Vísir - 29.09.1971, Side 5

Vísir - 29.09.1971, Side 5
V í S I R . Miðvikudagur 29. september 1971. 5 Reyndu allt til að bæta markametið, en tókst ekki var í bikarkeppni Crewe 1960. gegn Tottenham sigraði Keflavik i gærkvöldi með 9:0 — Leikurinn var mikii e'nstefna að marki Keflvík iv "a, sagði Þórhallur Bjömsson, fréttaritari Vís- is á leík Tottenham og Keflav. á White Hart Lane, þegar blaðið hafði sam- band við hann. Tottenham skoraði níu mörk í leikn- um, en þrátt fyrir allsæmi- legar sóknartilraunir Kefl- víkinga á köflum tókst þeim ekki að skora mark. Leikmenn Tottenham reyndu mjög til þess að bæta markamet félagsins á vellinum, en tókst ekki — en markametið er 13—2 og Fyrstu mínútúr Ieiksins voru jafnar, en síðan fóru yfirburðir at- vinnumannanna að koma í ljós. Það var á áttundu mín., sem þeir skoruðu fyrsta markið. Aian Gilze- an lék þá upp og sendi knöttinn fyrir fætur risans Martin Chivers. sem af stuttu færi skoraði. Mjög litlu munaöi að Þorsteini Ólafssyni tækist að verja — hann náði knett inum, sem þá var kominn nokkra sentimetra yfir marklínuna. Keflvfkingar reyndu alltaf að ná sóknartilraunum, en lögðu ekki ein- hliða áherzlu á vornina. Á 13. mín. náðu þeir snöggu upphlaupi og Gísli Torfason átti skot rétt yfir markið — mjög góð tilraun hjá honum. En á 19. mín. skoraði Tott enham aftur. Ohivers var þá með knöttinn um 35 m frá marki — en sendi allt í einu þrumuskot á mark- ið. og knötturinn hafnaðj í netinu án þess að Þorsteinn kæmi við nokkrum vörnum og fagnaðarlæti áhorfenda, sem voru 23.818 voru mikil. Á 24. mín. skoraði hinn ungi Steve Perryman þriðja markið meö skoti utan vítateigs, staðan var orð in 3—0. Rétt á eftir fengu Kefl- víkingar sína fyrstu hornspyrnu, sem ekkert varð úr. Á 34. mín. fékk Þorsteinn mikið lof frá áhorfendum fyrir mark- vörzlu. Fyrst varði hann hörkuskot Chivers af stuttu færi, en knöttur inn barst til Gilzean, en á einhvern undarlegan hátt tókst Þorsteini aft ur að komast fyrir knöttinn. Á 40. mín. átti Gísli skot á mark, sem Jennings tókst með naumind um að slá yfir og svo fengu Kefl- víkingar þrjár hornspyrnur í röð, en ekki tókst þeim að koma knett inum í mark. Á síðustu sek. hálf- leiksins fékk Ralph Coates knött- inn og lék upp hálfan völlinn, gegn um alla vörnina og skoraöi fjórða markið. Síðari hálfleikur rófst og leikur- inn var alljafn framan af, en á '13. mín, komst Chivers í færi og tókst Alan Gilzean skoraði tvö mörk á sömu mínútunni í gærkvöld.i Hér skallar hann, lengst til hægri, í mark á White Hart Lane. að skalla f mark, Rétt á eftir átti hann hörkuskot í þverslá og á 20. mín. fékk Tottenham hornspyrnu. Perryman spyrnti fyrir markið og þar náði bakvörðurinn Knowles knettinum og skoraði 6—0. Á 32. mín. tókst Gilzean tvívegis að skora á sömu mínútunni — en í fyrra skiptið fór knötturinn af Ingimundi bakverði í markið. Enn sótti Tottenham og greinilegt að leikmenn ætluðu sér að slá marka metið eins og þeir höfðu svo mikið talað um fyrir leikinn. Staðan var 8—0 og 12 mín. eftir. En Þor- steinn kom í veg fyrir það — hann varöi snilldarlega frá Perryman og Gilzean og á 40. mín. náðu Kefl- víkingar sínu hættulegasta upp- hlaupi. Birgir komst innfyrir vöm- ina og átti aðeins markvörðinn Jennings eftir, en hann fór illa að ráði sínu og missti knöttinn of langt frá sér. Tottenham sótti strax upp völlinn — nýliðinn Philip Hold er fékk knöttinn frá Gilzean og skoraði níunda markið. Áhorfendur hrópuðu mjög — og talsvert heyrðist f hinum 300 ís- lendingum — Við viljum fá tíu — Tottenham—Keflavík, en