Vísir - 19.02.1971, Síða 3

Vísir - 19.02.1971, Síða 3
V í S I R . Föstudagur 19. febrúar 1971. II I MORGUN UTLÖNDÍ MORGUN UTLÖND í MORGUN UTLOND I MORGUN UTLÖND Hálf mh Umsjón: Haukur Helgason: nemenda án kennslu — Sænska stjórnin setur verkbann á 25 jbúsunc/ kennara — 43 búsund starfsmenn frá vinnu i dag vegna verkbanns og verkfalla 43 þúsund manns eru frá vinnu í dag vegna kjara- deflu opinberra starfs- manna í Svíþjóð. Þetta fólk hefur annaðhvort orðið fyr ir verkbanni sænskra stjómvalda eða það hefur af sjálfsdáðum lagt niður vinnu. Ríkisstjómin beitti 30.500 embættismenn verk banni, sem kom til fram- kvæmda á miðnætti. ÖII kennsla í æðri skólum hefur lagzt niður. 25 þúsund kennarar mega ekki kenna í dag vegna banns stjórnarinnar. Á milli 500 og 700 'þúsund nemendur fá ekki kennslu í dag. Það eru 40 þúsund félagar í sam- tökum háskölamenntaðra og 3 þús- und félagar í sambandi opinberra starfsmanna, sem ekki vinna. Verkbannið gekk í gildi eftir að nefnd, sem í sitja fu'íltrúar frá báð- um aðilum, úrskurðaði, að verk- bann, sem nær til kennara sé ekki „hættulegt þjóðfélaginu“. Hefði þessi nefnd taliö verkbannið haettu- iegt, hefði verið fa'llið frá því. Samtök háskólamenntaðra og sambarid opinberra starfsmanna hófu takmörkuð verkföll 5. febrú- ar. Þá stöðvuðust járnbrautarferð- ir að miklu leyti, þegar 600 lestar- stjórar fóru í verkfal'l. Ríkisstjórn- in hótaði þá verkbanni. i Stjórnvöld segja, að einn tilgang- ur verkbannsins sé að binda enda á skæruverkföll. Fulltrúi ríkisstjóm PALME VALTUR. — Svíþjóö var löngum það land, þar sem verkföll voru einna sjaldnast af lýðræðisríkjum. Eftir að Olof Palme varð forsætisráðherra, hafa vinnudeilur angrað hann, fyrst ólöglegt verkfall námumanna í fyrra og nú feikileg átök við opinbera starfsmenn. arinnar í umræðunum segir, að verkfaillsmenn séu fulltrúar hinna hæstlaunuðu í þjóðfélaginu. Verk- föll þeirra valdi miklum vandræð- Breytt afstaða til Kína? Bandaríska stjómin ihugar nú, hvort hætta skuli öllum hömlum á ferðum Bandaríkjamanna til Kína, Kúbu, Norður-Víetnam og Norður-Kóreu, að því er formæl- andi utanríkisráðuneytisins sagði í gær. Robert McCloskey segir, að yfir- leitt fái menn ferðaleyfi til Kína, ef þeir sæki um það. Vandamálið við ferðalög Bandaríkjamanna til Kfna sé hins vegar, að stjórnin í Peking synji þeim um leyfi. Sennilegast þykir, að bandarísk stjórnvöld muni afnema hömlur á ferðurri til Kína og Norður-Kóreu, en óvíst er, hvort stjórnin er reiðu- búin til að létta hömlum af s'lík- um ferðum til Kúbu og Norður- Víetnam. McCloskey sagði ennfremur, að stjórnvöld hefðu nú tekið til endur- skoðunar afstöðuna til / aðildar Rauöa-Kína aö Sameinuðu þjóðun- um. Þá væri fjallaö um stefnubreyt ingu f viðskiptum við Kína. um, og margir aðrir eigi á hættu að missa atvinnu þeirra vegna. Formaður samtaka háskólamennt aðra, Bertil' Östergren, segir, að samtökin geti þolað vinnustöðvun til 1. apríl og líklega lengur „Það er gífurlegur uppskafnings- háttur,“ segir fulltrúi háskóla- menntaðra, „þegar stjómmáiamenn, verkalýðsleiðtogar og aðrir „brodd- ar“ með 100 þúsund krónur (1.7 milljónir íslenzkar) eða