Vísir - 17.12.1970, Page 1

Vísir - 17.12.1970, Page 1
 Hvað á að gefa henni i jólagjöf eðo honum? — Og hvað hentar heimilinu og fjölskyldunni? Litið i verzlanir og skoðaðir hlutir sem gætu hentað i jólagjöf, einnig valdar ódýrar gjafir JJér er svo seinni jólagjafo- handbókin en í henni eru hugmyndir og upplýsingar um jólagjafir handa henni, handa honum, til heimilisins og loks ódýrar gjafir. I þessari jólagjafkhandbók hefur einn flokkur bætzt við, sem kallaður er til heimilisins. Þannig stendur á honum, að Seinna blað Jólagjafir handa henni — bls. 3 Jólagjafir handa honum — bls. 7 7/7 heimilisins — bls. n : Jólagjafir fyrir 300 kr. og minna - bls. 13 i__________ hætta á að. i jólaösinni | hendi slíkt marga. Jólagjafa- handbókin á þvl að vera leiðtar- vísir. Við val gjafanna hefur ver ið reynt að taka tillit til þess að hægt sé að finna þar gjafir handa flestum aldursflokkum þó slíkt sé aldrei nógu vei gert. Við gjafavalið vaknaöi þessi þessi spurning: Gerumvið okkur 55 .1 það minnsta kerti og spil u margir nota jólin sem tilefni til að fá sér ýmsa hluti til heimil- isins sem þá hefur vanhagað um, gefa sér þá 1 jól'agjöf. Einn- ig munu sumir gefa ungu hjón- unum t. d. jólagjöf, sem þeir vita að þau hafa óskað sér og vantar eða langar í og fellun undir flokk heimilistækja eð'a annarra nytjahluta á heimilinu. Einnig hefur áhugi fólks á að prýða heimili sín aukizt mikið síðustu ár og er það sambæri- legt við það sem gerist i öðrum löndum. Við könnumst öll við áhugann á „antík“ munum og hvernig fólk útbýr heimili sín slfkum hlutum. Sumir hallhst að nýtízku heimili með stílhrein um og einföldum húsgögnum, aðrir vilja „sveitastílinn" og lengi mætti telja. Þessa áhuga gætir ekki sízt hjá ungu fólki en eldra fólkið er yfirleitt búið að móta heimili sín eftir slnum smekk en hefur þó gaman af að bæta við nytjahlutum og fallegum munum. í þessum gjafaflokki má finna ýmsar hug myndir að jólagjöfum og gefa búsáhaldaverzlanir og járnvöru- verzlanir margar skemmtilegb Imöguleika á jólagjöfum, sem geta verið mismunandi dýrir, allt frá mjög ódýrum upp í dýrar gjafir. En ein regla ætti auðvitað aö -gilda um þessb gjaíaiegund ekki síður en aðrar og þaö er, aö gefandanum sé fullkunnugt um smekk þeirra, sem á aö gefa. Það gildir kann- ski ekki sízt um val á þessum hlutum þvi flestir vilja móta heimili sín að eigin smekk. í hinum flokkunum má einnig finna hluti, sem ætlaðir eru til nota á heimilinu og um leið til skrauts og hefur verið reynt að skipta þeim hlutum milli flokk- anna. Þannig hð bæði hún og hann fái slíka hluti í sinn hlut. Þessi skipting er alls ekki fast- bundin eftir kyni. I báðum flokkum eru gjafa- hugmyndir, sem hæfa jafnt kon- um og körlum. Hin stranga verkaskipting kynjannfa hefur mikið breytzt á undanfömum árum og áhugamál þeirra um leið. Það hefur einnig samband við almenn áhugamál. Þaö má segja aö sviðið hafi stækkað og áhug'amálin eru orðin fjöibreytt- ari en þau voru. em dæmi má nefna aukinn áhuga á matartil- búningi og meiri fjölbreytni í þeim efnum. Karlmaðurinn á heimilinu hefur kannski þetta áhugamál en konan lætur það sig litlu skipta eö*a þá að þau eru bæði áhugamanneskjur um slíkt. Handa honum mætti því velja fallegan pott, sem er ætl- aður til að bera á borð. Það er langt síðan karlmfanninum var ætlað visst hlutskipti við matborðið. í engilsaxneskum löndum hefur þaö t. d. tíðkazt til fjölda ára, að hann hefur skorið steikina. Nú þykir þhð ekki athugavert lengur þótt karlmaðurinn sé kokkurinn á helmilinu, þegar mikið stendur til eða jafnvel hversdags, þó mun það fátíðara. En þróunin er sú, aö hjón skipti með sér húsverkum í ríkara mæli en áður. J ódýra