Vísir - 27.09.1971, Page 5
V Í, S I R . Mánudagur 27. september 1971.
Ármmn kom á
óvart — vann IR
Ármann kom talsvert á ó-
vart í Reykjavíkurmðtinu í
handknattleik í gærkvöldi
og sigraði ÍR í meistara-
flokki karla með 14—12. —
Þau úrslit voru óvænt fyr-
ir flesta, en sigur Ármanns
var verðskuldaður og ÍR-
liðið íék talsvert undir
getu.
Þó var ekkert í byrjun, sem
benti til þess, aö Ármann mundi
sigra í þessari viöureign félaganna.
ÍR-ingar skoruöu tvö fyrstu mörkin
og sigidu hægt og bítandi framúr,
komust í 5—1 og 6-2. En loka-
kaflj fyrri hálfleiks var Ármanns
og þöinu tókst að breyta stöðunni
V 7—6 fyrir hlé.
Framan af síðari hálfleik tókst
IR-ingum ekki aö finna smugu á
vörn Ármanns — en næstum hvert
skot Ármenninga hafnaði í marki
slakrar markvörzlu ÍR. Staðan
breyttist úr 7—6 fyrir ÍR i 11—7
fyrir Ármann og þá var greinilegt
að hverju stefndi. Að vísu tókst
ÍR-ingum að minnka muninn undir
lok leiksins, en sigur Ármanns var
þó aldrej í hættu.
ÍR lék ekkj með sínu bezta liði
og munaði þar mestu að landsliðs-
maðurinn i knattspyrnu, Ásgeir
Eliasson var ekki með, en oftast
stjórnar hann öllum leik liðsins.
Sumir leikmenn liðsins létu líka
skapið hlaupa með sig í gönur, þeg
ar halla fór undan fæti. Ármanns-
liðið er liðlegt, en varla líklegt til
stórræða. — hs’im.
Eins marks forusta ætti I ^æmt
JT
a
Möltu
— sigraði írland 4-3 i gær, en sá sigur átti að vera stærri
Það er ekki vafi á því, að
ísland er að eignast mjög
gott lið ungra knattspyrnu
manna. ísland vann írland
í Evrópukeppni unglinga-
liða, 18 ára og yngri, á
Laugardalsvellinum í gær
með 4—3, en sá sigur var
of lítill eftir gangi leiks-
ins og íslenzku piltarnir
misstu niður mjög gott for
skot í hálfleik 4—1. — 2ja
til 3ja marka munur hefði
verið sanngjarn, en þetta
eina mark, sem nú er, ætti
þó að duga, þegar liðin
mætast öðru sinni í Dubl-
in 20. október.
íslenzka liðið var næstum eins
skipað og á Skotlandi í sumar,
þegar það vann þar frægan sigur
— og leikmenn mun yngrj flestir,
Auglýsið
í Vísi
en hinir írsku mótherjar þeirra.
Margir léku mjög vel og fáir ef
nokkur betur, en Gunnar Örn
Kristjánsson (Vikingi) og þessj 16
ára piltur sem frægur er orðinn
fyrir tugi marka á hverju leiktíma-
biii undanfarin sumar, skoraði
þrjú fyrstu mörk leiksins. En liðið
var þó ekki í þessum leik eins heil-
steypt og oftast áður í sumar, og
írar fengu auðveld mörk vegna
varnarmistaka.
íslenzka liðið byrjaði mjög vel
og eftir aðeins 3 mín. lá knöttur-
inn f marki íra. Og hvílíkt mark.
KR-ingurinn Ottó Guðmundsson lék
upp með endamörkum og gaf vel
út í vítateiginn til Gunnars, sem
skoraði viðstöðulaust með slíku
þrumuskoti, að markvörður Ira
vissj ekkert hvaðan á sig stóð veðr-
ið.
Islenzka liðið var miklu sókn-
djarfara framan af og sáralitlu
munaði, að bæði Stefán og Ásgeir
skoruðu, áður en Gunnar skoraði
sitt annað mark á 18. mín. Þá var
gefi langt fram í vítateig — Ásgeir
átti í einvígi við markvörðinn og
frá þeim barst knötturinn til Gunn
ars sem ekki var seinn að senda
hann yfir markvörðinn í autt mark-
ið 2—0.
