Vísir - 06.04.1972, Síða 4
4
VtSIR. Fimmtudagur 6. april 1972.
Veiztu hver
svitnar
þarna?
Ef þú hefur gizkað á Mickey Rooney hefur þú
rétt fyrir þér. Þessi aldni leikari er um þessar
mundir að leika i grin-hryllingsmynd, sem á að
bera nafnið ,,Pulp”. Heiti persónunnar, sem
Mickey leikur, er hins vegar Preston Gilbert,
en Gilbert þessi á að vera gömul Hollywood-
kempa, sem lifir á frægðinni, sem hann ávann
sér fyrir leik i hasarmyndum á þriðja áratugn-
um.
DAUÐADÆMDUR!
Hann heitir Boozer, er 2ja
ára gamall St. Bernards--
hundur. Hann pirir þarna
augun ámátlega út i frelsiö I
Stockton i Kaliforniu. Hann er
sennilega allur núna. Hann
var nefnilega dæmdur til
dauða, er hann haföi oröiö aö
bana 8 ára gamalli telpu, ná-
granna slnum. Þessi mynd
var tekin af honum I siöustu
viku, er hann var kominn I
hendur yfirvaldanna á staön-
um.
cHEIlté
MARGRÉT
Hollands-prinsessa (29 ára) og
maður hennar, Peter Van
Vollenhoven (32ja ára), hafa nú
eignazt sitt þriöja barn, en það er
sem hin tvö, sonur. Júliana
drottning, sem sjálf á fjórar dæt-
ur, en enga syni, á nú sjö barna-
börn af sterkara kyninu, en aftur
engin af þvi veikara.
JULIE ANDREWS,
ameriska kvikmyadaleikkonan
er dýrasta sjönwa*|»stj»rnan til
þessa. Fyrir 48 étsendingar
bandariskra sjónwarpsstöðva
hefur hún þegifi sem svarar 480
milljónum isl. króna. Julie hefur
haft það náðugt siðan hún lék i
kvikmyndinni ,,My fair Lady”.
ÁSTARHREIÐUR
í FANGELSUM!
Fangar i hollenzkum fang-
elsum eru verulega kátir orðnir.
Að minnsta kosti þeir, sem
dæmdir hafa verið til lifstiðar-
fangelsisvistar, mega nú gera ráð
fyrir, að eftiríeiöis verði þeim
gert kleift að njóta ásta — bak við
rimlana.
t mörgum fangelsum eru
iðnaðarmenn nú langt komnir
með að innrétta svokölluð
„gestahérbergi”, þar sem fang-
arnir geta látið fara vel um sig og
„dúfurnar” sinar um helgar.
bangað mega þeir sem sé bjóða
eiginkonum sinum og unnustum.
Sú venja að veita föngunum
einstaka sinnum „bæjarleyfi” um
helgar hefur ekki gefizt nógu vel,
þar eð svo margir fanganna hafa
gert tilraunir til flótta i þeim fri-
um.
— Annað hefði verið óhugs-
andi, er hið dæmigerða svar, sem
þeir gefa, er þeir hafa náðst á ný.
Hugmyndin að „ástarhreiðr-
unum” i fangelsunum er ekki
með öllu ný af nálinni. 1 Sviþjóð
hefur pólitiið lengi velt vöngum
yfir hugmyndinni og hafa nú gert
sig liklega til að hrinda henni i
framkvæmd áður en langt um
liður. Fangelsisstjórarnir telja
þaö nefnilega nokkurn veginn
vist, að ástæöan fyrir þvi að fang-
ar stingi af úr tukthúsunum sé i
langflestum tilvikum sú, að þeir
vilji njóta ásta.
HVERSVEGNA GEFA
ÞAU GINNY AUGA?
Ginny Andrews á heima i stór-
borginni London og á við það
sama vandamál að striða og svo
margar aðrar húsmæður að þurfa
að burðast langar leiðir með inn-
kaupatöskur sinar i innkaupa-
ferðum. Það getur verið
þreytandi að burðast með þungar
innkaupatöskur timunum saman
og geta hvergi setzt niður og hvilt
fæturna.
En Ginny þessi er sniðug stelpa
og leysti þann vanda.
Hún hefur gert sér innkaupa-
tösku, sem hún getur ýtt á undan
sér, en ekki nóg með það, hún
getur lika gert sér úr töskunni hið
þægilegasta sæti, 'pegar henni
býður svo við að horfa.
Það eru margir sem þá gefa
henni auga — og ekki einungis
karlmenn heldur allt eins
húsmæður.
Auglýsing
Norsk stjórnvöld bjóða fram nokkra
styrki handa erlendum ungmennum til
námsdvalar við norska lýðháskóla eða
menntaskóla skólaárið 1972—73. Er hér
um að ræða styrki úr sjóði, sem stofnaður
var 8. mai 1970 til minningar um, að 25 ár
voru liðin frá þvi að Norðmenn endur-
heimtu frelsi sitt, og eru styrkir þessir
boðnir fram i mörgum löndum. Ekki er
vitað fyrirfram, hvort nokkur styrkjanna
kemur i hlut íslendinga.
Styrkfjárhæðin á að nægja fyrir fæði,
húsnæði, bókakaupum og einhverjum
vasapeningum.
Umsækjendur skulu eigi vera yngri en
18 ára, og ganga þeir að öðru jöfnu fyrir,
sem geta lagt fram gögn um starfsreynslu
á sviði félags- eða menningarmála.
Umsóknum um styrki þessa skal komið
til menntamálaráðuneytisins, Hverfisgötu
6, Reykjavik, fyrir 14. april n.k. —Sérstök
umsóknareyðublöð fást i ráðuneytinu.
Menntamálaráðuneytið,
29. marz 1972.
TÓNLEIKAR í HLÉGARÐI
Fimmtudaginn 6. april kl. 9 e.h.
Sinfóniuhljómsveit íslands leikur.
Stjórnandi: Páll P. Pálsson.
Einleikari: Lárus Sveinsson.
Efnisskrá:
Glinka: Ruslan og Ludmilla.
Tchaykowsky: Vals úr Þyrnirósu.
Haydn: Trompet Concerto. Einleikari:
Lárus Sveinsson.
H L É
Árni Thorsteinsson: Lagasyrpa: Ctsetn.
Jón Þórarinsson.
Jerry Bock: Lög úr Söngleiknum Fiðlar-
inn á þakinu.
Strauss: Dónárvals.
Oddgeir Kristjánsson: Lög i útsetningu
Magnúsar Ingimarssonar.
Tónlistarfélag Mosfellssveitar.
Byggingarfélag verkamanna,
Reykjavik.
Til sölu
þriggja herbergja íbúð i 4. byggingar-
flokki við Meðalholt. Þeir félagsmenn,
sem vilja neyta forkaupsréttar að ibúð
þessari, sendi umsóknir sinar til skrifstofu
félagsins i Stórholti 16 fyrir kl. 12 á hádegi
miðvikudaginn 12. april n.k.
Félagsstjórnin.
Heilsurœktin
The Health Cultivation hefur flutt starf-
semi sina í Glæsibæ,nýtt námskeið er að
hefjast.
Athugið breytt simanúmer 85655.