Vísir - 29.04.1971, Page 1

Vísir - 29.04.1971, Page 1
61. átfg. — Fimmludagur 29. apríl 1971. — 95. tbl. ERFINGJAR í KAPP- HLAUPI YIÐ TÍMANN Nýja fasteignamatið tekur gildi 1. mai LÖGFRÆÐINGAR í Reykjavík I dagana margír hverjir í önn að þinglýsa og ganga frá dán- arbúum, sem af ýmsum ástæðum hefur dregizt að skipta endanlega. Og ástæðan fyrir handaganginum Stjórnmálayfirlýsing landsfundar Sjálfstæðisflokksins: núna er auðvitað sú, að 1. maí er á laugardaginn, sá örlagaríki dagur þegar nýja fasteignamatið tekxu' gildi. Vísir hafði í morgtun samband við nokkra lögfræðinga, og var ekki urn að viilast: Þeir höfðu sjald- an haft annað eins á sinni könnu af viöskiptamönnum, a.m.k. ekki þeir yngri: „Það má nefnilega bú- Vilja dreifingu valdsins „Landsfundurinn lýsir því yfir, að Sjálfstæðis- flokkurinn muni því að- eins taka þátt í stjómar- myndun að kosningum af stöðnum að unnt verði Fótbolfavertíð hafin Úti um allan bæ, hvar sem grasblett er að finna, eru strákar uppteknir frá morgni til kvölds við að sparka bolta. Þótt það sé ekki sérstaklega hollt fyrir gróðurinn, hafa strákarnir gott af því, þótt tilburðir þeirra séu ekki alltaf jafn fagmannlegir og hjá þeim fullorðnu, eins og sjá má á myndinni. Myndin er frá leik Víkings og Ármanns, sem Víkingar unnu með fjórum mörkum gegn engu, eins og lesa má nánar um á íþróttasíðu Vísis í dag. — Ljósm. Rjarnleifur. að halda áfram á braut aukins frjálsræðis og dreifingar vaidsins í þjóðfélaginu tM þegn- anna“. Þannig m. a. er komizt að orði í niðurlagi stjórnmá'ayfir- lýsingar 19. landsfundar Sjálf- stæðisflokksins, sem lauk í gær. Síðasta deginum var varið til afgreiðslu stjórnmálayfirlýsing- arinnar_ þar sem dregin voru fram grundvallaratriöi sjálf- stæðisstefnunnar og lögð á- herzla á vitja Sjálfstæðis- flokksins til að beita sér fyrir framkvæmd þeirra, — Sérstök athygli var vakin á 15 mála- flokkum. Vajddreifing: „Keppa ber að því aö dreifa valdinu í þjóðfé- laginu, en dreifing valdsins mið- ar að því, að borgararnir sjálfir hafi sem mest bein áhrif á þær ákvarðanir, sem skipta máli. Því þarf aö koma í veg fyrir vöxt ópersónulegs rikisbákns og vinna gegn ofstjórn hins opin- bera. Halda þarf markvisst á- fram skipulagningu og heildar- endurskoðun á ríkisrekstrinum með sparnað og hagsýnj fyrir augum.“ Stjórnskipun og stjórnsýsla: „Endurskoða ber stjórnarskrána til að efla lýðræði og mannrétt- indi ... Gera þarf ráðstafanir til að stuðla að sem skjótastri afgreiðslu mála hjá opinberum aðilum. Jafnframt þarf að tryggja réttaröryggi í stjórn- sýshm og auðvelda almenningi aðgang að upplýsingum um hana.“ Sveitarfélög og dreifbýli: „Auka þarf sjálfstæði sveitarfélaga og héraða og flytja fé og fram- kvæmdir í hendur þeirra frá rík isvaldinu. Auka þarf starfsemi til þróunar byggðar í öllu land- inu með aðgerðum, sem skapa landshlutum sem jöfnust skil- yrði fyrir öruggri atvinnu og fullnægjandi félags-, mennta- og heilbrigðisþjónustu". Fjármálakerfið: „Endurskoða þarf afskipti ríkis og stjórnmála- flokka af fjármálakerfinu og vinna að því að fjármálavaldið sé sem mest í höndum borgar- anna sjálfra. Stefna ber aö því, að hið opinbera hætti sem mest þátttöku í atvinnurekstri. - Breyta þarf yfirstjórn banka og stofnsjóða atvinnuveganna með það fyrir augum að gera kerfið virkara og einfaldara". Tryggingamál: „Almennar trygg ingar og félagslega samhjálp ber að efla með þvl að bæta að- búnað og auka bætur, þar sem þeirra er þörf. Framkvæmdum þeirra skal haga þannig að ekki dragi úr athafnavilja einstakl- inganna. Ríkisvaldið stuðlj að byggingu hentugs húsnæðis fyr ir aldrað