Vísir - 29.04.1971, Blaðsíða 13

Vísir - 29.04.1971, Blaðsíða 13
13 V ÍSTR . Fimmtudagur 29. apríl 1971. Unglingamir fara aö „pæla“ í garðvinnu fyrir hiö opinbera og garðeigendur fara aö huga að garðinum — því nú er vor í loftL og erkifjendurnir eru líka komnir á — nokkur verkefni, sem bent er á i „Garðinum' fréttabréfi Garðyrkjufélags Islands J£rydd- og matjurtaræktun var á dagskránni í gær. Vor- veðrið heldur áfram aö hafa á- hrif á gróðurinn og þvi snúum við okkur að „garðinum“ í tvö faldri merkingu. Garðinum við húsin, sem betra er að fara að huga að og svo að fréttabréfi einu, sem nefnist „Garðurinn" og er gefið út af Garðyrkju- félagi Islands, sem eru samtök áhugafólks um garðyrkju og tekur áreiðanlega við nýjum fé- lögum. í síðasta fréttabréfi rifjar rit- ari félagsins Ólafur B. Guð- mundsson, lyfjafræðingur, upp nokkur verkefni sem al'.ir garð- eigendur ættu að huga að. Hann hvetur fólk til þess að draga það ekki öllu lengur að klippa og grisja tré og runna, muna að sneiða greinar eins ná- lægt stofni og unnt er og séu þær stórar að tálga sárið slétt og bera í það olíumáiningu eða tjöru. „Og fyrst við erum nú komin út 1' garð getum við ekki stillt okkur um að Hta svolítið eftir fjölæru jurtunum í beðunum. Hvemig skyldu þær nú koma undan vetrinum? Jú, grænir broddar eru famir að gægjast upp úr moldinni. En fleiri en við em á ferlj úti og hafa á- huga á þessum grænu og góm- sætu vaxtarbroddum vorsins. — Sniglarnir okkar erkifjendur eru líka komnir á stjá og sleikja út um. Leggið út sniglaeitur í beðin — strax“. Ólafur bendir á sáningu gul- róta og þá sólselju og steinselju og segir, að þessum tegundum megi sá strax og jörð sé orðin þíð og meðfærileg — helzt ekki seinna en 1. maí. Hann bendir einnig á vírbogann og plastdúk- inn, sem sagt var frá á síðunni 1 gær en kemur einnig með það ágætisráð að setja megi plastið strax upp þar sem moldin þiðni fljótt undir því og hlýni svo að sáning getur hafizt fyrr. Þá er víst hver síðastur að fara til þess að huga að kartöflu útsæðinu og setja það til spir unar. Og rúðurnar í sólreitunum. — Nú er tími til að koma öllum gluggum í lag — glerja og fúa- verja — svo allt verði I lagi til að taka á móti sáðbökkum og pottum. Ólafur minnir líka á sáningu sumarblóma og að nota gott fræ. En um sáningu, dreif- plöntun, moldarblöndun o.fl. er vísað til handbóka um það efni. í lokin segir Ólafur: „Nú og svo eru það vorlauk- arnir. Dalíur, begóniur, gladí- ólur, animónur og allt það góð- gæti. Þetta þarf nú allt að fara að setja til spírunar í potta inni f hlýjunnj — ekki samt of heitt á animónunum. Víst veit ég að sumir eru þegar orðnir hálf-kaf- færðir i pottum með spírandi vorlaukum — þvottahús og geymsla undirlagt og verið að laumast með einn og einn pott inn í stofuglugga svo lítið beri á — ég þekki þetta! En við þessu er ekkert að gera. Það er vorið sem er á feröinni!“ —SB Verzlunarmannafélag Reykjavíkur heldur félagsfund um vinnutíma i verzlunum í Þjóðleikhúskjallaranum í kvöld, 29. aprfl kl. 20.30. — Áríðandi að verzlunarfólk mæti á fundinn. Stjómin HELAVÖLLUR í kvöld kl. 20.00 leika Mótanefnd. Yfirlæknisstaða v/ð bandlækningadeild Sjúkrahúss Akraness Staða yfirlæknis við handlækningadefld Sjúkrahúss Akraness er laus til umsáknac. Umsækjendur skutu vera sérfræðingar í skurðlækningum. Umsóknarfrestur er tfl 1. júní n.k. Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf sendist landlækni, Amar- hvoli, Reykjavík. Stjóm Sjúkrahúss Akraness. Stúlka óskast til vélritunarstarfa í aukavinnu, vinnutími eftir sam- komulagi. — Uppl. í síma 21060. Veiðifélag Elliðavatns Stangaveiði á vatnasvæöi Elliðavatns hefst 1. maí — Veiðileyfi eru seld í Nesti við EHiðaár.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.