Vísir - 30.08.1971, Blaðsíða 5

Vísir - 30.08.1971, Blaðsíða 5
•f V í SIR. Mánudagur 30. ágúst 1971. 5 Hermann Gunnarsson tók auka spyrnu á 30 mín. í síöari hálf- leik, en Þorsteinn varði snúnings knött hans, en hélt ekki knettin um. Hann barst út í vítateig... .. .og þar var hörkubarátta um knöttinn eins og myndin sýnir. Jóhannes Eðvaldsson átti í bar- áttu við Þorstein og þrjá Kefl- víkinga og hafði betur... .. .hann kom knettinum til Harð ar Hilmarssonar (nr. 14), sem sendi til Inga Björns, lengst til vinstri, og Ingi Björn skoraði eina mark Vals í leiknum. Ljósmyndir BB. Þetta er allt of mikið ósamræmi og greinilegt að Steinn er í lítilli æfingu. Það er ekki nóg að blása á æfingum hjá Selfyssingum! Hvað eftir annað var hann of fljótur að grípa til fiautunnar og dæmdi þann- ig, að liðið, sem braut af sér beinh'n is hagnaðist á brotinu. Nú, Keflvíkingar fengu þarna óskabyrjun og aðeins þremur mín. síðar skoruðu þeir annað mark en einkennileg mistök Sigurðar Jðns» sonar. Hann gat gert hvað sem hann viidi við knöttinn, þegar hann kom fyrir Valsmarkiö, en hefur senni- lega álitið Sigurð Dagsson fyrir aft an sig og lét knöttinn fara fram hjá sér. En það var nú einhver annar en Sig. Dagsson, sem var bak viö hann. Knötturinn fór beint til Birgis Einarssonar. sem ekki þurfti annað en ýta honum í autt markið. — eftir sigur gegn Val i gær 2-1 á Laugardalsvelli Eftir sigur gegn Val á Laugardalsvellinum í gær er nú aðeins ein hindrun eftir fyrir Kef Ivíkinga til að hljóta íslandsmeistaratit- ilinn 1971, það er KR-ingar á heimaveíli Keflvíkinga 5. september, en það verður varla hindrun, sem hinir harðskeyttu Keflvíkingar ryðja ekki úr vegi — eink um og sér í Iagi þar sem leikið er suður í Keflavík. íslandsmeistaratitilinn er því svo got sem í höfn fyrir Keflvíkinga, þó svo að ís- lenzk knattspyma sé eins og íslenzk veðrátta. Þar getur allt gerzt. Sigur Keflvíkinga gegn Val í gær var verðskuldaður. Þeir voru betra liðið í allskemmtilegum leik og aðeins leiðinlegt, að sigurmark þeirra skyldi koma úr mjög vafa- samri vítaspyrnu — dóm, sem sennilega átti ekki nokkurn rétt á sér. Þetta var á 9. mín. Birgir Einars son hafði þá leikið framhjá Róbert Eyjólfssyni á hægri kantinum og 2—3 metra frá vítateignum renndi Halldór Einarsson sér á Birgi. Þeg ar Halldór kom á hann var Birgir við vítateigshornið. en á rennblaut- um vellinum runnu þeir skiljanlega inn í vítateiginn. Dómarinn Steinn Guðmundsson dæmdi þegar víta- spyrnu, sem Steinar Jóhannsson skoraöi úr. Þetta var mjög vafasam ur dómur hjá Steini og mikið mis ræmi í sambandi við þaö, sem síöar átti sér stað í leiknum. Þá sleppti hann tvívegis augljósum vitaspyrn- um. I fyrra tilfellinu, þegar Þor- steinn Ólafsson markvörður Kefl- víkingan, greip utan um Inga Bjöm Albertsson • svo hann kæmist ekki í skotaðstöðu við mark Keflvikinga. Þarna var greinilega víti. en dæmt á Val. Furöulegt! Síðar í leiknum stóð Hörður Ragnarsson frír inni á jmarkteig Vals, þegar fótunum var | kippt undan honum. Ekkert dæmt. En það merkilega við þessa miklu heppnisbyrjun Keflvfkinga hvað mörk snerti var, að það hafði ekki áhrif á Jiðið til hins betra. Leikur liðsins beinlínis datt niður eftir þau, en Valsmenn notfærðu sér það Iítt — það er lítill baráttuvilji í þvi liði. Leikurinn var heldur daufur, en af og til komu þó marktæki- færi, sem ekki nýttust. Keflvíkingar voru betri framan af í síðari hálfleik og sköpuðu sér góö færi. Mistök Sigurðar Jónsson ar heföu auðveldlega getað átt þátt í þriðja markinu. Hann missteig sig illa og Steinar Jóhannsson komst í dauðafæri — stóð aleinn fyrir opnu marki. en spyrnti knett inum í stöng og þaöan hrökk hann út og síðan náði Sigurður Dagsson honum. Þarna sluppu Valsmenn vel, og fleiri voru færi Keflvikinga, 'em þeir nýttu illa. Valsmenn voru við sama hey- garðshornið sem svo oft áður i sumar. Alltof bröngt smáspil þeirra var létt fyrir Keflvikinga og ógnun því afarlitil þar til 6. síðu.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.