Vísir - 06.06.1972, Blaðsíða 9

Vísir - 06.06.1972, Blaðsíða 9
8 . VÍSIR. Þriðjudagur 6. júni 1972. FIMM ÖRLAGAMÍNÚTUR FÆRÐU BLIKUNUM TVÖ MÖRK OG STIG - Valsmenn höfðu 2:0 yfir, þegar 5 mín. voru eftir, en járnharðir Breiðabliksmenn jöfnuðu Fimm minútur i knattspyrnuleik geta skipt öllu máli. Fimm siðustu minúturnar i leik Vals og Breiðabliks voru þannig. Tvö mörk til að jafna leikana, og þrumuskot i stöngina frá Breiðablikum. Kannski var jafntefli ekki „rétt- lát úrsíit”.TCn hvað eru annars réttiát úrslit? Jú, mörkin telja, og sá sem skorar fleiri mörk er tal- inn verðugur sigurveg- ari. „Næstum mark” er ekki talið liði til vinn- ings. Valsmenn voru fremri i öllum listum knattspyrnunnar i fyrri hálfleiknum, þegar liðin mættust i góða veðrinu á Melavellinum i gærkvöldi. Og sannarlega mega Breiðabliksmenn þakka hinum unga (og oft ævintýralega) mark- verði sinum, Ólafi Hákonarsyni. Hann hljóp hvað eftir annað gegn Valsmönnum, sem komizt höfðu i gegnum gatasiuna, sem kölluð er vörn, og áttu aðeins eftir að glima við hinn unga markvörð. Ingi Björn var lika óheppinn, klessti boltanum i stöngina. Breiðablik átti sin hættulegu tækifæri, en tókst ekki að skora. Vals framlinan var með leikinn i sinum höndum og á miðjunni trjónuðu þeir Bergsveinn Alfons- son og Ingvar Elisson eins og kóngar i riki sinu, hreinir ein- ræðisherrar. Valsmenn reyndu með góðum árangri að stinga knettinum inn i eyður og áttu varnarmenn Breiðabliks erfitt að hemja slikar sendingar. Og ávöxturinn? Tvö m örk! A 18. minútu komst Alexander Jóhannesson i gegn og vippaði snoturlega yfir Ólaf Hákonarson, sem litið sem ekkert gat aðhafst annað en koma út á móti og reyna þannig að loka markinu, en við þessu sá Alexander sem sé. Seinna markið kom á 27. min- útu, þegar Ingibjörn Albertsson komst inn fyrir og fékk boltann sendan, greinilega rangstæður, og skoraði með góðu skoti fram- hjá ólafi. Rangstöðuna sáú allir, nema Óli Ólsen, linuvorður að austanverðu við völlinn. Hafði hann sólina beint framan i sig, og var greinilegt á öllum tilburðum hans, að hann hafði ekki séð sem skyldi hvað gerðist. Furðuðu menn sig mjög á að markið skyldi dæmt gott og gilt. En það furðulega gerðist eftir þetta mark. Þaö var engu líkara en Valsmenn ætluðu að njóta þessara tveggja marka, verja þau á einhvern hátt i stað þess að sækja af sama kappi og fjölga mörkum. Miðjumennirnir voru smám saman reknir úr riki sinu, en þeir Haraldur og Þór Hreiðarsson tóku við miðjuveldinu, — og nú var það Breiðablik, sem eignaðist mun meiri hluta i leiknum en áður. Yfirleitt var þarna leikin allra sæmilegasta knattspyrna á báða bóga, oft mjög góð. Þó var eins og Breiðabliksmenn ættu erfiðara með að nota stungubolta inn á hraða framlinumenn eins og Guð- mund Þórðarson. Seinni hálfleikurinn leið. A 3. og 12. minútu komst Þór Hreiðars- son i dauðafæri frammi fyrir markinu, en tókst i hvorugt skiptið að skora mark. Valsmenn lágu að mestu í vörn, en í framlinunni sýndi Hermann Gunnarsson hvað eftir annað ein- staklingsframtak, sem sifellt ógnaði. I eitt skiptið kom hann geysimiklu skoti á markið, sem hafnaði í þverslá af heljar miklu afli. En ekkert virtist ætla að breyta þeirri staðreynd að Valsmenn tækju bæðistigin og klifruðu upp i viröulegra sæti en botninn er. Fimm minútur eftir, og margir farnir að hugsa til