áður hafði oftast heyrzt Keflavík—Keflavík og voru áhorfendur mjög hliðhollir Davíð í þessari viðureign við Goliat. Eins og áður segir tókst Totten ham ekki að bæta vallarmetið í Ieiknum og heldur ekki markamet hinnar gömlu borgakeppni Evrópu. Samtals í leikjunum 2 unnu þeir 15—1, en metið á Köln 17—0 gegn Luxemborgarliði og markamet í Evrópukeppni á Benfica 18—0. Tottenham var með alla sína beztu leikmenn í leiknum og liðið var þannig skipað: Jennings, Evans, Knowles, Mullery (fór út á 25 mín. s. h. og kom Pearce í hans staö), England, Beal, Coates, Perryman, Ohivers, Peters og Gilzean. Þá kom Holder inn á fyrir Evans. Lið Keflavíkur var þannig skipað: Þorsteinn, Ástráður, Ingimundur, Einar, Guðni, GIsli, Ólafur Júlíus- son, Karl, Steinar (fór útaf í s. h. og kom Jón Ólafur í hans stað), Hörður og Birgir. — Grétar lék í staö Harðar I síðari hálfleik. —ÞhBj Martin Chivers — skoraði þrennu í gærkvöldi. Rangers áfram Nokkrir leikir í hinum ýmsu Evrópumótum voru háðir í gær- kvöldi og helztu úrslit urðu þessi: Evrópukeppni bikarhafa: Rangers—Rennes, Frakklandj 1—0 (Glasgow Rangers vann saman- lagt 2—1). EUFA-keppnin: Anderlecht—Bologna 0—2 (Bologna vann samanl. 3—1). Köln —St. Etienne 2 — 1 (Köln vann samanlagt 3—2). Tottenham—Keflavík 9—0 (Samtals 15—1 fyrir Tottenham). Norwich C. vinnur enn Nokkrir leikir voru háöir i 2. deild á Englandi í gærkvöldi og urðu úrslit þessi: Birmingham—Watford 4—1 Bristol City—Blackpool 4—0 Burnley—Orient 6—1 Carlisle-—Charlton 5—2 Luton—Fulham 2—0 Preston—Norwich 0—2 í Texaco-bikarnum vann Coven- try Falkirk 3—0, samanlagt 3—1' og Newcastle sló Edinborgarliðið Hearts út 2 — 1. Hearts vann fyrri leikinn 1—0 og eftir framlengingu tókst Newcastle að tryggja sér sig- urinn H vítaspyrnukeppni. „ALLIR LÉKU VÉL NEMA ÉG" — sagbi Þorsteinn Ólafsson, mark- v'órður Keflvikinga erum svo miklu slika leiki búnir. betur undir Eftir leik Tottenham og Keflavíkur í gærkvöldi brá fréttamaður Vísis, Þórhall ur Björnsson, sér niður í búningsherbergi leik- manna og ræddi við nokkra leikmenn og for- ustumenn og fékk álit þeirra á leiknum. Billy Nicholson, framkvæmda stjóri Tottenham, sagði: — Þar kom vel fram hver munur er á áhugamanna og atvinnuliðum. Leikmenn mínir eru betri á öll- um sviöum, en ég dáðist að Keflvíkingum fyrir baráttuvilja þeirra. Þeir gáfust aldrej upp, þrátt fyrir ofureflið. Mike England, miðvörður Tottenham, sagði: Þetta var skemmtilegur leikur, já ágætur, en það er ekki nema von, að við sigrum með slíkum mun. Við Alan Gilzean og Martin Chivers, leikmennirnir, sem skoruðu fimm af mörkum Tott- enham, voru rnjög sammála. — Leikurinn var skemmtilegur — og frammistaða Keflvíkinga góð þrátt fyrir hinn mikla mun. Hafsteinn Guðmundsson, for- maður Iþröttabandalags Kefl- víkinga, sagði: — Ég var að vonast eftir þv’i, að markamun- urinn yrði ekkj svona mikill, en um þaö er ekki að fást. Við lögðum áherzlu á að reyna að leika knattspyrnu — en ekki algjöran varnarleik. Við hefðum svo sem getað minnkað marka- muninn með því. Þorsteinn Ólafsson, markvörö ur Keflvíkinga sagði: — Ég er óánægður meö mína frammi- stöðu í leiknum — ég hefði át't' að geta komið í veg fyrir nokk- ur mörkin, En mér fannst Keflavíkurliðið ágætt i leiknum, það lék framar vonum, og flest- ir náðu sínu bezta — nema ég. Mér fannst ég bregðast félög- um mínum. Birgir Einarsson, framherji ÍBV — Ég er ánægður meö leikinn að mörgu leyti — hann var skemmtilegur, en marka- munur fullmikill. Þorsteinn Ólafsson

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.