meira í árs- laun ráöast á verkfall launþega, sem hafa milli 30 þúsund og 60 þúsund krónur f laun“. Sumir kennarar, sem ekki em í samtökum háskólamenntaðra munu halda áfram kennslu. S-V íetnamar reiðir Frökkum # Stjórn Suður—Víetnam hefur hótað að slíta stjórnmála- sambandi við Frakkland, ef ekki veröur lát á mótmælaaögerðum við ræðisskrifstofu S-Víetnam í París. # Yrði þá hætt samskiptum við Frakkland bæði f stjórnmálaleg- um, efnahagslegum og menn- ingarlegum efnum. Suður-Víet- namar kvarta yfir því, að störf ræðisskrifstofunnar séu trufluð vegna mótmælaaðgerða. Fjölmennar kröfugöngur hafa verið famar f París að undan- förnu vegna innrásarinnar í La- os. Frá Laos berast þær fréttir, að stjómin hafi sett útgöngubann að næturlagi á mörg hundruð ferkílómetra svæði við Mekong- fljót. Hernaðarleg aðstaða stjórn arhersins fer þar versnandi. í- búar hafa fengið nafnskírteini, svo að fylgjast megi með skæru- liðum. Bandaríkjastjórn athugar, hvort leyfa skuli ferðir til Rauða-Kína og breyta afstöðunni til aðildarinnar að Sameinuðu þjóðunum. SprengjutilræSi HÆKKAR YENESUELA j / Gmtabora OLlUVERÐ UM 35fo? — Islenzkt innkaupsverð byggist á verðlagi á hreinsaðri Venesúelaoliu Verið getur, að Venezúela hækki olíuverðið um 35% í framhaldi af samningum milli stóru olíufélaganna og ríkja, sem hafa olíulind- ir fyrir viku, að sögn for- mælanda ríkisstjórnarinn- ar í Caracas. Áður hafði verið talið, að hækk- — ...---- unin mundi nema 25%, en margt sem því nemur. Verð á olíu frá benti í morgun til þess, að hún kynni að verða meiri. Venezúela framleiðir 3,6 milljón tunnur hráolíu á dag, og helmingur þess er seldur á bandarískum og kanadískum markaði. Mörg Evr- ópulönd kaupa einnig olíu frá Ven- ezúela en í minna mæli. Innkaupsverö íslenzkra olíufélaga er byggt á verðlagi á Venezúela- olíu í Karabíska hafinu. Þegar tal- að er um 35% hækkun, er átt viö verð á óunninni olíu, en hreinsuð olía þarf ekki endilega að hækka Sovétríkjunum, sem við kaupum, breytist eftir þessu verölagi. Olíuráðherrar frá Alsír, írak, Saudi-Arabíu og Líbíu koma sam- an á mánudag til að ræöa olíuverð frá þessum löndum. Lfbfa og Alsír vilja fá meiri hækkanir en samið var um í Teheran fyrir viku. Líbíu- menn munu semja sér í lagi. Tilræðismenn komu í nótt fyrir sprengju við klúbb manna frá Króatíu f bæjarhlutanum Haga í Gautaborg. Um þrjúleytið höfðu óþekktir tilræðismenn sett sprengju fyrir utan húsið. Þar voru fimm menn, er sprengj an sprakk, en engan sakaði. Sprengingin var svo öflug, að allar rúður brotnuðu f húsum hinum megin götunnar. Ekki hafði í morgun tekizt aö hafa hendur f hári tilræöis- manna. Samkvæmt frásögn vitna kom tilræðismaöur eða menn í bifreið. Króatía er hluti Júgóslavfu. Menn frá Króatíu tóku fyrir skömmu júgóslavneska ræðis- mannsskrifstofu í Svfþjóð og héldu nokkrum starfsmönnum > gíslingu í eina nótt Eftir þaé gáfust Króatarnir upp og slepptu gíslum sínum ósködduð- um. SPEGILLINN Fæst enn í næstu sjoppu. — Flýttu þér að kaupa hann áö- ur en upplagið selst upp. — Lestu hann upphátt fyrir alla fjölskylduna fyrir svefninn.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.