hreyfings. Þá er hornspyrna frá vinstri. Gisli útherji framkvæmdi þarna fallega spyrnu, eitt af mörgu stórvel gerðu hjá þessum unga „Hélt að Páll hreinsaði frá" - og Páll treysti á Sigurð í markinu „Mér fannst Fáll ætla aö innkastið, sem Einar Þórhalls- hreinsa frá, — en hann treysti son skallaði inn að markinu, aftur á móti á mig, og þvi fór kom snöggt inn að markinu og sem fór”, sagði hinn frábæri Hinrtk fékk þar tækifæri á að markvörður Valsmanna, Sig- breyta enn stefnunni inn að urður Dagsson, eftir jafnteflið markinu, — og þar með var við Breiðablik i gærkvöldi um . jafntefli staðreynd, enda þótt jöfnunarmarkið tveim minútum óbyrlega blési fyrir Blikana, fyrir leikslokin. þegar aðeins voru 5 minútur Það varð til að rugla þá að eftir og Valur með 2:0 yfir. Þorðu ekki að nota Jóhannes Valsmenn treystu sér ekki til að setja Jóhannes Eðvaldsson inn á i leikinn I gærkvöldi.Þeir töldu ekki útilokað að slíkt gæti boðið upp á kærur og lciðindi eftir leikinn. Var talið ráðlegra að fá það á hreint frá FIFA, alþjóöasam- bandi knattspyrnumanna, hvort Jóhannes hefði leyfi til að leika meö Val eftir veruna með s- afrfska félaginu, þar sem hann hefur æft og leikiö undanfarna 5 mánuði leikmanni, — og sannarlega miðaði hann nákvæmlega á höfuð Guðmundar Þórðarsonar, sem skoraði af stuttu færi, 2:1. Og enn færðust Blikarnir I aukana við þetta. Nú varð sóknin fyrst fyrir alvöru sterk. Og þetta færði þeim annað markið. Nú fyrst minntu þeir á baráttuliðið frá i fyrra, hreint ódrepandi! Innkast frá vinstri, allnærri endamörkum var tekið af Þór Hreiðarssyni, langt og mikið, og þar var Einar Þórhalls son sá mikli risi kominn. Hann skallaði aftur fyrir sig eld- snöggt, boltinn rann yfir að markinu, Valsmenn stóðu þar klumsa, — en Hinrik bróðir Einars var þar staddur og beindi boltanum nettlega i rétta átt, — boltinn rann áfram og inn fyrir marklinu, en örvæntingarfullar tilraunir Valsmanna á marklin- unni dugðu ekki. Rétt áður hafði Ólafur átt mikið skot i stöng Valsmarksins, — sannarlega munaði þar ekki miklu að jöfnunin kæmi fyrir Breiðablik. Ég er ekki frá þvi að Valur hefði átt að vinna þennan leik með 1-2 mörkum, ef fara á eftir tækifærum, en eins og fram hefur komiðhér á undan, þá er ekki tal- ið í marktækifærum, og því fór sem fór. Hitt er annað mál, að Breiða- bliksmenn sýndu þarna á sér sína sterku hlið, — þeir gefast ekki upp fyrr en i fulla hnefana. Og slikir kostir eru dýrmætir knattspyrnu- liði. Með þeim baráttukrafti, sem þeir sýndu i gærkvöldi ætti liðið að safna mörgum stigum i deild- inni i ár. Vörn liðsins er aftur á móti göt- ótt i meira lagi, og ég hef grun um að nokkuð sé ranglega stillt upp i vörnina, v. bakvörður gæti t.d. verið betri annars staðar á vellin- um og á miðjuna þyrfti Einar Þórhallsson að fá styrka stoð til að styðjast við. Framlinu- mennirnir virðast sumir ekki skilja hlutverk sitt, útherjar sækja of inn á völlinn o.s.frv. Valsliðið var gott framan af . En hvað gerðist siðan? Botninn datt fyrirvaralaust úr liðinu, þegar Blikarnir sýndu klærnar. 