Vísir - 04.01.1972, Qupperneq 13
VISIR
Þriðjudagur 4. janúar 1972.
erum
verur
— jbess vegna breibist flensan út
félags-
'lagi? Á kuldinn o-g rysjótt veð
urfr þátt í því? Þessara spurn
inga spurðu Danir sig fyrir jól
in og voru svörin við þeim all
fróðleg.
'ntlensan er yfirvofandi. Undan-
fama mánuði hafa miMjón-
ir manna lagzt í rúmið af henn
ar völdum. Fyrst bárust fregn
ir af henni frá Austur-Evrópu,
síðán frá Suður-Evrópu og loks
var hún komin til nágrannaland
anna fyrir jóilin. í Danmörku
gerðu þeir ráð fyirir, að tíu þús
und ntanns myndu liggja í
flensu yfir jólin.
Flensufaraldur er ekki nýtt fyr
irbrigði. í þetta sinn vonumst
við eftir að sieppa létt frá f.lens
unni vegna hinna umfangsmiklu
ból'usetninga. En hvers vegna
hreiðist flensan svo ört út og
hvernig stendur á því, að hún
viröist eingöngu koma að vetrar
'CCí
Áramótaskaup snyrtivöru-
droffningarinnar
í ramótaskaup hinnar frægu
snyrtivörudrottningar
Helena Rubinstein sjáum við
á myndinni sem fylgir. Stjörnur
eru mifcið í tízku núna í alis
kyns útgáifum. og ein þeirra er
notuð í augnasnyrtingu dömunn
ar á myndinni. Stjaman er uppá
stunga H. R. til handa þeim, sem
sækja stórar veizlur á þessum
árstíma — og þótt jóla- og
gamlársveizlum sé lokið — eru
árshátíðimar eftir. Stjaman er
teiknuð á með venjulegum augn-
brúnablýanti. — SB
J^eitað var til þess, sem vís
indamenn hafa að segja um
fifensuna. Meðal þei.rra var ensk
veirusérfræðingurinn Ohristoph
er H. Andrewes, sem starfar viö
stóra rannsóknarstofu í Salis
bury í Englandi.
Hann hefur m. a. gert tilraun
ir með kjúklinga, Ein tilraunin
fór þannig fram. að nobkurra
daga gamlir kjúík'lingar vom
sýktir með veiki, sem leggst
öndunarfærin. Sjúkdómurinn
breiddist skjótt til hinnia kjúki
inganna í búrinu. 1 annarri til
raun setti Andrewes not í búrið
sem aðgreindi veiku 'kjúklingana
og hina hraustu. Kjúklingamir
gátu samt haift samskipti miiil
möskvanna á netinu. Og eins og
manneskjurnar virðast kjúkling
ar vera gefnir fyrir ,,se'lskap‘
— allavega þyrptust þeir að
netinu með þehri afleiðingu, að
hraustu kjúklingarnir smituðust
sikjótt af hinum veibu. Andrew
es gerði • nú þriðju tilraunina
Hann skipti kjúklingabúrinu
þrjár deiidir. Ti.l vinstri voru
veiku kjúk'lingarinir, í miðjunn
og til hægri hraustir kjúfcling-
ar. Hinir hraustu í miðjunn
áttu nú um tvo kosti að velja
að vera með vei’ku kjúiklingun-
um eða með þeim hraustu. Og
nú hætti smitunin. Hraustu
kjúklingarnir misstu fijótt áhug
ann á veiku kjúklingunum. Þeir
vildu fremur þy.rpast saman við
netiö, sem aðskiidi þá frá
hrauistu kjúklingunum. Hvork
þeir eða hraustu nágrannamir
tóffcu veikina.
Og vegna þessara tilrauna og
annarra með svipuöum niður-
stöðum telur Andrewes sig geta
sagt nokkuð um það hvers
vegna kvef og aðrir svipaðir
sjúkdómar ecu tíðari á vetuma
en sumrin. Það stafar ekki af
kulda og næðingi. Manneskjur
hafa verið látnar vera úti
hörkugaddi í votum baðfötum
og hálftíma etPt'ir að hafa farið
í heitt bað, oig þær hafa ekk
einu sinnj hnerrað á eftir. And-
rewes heldur því fram, að far
sóttir á kuildatímabiium staf
'hreinleiga af því að þá breytist
umgengnishættir fólks. Á veturna
hópist fólk saman á heimilunum
og á ýmsum opinberum stöð
um, strætisvögnum., veitingastöð
um o. s. frv. með því komist
það í meiri snertingu við smit
bera.
|7n hvemig stendur þá á því
að flensan berst svo ört
miild landa og raunin er á? Sam
kvæmt AJþjóölegu heilbrigðis
málastofnunir.ni er ein orsökin
flugferðimar, sem verða æ ai-
gengari. Árið 1962 var tala flug
farþega 28 mlijónir en árið
1970 var hún að líkindum 350
mi'lljónir. Vegna þessara breyttu
samgangna hefur Alþjóðlega
heilbrigðismálastofnunin komið
á fót ailþjóðlegu viðvörunar
kerfi. Þaö er næstum sama hvar
í heiminum smithættuleg flensa
kemur upp — innan sólar
hrings er hæ'gt að vara allan
heiminn við henni. — SB
AUGLÝSING
m IIMFERÐ 8 8CÓPAV0GI
Samkvæmt heimild í 2. mgr. 65. gr. umferðarlaga nr.