Og enn liðu aðeins örfáar mínút-
ur og staðan var orðin 3—0. Fyrir-
liðinn Gíslj Torfason, fslandsmeist-
ari frá Keflavík. átti þá eitt af sín-
um lönau innköstum — knötturinn
fór ti! Gunnars Arnar og með föstu
skoti afgreiddi hann knöttinn í
netið. Á 31. m'in. tókst hægri inn-
heria íra að minnka muninn i 3 — 1
eftir gróf varnarmistök. en Ásgeir
Sigurvinsson (ÍBV) sá leikni piltur
(16 ára) fékk knöttinn á 36. mín.
eftir sendingu Stefáns og skoraöi
með fastri jarðarspyrnu f mótstætt
horn. 4—1. •
Forustan var þvi góð í hálfleik
— en á stuttu millibili tókst írum
að minnka þann mun niður í 4—3.
Fyrst skoraðj miðherjinn á 11. m’fn.
og þremur mín. síðar sendi hægri
kantmaðurinn knöttinn í netiö —
hvort tveggja eftir slæm mistök,
auk þess, sem markvarzla var eng-
inn. Þá voru breytingar gerðar á
liðinu, Ársæll. ÍBV, kom í markið
— en það skrítna var, að Ásgeir
Ólafsson var settur í framl’muna í
stað Gunnars Haraldssonar (Fram)
en jafnsterkur leikmaður og Adolf
Guðmundsson sat á varamanna-
bekkjum allan leiktfmann. Það
voru mistök.
En þrátt fyrir þessa köldu gusu,
náði ísl. jiðið sér aftur á strik og
var tvívegis óheppið að skora ekki.
Stefán Halldórsson (Wking) átti
hörkúskalla á mark, sem varnar-
manni tókst að bjarga á marklínu,
og Stefán skallaðj einnig mjög vel
til Ásgeirs, sem spyrnti yfir í opnu
færi.
Sigur íslands hefði átt að vera
meirj og það er táknrænt fyrir hve
liðið er gott, að Gíslj Torfason oft-
ast bezti maður íslandsmeistar-
ana frá Keflav'ik í sumar, ber ekki
af í þessu liði. Þar eru margir
stórskemmtilegir piltar — Ásgeir,
Gunnar Örn, Stefán, sem er mjög
fljótur og með betrj skalltækni en
aðrir. En varnarleikurinn var ekki
góður í leiknum og þar lék Þor-
varður Höskuldsson aðeins af
venjulegri getu. Markvarzla Árna
Þeir skoruðu mörk íslands f
landsleiknum, Ásgeir Sigurvins
son, ÍBV, og Gunnar Öm Kristj
ánsson, Víkingi, til hægri, en
hann skoraði þrjú fyrstu mörk
leiksins. ►
Stefánssonar var slök — og mið-
vöröunum báðum urðu á mistök,
og kom það á óvart hjá þeim sterku
leikmönnum.
írska liðið er skipað allleiknum
strákum. en þó margir þeirra séu
í enskum atvinnuliðum, hafa þeir
ekki líkamsstyrk á við ’islenzku
piltana, sem þó flestir eru yngri.
Viðureign liðanna í Dublin ætti aö
geta orðið skemmtileg — en ísl.
liðið á ekki að tapa þar þeirri for
ustu, sem það hefur náð. Dómari
í leiknum var skozkur — mikill
flautari, en dómar hans margir
orkuðu tvVmælis. — hsím.
Akurnesingum gekk ekki vel
Evröpukeppnl moistaraliða,
i þegar þeir léku vlfc Sliema
, Wanderers á Möltu í gærdag.
' Úrslit *urðu þau, að Möltuliðið
Isigraði með 4—0 eftir að 1—0
I stóð í hálfleik.
Fnamlína Akurnesinga átti!
I slæman dag að þessu sinni og'
' náði sér aldrei á strik. Varla (
I var hægt að tala um, aS Ak |
| urnesingar fengju tækifæri til,
I að skora í leiknum. Beztir i
liði þeirra voru framverðimir |
I Jón Alfreðss. og Har. Stur-1
| laugsson. Hiti var mikill, þegar 1
I leikurinn fór fram, yfir 25 stig '
og var völlurinn slæmur.