1 framlinunni fannst mér allt of litið koma út úr þeim góðu leik- mönnum sem sftipa hverja stöðu. Einna helzt var það Hermann, sem skapaði hættu. Guðmundur Haraldsson var góður dómari, — en annað mark Vals var hrein rangstaða, það sáu allir, sem voru svo heppnir að hafa sólina ekki beint i augun. -JBP- BRUNIÐ ER HENNAR SERGREIN Ung íslenzk skíðakona vekur miklar vonir í USA Venjulega er brunið talið fþrótt fyrir karlmenn, og þá aðeins stál- taugar. En hún Áslaug Olfars- dóttir i Aspen i Colorado er dálitið óvenjuleg að þvi leyti að brunið er hennar sérgrein. Og enda þótt hún sé aðeins 15 ára gömui, gera Bandarikjamenn sér vonir um að hún geti tekið þátt i Olympiuleik- unum, sem verða i Denver, skammt frá heimaborg Aslaugar, eftir 4 ár. Áslaug hefur náð mjög eftir- tektarverðum árangri og er komin niður i 60 punkta sam- kvæmt kerfi alþjóðasambandsins FIS, sem er taliö mjög gott. Áslaug æfir eins og aðrir þeir sem huga að keppni i Aspen, á hverjum degi, keppir um helgar, og notar öll fri eins og frekast er unnt. Markmiðið er sem sé Olympiuleikar, — hvort það verður Bandarikin eða Island er ekki hægt að segja um, en staö- reyndin er sú, að Aslaug, sem fluttist barnung með foreldrum sinum, Olfari Skæringssyni og Hjördisi Siguröardóttur sem bæði voru kunn i skiðasportinu hér heima, áður en þau fluttu búferlum til Ameriku, er islenzkur rikisborgari eins og foreldrar hennar. Nú hefur Aslaug fengið stór- kostlegt boð, hún fer til Frakk- lands með Sim Thomas, þjálfara sinum i Aspen, og mun hún æfa undir leiðsögn hins fræga þjálfara Georges Goubert, sem var talinn hinn mesti byltingarmaður i þjálfun upp úr 1960 og siðar, en hann átti mestan þátt i að endur- reisa veldi Frakka f skfðaíþrótt- inni. Eru bækur hans kunnar skiðamönnum um öll lönd. Sigurður Einarsson, skiða- maður úr ÍR, hálfbróðir Aslaugar, heimsótti fjölskylduna i Aspen fyrir siðustu áramót og var að vonum hrifinn af þeirri aðstöðu sem þarna er, enda er bærinn kunnastur fyrir skíða- iþróttina og dregur til sín aragrúa af ferðafólki á ári hverju. Sigurður kvað það óvenjulegt að brun yrði sérgrein kvenna, og þvi beindust augu bandarisku þjálfaranna svo mjög að Aslaugu. Olympiuleikarnir i Denver verða eiginlega á „heimavelli” Áslaugar, og þvi augljóst hagræði. Þá verður Aslaug og á mjög góðum aldri, um tvitugt, og til afreka likleg. í þeim keppnum, sem Sigurður sá systur sina, tapaði hún naumlega fyrir stúlkum, sem voru 2—3 árum eldri, en hún er i efsta flokki unglinga, en er þar á meðal þeirra allra yngstu. Sigurður kvaðst eiga von á Áslaugu i heimsókn til Islands i næsta mánuði, þ.e. áður en hún heldur til Frakklands til Alpe d’Hues. Er ætlunin að Áslaug haldi m.a. i Kerlingarfjöll og keppi þar á móti, sem mun fyrir- hugað. Þess má geta i sambandi við Aspen, að þar eru tveir skiða- menn til viðbótar, íslendingar reyndar. Það eru þeir Steinþór Jakobsson frá tsafirði og Asgeir Christiansen.Starfa þeir og Úlfar á vetrum við skiðakennslu, en á sumrum starfa þeir við fyrirtæki Úlfars, sem sér um skipulagningu á skrúðgörðum. — JBP — Áslaug Úlfarsdóttir í keppni r VtSIR. Þriðjudagur 6. júni 1972. 