Vísir - 19.02.1971, Side 2
n
Uppeldi sona minna mistákst"
— sagbi dr. Benjamin Spock i sjónvarpsk>ætti Davids Frost
f
Dr. Benjamin Spock, —
hvers ráðleggingum varð-
andi barnauppeldi milljón
ir foreldra um allan heim
fylgja, sagði um daginn
f þeim virta sjónvarps-
þætti, sem David Frost
hinn brezki stjórnar, að
honum hefði mistekizt
föðurhlutverk sitt, og
sömuleiðis, að hans eigin
foreldrum hafi einnig orð
ið fótaskortur á hinni
mjóu og erfiðu braut upp
alandans.
Benjamín Spock er frægur fyr-
ir sína hörðu andstööu gegn Víet
nam-stríðinu og herþjónustu
ungra manna, hann sagöi í fyrr-
nefndum þætti Frosts: „Báöir
synir mínir fundu það gegnum
sín bemskuár, að ég elskaöi þá
ekki sérlega heitt, vegna þess að
ég sýndi þeim aldrei neina um-
hyggju, líkamlega. Þetta álit
þeirra kom mér mjög á óvart,
vegna þess að faðir minn sýndi
mér aidrei neina blýju með at-
lotum eða klappi, og siíkt gerðu
ekki heldur feður vina minna.
Það tíðkaðist einfaldlega ekki í
þvi umhverfi sem ég ólst upp í.“
En þessi tvö ,,köldu“ heim-
ili, sem Spock haf'ði haft kynni
af, urðu samt til þess, að hann
varð einhver frægasti barnalækn
ir sem uppi hefur verið, heims-
frægur fyrir kenningar sínar um
bamauppeldi.
Bók hans, sem um barnaupp-
eldi fjailair, hefur selzt f fleiri
eintökum í Bandaríkjunum en
nokkur önnur bók, að biblíunni
undanskilinni.
Spock sagði í sjónvarpsviðtal-
inu við Frost. að núna væri hann
rétt að byrja að læra að sýna
sonum sínum tilfinningar sinar:
„Þegar ég hitti syni mína“, sagði
hann, „faðma ég þá að mér. 1
fyrstu fannst mér þetta svolitið
undarlegt, en ég er farinn að
venjast því núna. Og þeir virðast
kunna því vei, og þannig gera
þeir mér og okkur auðveldara
fyrir“.
Öfundar unglinga
nútímans
Nýlega lauk Spock við að rita
bók um vandamál æskunnar og
þar minnist hann m.a. á það,
hversu voðalega feiminn hann var,
er hann var á bamsaldri og ungl
ingur.
„Þessu myndi víst engkin trúa,
en ég var afskaplega feiminn",
segir hann, .,ég kom aldrei ná-
lægt stúlkum og gat aldrei rætt
við þær. Eiginlega byrjaði ég
ekki að tala við stúlkur fyrr en
ég var orðinn 18 eöa 19 ára“.
Sagðist Spock í sjónvarpsþætt-
iinum ekki geta annað en fundið
til afbrýðisemi gagnvart nútíma-
unglingum, sem svo ungir að' ár-
um væru farnir að stunda stefnu
mót með andstæðu kyni, en hann
lagði á það áherzlu, að mjög
væri það einstafclingsbundiö,
hversu snemma ungHngar tækju
að „stunda hitt kyniö“.
„Ég held“, sagði Spock, „að
ef viðkomandi unglingur er lík-
amlega eða andlega tilbúinn til
að hafa afskipti af hinu kyninu,
þá muni hann gera það, hvort
sem foreldrum hans geðjast aö
því eður ei. Þaö er hins vegar
verri sagan, ef foreldrar neyða
böm sín út í að eiga stefnumót
— þ.e. með því að iáta þau bjóða
ti'I sín drengjum og stúlkum til
samkvæmis, draga giluggatjöldin
fyrir, dempa ljósin o.s.frv. til
þess að reyna að skapa „rétt
andrúmsloft". Það er mjög slæmt"
sagði Spock, „ég veit að for-
eldrar 12, 14 og 15 ára bama
gera þetta og það er mikil kór-
viila. Nú er það að vísu stað-
reynd, aö sum börn, 12 ára, eru
af sjálfsdáðum farin að hafa mik
inn áhuga og vilja hafa samskipti
við gagnstætt kyn.“
Hassneyzla leyfileg
Spock kom víöa við í þættin-
um hjá Frost. Hann fordæmdi
tóbaksreykingar og neyzlu á-
fengis, en við borð lá, að hann
hvetti til neyzilu hass:
„Ég held, að enn liggi ekki fyr
ir neinar sannanir um aö hass sé
skaðlegt, þegar til lengdar lætur“
sagði hann, „það merkir reyndar
ekki að ég mæli með neyzlu þess,
en ég vil dragg skýra línu milli
marijuana og áfengis. Og ef á
að banna eða hindra neyzlu ann-
ars hvors held ég aö þið ættuð
að banna áfengið fyrst.
