Vísir - 19.02.1971, Side 13
▼ í S I R . Föstudagur 19. febrúar 1971.
13
Sem vænta mátti voru konur fjölmennar á fundinum í Norræna húsinu.
Vinnutímastytting æskileg
fyrir bæði kynin
— caliir sammálcE um það á rauðsokkafundi
„ A lmennur
haldinn
umræðufundur
á vegum rauð-
sokkahreyfingarinnar og Stúd-
entafélags Hásköla íslands 17.
febrúar 1971 skorar á borgar-
stjóm Reykjavfkur og Félags-
málaráð borgarinnar að endur-
skoða stefnu sína í dagvistun-
armálum barna og miða að því
að fjölga dagheimilum í borg-
inni svo þau geti verið opin öll-
um bömum jafnt.
Jafnframt væntir fundurinn
þess að áfram verði haldið á
þeirri braut að skapa eldri böm-
um athvarf utan skólatíma eins
og þegar er byrjað á með skóla-
dagheimili í einu hverfi borgar-
innar".
Þessi ályktun var samþykkt
samhljóða á almennum fundi
áðurgreindra aðila, sem haldinn
var í Norræna húsinu í fyrra-
kvöld. Meðail fundargesta, sem
voru konur í meirihluta, voru
flestir fulltrúanna í Félagsmála-
ráði borgarinnar.
Á fundinum komu fram ein-
dregnar óskir þess efnis, að all-
ir foreldrar, sem þess æsktu,
gætu fengið inni á dagheimilum
og leikskólum fyrir böm sín
eins og kemur fram í ályktun-
inni. Bf til vill ekki sízt vegna
þess, að konan gæti þá verið
frjáfe að því að stunda starf
sitt á hinum almenna vinnu-
markaði, en þyrfti ekki að binda
sig heima yfir börnum. Með
þeirn afleiðingum m. a. að drag-
ast aftur úr á starfssviði sínu,
missa af tækifæmm i starfi o
s. frv. Þá þörf þeirra foreldra
sem bæði stunda nám t. d. fyrir
það að geta komið bömum sín-
um fyrir á dagheimili í stað þess
aö þorfa að^troða Jjeim upp á
ættingja, sém tiikippilegir séu tíT
þess að gæta þeirra.
Jjá kom fram, að dagheimilin
væm einungis ætluð bömum,
sem byggju við erfiðar heimilis-
aðstæður. Nú væru 200 börn á
biðlista fyrir dagheimilisvist og
biðtíminn sé aMt upp í eitt ár.
Einnig að Félagsmálastofnun
borgarinnar vnni nú að áætlun
um dagvistun bama fyrir árin
1970—1983.
Það kom fram, að eitt af að-
aláhugamálum rauðsokka væri
að koma í veg fyrir það, að ein-
staklingur þurfi að láta kynferði
ráða starfsvali. Furðulegt væri
að láta sér detta það f hug að
helmingur mannkyns hafi aðeins
áhuga á einu starfi, það er hús-
móðurstarfinu meðan hinn helm
ingurinn hafi áhuga á mörgum
störfum. Það sé áhugamál rauð-
sokka að næg barnaheimili séu
til fyrir böm innan sex ára, ef
foreldramir óski þess. Þá var
minnzt á styttingu vinnutímans
fyrir bæði kyn, þannig að mögu-
leiki væri á að bæði karl og
kona gætu komið heim frá störf-
um utan heimilis um miðjan
dag, klukkan þrjú eða jafnvei
fyrr. Tóku margir í þann streng
nc sögðu stvttingu vinnutímans
mjög æskilega og að karlar og
konur skiptu þá með sér verk-
um á heimili og barnátmpeld'nu
eftir. vinnu, Rauðsokkar komu
'því ""‘einnig á frátnfæri 'að
skyldunámsskólar væru borgað-
ir af ríki og bæ og spurðu,
hvort mætti þá ekki hafa sama
hátt á við dagheimili og leik-
skóla. Einnig var vitnað til þess
að kennsla sex ára bama væri
ókevpis.
Tjað var skýrt frá könnun, sem
starfshópur rauðsokka í
Kópavogi vinnur að. Ekki er bú-
ið aö ganga endanlega frá könn-
uninni, en einstaka þættir henn-
ar hafa þegar verið fullunnir. 1
Kópavogi séu 1900 böm á aldr-
inum 0—6 ára. Af þeim njóti
7% dvalar á dagheimilum og á
leikskólum. Starfshópurinn hafi
dregið út nafn fjórðu hverrar
konu í Kópavogi á aldrinum 20
—50 ára eða 525 kvenna. Þar af
hefði verið sendur spuminga-
listi ti'l 430 kvenna, en hinar
hafi ekki tekið þátt í könnun-
inni af ýmsum ástæðum.