fiokknum má finna hugmyndir að gjöfum og þar er hægt að láta ímyndunar- aflið leika lausum Hala og segja sér til um gjafahugmyndir. Sam settar gjafir geta verið mjög skemmtilegar og svo aö mjög einfalt dæmi sé nefnt, kerti og kertástjaki og viö bætum við málmþynnum til að h'afa neðan á kertinu — þá mætti bæta við þá gjöf kertaslökkvara eöa skærum til að klippa á kveik- inn. Ódýrar gjafir má finna í hinum flokkunum einnig. í þetta sinn er miðað við þrjú hundruð krónur og þar fyrir fieð'an, en margar gjafanna kosta milli eitt hundrað og tvö hundruð krónur. Og þetta er alls ekki tæmandi listi yfir ódýrar gjafir, langt frá því. Ódýrar gj'afir geta einnig verið með þeim skemmtilegri, ef hátíðleikinn er látinn víkja dálítið og leikurinn látinn koma í staðinn, en það hafa allir gam an af að fá gjöf, sem kemur á óvart á sérstæðan hátt og þarf hún ekki iað vera dýr. Um hver einustu jól er talaö um hina miklu eyöslu fyrir og um jólin, og víst mun gjafa- hlutfallinu misskipt. En þelta er hlutur sem fullorðið fólk á við sjálft sig. Flestir munu vera þannig gerðir, að þá lapgi til að gerla J sér dagamun í svartasta skammdeginu. Þeir gera það á ýmsan hátt. Eins og áður er drepið á kaupa ýmsir sér hluti til heimilisins fyrir jólin sem þá hefur vanhagað um og geymt til jölanna að kaupa til þess aö auka þá enn á ánægj- una yfir fallegu heimili. Það tíðkast einnig mikiö að gefa í jólagjöf föt, og óska eftir fötum í jólagjöf og eru það oft- ast nær flíkur sem eiga að end- ast ilengi eða viðkomandi van- hagar um. En þetta er gamall jólasiður á íslandi samanber að láta engann fada í jólaköttinn. Þá eru það lúxusvörurnar, sem fólk veitir sér yfirleitt ekki á öðrum árstimum eins og alls konar snyrti- og baðvörur. Það má líta á jólainnkaupin frá ýms um hliðum og hvort eigi hð dreifa innkaupunum jafnt yfir allt árið í stað þess að láta þau hrannast á einn mánuð og tæp- lega það. Gj’afir má gefa á öðr- um árstímum óvænt gjöf af engu tilefni vekur ekki síður ánægju. ■ TTmhugsunin er forsenda góðra jólagjafa eins og tekið var fram í fyrri jólagjafahandbók. Það ættu allir að leggja þessa spurninau fvrir sig: Vanhagar hann eðb hana eða þau um þessa gjöf, kemur hún þeim á óvart. vekur hún ánægiu? Það er betra að kaupa vandaða vöru en eitthvað sem slær í iaugun i bili. — En þaö er einmitt grein fyrir því hvað það er sem elzta fólkið vanhagar um? Er það ekki allt of oft sem eldra fólkið fær alltaf sömu jólagjöf- iria eða skrautmuni, sem það hefur enga þörf fyrir? Roskið fólk er búiö að koma sér fyrir, það safnar ekki að sér hlutum lengur. Glysmunir henta ekki þessum aldursflokki. I staðinn fyrir slíkfa vöru ætti að gefa eitthvað sem er notaö. Falleg kerti eru betri gjöf en óvandað- ur kertastjaki, en gætið þess þá hvort viðkomandi hefur fengið mikið af kertum undanfarin jól. Einnig getur flaska af léttu vini verið tilbreyting frá venjuleg- um vas’aklútagjöfum. Eldra fólkið hefur einnig sín áhuga- mál, sem geta gefið vísbend- ingu að jólagjöf. 1 jólagjafahandbókinni er ekki valið úr þeim flokki jóla- gjafa sem eru sígildar og alltaf mikið keyptar um jóiin, en það eru bækurnar. Um þær er mikið búið að skrifa undanfarna daga, fyrir utan jólabókalista og aðra upplýsingaþiónustu sem birtist í blöðum. Bækur hent'a öllum aldursflokkum og flestir eru þannig gerðir að þá langar i eina bók a. m. k„ til að líta í yfir jólin. Það er á sviðum sem þessum sem má finna ýmsar hugmvndir að jólagjöfum. Þar eru áskriftir að tímaritum t. d. Það má 'líka benda á áskrift a5 dagblaði og áskrift að leikhús- feröum, sem leikhúsin hafa gef- ið kost á undanfarin ár.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.