Vísir


Vísir - 07.04.1971, Qupperneq 9

Vísir - 07.04.1971, Qupperneq 9
V I S í R . Miðvikudagur 7. aprfl 1971 ar ytra eru þó lítilræði miöað við verðhækkanir, sem hér urðu eftir siíðustu kjarasamninga. Iðn- aöurinn hefur tekið á sig 30% kostnaðarhækkun og 'höfðu fæst fyrirtækjanna reiknað að fullu þessar hækkanir inn í verðlag á framileiðsluvörum sínum, þegar verðstöðvunin var sett á og vísitölu ha'Idið í skefjum með geysilegri niðurgreiðslu á nokkr um vörum. Fyrirsjáanlegt er því, að fjöldi fyrirtækja stefnir beint í taprekstur, sem er mjög hættuleg þróun fyrir alla. Að mínu viti gerði verðstöðvunin ekki annað en að geyma nauð- synlegar verðhækkanir um tíma. Kannski hefur kostnaðarhækk- unum verið haldið eitthvað í skefjum þennan tíma, betur en með öðrum ráðum, en áhvggju- efnið er, hvað gerist í haust, jægar verðstöðvunartímabiliö rennur út og almennir samning- ar renna út. >á hlýtur algjör- lega að fara eftir því, hvort þessum gríðariegu niðurgreiðsl- um verður haldið áfram eða hvort verkalýðsfðlögin miða kröfur sínar við getu atvinnu- veganna, hvort unnt reynist að halda almennu verðlagi niðri. En Slfkar niðurgreiðslur kosta mikið fé og einhvers staðar verður að ná í fjármagnið. Hefur iönaðurinn engin önnur ráð en verðhækkanir til að mæta hækkandi verðlagi? Meðan verðlagshækkanir eru skaplegar er hægt að byggja nokkuð á bættri framleiöslu- tækni, aukinni framleiöni, þar sem við höfum vissan varasjóð, og verðum við að vona að viö getum á næstu árum orðið eins liðtækir í framleiðslutækni og aðal samkeppnisþjóðimar, En fslenzkur iðnaður nýtur lægra kaupgjalds en iðnaður nágrannaþjóðanna? . bil hefur mjókkað mikið. Ef miðað er t. d. við Bret- iand, er kaupgjaldið hérna ekki lægra og mismunurinn verður ekki mikill, miðað við aðrar þjóðir, ef litið er á launakostn- aðinn f heild. Þá má ekki gleym ast, að í launakostnaði felst margt, sem kemur ekki beint fram í launaumslaginu eins og alls kyns tiyggingar, lífeyris- sjóðir, almennt öll fríöindi. >á má geta þess, að t. d. langir kaffitímar eins og þeir þekkjast hér, eru náfega Öþekkt fyrirbæri erlendis. Samsvarandi vinnu- stundafjöldi hér og eriendis er bví mun ódrýgri. Hvaða iðngreinar munu fyrir- sjáanlega lenda í mestu erfið- leikunum við EFTA-aðild? Enginn efi er á því, að sæl- gætisverksmiðjurnar munu lenda í mestum erfiðleikum. Þegar á næsta ári verður inn- flutningur á sælgæti gefinn frjáls, eftir að innflutningur þess hefur verið bannaður um áratugi. Það fer ekki hjá því, að þetta verður erfitt tímabil fyrir sælgætisframleiðendur, en það fer alveg eftir fyrirtækjun- um sjálfum og mönnunum, sem þeim stjóma, hve vel þau kom- ast hjá þessum vanda. Óhjá- kvæmilega hlýtur alltaf veruleg- ur hiuti sælgætisframleiðslunnar að vera innlendur, en þeir fram- leiðendur, sem koma sér fyrir á þeim sviðum, þar sem sam- keppnisaðstaða þeirra er bezt, munu komast bezt frá þessu. Sælgætisverksmiðjurnar eru nú 20—30 talsins, en við innflutn- ing á