Vísir - 24.03.1971, Qupperneq 8
V I S I R . Miðvikudagur 24. marz r9rt.
Otgefandi: Reykjaprent öt.
Pramkvætndastjðri • Sveinn R Eyjðlfsson
Ritstjóri ■ Iðnas Kristjánsson
Fréttastjðri: Jón Birgii Pétursson
Ritstjómarfulltrúi Valdimar H. íöhannesson
Auglýsinj astjóri: Skúli G. Jóhannesson
Auglýsingar Bröttugötu 3b Simar 15610 11660
Afgreiösla- Bröttugðtu 3b Simi 11660
Ritstjðm • Laugavegi 178 Slmi 11660 ffi tinur)
Askriftargjald kr. 195.00 á mánuöi innanlands
f lausasðlu kr. 12.00 eintakiö
Prentsmiðja Vtsis — Edda ht.
„Gakkfu hægt"
Atvinnuleysingjar í Reykjavík voru aðeins 162 um
síðustu mánaðamót. Sums staðar úti á landi eimdi enn
eftir af samdrættinum í efnahagsmálum, en í heild
var tala atvinnuleysingja nú aðeins helmingur þess,
sem hún var fyrir ári.
í skýrslu, sem Magnús Jónsson fjármálaráðherra
hefur lagt fram á alþingi, er þess getið, að aukin fjár-
munamvndun muni í ár kalla á stóraukna notkun
vinnuafls. Allar líkur benda til, að byggingastarfsemi
muni aukast verulega og þar muni þurfa meira en
1000 nýja starfsmenn Vænzt er verulegrar aukningar
á öðrum sviðum atvinnulífsins.
Fjármálaráðherra gat þess, að vandséð væri, hvern-
ig þessari mannaflaþörf yrði fullnægt. Vinna skóla-
fólks í sumar verður að koma til sem mestra nota, og
full þörf verður fyrir vinnu þeirra íslenzku iðnaðar-
manna, sem enn eru við störf erlendis. Þrátt fyrir
þetta er augljóst, að íslendingar eru að komast aftur
á það stig, sem áður var, að eftirspum eftir vinnu mun
verða meiri en framboðið. Væntanlega munu menn
nú lengja vinnutíma sinn til að auka tekjur.
Efnahagsmálin eru þannig vaxin, að ávallt verður
að sigla milli skers og báru. Meðan samdráttur var í
atvinnulífinu, var vandamálið minni atvinna og verri
afkoma almennings. Á þeim þenslutíma, sem nú er
hafinn, verður vandamálið hins vegar að finna leiðir
til að stemma stigu við verðbólgu.
Vaxandi eftirspum eftir vinnu fylgir þrýstingur á
kaup upp á við. Þá má búast við nýju skeiði yfirborg-
ana. Aukinni atvinnu fylgja að sjálfsögðu auknar tekj-
ur og þess vegna aukin eftirspurn eftir vörum og þjón-
ustu og hærra verðlag á þeim. í kjölfar þess kemur
meiri innflutningur til landsins af hvers konar gæð-
um. Jafnframt er hætt við, að íslenzkir útflutningsat-
vinnuvegir verði síður samkeppnisfærir á erlendum
mörkuðum.
í greinargerð sinni bendir fjármálaráðherra á hætt-
una á því, að viðskiptajöfnuður við útlönd verði tæp-
ur. Hins vegar sé gjaldeyrisstaðan sterk og þurfi ekki
að óttast tvísýna gjaldeyrisafkomu, svo fremi, að
ekki komi til skjalanna ný og sérstök tilefni, sem
raski jafnvæginu.
Aðalhættan er sú, að einstaklingar og stéttir kunni
sér ekki hóf og taki til sín meiri tekjuaukningu en
efnahagurinn stendur undir. Blómlegt atvinnulíf mun
færa öllum almenningi bætt lífskjör, en hér gildir eins
og endranær sú lífsspeki, að „menn skyldu ganga
hægt um gleðinnar dyr“.
Aukin hagsæld er okkur fengin til þess að við köst-
um henjii eldci á glæ.
(í
Særðir Suður-Víetnamar fluttir frá Laos.
„Innrásin hefur tryggt áfram-
haldandi heimköllun hersins"
)) —segir Nixon, sem telur, að S-Víetnamar muni Umsjón: Haukur Helgason
geta varið land sitt sjálfir innan tiðar
Nixon Bandaríkjaforseti full-
yrðir, að innrásin í Laos hafi
„tryggt það að unnt sé að
halda áfram að fækka i banda-
ríska hernum í Suður-Víetnam“.
í útvarpsumræðu í f;
sagöi forsetinn, áð innrásin
hefði haft þrenns konar mark-
mið. Nauðsynléfit hefði 'verlð að
tryggja áframhaldandi heimköll
un bandarískra hermanna frá
Víetnam, tryggja varnir Banda
rikjamannanna meðan fækkun-
in væri framkvæmd og loks
hefði þurft að tryggja, að Suður
Víetnamar gætu sjálfir varið
hendur sínar, eftir að bandaríski
herinn værj farinn. Forsetinn
taldi, að innrásin hefði náð til
gangi sínum í þessum efn-
um.
Tilkynnir um heimköll-
un í næsta mánuði
Nixon kvaðst mundu tilkynna
frekar um heimkvaðningu liðs
frá Víetnam f næsta mánuði.
Sú fækkun, sem þá yrði boðuð,
mundi ekki verða minni en
fyrri fækkun í hernum.
Ekki værí unnt að dæma
innrásina á venjulegan hátt.
