Vísir - 26.05.1971, Blaðsíða 5
.VI SIR . Miðvikuúagur 26. maí 1971.
5
Sigrar ísland í fyrsta skipti í
landsleik í Noregi í kvöld?
landsleikurinn hefst klukkan sex eftir islenzkum tima i Björgvin
Þrettándi landsleikur Is-
lands og Noregs í knatt-
spyrnu verður háður í
Björgvin í kvöld — á hin-
um ágæta leikvelli Brann
þar í borg, en íslenzka
iandsliðið hefur leikið þar
einn landsleik áður. Það
var 1953 og Noregur sigr-
aði með 3—1. Þetta verður
sjötti landsleikur landanna
sem háður er í Noregi og
hafa Norðnienn sigrað í
hinum fimm.
Leikurinn í kvöld hefst kl. sex
eftir íslenzkum tíma og veröur
einn nýliði í íslenzka liöinu, Mar-
teinn Geirsson, Fram, sem kemur
í stað Einars Gunnarssonar, Kefla-
vík. Marteinn hefur leikið marga
. i'íí
fc\ ÆmmKWBŒmfmam&mF fj
Þessa skemmtilegu mynd tók Ijósmyndari Vísis BB á grasvellinum í Keflavík á sunnudag í leik
Keflavikur og Akraness í íslandsmótinu. Keflvíkingar eru í vörn og það er Björn Lárusson, sem
sækir að Þorsteini markverði, en honum tókst að bægja hættunni frá í þetta skipti. Keflvíkingar
sigruðu í Ieiknum með 2—1 og eina mark Akurnesinga skoraði einmitt Björn Lárusson.
Norðmenn hafa sigrað í
9 af 12 landsleikjum
gegn Islandi — skoraB 28 mórk gegn 7/
Norðjmenn hafa sigrað í
níu af tólf landsleikjum í
knattspyrnu, sem þeir hafa
leikið við íslendinga — í
flestum með tveggja
marka mun, tvívegis með
eins marks mun og einnig
tvívegis með fjögurra
marka mun. Fimm leikj-
anna hafa farið fram í Nor-
egi og norska landsliðið
sigrað í þeim.
Beztu möguleikar íslands í leik
í Noregi voru 1959 í Ólympíu-
keppninni. Liðið kom þá beint frá
Kaupmannahöfn, þar sem það hafði
gert jafntefli við Dani, og áður
hafði það unnið norska liðið hér
heima í Reykjavik. Allir þessir
leikir voru liðir í undankeppni fyr-
ir Ólympíuleikana f Róm 1960. En
sigurvonin í Noregi brást'— norska
liðið vann 2—1. íslenzka liðiö varð
fyrir miklum skakkaföllum í leikn-
uAi, missti Þórölf Beck út af eftir
aðeins tvær mín. og fleiri góðir
menn meiddust í leiknum. Það var
fyrst og fremst ástæða tapsins.
1 kvöld er nú komið að þrettánda
landsleik þjóðanna og hinum sjötta
í Noregi. Ef til vill reynist talán
13 happatala fyrir ísienzka liðið
og kannski verður þarna_ um að
ræða fyrsta sigurleik íslands í
Noregi. Því ekki það — ekkert er
menn hafa engan veginn sterku
liði á að skipa.
Hér á eftir fer til gagns og gam-
ans skrá yfir alla landsleiki þjóð-
anna. Hinn fyrsti — 1947 — var
jafnframt annar landsleikur Is-
lands í knattspyrnu. Þrir menn,
sem nú eru með íslenzka liðinu í
Noregi, léku i þeim leik. Albert
Guðmundsson, sem skoraði bæði
mörk íslands, Ríkharður Jónsson,
sem þá lék sinn fyrsta landsleik
17 ára aö aldri og Hafsteinn Guð-
ómögulegt i knattspyrnu og Norð- Imundsson, sem var bakvörður.
1947 ísland—Noregur 2—4 Reykjavík
1951 ísland—Noregur 1—3 Þrándheimi
1953 ísland—Noregur 1—3 Björgvin
1954 Is’and—Noregur 1—0 Reykjavík
1957 ísland—Noregur 0—3 Reykjavík
1959 ísland—Noregur 1—0 Reykjavík
1959 tsland—Noregur 1—2 Osló
1960 ísland—Noregur 0—4 Osló
1962 ísland—Na" •••■ 1—3 Reykjavik
1968 ísland—' 0—4 Reykjavík
1969 ísland— I 1—2 Þrándheimi
1970 ísland—No. 2—0 Reykjavik
1971 Island—Noregur ? Björgvin
leikj í íslenzka unglingalandsliðinu.
Mikið hefur verið skrifað um
leikinn í norsk blöð að undanförnu
og er búizt við að margir áhorfend-
ur verði á leiknum, þótt svo Björg-
vinjar-liðin eigi enga leikmenn í
norska liðinu. En Norðmönnum er
efst í huga aö hefna fyrir ófarirnar
hér á Laugardalsvelli, þegar ís-
lenzka landsliðið sigraði hið norska
2—0 í fyrrasumar.
