreytt liðinu, en það eru
fyrrum Chelsea-'leiikmennirnir
Alan Birchenall og Bobby Tampl
ing og Peter all, bakvörður frá
Liverpool. Þeir kostuðu 200 þús
und sterlingspund, og virðast
ætla að verða fljótir að endur
greiða þá upphæð. C. Palace
sem leifeur á Selhurst Park i
Suður-London, skammt frá
Chelsea, lék mun betur gegn
Nottingham Forest og Skotarn
ir Queen (er lék með Þórólfi
hjá St. Mirren) og Jim Scott
skoruðu mörkin. Þetta er fyrsta
mark Scott fyrir CP, en hann
var keyptur frá Newcastle í vor
og er bróðir hins kunna leik-
manns Alec Scott, sem lengi lék
með Rangers og Everton, en er
nú með Falkirk, sem sigraði í
2. deildinni skozkují vor. Hugh
Curran, skozki miðherjinn hjá
Úlfunum skoraði eina mark liðs
síns gegn Stoke og er það sjö
unda mark Currans í haust í
deildinni. Leikurinn verður sýnd
ur f sjónvarpinu á laugardaginn.
Staðan í 1. deild er nú þann-
ig:
Leeds 7 6 10 13:2 13
Manch. City 6 4 2 0 9:2 10
Arsenal 7 3 3 1 10:4 9
C. Palace 7 3 3 1 5:2 9
Liverpool 6 2 4 0 9:4 8
Nottm. For. 7 2 4 1 10:7 8
Jimmy Husband (til vinstri) og Joe Royle skoruðu mörk Everton ^egn West Ham.
Chelsea
7 2 4 1 8:7 8
Derby 7 3 13 13:10 7
Southampton 7 2 3 2 7:6 7
Coventry 7 3 1 3 7:7 7
Huddersfield 7 2 3 2 7:7 7
Tottenham 7 2 3 2 7:7 7
Manch.Utd. 7 2 3 2 6:7 7
Newcastle 7 3 1 3 9:11 7
Stoke 7 1 4 2 6:8 6
WBA 7 13 3 12:15 5
Everton 7 1 3 3 9:12 5
West Ham 7 0 5 2 7:11 5
Wolves 7 2 1 4 10:17 5
Blackpoöl 7 2 1 4 5:11 5
Ipswich 7 1 2 4 5:8 4
Burnley 7 0 3 4 2:11 3
í 2. deildinni hefur Cardiff
City frá Wales tekið forustu
með 8 stig erftir sex leiki, en
Portsmouth, Hull og Oxford
hafa 7 stig eftir fimm leifei. Úr-
slit:
Blackburn — Swindon 1—0
Cardiff—Birmingham 2—0
Carlisle—Orient 2 — 0
Charlton—MillvaM 1—3
Hull City — Bolton 1—0
Luton—Middlesbro 1—0
Oxford—Leicester 1—0
Portsmouth—Sheff. W. 2—0
QPR—Watford 1—1
Sheff. Utd.—Bristol C. 3—3
Sunderland—Norwich 2—1
Sunderland, sem féll niður í
vor. sigraði í annað sinn í vik-
unni nú á kostnað Norwich,
sem var í efsta sæti fyrir umferð
ina en féll við tapið niður f
sjötta sæti. —hsím