sælgæti getur varla farið hjá því, að þeim fækki eitthvað, iafnvel með samruna, samvinnu beirra á milli og við erlenda framleiðendur. — VJ PRESTAR OG SKÍÐA- FÓLK 1 ÖNNUM í skíðalyftu í Hlíðarfjalli. Þessi Jyfta fær eflaust nóg að gera um páskana, daglega koma 3—5 þúsund manns í skíðaland Akureyringa. Páskar. Raunar soldið skrítið fyrirbæri orðið. Páskahátíð- in hefur gegnum árin skapað sér fasta hefð í okkar þjóðlífi, alveg eins og aðrir frídagar og hátíðir. Á jólum hvfla menn sig, borða, opna gjafir og reyna að koma ró á sálarlífið. Páskarnir geta víst flokkazt undir matarhátíð eins og jólin, en samt er hún öllu lausari í sniðum, enda veöur oftast betra á páskum en jólum, komið fram á vor og marga farið að langa að hrista af sér vetrardrungann og fá hreint loft í lungun. Þá er tilvajið að nota frídaga páskahátíðar- innar til stuttra ferðalaga. 3—5000 manns daglega Skíðaferðir eru mjög svo vin- sælar, og á ísafirði og Akur- eyri er næstum hvert hótelrúm skipað. 1 Hlíðarfjalli við Akur- eyri er eini skíðastaðurinn sem er í þægilegri fjarlægð frá bæn- um, og þar er sömuleiðis hótel þar sem hægt er að fá gistingu og beina. ívar Sigmundsson, hótelstjóri í Hlíðarfjalli tjáði Vísi í gær, að það væri troðfullt út úr dyr- um, „það eru hérna um 50 manns í gistingu, hótelið tekur því miður ekki fleiri, og svo koma hingað 3—5 þúsund manns á hverjum degi á skíði, það fer nú svoIVtið eftir veðr- inu, en það er ekki hægt að segja annað en það sé gott núna. Það er mikill snjór, færi sem bezt verður á kosið, en því miður er hafgola og þoka í lofti‘‘. Þar í Hlíðarfjalli fara fram 2 skiðarnót, þ.e. skíðamót íslands, og eru þátttakendur yfir 70 talsins, og einnig unglinga- meistaramót Norðurlanda, og eru mættir til keppni rúmlega 40 unglingar. Flestir halda flugleiðis til Ak- ureyrar á þessum árstíma, en eftirlitsmenn Vegagerðarinnar tjáðu Vísi í gær, að færi væri gott norður yfir Holta- vörðuheiöi, og væri sem stend- ur ekker(- þvi til fyrirstöðu að aka norður allt til Húsavíkur á smábílum, „en það er aldrei að vita hve lengi það helzt þannig“, sögðu þeir, „við spá- um engu fyrir morgundaginn“. „Hver smuga setin“ Frá ísafirði er sömu sögu að segja: „Hér er setin hver smuga að heita má“, sagði Guðmund- ur Sveinsson, umsjónarmaður skíðaskálans Skiðheifa í Seljalandsdal, „við getum því miöur ekki tekið fólk í gistingu i skálanum, það verða allir að gista niðri á ísafirði, og þá langflestir hjá skyldfólki. Ég held reyndar að það komi ekki hingaö aðrir en þeir sem hér eiga skyldfólk til að gista hjá. Það vantar illilega hótel hér í kaupstaðnum. Gullfoss fer frá Reykjavík með skíðafólk hingað á morgun, ég held það verði með honum um 200 manns, og það fólk gistir auðvitað um borð í skipinu, en þar fyrir ut- an geta víst fáeinir fengið inni á Mánakaffi, það tekur um 25 manns, og svo Hjálpræðisher- inn, en þeir eru fáir. Nýi iðn- skólinn bætir dálítið úr mesta húsnæðisvandanum. Hann stend ur alveg niðri við