Vísir - 19.02.1971, Síða 16

Vísir - 19.02.1971, Síða 16
VÍSIR „£r hægt að villast á dauðrí merí og ófæddrí?" — Skjónuslagur á Alþingi i gær Kastadist upp d bílinn og braut rúðuna en slapp ómeidd Þrettán ára stúlka, sem varð fyrir bifreið 1 Hafnarstræti á Akureyri í gær um kl. 15.45, þótti sleppa með ólíkindum vel frá óhappinu. Hún haföi gengið aftur fyrir strætó, sem hún kom úr, og út á götuna, en í því bar að fólksbifreið og sá ökumaöurinn ekki stúlkuna, fyrr en um seinan. Við áreksturinn kastaðist stúlkan upp á bifreiðina og lenti á fram- rúðunni, sem brotnaði við höggið. En síðan kastaðist stúlkan í göt- una aftiur. Datt mönnum, sem á horfðu, ekki annað í hug en stúlkan væri stór- siösuð. En þegar að var gætt, reynd ist hún alis ómeidd. — GP 0 Bjöm Pálsson (F) skemmti þingheimi í gær með ýtarlegri lýs- ingu á málarekstrinum út af hryssunni Skjónu, lestri málskjala og mark lýsinga. Björn taldi, að frumvarpið um hefð væri sprottið af óánægju andstæðinga sinna fyrir norðan, vegna þess að Bimi hefði nú verið dæmd hryssan Skjóna. Björn lýsti málavöxtum þannig, að árið 1951 hefði fund- izt dautt skjótt trippi, og taildi hann þar hafa veriö um aö ræða trippi Jóns bónda í Öxl. Skjóna sín hefði fæðzt árið 1952. Spurði Bjöm, hvort hægt vaerj að viLl- ast á dauðri meri og ófæddri. Hann taldi, að „frændi sinn“ Eyjólfur Konráð Jónsson (S) hefði viljað ríða Skjónu til þings að hausti. Stæðj Eyjólfur á bak við frumvarp þetta, og benti það til þess, að hann ætti hlut að Skjónumálinu. Gunnar Gíslason (S) sagði, að Birni hefð; verið sæmra að bera þetta frumvarp fram sjálfur. Það væri ekki runnið frá neinum þingmönnum Sjálfstæðismanna, að Skjónumálið fór af stað. Bent; Gunnar á, að markið á Skjónu hefði verið ófullkomið, og sagði, að „auðvitað hefði það getað hent mann eins og Bjöm á Löngumýri, að hann heföi gleymt bitanum“ á hægra eyra hryssunnar. Væri Björn „viður- kenndur trassi í slíkum efnum um aJlt Húnaþing". Pálmi Jónsson (S), annar flutningsmanna, kvað frumvarp- ið ekki f tengslum við Skjónu- málið. Frumvarpið miðar að því, að eignarréttur á búpeningi geti ekk; unnizt við hefð, það er aö búpeningur sé í 10 áir í umsijá manns, sem telur sig eiga hann, þótt annar hafi átt. Ranglátt væri, að venjulegar reglur um hefö á lausafé giltu um búfé. Skjónumálið hefði hins vegar sýnt, að lögin væru ófuLlkomin í þessum efnum. Hryssan Skjóna var dregin Jóni í Öxl árið 1967, en Bjöm Pálsson taldi sig hafa átt hana í 15 ár og gerði tilkall til henn- ar. Lauk þessu málj Loks nýlega f Hæstarétti, er úrskurðað var, að Björn ætti Skjónu samkvæmt lagaákvæðum um hefð á búpen- ingi. Jón í Öxl hafði allmörgum áram áður tapað skjóttri hryssu og taldi hann Skjónu vera þá hryssu. Mark var óglöggt. Bjöm Pálsson sagðist að lok- um ekki hafa talið, að þingmenn Sjálfstæðisflokksins stæðu að Skjómimá'linu, fyrr en frumvarp þetta «r flutt. — HH Draumur á Jónsmessunótt fjallar um lauslæti og rómantík hjá báðum kynjum. Alls koma um 50 menntskælingar fram í Herranótt í ár. Leikstjóri er Hilde Helgason frá Vínarborg. 50 í JÓNSMESSUNÆTUR- DRAUMI HERRANÆTUR HERRANÓTT Menntaskólans í Lækjargötu fer af stað einu sinni enn á laugardaginn kemur. Að þessu sinni taka mennta- skólanemar Jónsmessunætur- draum Shakespeares í þýðingu Helga Hálfdánarsonar til með- ferðar. Leikstjóri er Hilde Helga son, austurrísk kona, sem búið hefur hér á landi síðan í sum- ar, en hún er gift Þorvarði Helga syni, leiklistargagnrýnanda við Morgunhlaðið. Vísir spjallaði stuttlega við Hilde í morgun, og tjáði hún okkur, að hún væri útlærð leikkona, „ég var á leiklistarskóla Helmut Krauz f Vin og þar lék ég m. a. hlutverk f Jónsmessunæturdraumi. Jú, mér hefur þótt skemmtilegt að vinna méðfaenhtasfcölaherhunum. á-Aúst2. urffki tfakast'.iþað. Hka. /að -þegáT maður •, hefuri -lokiit stúdent^próffc ■ og fer slðan að ■ laera.. eitthvaö, sem -■ «• • > ' £'■*> . Jt •• í' ’* *. '{ lýtur aö leiklist, þá fær maður tækifærj til að setja á sviö og starfa með leikklúbbum gamla menntaskólans — nei, það hefur ekki komið til tals að ég léki við fslenzkt leikhús. Ennþá hef ég heldur ekkj gott vaild á málinu, a. m. k. ekki til að troða upp á svið“. Hilde hefur unnið af krafti við þessa sýningu menntskælinga. Hún teiknar búninga, jafnframt leik- stjóminni, en f leiknum koma alls fram um 50 manns, þar af eru 26 raunveraleg hlutverk. Formaður leiknefndar er Páll Baldvinsson f 4. bekk, og tjáði hann Vísi, að fyrirhugað væri að sýna þrisvar sinnum í Háskóla- bíói. „Þetta er svo mikið fyrirtæki, að það er ekki mögulegt að ferðast neitt með sýninguna“. Sagði Páll að nemendur sjálfir gerðu leiktjöld núna, „en Árni Árnason er sagður ábyrgur fyrir þeim. Við saumum Ifka búningana sjálf“. Herranótt hefur verið fastur viðburður í skólalífinu síðan 1922, er skólaleikir voru endurvaktir, en Herranótt er gamall siður frá Skálholtsskóla í örlítið breyttrj mynd. Tónlist við Jónsmessunætur- draum gerði Atli Heimir Sveins- son, tónskáld og verður hún öll flutt af segulbandi. — GG Sáttafundur — Tilslökun? Sáttafundur heíur veriö boðaður kl. 2 í dag í togaradeilunni. Fundurinn mun vera boðaður vegna þess að einhverjar tilslakanir liggja fyrir fundinum og eru því vonir til þess að einhver hreyfing geti orðið í sam komulagsátt í dag. ( — VJ Kennarar lögðu niður vinnu • Allir kennarar Víghólaskóla í Kópavogi lögðu niður vinnu frá kl. 9.30 til hádegis f fyrra- dag. — Kennsla féll því niður í 12—15 bekkjardeildum skól- ans á meðan, en kennararnir voru að mótmæla því, að yfir- völd Kópavogs hafa að engu virt samning, sem þau gerðu við kennarana síðastliðið vor um greiðslutíma fyrir stundavinnu og fasta yfirvinnu. Vegna stiindakennara við skól- ann gerðu kennaramir þann samn- ing við kaupstaðinn f vor, aö öll stundakennsla yrði greidd um mán- aðamót, en t. d. forfalilakennsla skyldi greiðast um miðjan mánuð eftir á. — Þessum samningi hafa yfirvöld Kópavogs viljað rifta núna, sagði Sigurður Tryggvason kennari í viðtali við Vísi f gær. — Enda hafa þau satt að segja aldrei haldið hann fylliilega. Þau haifa viljað láta ákvæði í nýju ríkissamningunum gilda fyrir þessar greiðslur, en því hefur verið mótmælt af okkar hálfu, þar sem sérsamningar hafa verið gerðir um annað, sagði Sig- urður. Upp úr sauð þó ekki fyrr en á þriðjudaginn, þegar ljóst var, að ríkissamningurinn yrði ekki einu sinni haldinn. Við ætiluöum þá að stöðva kenns'lu kl. eitt eftir hádegi, en var þá lofað, að þessar greiðslur y-rðu inntar af hendi fyrir kvöldið. Þær komu ekki og því var kennsla lögö niður í fyrradag. — VJ „105 de Luxe“ handa aflakónginum • Ef þetta væri bíll, fylgdi „de Luxe“ með hafninu, sagði einn stoltur starfsmaður Stál- víkur h.f. í gær, þegar Stálvík afhenti aflakónginum Óskari Matthíassyni í Vestmannaeyjum nýtt 105 rúmlesta stálfiskiskip. • Skipið, sem verður gert út af nýju fyrirtæki, fjölskyldufyr- irtækinu Ós h.f., sem Óskar og synir hans þrír, sem allir eru orðnir skipstjórar, standa aðal- lega að. Það hlaut nafnið Þór- unn Sveinsdóttir, eftir móður Óskars. Vandséð er, hvernig unnt er að gera skip betur úr garði. I þvf eru öll fu'Wkomnustu fisk- leitar- og siglingatæki, þar á meðal sjálfstýring. Fyrir áhöfn- ina er ekki aðeins útvarp og sjónvarp eins og núna telst sjálf ságt, heldur sérstakt segulband „til að spila músfk“. Allar mannafbúðir eru teppalagðar út í hom, enda drógu margir gest- imir í reynsluferð skipsins í gær skó af fótum sér áður en þeir gengu inn. Vistarveram fylgja tvö böð. Skipið gengur -11.5 milur. „105 de Luxe“ tckinn í reynsluferö.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.