Vísir - 27.09.1971, Blaðsíða 3
V 1 S I R . Mánudagur 27. september 1971.
í MORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND
Batnandi horfur á samkomu
lagi í gjaldeyrismálunum
Umsjón Haukur Helgason
Horfurnar á lausn gjaldeyr I fundur alþjóðlega gjaldeyr
iskreppunnar virðast hafa issjóðsins í Washington, —
batnað, og í dag hefst árs þar sem gjaldeyrismálin
I verða efst á baugi.
ÖFLUG KJARNORKU- >
SPRENGING 'I MORGUN
Ein öflugasta neöanjarðarspreng-
ing, sem um getur, kom fram á
jarðskjálftamælum í Uppsölum í
morgun. I>ama var um kjamorku-
sprengingu að ræða.
Sprengingin átti upptök klukkan
?jö að sænskum tíma nálægt
Novaja Semlja í Sovétríkjunum og
afl hennar náöi 6,7 stigum á Richt-
ermæli. 14. október í fyrra mældist
ámóta sprenging, sem einnig átti
upptök sín á Novaja' Semlja-svæð-
inu.
Rússar hafa á hverju hausti á
undanförnum árum sprengt margar
kjarnorkusprengjur neðanjarðar á
þessu svæði.
Sprengingin nú samsvarar mörg-
um megatonnum.
Aö vísu munu hvorki Bandaríkin
né önnur ríki í svokölluöum tíu
ríkja klúbbi hafa breytt afstöðu
sinni að ráði á fundi sínum nú um
helgina, en heimildarmenn frétta
stofa fullyrða, að vonir hafi glæözt
mikið á fundinum.
John Connaly fjármálaráðherra
Bandaríkjanna hefur sýnt meiri
sáttfýsi en áður. Hann sagði á blaða
mannfundi 1 gær, að Bandaríkja-
menn væru tilbúnir að semja um
málið og vera „sveigjanlegir" eftir^
þörfum.
Bandaríkjamenn leggja áherzlu
á, að gjaldeyrisvandamálið verði að
leysa, með þvi að ýmis önnur riki
hækki gengi gjaldmiðla sinna og
þá einkum Japan. Hins vegar er það
krafa annarra ríkja, að Bandaríkin
felli gengi dollarans miðað við gull,
jafnframt þvi sem gengi annarra
gjaldmiðla hækki. Verði allir aðilar
að fóma nokkru til, ef takast eigi að
leysa þann mikla vanda, sem við
er að glíma og koma á jafnvægi
milli gengis gjaldmiðla.
Connally orðinn sáttfúsari.
Veit ekkert um
heilsu Maos
— segir bandariski læknirinn, sem var
sagður annast Mao sjúkan
Bandariski hjartalæknirinn dr.
Paul Ehidley Wlhite sagði við
komuna til Hongkong í morgun,
að sér væri aBs ókunnugt um
heilsufar Mao Tse Tungs. Orð-
rómiur hefur verið uppi undan-
fama daga þess efnis, að dr.
White hafi verið við sjúkra-
beð Maos.
Dr. White er 85 ára, og hann
hefur ferðazt um Kínverska ai-
þýðulýðveldið með konu sinni
og öðrum bandarískum hjarta-
sérfræðingi, Dr. Edmund Grey
Dimond og konu hans. Kínversk
læknasamtök buðu þeim til
Kína. Dr. White kveðst ekki
hafa hitt neinn af forystumönn
um í stjómmálum á hinni tölf
daga för sinni.
í fyrsta sinn á
erlenda grund
Híróhító Japans-keisari og
Nagako keisaraynja komu
í morgun til Anchorage í
Alaska, og tók Nixon for
seti á móti þeim. Þetta er
fyrsta sinn í sögunni, að
japanskur keisari stígur
fæti á erlenda grund.
Keisarinn ætlar að heimsækja
sjö rík; í Evrópu.
Nixon lagði áherzlu á þaö í ræðu,
að hlutverk Japans á alþjóðavett-
vangj verður sífellt stærra. Hann
sagði, að heimsók keisarans væri
tákn vináttu Bandaríkjanna og
Japana.
Híróhító ræddi í sinnj ræðu um
vináttu þjóðanna. Japanir þökkuðu
Bandaríkjamönnum alla þá aðstoð,
sem þeir hefðu veitt Japönum eftir
aðra heimsstyrjöldina.
Eftir viðhafnarmikla móttöku
athöfn héldu Nixon og keisarinn
einkafund
4-
MUNID
RAUÐA
KROSSINN
Híróhító mjög þakklátur
Bandaríkj amönnum.
ÆTLA RÚSSAR EKKI AÐ
REKA JAFN MARGA?
Nemar í
járniðnaði
Viljum ráða nokkra nema ' járniðnaði.
HAMAR H.F.
— Bretar i Moskvu biða eftir brottvisun
Brezkir drplómatar í Moskvu
bíða í dag spenntir eftir fréttum
um, að þeim sé vísað úr landi í
staðinn fyrir brottvísun fjölmargra
sovézkra diplómata frá Bretlandi.
Stjóm Sovétríkjanna tilkynnti
brezku stjóminni í gær, að hún telji
óhjákvæmilegt annað en að svara i
sömu mynt, ef brezk stjómvöld
breyti ekki þeirri ákvörðun sinni
að vísa 90 Rússum úr landi og
neita 15 öðrum, sem hafa verið
í leyfi í Sovétríkjunum, um leyfi
ta að snúa aftur til Bretlands.
Bretar hafa veitt því athygli, að
í mótmælaorðsendingu Sovétstjóm
arinnar var ekki getið um fjölda
Rússanna, sem hafa verið gerðir
brottrækir. Tala er heldur ekki
nefnd í sovézkum fjölmiðlum, og
þykir þetta benda til þess, að Sovét
stjómin ætli sér ekki að vísa úr
landi jafn mörgum Bretum og
Bretar hafa vísað úr landi.
í brezka sendiráðinu í Moskvu
eru 78 starfsmenn, þar af 40 dipló
matar. Alls eru um 400 brezkir
kaupsýsl'umenn, tæknimenn og
verkfræðingar í Sovétríkjunum um
þessar mundir, auk milli 20 og 30
stúdenta og 10 blaöamanna.
Sir Alec Douglas Home utanrík-
isráðherra Breta og Andrei
Gromyko utanríkisráðherra Sovét-
ríkjanna munu ræða mál þettea I
New York í dag. Fréttamenn telja,
að sovézka stjórnin muni ekki taka
neina endanlega ákvörðun, fyrr en
þeim fundi er lokið. Ráðherrarnir
eru staddir i New York til að sitja
þing Sameinuðu þjóðanna.
í mótmælaorðsendingu sinni i
gær hélt sovézka stjómin því
frar.i, að brottvísun diplómatanna
sé úthugsuð tilraun til að grafa
undan frumkvæði því, sem Sovét-
ríkin hafi í tilraunum til að draga
úr viðsjám i Evrópu. Þar segir, að
brezka stjórnin hafi fylgt stefnu,
sem geri sættir erfiðar, einkum í
Evrópu. Málgagn sovézka komm-
únistaflokksins Pravda segir, að
ríkisstjórn íhaldsflokksins í Bret-
landi reyni að „synda móti straumi
sönunnar og vinna gegn eðlilegri
þróun í Evrópu“. Bretar hafa rekið
Sovétmenn úr landi, af því aö þeir
staðnir að víðtækum njósnum.
Járniðnaðar-
msnn
og aðstoöarmenn í járniðnaði óskast strax.
Upplýsihgar gefur yfirverkstjóri.
HAMAR H.F.
V