Vísir - 06.04.1972, Side 2

Vísir - 06.04.1972, Side 2
2 VÍSIR. Fimmtudagur 6. april 1972. VÍSIBSm: Eruð þér rauðsokka? Margrét Auðuns, verzlunarskóla- nemi. Nei, það er ég nú reyndar ekki. Ég er samt alls ekki á móti þessari hreyfingu, og mér finnst mjög margt til i þvi, sem þær segja. Ég er til dæmis fylgjandi þeim i sambandi við atvinnuna, en ég get þó ekki kallað mig rauð sokku. Þórunn Jósefsdóttir, húsmóðir. Nei, þaö er ég alls ekki. En ég get þóekkisagt,aöégséámóti þeim, og ekki heldur, að ég sé þeim fylgjandi. Ætli ég sé bara ekki einhvers staðar mitt á milli. Sólveig Morávek, húsmóðir. Nei, ekki get ég nú sagt, að ég sé rauð- sokka. Samt finnst mér þær vel hafa leyfi til þess að hafa sinar skoðanir, og ég get ekki neitað þvi, að ég er þeim að mörgu leyti sammála. Gerður Ebbadóttir, fóstrunemi. Nei, ég er ekki rauðsokka, þó að ég styðji þær að sumu leyti. En mér finnst þær hugsa dálitið of mikið um sjálfa sig. Sigrún Inga Sigurbjörnsdóttir, menntaskólanemi. Rauðsokka? Nei, það er ég ekki. Ég held meira að segja, að ég sé á móti þeim að flestu leyti, þó að margt sé kannski rétt, sem þær halda fram. En ef við tökum sem dæmi þetta með atvinnuna. Þær vilja vera ráöherrar og stjórar o.s.frv. en verkamenn og skurðgrafarar, nei, það kemur alls ekki til mála. Steinunn Marteinsdóttir, lcir- kerasmiður. Ja, ég hef nú ekki tekið þátt I starfi rauðsokkanna, en ég er mjög hlynnt þessari hreyfingu. Þær hafa gert sérstak- lega mikið gagn, og mér finnst þetta i alla staöi góð og afskap- lega tímabær hreyfing. Jepparnir og sjatnandi Skeiðarárhlaup. Á ieppum yfir Skeiðará — náttúruöflin léku rullu i páskaferðalagi tveggja fjölskyldna — Það var næstum eins mikið vatnsmagn á. Lónsheiði og i Skeiðará segir Ingólfur Sigurðs- son bifreiðastjóri, sem þrátt fyrir að hafa kom- izt i hann krappan i páskaferðinni sinni, var hinn ánægðasti með ferðina. Og af frásögn Ingólfs að dæma var hringferð hans og Mikaels Magnússonar með fjöl- skyldum sinum i tveim jeppabifreiðum ævin- týraleg og stuðluðu náttúruöflin þar að. 1 fyrsta lagi reyndu þeir félagar og tókst að komast yfir Skeiðará eða sjatnandi Skeiðarárhlaup, og flaut vel upp á framrúðurnar, meðan á þvi ferðalagi stóð. 1 annan stað lenti hópurinn i úr- hellisrigningu i Höfn i Hornafirði og griðarlegum vatnsaga á Lóns- heiðinni. Þá fréttu þeir af þvi, að fallið hafði skriða i Kambanes- skriðum og leituðu gistingar i Djúpavogi þar til vegagerðin hafði rutt veginn. Það leið meira en hálfur sólar- hringur frá þvi, að jepparnir lögðu af stað frá Djúpavogi þar til ferðalöngunum var boðin gisting á Grimsstöðum á Fjöllum. Frá Djúpavogi var lagt af stað i blið- skaparveðri klukkan hálf átta að morgni dags, en i Jökuldalnum gerði svartahrið með roki og sást varla úr augum. Urðu þeir öðru hverju að ganga fyrir bilunum, en til Grimsstaða komust þeir heilu og höldnu á miðnætti. Eftir hádegi annan dag páska var ferðinni haldið áfram og var veðrið skikkanlegt til Akureyrar og allt til Reykjavikur, áfanga- staðarins. Ingólfur er vanur hringferðum sem þessum á