Vísir - 18.02.1971, Síða 4
«'• ' V V, ('■<] ’ ' »
'f
Handknatfleikur:
Staðan í 1. deild
Staðan í 1. deild er nú orðin
þessi:
• 1 ■ ó <
mun vera Ólafur Jóns'
EINS 0
— meðan allt var i kaldakoli hjá Hafnfirbingum
VALSMENN státa af eins stigs forskoti í 1. deild og
hafa lagt FH eftirminnilega fyrir framan 3600 áhorf-
endur í þéttsetinni, staðinni og leginni Laugardalshöll-
inni. í hverju skoti var fólki þjappað saman, — og þess-
ir áhorfendur urðu vitni að meiri yfirburðum Vals en
nokkum hafði órað fyrir. FH-Iiðið lék hreint „stat-
ista“-hlutverk á fjölum Laugardalshallarinnar í gær-
kvöldi, og leikmenn liðsins horfa kvíðnir fram á veg.
Valsmenn eiga eftir leiki við ÍR og Víking, tvö neðstu
liðin, og virðist líklegir til að sigra þau bæði og verða
íslandsmeistarar.
Það var sannarlega stemning í
Laugardalshöll i gærkvöldi og
reykjar- og svitalykt í loftinu.
ÁhoTfendur voru þegar tvúnir aö fá
hrollveikjuna, þegar leikur Vals og
PH hófst, því lei'k Víkings og ÍR
var þá nýlokið.
Greinilegt var að bæði liðin voru
taugaóstyrk í byrjun en einkum
virtist þetta eiga við um FH-liðið.
Byrjunin var fall, en það reyndist
ekki fararheill. Geir skaut fram
hjá marki Vals.
Bjarnj Jónsson skoraði aftur á
móti fyrir Val eftir hálfa aðra min-
útu. Enn mistekst Geir, þessari
skæru stjörnu PH og landsliðsins,
vítakast hans lendir í stöng og
út fyrir hliðarlínu. Ólafur Bene-
diktson sýndi aftur á móti strax
að hann var vel upplagður og til
f aö sýna allt, sem hann hefur
numið í fræðum marikvarðarins.
Ólafur Jónsson skoraði 2:0 fyrir
Val eftir 8 mín. leik, og rétt á eftir
varði Ólafur markvörður enn mjög
vel. Fyrst eftir 11 mínútur skorar
Geir úr vítakasti 2:1, en Bergur
bætir við fyrir Val úr víti, og Ól-
afur Jónsson 4:1 rétt á eftir.
Harkan f leiknum var mikil og
flautan gekk f sífellu, en dómar-
arnir, Magnús V. Pétursson og
Sveinn Kristinsson, virtust sam-
kvæmir jálfum sér og dæmdu erf-
iðan leik yfirleitt vel.
Ólafur Einarsson skoraði 4:2, en
sannarlega átti efcki af Hafnfirð-
ingunum að ganga, því enn brást
Geir bogalistin. í vítakasti, ná-
kvæmlega sama gerðist, í stöng og
útfyrir.
Hermann skoraði 5:2 úr horni
vinstra megin, sérgrein að verða hjá
Hermanni, en Ólafur Einarsson tók
því næst vítj fyrir FH, og skaut
langt yfir markið, þriðja misheppn-
aða vítakastið hjá FH, en þó ekki
nema eitt slíkt hjá Val.
Loks þegar Gils Stefánssyni var
falið að taka víti, tókst að skora
5:3 á 23. mínútu. Sannarlega er
það óvenjulegt að horfa á FH
leika í 23 mínútur og hafa ekki
skorað nema 2 mörk, þar af annað
úr vítakasti.
„Val JóKst_,að«..hrista FH af sér
érin frekár, staðan var oröin 8:3, og
rnénn "farnir að ókyrrast, jafnt
leikmenn FH sem og forráðamenn.
Sveinn Kristinsson, dómari, að-
varaði forystumenn á bekkjunum:
„Ef þið segið svo mikið sem eitt
orð ...“ o.s.frv. Til frekarj að-
1 gerða kom þó ekki.
ir Víkingur—ÍR 15:15.
★ Valur—FH 21:15.
Valur
FH
Haukar
Fram
ÍR
Þeir Auðunn og Jónas Magnús-
son minnkuðu bilið síðustu 3 mín.
hálfleiksins i 8:5.
Seinnj hálfleikurinn var jafnvel
enn meiri pína fyrir Hafnfirðingana.
Þeim virist mistakast flest. Vam-
arskipulagið virtist vera fyrir löngu
gleymt og grafið og í sókn-
inni var e.t.v. einum um of hugsað
um hvernig Geir gæti nú rétt þeirra
hlut. En Geir virtist ekki upplagð-
ur, og Valsmenn gleymdu honurn
aldrei að heitið gæti. Geir var ekki
lausnin, en það uppgötvuðu þeir
of seint.
Valur skoraði 2 fyrstu mörk síð-
ari hálfleiks, áður en Geir svaraði
með 10:6 á 4. mínútu. Svo furðu-
lega fór þó, að úrslit leiksins voru
að heita ráðin á næstu 2 mínútúm.
Þá skorar Hermann úr vítakasti
og Ólafur Jónsson af línu mínútu
síðar á 8. mínútu. — 12:6. Þetta
hlaut að nægja, það hlutu allir að
sjá.
En Valsmenn héldu áfram sökn
sinni, og þeim virtist flest heppn-
ast. Á 13. mínútu var munurinn
orðinn 8 mörk í 16:8 og síðan 17:8.
Undir lokin var aðeins hugsað
um það að ljúka leiknum og kom-
ast burtu í heitt og gott bað, burtu
úr hita og reyk í salnum. Lokatöl-
urnar urðu 21:15 og sótti FH því
nokkuð á síðustu mínúturnar.
í þessum harða leik var 6 leik-
mönnum vísað af velli í 2 mín.
hverjum, þrem úr hvoru félagi, og
virtist það eðlilegt, nema e. t. v.
Kristján Stefánsson sem greinilega
sló Ágúst Ögmundsson óviljandi
niður. — JBP
STAEDELI-LIFT AG 8618 OETWIL A/S, ZUERICH, SWITZERLAND
STAEDELI-LIFT AG 8618 OETWIL A/S, ZUERICH, SWITZERLAND
Gylfi Þ. Gíslason menntamálaráðherra og kona hans eru tíðum
gestir handknattleiksmanna og í gærkvöldi voru þau meðal
3600 áhorfenda i LaugardalshöII. Hér fylgjast þau spennt með
leiknum í gærkvöldi.
Valsmenn voru ágengir við FH-markið í gær, —
son, sem sækir þarna að Kristjáni Stefánssyni.
Umboösmaður óskast til að selja PONY-skíðalyftur á íslandi.
PONY-skíðalyftur eru svissnesk gæðavara.
Helztu upplýsingar:
Dráttarlengd allt að 300 m
Hæðarmismunur allt að 50 m
Verð frá SFr 8.000,— til 15.000.00
PONY Junior 7,5 hö
PONY Standard 13 hö
PONY Super 20 hö
Þessar lyftur má setja upp á einum degi.
Vinsamlega skrifið eftir nánari upplýsingutn.