Vísir - 04.01.1972, Qupperneq 5
CEIR og ÓLAFUR H. leika ekki
i fyrri landsleiknum gegn Tékkum vegna meiðsla. Einn nýliði valinn, Georg Gunnarsson, Vikingi
Tveir af beztu mönn-
um ísl. landsliðsins í
handknattleik, þeir Geir
Hallsteinsson, FH, og Ó1
afur H. Jónsson, Val,
geta ekki leikið gegn
Tékkum í Laugardals-
höllinni á föstudag
vegna meiðsla. Þetta er
Georg Gunnarsson skorar af
línu og leikur sinn fyrsta
landsleik gegn Tékkum.
( Ljósm. BB.
mikið áfall, því báðir eru
frábærir handknattleiks-
menn. Og á þetta bætist,
að Jón Hjaltalín, Víking,
er á förum til Svíþjóðar
og getur því ekki leikið.
Eftir pressuleikinn I gær-
kvöldi kom landsliðsnefnd sam-
an og valdi þá 15 manna hóp
og af þeim munu 12 leika lands-
leikinn á föstudag. Ekkj er víst
að sömu leikmenn veröi notaðir
í landsleiknum setn verður á
laugardag og þá er ef til vill
möguleiki, að Geir geti leikið
með 1 15 manna hópnum eru
þessir menn:
Markverðir Hjalti Einarsson.
FH, og Ólafur Benediktsson,
Val. Aðrir leikmenn Stefán
Gunnarsson, Val, Gunnsteinn
Skúlason. Val, Axel Axelsson,
Fram. Gísli Blöndal, Val, Páll
Björgvinsson, Víking, Sigfús
Guðmundsson, Víking. Stefán
Jónsson, Haukum, Viðar Sím-
onarson, FH Sigurbergur Sig-
steinsson, Fram, Björgvin Björg.
vinsson. Fram, Georg Gunnars-
son, Víking, Auðunn Óskarsson,
FH og Ágúst Ögmundsson. Val.
Þessir leikmenn hafa flestir
leikið landsleikj og það mjög
marga sumir . hverjir, nema
Georg Gunnarsson. hinn bráð-
snjalli línumaður, sem enn hefur
ekki leikið f landsliðinu. Hins
vegar kemur talsvert á óvart,
að Guðjón Magnússon skuli
ekki valinn í þetta lið, einkum
og sér í lagi þar sem Ólafur H.
Jónsson leikur ekk; með, en
leikstíll þeirra er talsvert líkur
og Guðjón hefði getað fyllt
skarð Ólafs aö einhverju leyti.
Hann var ekki valinn í 20
manna hópinn, sem hefur stund
að landsliðsæfingar að undan-
förnu, en eftir leiknum að dæma
í gær, hefði verið ve] hægt að
fara út fyrir þann hóp.
Landsliðsmennirnir koma
saman að Hótel Esju í kvöld og
verður þá skoðuð mynd af
pressuleiknum í gærkvöldi —
farið yfir hann og athugað það
sem miður fór — hsím.
Mikil forföll settu
— en landsliðið sigraði með 19-16
Sex af þeirn leikmönn-
um, sem valdir voru í
pressuleikinn í Laugardals
höll í gærkvöldi, gátu ekki
mætt vegna meiðsla eða
veikinda og voru þar á með
al Iykilmenn eins og Geir,
Stefán Gunnarsson og
Björgvin. Varð því mjögað
stokka upp liðin og stór-
skyttur þær, sem valdar
höfðu verið í pressuliðið,
Jón Hjaltalín og Axel fóru
yfir í landsliðið ásamt
Stefáni, Haukum, og voru
blaðamenn fram eftir öll-
um degi í gær að fylla
skörð þeirra í liði sínu.