bryggjuna, og fólk fær þar svefnpokapláss. Það er kominn mikill skíða- hugur í bæinn. Snjór er al- veg niður í byggð. Hér er núna 3ja stiga frost. en þungbúið. Færið er mjög gott á dalnum. Þar er snjór 3ja til 5 m djúp- ur“ sagði Guðmundur, „ég veit það, vegna þess að við vorum þar um daginn að mæla fyrir nýju skíðalyftunni, sem við ætlum að setja þar upp í sum- ar. Nei — það er sko ekki lyfta eins og þeir keyptu fyrir kosn- ingar og dreifðu út um landið Þær lyftur eru nú bara barna- leikföng. Við viljum hafa hér alvörulyftur. Við setjum upp aðra lyftu hér, alveg eins og þá sem fyrir er“. Flugfélagið ! önnum Skíðafólk, hvert svo sem það ætlar sér, norður eða vestur, veröur að reiða sig á Flugfé- lagíé méð áð" kófhást; heiman og heim. I gær voru famar einar 8 ferðir til ísafjarðar. Sveinn Sæmundsson hjá Flugfélaginu sagði Vísi, að þeir notuðu Fokker Friendship-vélar sínar f páskafluginu til ísa- fjaröar. „Við förum venjulega sex ferðir i viku til fsa- fjarðar", sagði Sveinn, ,,en þessa viku fljúgum við 6 auka- ferðir flestar á miðvikudag og fimmtudag, skirdag. Á föstu- daginn langa fljúgum við ekk- ert. f Akureyrarfluginu notum viö Cloudmaster-flugvélar. Þær vél- ar taka kringum 85 manns, næstum helmingi meira en Pokker-vélarnar, og við fljúg- um þangað 2 ferðir daglega, en bætum við 6 aukaferðum í þess. ari viku“. „Jú, jú, við erum sko vissir um að koma öllum heim aftur. Það fara flestir á mánudag og þriðjudag eftir páska. Og það er miki] hreyfing á fólki'* sagði Sveinn. „það er fullbókað í ferðir okkar til flestra staða út um landið, svo sem Egilsstaða. Hafnar I Hornafirði og víðar" Og svo eru það þeir sem eng- an hetjuskap af sér sýna um páskana — nema þá helzt að rífa sig á fætur eldsnemma á páskadagsmorgun til að fara í messu. Biskupsritari sagði okkur, að kirkjusókn væri aldrej önnur eins og á páskum, „í messum á páskadag er, ef miða á við kirkjusókn undanfarin ár vfir- leitt troðfullt út úr dvrum. oa margir hafa orðið frá að hverfa. svo er jafnvel að segja um allar messur hina lögboðnu messu- daga páskahátiðarinnar. en beir eru sWrdaaur, föstudaaurinn langi, páskadagur og 2. pá«ka- dagur“. — GG tíasira: — Hvar ætlið þér að verja páskatríinu? Leifur Sigurðsson. garðyrkju- maður: — Bara í hugguleg- heitum heima, með bók. Rúnar Matthíasson, strætisvagn- stjóri: — Á skíðum ef ég mögu- lega get komizt til Guðrún Sigurjónsdóttir, skrif- stofustúlka og húsmóðir: — Ja ... nú veit ég ekki. Maður kemst nú ekkj langt frá börn- unum. Ætli ég reyni þó ekki að skreppa austur fyrir fjall i heimsókn til skyldfólks, sem ég Guðmundur Steinsson, prentari. •*- Ég hef nú bara hugsað mér aö vera heima um páskana og hvíla mig vel og vandlega. Svo væri kannski ekki úr vegi að trimma eitthvað smávegis miili máltfða. Ómar Ólufsson, prentari: — Það eina spennandi sem ég get látið mér til hugar koma að gera um páskana er það, að hafa það gott heima fyrir.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.