Vísir - 14.03.1972, Side 4
4
Vísir. Þriðjudagur 14. marz 1972.
y
HELMINGI LANDSMANNA GEFINN KOSTUR Á ÞÁTTTÖKU.
VERÐTRYGGT
HAPPDRÆTTISLÁN RÍKISSJÓÐS
VERÐTRYGGT HAPPDRÆTTISLÁN AÐ
FJÁRHÆÐ 100 MILLJÓNIR KRÓNA ER OPNI
HRINGVEG UM LANDIÐ.
Útboð:
Samkvæmt lögum nr. 99 frá 28. desember 1971 er
ríkissjóði heimilt að gefa út til sölu innanlands happ-
drættisskuldabréf samtals að fjárhæð 250 millj. króna
i allt að 5 flokkum á árunum 1971—1975. Fjármála-
ráðherra, f. h. ríkissjóðs, hefur ákveðið með reglu-
gerð nr. 17 frá 22. febrúar 1972 að bjóða út verð-
tryggt happdrættislán, sem nefnist innlent lán ríkis-
sjóðs Islands, skuldabréf A, ac5 fjárhæð samtals 100
milljónir króna.
Skilmálar:
Happdrættisskuldabréfin, sem gefin eru út til hand-
hafa, eru hvert að fjárhæð 1000 krónur og seljast á
nafnverði. Skuldabréfin falla í gjalddaga að 10 árum
liðnum frá útgáfudegi þeirra, eða hinn 15. marz 1982.
Óheimilt er að skrá þau á nafn.
Sala bréfanna hefst 15. marz n.k. og henni lýkur fyrir
fyrsta útdráttardag, sem er 15. júní 1972.
Af skuldabréfunum eru ekki greiddir vextir, en vinn-
ingum er úthlutað í samræmi við útdrátt númera úr
öllum skuldabréfum lánsins. Dráttur fer fram einu
sinni á ári, 15. júni, í fyrsta sinn 15. júní 1972, eða alls
10 sinnum. Árleg fjárhæð vinninga er 7% af heildar-
fjárhæð skuldabréfanna. Fjármálaráðuneytið annast
útdrátt vinninga og heimilt er, að hann fari fram með
aðstoð tölvu Reiknistofu Raunvisindastofnunar Há-
skóla Islands, skv. nánari reglum, er fjármálaráðherra
setur.
Vinningar verða birtir í Lögbirtingablaðinu, sem fyrst
eftir dráttardag, auk þess sem vinningaskrár munu
liggja frammi á sölustöðum.
Við innlausn happdrættisskuldabréfs, frá og með
gjalddaganum 15. marz 1982, greiðir ríkissjóður verð-
Vinningar í hvert sinn eru sem hér segir:
2vinningar á kr. 1.000.000 = kr. 2.000.000
1 vinningur á kr. 500.000 = kr. 500.000
22vinningará kr. 100.000 = kr. 2.200.000
230 vinningar á kr. 10.000 = kr. 2.300.000
255 vinningar samtals kr. 7.000.000
bætur á höfuðstól bréfsins i hlutfalli við þá hækkun,
sem kann að verða á lánstímanum á þeirri vísitölu
framfærslukostnaðar, er reiknuð er i byrjun febrúar
1972, miðað við þá visitölu framfærslukostnaðar, sem
Hagstofan skráir á gjalddaga bréfanna, hinn 15. marz
1982. Kauplagsnefnd reiknar visitölu framfærslu-
kostnaðar, og eru núgildandi lög um hana nr. 70 frá
29. nóvember 1967, sbr. lög nr. 1 frá 30. janúar 1959.
Happdrættisskuldabréfin skulu innleyst á nafnverði,
þótt vísitala framfærslukostnaðar lækki á tímabilinu
frá febrúar 1972 til gjalddaga. Happdrættisskulda-
bréfin verða ekki innleyst að hluta.
Rísi ágreiningur um framkvæmd ákvæða um greiðslu
verðbóta á höfuðstól happdrættisskuldabréfanna,
skal þá visa málinu til nefndar þriggja manna, er skal
þannig skipuð: Seðlabanki Islands tilnefnir einn
nefndarmanna, Hæstiréttur annan, en hagstofustjóri
skal vera formaður nefndarinnar. Nefndin fellir fulln-
aðarúrskurð í ágreiningsmálum, sem hún fær til með-
ferðar. Ef breyting verður gerð á grundvelli vísitölu
framfærslukostnaðar, skal nefnd þessi koma saman
og ákveða, hvernig vísitölur samkvæmt nýjum og
breyttum grundvelli skulu tengdar eldri vísitölum.
Skulu slíkar ákvarðanir vera fullnaðarúrskurðir.
Happdrættisskuldabréfin eru undanþegin framtáls-
skyldu og eignarsköttum, en vinningar svo og verð-
bætur undanþegnar tekjuskatti og tekjuútsvari.
Innlausn happdrættisskuldabréfa og greiðsla vinn-
inga fer fram i Seðlabanka Islands, Reykjavík.
Handhafar skuldabréfa, sem hlotið hafa vinning eða
við innlausn eftir 10 ár, geta snúið sér til banka,
bankaútibúa eða sparisjóða og afhent þeim skulda-
bréf gegn sérstakri kvittun. Viðkomandi banki, banka-
útibú eða sparisjóður sér síðan um að fá greiðslu úr
hendi útgefanda með því að senda Seðlabankanum
skuldabréfið til fyrirgreiðslu.
Eftir gjalddaga greiðast engar verðbætur vegna
hækkunar vísitölu framfærslukostnaðar.
Verði skuldabréfi ekki framvisað innan 10 ára frá
gjalddaga er það ógilt.
Falli happdrættisvinningur á skuldabréf, skal hans
vitjað innan fjögurra ára frá útdrætti, ella verður hann
eign ríkissjóðs.
Sé gölluðum eða rlfnum skuldabréfum framvísað til
greiðslu vinnings eða innlausnar með þeim hætti, að
bæði númer sjáist og meira en helmingur bréfsins
fylgi, fer innlausn fram að fullu, en sjáist aðeins ann-
að númerið verður innlausn eða greiðsla vinnings
innt af hendi að hálfu, enda sé meira en fjórðungi
bréfsins framvísað.
Ekki er hægt að fá bréf ógilt með dómi.
Fjármunir þeir, sem inn koma fyrir sölu happdrættis-
skuldabréfanna, skulu renna til greiðslu kostnaðar af
vega- og brúagerð á Skeiðarársandi, er opni hring-
veg um landið.
SALA HAPPDRÆTTISSKULDABRÉFANNA
HEFST MIÐVIKUDAGINN 15. MARZ 1972
OG HENNI LÝKUR FYRIR FYRSTA
DRÁTTARDAG, SEM ER 15. JÚNf 1972
SÖLUSTAÐIR:
BANKAR OG
SPARISJÓÐIR
Reykjavík, marz 1972.
DRAGIÐ EKKI
AÐ EIGNAST
MIÐA.
SEÐLABANKI ISLANDS