40 23. apríl 1968, og að fengnum tillögum bæjarstjóm-
ar Kópavogskaupstaðar, eru hér með settar eftir-
greindar reglur um umferð í Kópavogi:
1. Hafnarfjarðarvegur
frá brúm við Nýbýlaveg suður fyrir Fífuhvammsveg
um gjá á Kópavogshálsi (nýlagður vegur nema á
svæðinu milli Kópavogsbrautar og Fífuhvammsvegar).
Aðalbraut samkvæmt 2. mgr. sbr. 4. mgr. 48. gr.
umferðarlaga (stöðvunarskylda), nema við innakstur
til norðurs rétt sunnan eystri brúar við Nýbýlaveg,
þar sem ákvæði 2. mgr., sbr. 3. mgr. 48. gr. um-
ferðarlaga gildi (biöskylda). Bann við stöðvun og stöðu
ökutækja, bann við framúrakstri. Fyrir sunnan þann
stað, sem vegir tengjast í eina akbraut sunnan brúa
viö Nýbýlaveg sé ekið í báðar áttir, fyrst um sinn ein
akrein í hvora átt.
2. Vegur á vestari gjárbarmi
(gamli Hafnarfjarðarvegur):
Einstefna til suðurs nema milli Hábrautar og Digranes-
brúar, en á því svæði er heimi.'t að aka í báðar áttir.
Bann við stöðu ökutækja, bann við framúrakstri norð-
an Digranesvegar/Borgarholtsbrautar. Vegurinn lokist
við Borgarholtsbraut nema fyrir strætisvagna og
áætlunarbifreiðir með fasta viðkomu í Kópavogi, þ. e.
almenn umferð til suðurs eftir vegi þessum, framhjá
mótum Borgarholtsbrautar, er bönnuð. Umferð um veg
þennan hafi stöðvunarskyldu samkvæmt 4. mgr. 48.
gr. umferðarlaga gagnvart umferð um Hafnarfjarðar-
veg (1. tölul.) og Kópavogsbraut, svo og skal umferð
til suðurs norðan Hábrautar hafa stöðvunarskyldu við
gatnamót Hábrautar.
3. Kópavogsbraut:
Bann við vinstri beygju af Kópavogsbraut á Hafnar-
fjarðarveg.
4. Tengivegur milli Hafnarfjarðarvegar og
Vogatungu:
1 Einstefna til norðurs (norðausturs). Aðalbrautarréttur
samkvæmt 2. mgr. sbr. 3. mgr. 48 gr. umferðarlaga
gagnvart umferð um Vogatungu og Hrauntungu.
5. Hlíðarvegur.
Hlíðarvegur lokist við Hafnarfjarðarveg (Algjör lokun).
6. Vogatunga:
Akstur í báðar áttir (tvístefnuakstur) milli Hlíðarvegar
og Digranesvegar. Umferð um Vogatungu njóti aöal-
brautarréttar samkv. 2. mgr. sbr. 3. mgr., 48. gr, um-
ferðarlaga fyrir umferð Hrauntungu (sbr. niðurjag 4.
töluliðar). Umferð um Vogatungu víki fyrir umferð um
Digranesveg samkvæmt reglum 2. mgr. sbr. 4. mgr.
48. gr. umferðarjaga (stöðvunarskvlda).
r
7. Bráðabirgðavegur milli Digranesvegar og
| vegar að Félagsheimili:
Vegur þessi lokist við Digranesveg (Algjör lokun).
Einstefna til norðurs frá Digranesvegarbrú. Bann víö
framúrakstri.
j 8. Skeljabrekka: (áður Dalbrekka)
Akstur í báðar áttir (tvístefnuakstur). Umferð um
Skeljabrekku skal njóta aðalbrautarréttar samkvæmt
2. mgr. sbr. 3. mgr,, 48. gr. umferðarlaga við vegamót
Auö'orekku, Álfhóisvegar og vegar að Félagsheimild.
i
9. Tengivegir vestan Digranesvegarbrúan
í Bönnuð hægri beygja af nyröri tengivegi á þann syðri.
}
10. Vegur að Félagsheimili:
Umferð um veginn víki fyrir umferð um Skeljabrekku
og bráðabirgðaveg (7. töluj.), sbr. niðurlag 8. töSuiiðar.
11. Hraunbraut/Urðarbraut:
Hraunbraut lokist við Urðarbraut (Algjör Jofeuni).
Reglur þessar eru settar samkvæmt heimild í 2. mgr.
65. gr. umferðarlaga nr. 40 23. apríl 1968, og koma tfl
framkvæmda þegar í stað. Með auglýsingu þessatí eru
numin úr gildi þau ákvæði eldri auglýsinga um umferð
í Kópavogi, sem brjóta í bága við ákvæði auglýsingar
þessarar.
Bæjarfógefcinn í Kópavogi, 30. desember l971.
Sigxirgeir Jónsson.