Pressuleikur varð af þessum á-
stæðum ekki sá, sem hann hefði
getað orðið sem slðasta æfing fyrir
landsleikinn á föstudag gegn Tékk-
um og fyrri hálfleikur var beinlínis
slakur, en nokkuð rofaði til í hin-
um síðari. Framan af var leikurinn
mjög jafn en síðan náði landsliðið
forustu — hafði tvö mörk yfir I
hálfleik og sigraði með 19—16 en
nokkur spenna var þó á köflum í
s;ðarj hálfleiknum, þegar pressu-
liðinu tókst að minnka muninn nið.
ur j ei.tt mark En stórgóð mark-
varzla Ólafs Benediktssonar í
landsliðinu, þar sem hann varði
sex sinnum ’i röð fyrst í síðari
hálfleik, lagðj' grunninn að sigri
landsliðsins. þó svo Hjalti gæfi
honum lftið eftir síðar f leiknum
í pressuliðinu og tryggði sér örugg-
lega landsliðssæti sitt. Tveir aðrir
leikmenn pressuiiðsins unnu sig
upp 1 iandsliðið, Georg Gunnarsson
og Auðunn Óskarsson, en bezti
maður þess, Guðjón Magnússon,
fann ekkj náð fyrir augum iands-
Iiðsnefndarmanna.
Mörk landsliðsins skoruðp Jón
Hjaltalín 5 (I víti), en hann er á
förum í þýðingarmikil próf í verk-
fræðinámi slnu í Sviþjóð og getur
því ekkj leikið gegn Tékkum, Gísli
Blöndal skoraðj 4 (1 víti) Páll 3,
Axel 3, Sigurbergur 1, Gunnsteinn
1, Stefán Jónsson 1 og Ágúst 1.
Bergur Guðnason. fyrirliði pressu-
liðsins, var markhæstur í leiknum
í gærkvöldj — skoraði 7 mörk (4
víti), en var þó ekki frekar en áður
valinn í landslið Guðjón skoraði 2,
Magnús Sigurðsson 2, Georg 2,
Hörður 1 Vilhj. Sigurgeirsson 1
og Arnar Guðlaugsson 1.
Satt bezt að segja, þá varð maður
fyrir talsverðum vonbrigðum með
landsiiðskandidatana og mikillar
taugaspennu gættj — einkum í
upphafi leiks. Það virðist, þvl mið-
ur, vanta kerfi hjá landsliðinu
líti.i sem engin leikaðferð. lítið um
fallegar leikfléttur En vissulega
ber að hafa í huga, að marga lykil-
menn þess vantaði. Pressuliðið,
tínt saman fram tftir degi þegar
landsliðsnefndarmennirnir höfðu
|tekið þaðan nokkra menn. gaf
landsliðinu lítið eftir, þó þar yrði
maður fyrir miklum vonbrigðum
meö leikmenn, sem vonir voru
bundnar við eins og Kristján Stef-
ánsson og Einar Magnússon. Það
var ekki þeirra dagur og öll von
um landsliðssæti hjá þeim hvarf.
;Aðrir stóðu sig vel, Bergur með
sin mörgu mörk — Georg bezti
llnumaöur í leiknum, og Guðjón
Magnússon, lykilmaðurinn í leik
þess. Þá var Magnús hættulegur
með langskot sín, en var ekki mik-
ið notaður, og Arnar stóð fyrir
sínu Markverðirnir Rósmundur
Jónsson (fyrri hálfleikinn) og
Hialt; voru góðir.
Auk Ólafs Benediktssonar lifði
landsliðið á langskyttum sínum, en
hinn hættulegasti Jón Hjaltalln,
verður |kki í landsleiknum og
skoruðu Jón Gísli, Páll og Axel
15 af”t9*- mörkum liðsins. Línuspil
var slakt og lítið reynt að byggja
upp á þvl sviði, en varnarleikur
var allsæmilegur.
Þessj pressuleikur var því ekki
sú generalprufa sem menn gerðu
sér vonir um, og vissulega er ekki
mikil ástæða tij bjartsýni f sam-
bandi við þá landsieiki, sem fram-
undan eru. En við skulum vona,
að iandsliðsmennirnir hristi af sér
það slen sem í ailtof rikum mæli
einkenndi ieik þeirra T gærkvöldi,
og taki sitt stóra fram, þegar mest
á ríður. — hsím.
Það er fátt til vamar, þegar þrumuskot Jóns Hjaltalín finna leiðina framhjá vamarmönnunum.