Af hinum 430 svöruðu 80%
öllum spuningum á listanum. í
könnuninni, sem hefur þegar
verið unnin að hluta í tölvu,
kom það fram m. a., að 67%
kvennanna svöruðu játandi
spumingu um það, hvort þeim
fyndust húsmóðurstörfin vera
vanmetin. 92% svöiruðu þeirri
spumingu játandi, hvort þeim
fyndist þörf á stofnun fyrir 0—2
ára böm i Kópavogi, en engin
slík sé til í bænum. Þá var könn-
uð vinna kvenna utan heimilis
og kom í Ijós, að 25% unnu úti
hluta úr degi, 49% höfðu ein-
hvers konar launað starf, 15%
fullt starf, 6% unnu hluta úr
ári og 5% störf t. d. prjóna-
vinnu heima o. s. frv.
Þá kom fram á fundinum sú
skoðun, að ríkið ætti aö taka
þátt í byggingu dagheimila. Dag
heimilamálið væri fjárhagslegt
spursmál og meðan á upobygg-
ingu stæði væri hægt að leita
að öðrum lausnum t. d. þeirri,
sem væri þá til bráðabirgða að
hópar foreldra tækju sig sam-
an, leituðu sér að húsnæði og
þegar það væri fundið leituðu
þá fjárhagslegrar aðstoðar.
Þá komu fram fyrirspumir
um það hvers vegna dagheimil-
in kostuðu svo mikið f bygg-
ingu. Rætt var um eyðslu í
sambandi við byggingu þeirra.
Óskað var eftir fleiri skóladag-
heimilum.
Tj'óstra sagði um bömin, sem
fara af dagheimilum: „Það
er ekki sársaukalaust fyrir okk-
ur að vita af bömunum með
lykilinn um hálsinn eða vita af
þeim leita til ættingja, sem taka
mismunandi vel á móti þeim.“
Sú skoðun kom einnig fram,
að forgangsflokkamir svoköll-
uðu t. d. einstæðir foreldrar
vrðu að ganga fyrir, þegar um
dagheimilamál væri að ræða og
bæri að sinna þörfum þeirra
fyrst áður en hinum væri veitt
úriausn. En fyrst og fremst
væri það frumkvæði fólksins
sjálfs sem réði úrslitum mála.
Skorað var á rauðsokkahreyf-
inguna að beita sér fyrir því að
félagsleg fræðsla yrði tekin upp
í skólum, en nú sé sú fræðsla í
núlli.
Þá var rætt um hversu æski-
Ieg dagheimilisvist væri fyrir
böm og leikskólavist og álit
sérfræðinga á þroska slfkra
bama miðað við böm, sem væru
alin upp að öllu leyti í heima-
húsum. Einnig tiilfinningaþroska
barna, félagshyggju, uppeldis-
gildi dagheimila, hversu langur
tími á dagheimili væri æskileg-
ur og hvers konar uppeldi það
væri, sem slfkar stofnanir stuðl-
uðu að.
„TFjað er mikið atriði í sam-
bandi við leikskóla að þeir
séu þannig úr garði gerðir, að
þeir auki þroska einstaklingsins.
Tilfinningaþroskinn virðist ail-
veg glevmast i uppeldis- og
skólamálum ... Undirstaða
þess, að einstaklingurinn geti
starfað, er, að tilfinningalífið sé
{ iafnvægi" sagði Geir Vil-
hjálmsson sálfræðingur, einn af
frummælendum m. a.
Það koma einnig fram að miklu
máli skipti hvernig dagheimiili
oe leikskólar væru úr garði gerð
til þess að geta veitt gott
uppeldi og bent á það, að miklu
varðaði að þær stofnanir stöðn-
uðu ekki. Stferð' slfkra stofnaha
var einnig til umræðu og stærð
hópa, sem væru í þeim og í því
sambandi var minnzt á breyt-
ingu á skipulagi skóla í Banda-
rikiunum, sem stæði nú yfir, en
þar er verið að koma á hóp-
fvrirkomnulagi þar sem nem-
endur eru ekki nema 10—12 í
hverjum hóp. Leitt að því get-
um, að hópar með 8—12 böm-
um væri hin æskilega stærð á
dagheimilum og leikskólum.
Þá var bent á viss hættumerki
stofnanauppeldis og ekki bæri
að stefna blint að heifedags-
vist á dagheimili fyrir börn inn-
an við tveggja ára aldurinn.
Einnig á það, að álit sérfræð-
inga virtist breytast frá degi til
dags í þessum málum. — SB
Fjölskyldan og Ijeimilid
\ NAAAAAAAAAAAAAAAA.SAAA/\AAAAAAAAAAAA^
TRÉSMIÐJAN VÍÐIR AUGLÝSIR:
Hvar getið þið gert betri kaup?
ódýr sófasett, verð aðeins frá 18.000,— Góðir afborgunarskilmálar. 1 000,— kr. út og 1.000,— kr. á mánuði.
VERZLIÐ ÞAR SEM ÚRVALIÐ ER MEST OG KJÖRIN BEZT
TRÉSMIÐJAN VÍÐIR HF.
Laugavegi 166
Símar 22229 — 22222
A A 4 þ * \N ' .& *
■ . .... , •
L k.