ótrúlegustu árs- timum og við ýmsar aðstæður. En hann var fyrstur til að fara hring- inn á jeppa i janúar 1963 yfir Skeiðará og Jökulsá á Breiða- merkursandi, sem ekki var búið að brúa. Og einnig endurtók hann ferðina 1967. —SB— Og öræfasveitarfarar sem komust þessa páska þrátt fyrir „hlaupið”. LESENDUR HAFA ORÐIÐ Veiki pilsnerinn of sterkur Svelgur skrifar: ,,1 fjöldamörg ár hefur ekki verið hægt að kaupa drekkandi bjór hérlendis, enda er þjóðin á góðri leið með að drekka sterk vin sér til óbóta. Þessir blessaðir al- þingismenn hafa ekki þorað að leyfa sölu á sterku öli vegna mót- mæla frá einhverjum kvenfélög- um i Kelduhverfi og viðar. Nú fara tugir þúsunda landsmanna utan á hverju ári og þamba þá bjór eftir getu hvers og eins og má þvi með sanni segja, að stór hluti landsmanna sé búinn að venjast bjór og ætti þvi ekki að skapast neitt vandræðaástand, þegar sala á honum verður leyfð hér. En mér fannst nú taka steininn úr, þegar ekki má einu sinni flytja inn danskan pilsner, sem við höfðum þó fallizt á að gera, þegar við gengum i EFTA. Þessi bless- aður pilli er sem sagt of sterkur samkvæmt furðulegri mælinga- reglu um alkóhólsmagn öls, sem sett var i gamla daga og gildir hvergi i heiminum nema hér. Ég sé ekki, að það þurfi að drepa neinn, þótt danski pillinn sé 2,50 i stað 2,25. Þetta sýnir bara það, að Danir telja ölið ekki drekkandi, nema það hafi þessa lágmarks- prósentu. Auðvitað á að breyta þessum fáránlegu reglum i hvelli og leyfa okkur að flytja inn þessa kassa af drekkandi öli, sem við höföum ákveðið að gera. Lika er ég viss um, að bæði Sana og Egill skalli tækju þvi fegins hendi að mega hafa sina annars ágætu framleiðslu eilitið bragðmeiri. Ég vona bara, að þessir 60- menningar á þinginu hristi nú af sérslenið og leyfiokkurað bragða erlendan pilsner, jafnvel þótt þeir leggi ekki i sterkara ölið strax. Annars getur varla verið langt i að það komi lika. Óli Jó. hlýtur að fatta það, að hann getur náð inn stórum pening með þvi að hleypa ölinu inn. Og ekki veitir af meiri sköttum.” Eggjaplágan Einn er sá ósóminn, sem nú tröllriður barnaskólum Reyk- javikur, en það er páskaeggja- gjafir nemenda til kennara. Siður þessi hefur komizt á fyrir tiltölu- lega fáum árum, og er nú að breiðast út i yngstu bekkjar- deildunum. Allt þetta tilstand virðist gert i góðri þökk flestra kennara, enda vafasamt hvort er meira barn nemandinn eða kennarinn, sem raðar páska eggjum sinum upp á hillu i kennarastofunni eins og verð- launabikurum og vonast til að fá fleiri og stærri egg en kennarinn i næstu kennslustofu. En látum barnaskapinn i kennurunum vera, og litum heldur á nemendurna sem vafalaust búa við misjöfn peningaráð á heimilum sinum og lenda i metingi við skólafélaga sina um hver hafi gefið kennaranum sin um stærra pákaegg eða veg legri jólagjöf (þær tiðkast einnig I sumum skólum.). Nei! Skóla- stjórar, ég skora á ykkur að af- nema þennan ósóma, hver i sinum skóla, og þið verðið stoltir af. Þ.V.Þ. HRINGIÐ í síma86611 KL13-15

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.