Bæði liðin verða að miklu leyti
skipuð sömu leikmönnum og þá
— en þó má geta þess, að þrír ný-
liðar eru j norska liðinu. Aðalat-
hygli Norðmanna nú hefur beinzt
að Hermanni Gunnarssyni, Val, en
hann skoraði bæði mörk íslands í
landsleiknum í fyrra. Hermann
kemur nú V landsliðið á ný, en hann
gat sem kunnugt er ekki leikið gegn
Frökkum á dögunum, þar sém þá
var um Ólympíukeppni að ræða og
Hermann var um tíma atvinnumað-
ur f Austurríki.
íslenzka liðiö í kvöld verður
skipað eins og gegn Frakklandi, þó
með þeim breytingum, sem áður eru
nefndar, það er að Hermann kem-
ur sem miðherji í liðið og Mar-
teinn sem miðvörður — en að því
er bezt var vitað í gærkvöldi höfðu
þeir Hafsteinn Guðmundsson,
landsliöseinvaldur, og Ríkharður
Jónsson, þjálfari, hug á þvi að
nota 13 leikmenn eins og í leiknum
gegn Frakklandi. Þeir, sem leika
ekki og eru með í förinni, eru þvi
Magnús Guðmundsson (nema Þor-
bergur Atlason meiðist í leiknum)
og Róbert Eyjólfsson, Val. Magnús
markvörður KR meiddist talsvert
í leiknum gegn Akureyri í tslands-
mótinu á laugardaginn. Saumaður
var saman skurður á höfði hans,
en meiðslin voru ekkj það alvarleg,
að hann gæti ekki tekið þátt í Nor-
egsförinni.
Reyna við Is-
landsmetin
Frjálsíþróttadeild ÍR gengst fyrir
innanfélagsmóti í kvöld á Laugar-
dalsvellinum. Keppt verður í tveim-
ur boðhlaupum fyrir konur, 3x
800 metrum og 4x400 metrum.
Reyna sveitir ÍR þarna við Lslands-
rnetln i hlaupunum.
Luigi Riva
Cagliari gegn
Crystal Palace
í kvöld hefst á Englandi
ensk-ítalska knattspyrnukeppn-
in og taka þátt í henni sex lið
frá hvoru landi. Þeim er skipt
í þrjá riðla og þar er ekki aðeins
keppt um hin venjulegu stig —
heldur fá liðin eitt stig að auki
fyrir hvert mark sem þau skora.
í fyrra sigraði Swindon Town
í keppninni — vann Napoli f úr-
slitaleiknum, sem háður var á
Ítalíu með 3—0. Swindon tekur
einnig þátt í keppninni nú, en
önnur ensk lið eru Blackpool,
sem einnig leikur í 2. deild
næsta keppnist'fmabil eins og
Swindon, og Stoke, WBA,
Cyristal Palace og Huddersfield
úr fyrstu deild.
Það rýrir talsvert keppnina,
að flest beztu, ensku liðin sáu
sér ekki fært að táka þátt í
henni nú vegna keppnisferða-
laga, en hins vegar senda ítalir
mjög sterk lið í hana. Þar verða
meistararnir Inter, Milanó,
Cagliari og Bologna svo dæmi
séu nefnd.
Aðalleikurinn í kvöld verður
í Lundúnum milli Crystal Palace
og Sardínuliðsins Cagliari, en
með því liði leikur hinn frægi
miðherji ítalska landsliðsins,
Luigi Riva, en hann er dáður
sem dýrlingur á eyjunni og allt
ætlaði þar um koll að keyra á
dögunum þegar fréttist, að
Juventus frá Torinó hefði boðið
1300 hundruö þúsund sterlings-'
pund í Riva. Juventus varð hins
vegár aö béra tij baka að hafa
boðið þá upphæð ’i leikmanninn.
Markakóngar 1. deildar
Islendingar hafa skorað 11 mörk í þessum leikjum. Norðmenn 28.
hs’im.
Tvöfalda umferöin í 1. deildar
keppninni í knattspyrnu var tekin
upp 1959 or framan af voru sex
lið í deildinni, en beim hefur smám
saman veriö fiölgað í átta. Frá því
hafa 1408 mörk verið skoruð í
1. deild og af heim 11 liðum, sem
hafa leikið í deildinni, hefur KR
skorað flest eða 309, Síöan kem-
ur Akranes með 242 mörk, Valúr
með • 228 mörk og Akureyri með
200 mörk. KR og Valur eru hins
vegar eínu liðin, sem alltaf hafa
leikið í 1. deild.
Af einstökum leikmönnum hefur
Ellert Schram, KR, skorað flest
mörk, en rétt á hæla honuni koma
Valsmennirnir Hermann Gunnars-
son og lngvar Elísson og þar sem
þeir leika með Val í sumar eru all-
ar líkur á aó þeir bæti met Ellerts.
Fjórði í röðinni er Þórólfur Beck,
KR, og er athyglisvert að nær öll
mörk hans eru skoruð frá 1959—
1961, en þá um haustið geris.t hann
atvinnumaður á Skotlandi.
Markahæstu menn 'i 1. deild eru
þessir:
Ellert Schram, KR 57
Herm. Gunnarss. Val/I’BA 5Í>
Ingvar Elíasson, Val 55
Þórólfur Beck, KR 47
Gunnar Felixson, KR 45
Steingrímur Björnsson, ÍBA 41
Eyleifur Hafsteinsson IA/KR 40
Skúli Ágústsson, ÍBA 40
Kári Árnason, ÍBA 39
Baldvin Baldvinss., Fram/KR 31