Vísir - 26.05.1971, Blaðsíða 2

Vísir - 26.05.1971, Blaðsíða 2
 Hann var tvífari bróður sins i Víetnam- striðinu Það leið heil vika, áður en bandarísku hemaðarytfirvöldin komust að því, að hermaöur einn í Suður-Víetnam var „umskipting ur“. Hinn 21 árs gamli Glenn Storer var orðinn leiður á Víet- nam og langaði ekki til að hverfa þangaö aftur eftir að hafa verið í orlofi i einn mánuð heima í Banáarikjunum. Hann rajddi þetta mál við bróð ur sinn, sem hlustaði á hann full ur samúðar og bauðst meira að segja til að fara f hans stað til Víetnam. Og það varð að sam- komulagi, bróðirinn, sem aldrei hafði komið út fyrir landstein- ana hélt f stað Glenns til Víet- nam, þar sem hann tpk við stöðu hans og gesndi henni um hrið með mestu prýði. En upp komast svik um síðir. Það kom á daginn, að maðurinn sem sagðist heita Glenn Storer var alls ekkj Glenn Storer heldur bróðir hans. Þetta þótti ekki sér- lega fallegt afspurnar, og nú er málið fyrir herrétti.. AURALCYSI HRJÁ■ IR DROTTNmU Elísabet 2., Bretadrottning lagði fram þann 19. mai sl. beiðni til þingsins um að fjárhæð sú sem krúnunni er ætluð til sinna þarfa á ári verði hækkuð um liðlega 100 milljónir ísi. króna. 19 ár eru síðan „tihe Civil List“ — fé það sem krúnan þiggur af almannafé var endurskoðað. — í bréfi eða greinargerð sem drottn- ing skrifaði með hækkunarum- sókn sinni, sagði hún m.a.: „Henn ar hátign þykir það sérlega leitt að þróunin undanfarin ár hefur leitt það af sér, að hækkun er nauðsynleg til að hún og 'henn- ar fjölskylda geti haldið áfram þeirri þjónustu er hún veitir þjóð inni, sem hún álftur að þjóðin óski að hún haldi áfram að inna aif hendi... Einnig sagði drottningin í grein argerðinni, að „drottningin væri mjög áfram um að halda þeirri byrði sem hækkun fjárframlags til hennar hefði í för með sér á almenning innan skynsamlegra takmarka“. Sagði hún, að sér þætti nægjanlegt að fá aðeins um 12,5 milljón króna hækkun persónulega. Drottningin fór einnig fram á að maður hennar, Filippus prins, fengi kauphækkun, ' eða aö þing- ið „hugleiddi að hæfcka framlag til hans“ og annarra fjölskyldu- meðlima. Filippus prins fær nú á ári 8,5 milljónir ísl. króna. Drottn ingarmóðirin fær liðlega 13,5 milljónir og Margrét prinsessa fær 3,1 milijón á ári. Drottningin gerði ekki grein fyrir hækkun þeirri sem hún vill fá í smáatriðum, en talsmaður hennar hefur sagt að eigi hún að viðhalda allri viðhöfn undanfar- inn'a ára á þessum verðbólgutím- um, yrði hún að fá 85% hæfckun. Það var Filippus prins, sem fyrstur byrjað; að tala um fátækt konungsfjölskyldunnar, og var það í desember 1969 er banda- rísk sjónvarpsstöð haföi við hann viðtal. Sagði hann þá, að víða skini í rauða sauma hinnar kon- unglegu peningabuddu. Þessi fjárbeiðni drottningar hef ur orðið vatn á myllu þeirra manna í Englandi, er hart berjast gegn konungsveldi í Englandi. — Einn þeirra er skozki verka- mannafiokksþingmaðurinn Wilii- am Hamilton. Hann hefur árum saman skammazt út í konungs- veldið og viljað ieggja krúnuna niður. Hamilton þessi er einn þeirra manna, sem þingið hefur skipað i nefnd til að athuga fjár þörf drottningar, og {júlí á nefnd þessi að skila áliti á fjárbeiðni drottningar. Hinn seinheppni flugvélarræningi hefur gefið sig fram við lögregluna á Málmeyjarflugvelli. Misheppnað flugvélarrón á MálmeyjarflugvelR Bandariskur liðhlaupi hleypti öllu í bál og brand á Málmeyjar flugvelli fyrir skömmu, þegar hann. hafð; í frammi tilburði í þá átt að ræna SAS-flugvél. Hann kom spígsporandi inn í fiughöfnina með kvenmann upp á arminn, veifaði hníf og var hinn glaðbeittasti. Stúlkan, sem er 21 árs og hafði hitt Ameríkanann fyrr um dag- inn, hélt að nú væri eitt mikið ævintýraiíf að hefjast, en í stað þess uppiifði hún óhugn- anlegustu stundir lífs síns. Bandaríkjamaðurinn þrýsti rýt- ingi aö hálsi hennar og þannig labbaði hann fram hjá miðaaf- greiðslunni og inn í flugstjórnar- klefann á DC-9, sem átti að fara íil Stokkhólms. „Fljúgðu til Stokkhólms, eins og skot“, skrækti ræninginn til flugstjórans, Sven Evert Ander- son. „Já, en góði maður, við erum einmitt í þann veginn að leggja af stað þangað“, s'agði flugstjór- inn. „Fljúgðu þá eitthvað annað“, sagði ræninginn. „Mér er sama hvert. Fljúgöu bara eitthvað“. Flugstjórinn og ræninginn héldu talinu áfram þar til flug- stjórinn gat komiö vitinu fyrir ræningjann og fengið hann til að hætta við fyrirætlun sína um að ræna flugvél og gefa sig i stað inn fram við lögregluna. Þetta gerði ræninginn, og það þarf engum að koma á óvart, að hann er nú í geðrannsófcn. Nú sér hún rsta sinn Melanie litla, sem er sex mán- aða gömul, sér nú veröldina í fyrsta sinn. Með nýju gleraugunum sinum hefur hún loks fengið tækifæri til að sjá foreldra sína og leik- föngin sín. Melanie fæddist fyrir tímann. Hún ,hafði afar slæma sjón gat rétt séð móta fyrir hlutum, og átti í mestu erfiðleikum með að festa augun á nokkurn hlut. — Því mál; hefur nú verið bjargað — með nýju gleraugunum. Umgjörðin er ekki venjuleg um gjörð. Eyrun á Melanie litlu eru svo smá, að í staðinn fyrir spang ir hefur Kathleen, móðir hennar,, sem er nítján ára að aldri, sett sérstakt band, sem nær aftur fyr ir hnakkann. Brian, faðir Melanie litiu, er hinn stoltasti. Hann er tuttugu og tveggja ára gamall og segir: „Mér finns Melanie litila vera alveg stórkostleg með kringlóttu gleraugun sín. Kannski hefur hún þetta frá mér, þvi að ég hef gengið með gleraugu alla mína ævi. Ég var þó töluvert eldri en Melanie, þegar ég fékk mln fjrrstu gleraugu. Ætli þetta sé ekki heimstóet hjá Melanie?"

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.