Vísir - 13.08.1971, Qupperneq 4
V xs rR . Föstudagur 13. ágúst 1971.
luinrw a
ISLíNZKA SUNDFÓLKSINS
— á Noráurlandamótinu, sagði Torfi Tómasson
i gær — mótið hefst á morgun kl. 77 /
Laugardalslaug
Það verður fjör í Laugar
dalslauginni um helgina —
fyrsta Norðurlandamótið í
sundi, sem hér hefur verið
háð, fer þá fram og meðal
keppenda eru nær allir
beztu sundmenn Norður-
landanna fimm — og með-
al keppenda nokkrir, sem
teljast til hinna beztu í
'ieimi.
— Ég er bjartsýnn á árangur ís-
lenzka sundfólksins í keppninni,
sagði Torfi Tómasson, formaður
Sundsambands íslands, þegar blað-
ið náði tali af honum í morgun og
hann hélt áfram:
— Við höfum nú fengið árangur
ailra þeirra sem keppa á mótinu.
Leiknir Jónsson er með annan
bezta tíma þeirra sem keppa í 200
m bringusundi og þar ættj Guðjón
Guðmundsson frá Akranesi einnig
að geta náð góðum árangri. Þá geri
ég mér vonir um, að þeir Guð-
mundur Gíslason og Finnur Garö-
arsson verði einnig meðal hinna
fremstu í 200 m fjórsundi (Guðm.)
S-Kóreuför
aflýst
Albert Guðmundsson, formaður
KSf tjáði Vísi í morgun, að S.-
Kórea hefði aent skilaboð f gaer um
að því miður gæti ekki orðið af
*oði þeirra um að taka við íslenzka
andsliðinu í knattspyrnu í ár,
eins og til stóð.
Ástæðan er sú, að Ólymp’iuleikir
liðsins voru fluttir fram, áttu að
far* fram f október, en verða þess
í stað leiknir í september. Þar af
þ-iðandi verður ekkert pláss fyrir
leikinn við ísland í ár.
i ar
Finnur Garðarsson — verðlaun
í skriðsundi?
og 100 m skriðsundi (Finnur), já,
og ef sérlega vei gengur hjá þeim,
nei það er bezt að hugsa þá setn-
ingu ekki til loka.
Stúlkurnar okkar eiga þarna
flestar við ofjarla að etja, en aldrei
að vita nema þær setji einnig strik
'í reikninginn. Kannski hún Lísa
Pétursdóttir Ronson — hún hefur
náð talsvert betri tíma í Bandaríkj-
unum, en hún synti hér á í meist-
aramótinu.
— Og svo er annað, sem mig
langar að minnast á, sagði Torfi
ennfremur. Okkur tókst ekki að ná
samkomulagi við íslenzka sjónvarp-
ið — og því verður engu sjónvarp-
aö frá þessari miklu keppni. Fólk
'verður því að koma til að sjá það,
sem þar fer fram og sennilega er
betra að draga það ekki, því ’horf-
endastúkan í Laugardalslauginni
tekur takmarkaðan áhorfenda-
fjö'da.
Keppni á Norðurlandamótinu
hefst kl. ellefu í fyrramálið og
veröur fyrsta keppnisgrein 200 m
fjórsund kvenna. Þar verður Guð-
munda Guðmundsdóttir frá Selfossi
og verður því fyrst íslenzkra kepp-
enda til að stinga sér í laugina.
Önnur keppnisgrein verður þarna
— 400 m fjórsund kar'.a og keppir
þar Guðmundur Gíslason meðal
annars við hinn fræga Anders
Bellbring frá Svíþjóð einn al-
fremsta sundmann heims.
Aðalkeppnin á laugardag hefst
kl. fimrh og'fýrsfa keppnisgrein er
400 m skriðátlnd. Á éftir verður
l^eppt í fjmrp greipum, meðai ann-
ars 2ÖÓ ih bringusundi — sterkustu
keppnisgrein okkar íslendinga og
til gamans má geta í því sambandi,
að það er einmitt í þessu sundi,
sem ísland hefur hlctiö sinn eina
Norðurlandameistara, Sigurð Jóns-
son Þingeying 1949 — en nokkrir
aðrir hafa komizt á verðlaunapall-
ana.
Á sunnudag, 15. ágúst, heldur
keppnin áfram kl. 11 og verður þá
keppt f tveimur keppnisgreinum,
1500 m skriðsund; karla og 800 m
skriðsundi kvenna, en aðalhlutinn
Leiknir Jónsson hefur mikla
sigurmöguleika.
Guðmundur Gíslason
sundið bezL
hefst kl. þrjú í 100 m skriðsundi,
þar sem Lísa litla Ronson mun
verja heiður íslands. Siðan kemur
hver keppnisgreinin af annarri og
að lokum verða tvö spennandi boð-
sund. — hs'im.
t Nútíma .
skrautmumr,
menoghálsfestar.
ío
SKÓLAVÖRÐUSHG13
í sambandj við landsleikinn
I í kvöld við Japan á Laugardals-
i vellinum fer fram kenpni í 400
I m hlaupi og meðal þátttakenda
'er Þorsteinn Þorsteinsson og er
I það í fyrsta skipti, sem hann
| keppir hér heima í sumar. Aörir
l keppendur f hlaupinu veröa
' Stefán Hallgrímsson, UÍA, Borg-
Iþór Magnússon sem er f KR
I eins og Þorsteinn, Ágúst Ás-
, geirsson. ÍR, Sigvaidi Júlíusson,
' UMSE, og Vilhjálmur Vilmund-
I arson. KR.
Hörkukeppni
á golfmótinu
Eftir tvær umferðir, 36 holur,
var keppni mjög hörð á íslands-
mótinu í golfi á Akureyri og þrír
keppendur jafnir og efstir, þeir
Björgvin Hólm, GK, Einar Guðna-
son, GR, og Óttar Ingvason, GR,
með 163 högg. 1 fjórða sætj var
Þorbjörn Kjærbo, GS, með 164
högg. en hann náði beztum árangri
;í gær, fór á 80 höggum. í fimmta
sasti var Björgvin Þorsteijhsson, GA
með 166 högg. Keppnin hófst aftur
fel. átta í morgun og voru þá
leiknar 18 holur til viðbótar, en á
Biorgun lýkur keppninni meö síð-
18 'holunum.
Lengi lifir í gömlum glæðum
í gær var hér í höfninni skemmtiferðaskipið Regina Maris og lék úrvalslið knattspymumanne
frá skipinu við nokkra gamla Valsmenn á Valsvellinum. Þar mátti sjá marga fræga kempu og
hér er Albert Guðmundsson að sýna nokkrum mótherjanna listir sínar. Valur vann meið miki-
um mun.