Hér væri ekki um að ræða þá
spurningu, hver hefði sigrað og
hver hefði tapað. Suður-Víet-
namar hefðu haft það hlutverk
í Laos að eyðileggja flutninga-
leiðir og birgðastöðvar, sem
Norður-Víetnamar hafa notað
við flutninga sína suður á bóg-
inn.
Forsetinn var ánægður með
frammistöðu Suður-Víetnama í
herferðinni. Hann viðurkenndi,
aö sumar hersveitirnar hefðu
ekki staðið sig nógu vei, en
hann taldi, að af 22 herfylkjum
hefðu 18 náð góðum árangri.
Bardagamir í Laos hefðu aukið
kjark og sjálfstraust hersins.
Suður-Víetnamar mundu geta
staöið á eigin fótum, þegar að
því kæmi. að Bandaríkjamenn
færu frá Víetnam.
Frammistaða Suður-Víetnama
i herferðinni hefði sýnt góðan
árangur „vfetnamiseringarinn.
ar“ Með því að Bandaríkja-
menn hafa smám saman fengið
Suður-Víetnömum aukna ábvrcð
á stríðsrekstrinum og þjálfað og
styrkt her þeirra hafa Banda-
ríkjamenn sjálfir getað dregið
úr eigin þátttöku.
h'etnamar tvöfalt
Nauðsynlegt væri að hafa f
huga, að hinir tuttugu þúsund
innrásarmenn Suður-Víetnama
í Laos hefðu átt í höggi við tvö-
falt lið Norður-Víetnama þar.
Þess vegna, sagði Nixon, hefði
verið nauðsynlegt, að Banda-
ríkjamenn veittu innrásarmönn-
um mikinn stuðning flughers.
Með þessu var forsetinn að
svara gagnrýni, sem Suður-
Víetnamar hafa orðið fyrir und-
anfarna daga, þegar her S-Víet-
nama í Laos hefur sfðan fyrir
helgi virzt vera á villtum flótta
suður fyrir landamærin, og
fréttir hafa stöðugt bonzt af
miklu mannfalli þeirra og ósigr-
um.
Nixon benti á. að Suður-Víet-
namár hefðu í Laos barizt á ó-
kunnugri grund. Þeir mundu
verða margfalt skæðari, þegar
þeir tækjust á við Norður-Víet-
nama f Suður-Víetnam sjálfu.
Margir hafa gagnrýnt það, að
Suður-Víetnamár skuli nú hörfa
út úr Laos mánuði áður en regn-
tfminn gengur í garð. Telja
menn þetta hafa verið óráðiegt,
þar sem nú gefist kommúnist-
um tækifæri til að endurbæta
flutningaleiðir sínar og birgða-
stöðvar í Laos, áður en regn-
tíminn stöðvar flutninga að
mestu. Nixon sagði, að 75 pró-
sent af birgðum kommúnista
sunnan bæjarins Sepone hefðu
verið evðiiöigö. Suður-Víet-
namar heföu bundið beztu her-
sveitir Norður-Víetnama í sex
vikur, svo að þær hefðu ekki
eetað aðhafzt annað á meðan.
N-Víetnamar hefðu orðiö fvrir
miklu manntjóni, og beir hefðu
eytt miklum skotfærum.
„TilkynmnR nm að kalla
'’úa heim í ár“
Nixon sagðist hafa haft til-
hneigingu til að vera sammála
sumum þingmönnum, sem vðdo
láta lýsa því yfir, að allir banda-
rískir hermenn skyldu farnir frá
Víetnamt áður en árið vteri á
enda. „Þetta mundi þð veröa
tU þess, að kommúnistar mundn
taka Suður-Vfetnam,*' sa*W
hann, „og það væri mikið áfaB
fyrir Bandarfldn í hhitverki
þeirra sem varðveitendur friðar
f Asíu og Mið-Austurlöndum“.
Það væri Bandarfkjunum ekki
í hag að birta ákveðna tíma-
töflu fyrir heimköllun liðsins.
Yrði það gert, mundi það skaða
samningaviðræðumar f Faris og
gefa kommúnistum tromp.
Þegar tilkynnt yrði f næsta
mánuði um næstu þrep í fækk-
un herliðsins, mundi það gefa
nokkra hugmynd um hvenær
þátttöku Bandarikjanna í Víet-
namstríðinu lyki, sagði for-
setinn.
Bandarísk stjómvöld segja, að
herferðinnj í Laos sé lokið. Þau
segja, að ummæli um hugsan-
lega innrás Suður-VIetnama í
Norður-Víetnam hafi einungis
verið „áróðursbragð" Suður-
Víetnama til þess eins gert, að
Norður-Víetnamar byndu her-
sveitir viö suðurlandamæri rik-
is síns og þær kæmu þvf ekki i
gagnið í bardögum f Laos. Enn
fremur hafi þessum ummælum
verið ætlað að telja kjarik f her
menn Suður-Víetnam.
Undanhald samkvsemt
áætlun
Stjórnvöldin halda þvf fram,
að undanhald Suður-Víetnama
úr Laos undanfama daga hafi
verið samkvæmt áætlun. Norð-
ur-Víetnamar sóttu að Suður-
Víetnömum, þeear hinir síðar-
nefndu voru að fara burt úr
Laos, og þess veqna hafi getað
sýnzt svo. að Suður-Víetnamar
fæ«t hel'ioka < Hardögum,
hefði ekki verið.
Nixon mun hafa talið ró*'
prS Vr*rna frnrn fvfif '1~''
hjóðina um bessr mundir vegna
hocs riiolintjsileet undanhoH
Suður-Víetnama úr Laos hefur
aukið gagnrýn; á forsetanum of
stefnu hans f Vfetnam.