fólk“. Skó'amál: „Tryggja verður jafn rétti til náms í samræmi við hæfileika og áhugamál hvers og eins, og sjá til þess að fjárskort- ur, búseta eða aðrar aðstæður hindri ekkj skólagöngu". — GP Norskt skip bjargar Cæsari \ Norskt björgunarskip leggur væntanlega af stað frá Bergen í kvöld til ísafjarðar til þess að hjarga brezka togaranum Cæsari af strandstað. Norskir björgunarsérfræðingar skoðuðu skipið í gær og hallast ast við að eftir 1. maí hækki erfða- fjárskatturinn í hlutfalli við hækk- að fasteignamat, þ.e.a.s. þegar um er að ræða skuldlausar eða skuld- litlar eignir. Fasteignir sem miklar skuldir hvfla á, sleppa hins vegar nokkuð við hæfckun á erfðafjár- skatti, þar sem skuldirnar eru dregnar frá í hlutfalli við matið“, sagði einn lögfræðinganna okkur, og sagði hann einnig að nýja fast- eignamatiö gerðj það aö verkum, að þinglýsingargjöld og stimpil- gjöld hækkuðu í hlutfalli við hækk- að mat, ,,en það er ekki nein al- gild regla að fasteignamat hljóti að hækka strax eftir 1. maí“, sagði lögfræðingur vor, „mátið verður að vísu hærra þegar um er að ræða nýjar fasteignir en svo þarf ebki að vera um eldri fast- eignir. Það var talaö um það í byrjun, þegar þeir voru í gangi með nýja matið, að það myndi hafa áhrif á ein 60—70 atriði", sagðj lögfræð- ingurinn, „en almenningur verður helzt var við þetta í hækkuðum stimpilgjöldum og þinglýsingar- gjöldum nýrra íbúða -— og svo þetta með erfðafjárskattinn“. - GG þeir helzt aö því að bezt sé að bjarga skipinu með því að sökkva flotholtum niður með skipinu, dæla í þau lofti og fá skipið þannig á flot. Svipaðri aðferð var beitt með góðum árangri við togarann Notts County á sínum tíma, er hann strandaði á Snæfjallaströnd. JH Gjaldeyrissjóður eykst um 450 milljónir —Fjármagnsinnflæði bætti stöðuna Gjaldeyrisvarasjóðurinn var f lok marz samtals 3.713 milljónir króna og hafði þá aukizt um 450 milljónir frá áramótum. Kristinn Hallsrímsson deildar- stjóri Hagfræðideildar Seðlabank- ans sagði í viðtali við Vísi i morg un, að inni í þessari upphæð væri í fyrsta laei 217 millióna króna út- hlutun sérstakra dráttarréttinda frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum, sem úthlutað sé til al'ra aðildarlanda. Þetta sé önnur úthutun af þrem, sem komi í röð, ein á ári. Þá gat Kristinn þess að í lok janúarmán- aðar he'ði komið inn f gjaldeyris varasjóðinn andvirði 10 milljóna dollara láns. sem ríkissjóður hefði fengið á Evrópumarkaðnum. — Bati gialdeyrisstöðunnar á fyrsta ársfiórðungi þessa árs orsakaðist því fyrst og fremst af fyrrgreindu fjármagnsinnflæði, ef það hefði ekki komið til. myndi gjaldeyris- staðan hafa versnað í kringum 615 milliónir króna. —SB Tíminn er dýrmætur — segir B. Schónback, sænskur fornleifa- fræðingur, sem kannar horfur á jbv/, oð „bæjar- stæði Ingólfs" verði grafið upp i sumar „Það verður að ákveða sem fyrst. hvort hægt er að hefjast handa í sumar", sagði dr. Schön- báck f viðtali við Vísi. „Þarna er mikiö verk fyrir höndum, kannskj margra ára verk.“ Schönbáck ræðir nú við þjóð- min.iavörð um hvort hugsanlega geti orðið af samstarfi við sænska fornleifafræðinga þeg- ar uppgröfturinn hefst. „Það yröi þá dæmi um nor- ræna samvinnu í verki“, sagði Schönbáck. Fornleifafræðingar gera sér varla vonir um að finna heilt bæ'arstæði, heldur mannvistar- Ieifar frá ýmsum tímum, sem geta orðið merkilegt rannsóknar- efni, og jafnvel varpað nýju Ijósj á einhverja þætti í sögu Reykja víkur og þjóðarinnar allrar. Viðtai við dr. Bengt Schön- báck og Þór Magnússon, þjóð- minjavörð birtist á bls. 9 í Visi í dag.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.