Þegar ég var ungur maður
rfkti vínbann í 'Bandan'kjunuim
og við drukkum eins og fáráðl-
ingar. Hluti ánægjunnar var fólg
inn í þvi, að það var bannað aö
drekka. Ég held að sú reynsla
sé ein af þeim ástæðum, sem
liggja því til grundvallar, að ég
vil hafa hassneyzlu lögiega, að
minnsta kosti þar tiil einhver get
ur sannað aö það sé örugglega
skaðlegt.
Ég myndi hims vegar segja við
son minn eða dóttur: Gerið það
í guðanna bænum að nota ebki
örvunarlyf af neinu tagi, a.m.k.
ekki fyrr en þið eruö orðin tví-
tug. Táningsárin eru nefniiega
mjö-g svo viðkvæmur tími“_ sagði
Spock.
Beitið skilningi
— ekki vendi
Foreldrar í Bandarikjunum,
hafa í seinni tíð gagnrýnt Spock
harðlega fyrir hans frjálslega við
horf gagnvart bömum, en hann
segir skoðanir sfinar í uppeldis-
málum ekkert hafa breytzt síö-
ustu 10 árin.
„Staðreyndin er raunar sú, að
aldrei áður hef ég verið svo sann
færður um að foreldrar ættu að
spara sér vöndinn og reyna frem
ur aö S’kilja bamiö“, sagði hann,
„og ég held að það sé alveg jafn
auðvelt að ofmeta bam og það er
auövelt að vanmeta það. Foreldr-
ar verða að læra að temja sér
eitthvert jafnvægi — eins konar
línu að draga mi’lii þess sem á
að segja börnum og máliH þess
sem ekki liggur á aö fræða þau
um strax.“
Máli sínu til skýringar nefndi
Spock dæmi um lítið bam, sem
vildi allt í einu vita hvaðan litlu
börnin kæmu, og foreldrar þess
héldu yfir því, reynd^r ofurlítið
hikandi, langa ræöu um stað-
reyndir lífsins — frjóvgun og
fæðingu. Þegar svo foreldramir
hefðu lokið ræöu sinni, kæmi
barnið þeim aligjörlega í opna
skjöldu meö því að segja: Að allt
sem það langaði að vita, var
hvort það væri satt, að þaö hefði
kornið út úr maganum á henni
mömmu.
„Fólk verður að vita hvenær
og hvaða svör á aö gefa“, sagði
Spock.
DAVID FROST Á
BIÐILSBUXUM?
DAVID FROST, sjónvarpsmaður
inn brezki, sem minnzt er á ann-
ars staðar hér á síðunni í dag,
stjómar þáttum jafnt í Bretlandi
sem Bandaríkjunum. Flýgur hann
á milli London og New York
a.m.k. einu sinni i viku, vegna
þessara starfa sinna, en maður-
inn þykir einhver hæfasti stjórn
andi umræðu- og viðræðuþátta
við sjónvarpsstöðvar, en einnig
er hann liðtækur við aö stjóma
skemmtiþáttum.
Frost er 31 árs og hefur auðgazt
mjög á þáttum sínum. Hann er
ókvæntur og því umsetinn kon-
um, enda er maöurinn einkar
geðgóður, fyndinn og „laglegur“,
segir vinkona hans, leik- og söng
konan svarta, Diahann Carroll.
Sögur eru nú á lofti um að
Frost ætli sér að kvænast ungfrú
Carroll en hún er fjórum árum
eldri en hann og á 10 ára gamla
dóttur.
Frost hefur sagt aðspuröur, að
hann hafi engar hjónabandsáætl
anir á lofti, en hins vegar hefur
það flogið fyrir, að hann hafi þeg
ar beðið um hönd ungfrúarinnar,
en hún hafi hryggbrotiö hann.
Hvemig sem málin standa
hjá Frost, þá hefur móöir hans
sagt, að Carroll sé „mjög geðs-
leg stúlka. — og reyndar eina
stúlkan sem Frost hefur kotnið
með heim til mín". Móðir Frosts,
fni Mona Frost býr í Suffolk,
Englandi, og sagöi hún nýlega í
stuittu bliaðaviðtali: „Auðvitaö
hefði ég ekkert á móti því, að
David kvæntist Diahann, og raun
ar hefði ég ekkj á móti þvl að
hann giftist hverri sem hann
vi'ldi, ef út í það er farið“.
Diahann Carroll var gift fyrr
um umboðsmanni sínum, Monte
Kay. Þau giftust 1955 og skildu
1963. Hún sagði um daginn: „Ég
vildi gjaman giftast aftur og
eignast fleiri böm — jú, mér
finnst Frost mjög skemmtilegur,
hann er svo fyndinn ... hvort ég
hafi hryggbrotið hann? Þaö segi
ég ekkert um“.