9 ... og þar með var draumurinn búinn Já, þarna byrjaði Valur að hrynja með þessum ágæta skalia frá Guðmundi Þóröar- syni, þar sem hann þrykkir boltanum af alefli i netið á bak við Sigurð Dagsson i markinu. Þrem min. siðar er boltinn enn I netinu, og skömmu áður hafði hann lent i stöng Valsmarksins. Skipstjórinn líka feng- sœlastur allra í golfinu Þaö er ekki aö spyrja að þeim, skipstjórunum á bátaflotanum okkar. Þeir eru fengsælir, hvort heldur þeir eru að eiga við gol- þorska einhvers staðar úti í ballarhafi, — eða þá elta golfbolta á einhverjum af golfvöllunum okkar. Þannig var það á laugardaginn vestur á Nesvelli, þegar Sigurður Héðinsson (bróðir Jóns Ármanns, alþingismanns), kom út sem sigurvegari i Pierre Robert — golfkeppninni, fjölmennasta golf- móti ársins til þessa, en þar mættu 123 kylfingar til leiks þrátt fyrir leiðinlegt keppnisveður. Sigurður lék af öryggi og yfirveg- un og sigraði i erfiðri og spenn- andi keppni, þar sem úrslit lágu ekki á hreinu fyrr en við holuna á siðustu keppnisbrautinni. Keppt var i fimm ílokkum. Nokkrir kylfinganna komu inn á pari, einn þeirra, Július Júliusson úr Hafnarfirði á 34 höggum, eða einu undir pari, og Jóhann Guð- mundsson úr Reykjavik á 33 höggum eða tveim undir pari, sem er jafnt og vallarmetið á 9 holunum. Úrslit i Pierre Robert-keppninni urðu sem hér segir: PIERRE-ROBERT stigakeppni G.S.t. (25 keppendur). 1. Sig. Héðinsson. GK 41-40 = 81-36-35-71 = 152 2. Július.R. Júliuss. GK 45-38 = 83-36-34-70 = 153 3-4. Þorbjörn Kjærbo GS 41-40 = 81-37-36-73 = 154 3-4. Björgvin Hólm GR 41-39 = 80-39-35-74 = 154 PIERRE-ROBERT ineistaraflokkur (23 keppendur). 1. Loftur Ólafsson NK 36-43 = 79 2. Hans Isebarn GR 40-40 = 80 3. Björgvin Hólm GK 41-39 = 80 1 6 næstu sætum voru allir á 81 höggi svo að aðeins skildu 2 högg 1. og 9. sæti. PIERRE-ROBERT 1. flokkur (34 keppendur). 1. Þorgeir Þorsteinss. GS 40-40 = 80 2. Sigurður Albertss. GS 39-44 = 83 3. Ómar Kristjánss. GR 41-42 = 83 PIERRE-ROBERT 2. flokkur (33 keppendur). 1. Hreinn M. Jóhannss. NK 40-41 = 81 2. Sveinbjörn Björnsson GK 41-45 = 86 3. Hörður Ólafsson NK 50-37 = 87 4. Lárus Arnórsson GR 44-43 = 87 PIERRE-ROBERT Kvennaflokkur (12 keppendur). 1. Ólöf Geirsdóttir. GR 42-44 = 86 2. Hanna Aðalsteinsd. GR 43-46 = 89 3. Laufey Karlsdóttir. GR 45-45 = 90 PIERRE-ROBERT unglingaflokkur (19 keppendur). 1. Sigurður Thorarensen GK 39-36 = 75 2. Ragnar Ólafsson. GR 41-36 = 77 3. Jóhann Kjærbo GS 39-39 = 78 4. Jóhann Jósepsson. GS 38-40 = 78 5. Hálfdán Þ. Karlsson GK 38-40 = 78 Nýjung frá Ofnasmiðjunni 5%v % v . tr'A Ofnasmiðjan hefur hafið framleiðslu á nýrri gerð af eldhúsvöskum Stærð: 39 x 72 sm. Efni: 18/8 ryðfrítt stál. Blöndunartæki geta verið staðsett á vaskarammanum. Hljóðdeyfing á skálabotninum. Vatnsrammi, sem dregur úr að vatn fari út á borðið. Verð: 4.950,00 með vatnslás og festingum Innifalið i verði er götun fyrir blöndunar- tækjum. Vönduð íslenzk framleiðsla á hóflegu verði SMIÐJUBÚÐIN Einholti 10. Simi 21222. Meistaramót FRÍ Meistaramót tslands fyrri hluti, fer fram dagana 10. og 11. júni. Mótið fer fram á Laugardals- vellinum. Keppnisgreinar: Karlar: Tugþraut, 10000 m hlaup og 4x800 m boðhlaup. Konur: P'immtarþraut. Þátttökutilkynningar berist fyrir 8. júni i pósthólf 1099 eða til skrifstofu FRt iþróttamiðstöð- inni Laugardal. Júnímótið Júni mót Fri verður haldið á Laugardalsvellinum dagana 7,- 8, júni, og hefst kl. 20.00. Keppt verður i eftirtöldum greinum: Fyrri dagur: Karlar: 200m, 800m, 5000m, 400m grindahlaup, 4xl()0m boð- hlaup, kúluvarp, spjótkast, langstökk, hástökk. Konur: lOOm grindahlaup, 200m, 800m, 4xl00m boðhlaup, hástökk, kúluvarp, spjótkast. Seinni dagur: Karlar: llOm grindahlaup, 1 OOm, 400 m, 1500m 3000m, lOOOm boðhlaup, stangarstökk, þristökk, kringlukast, sleggju- kast. Konur: lOOm, 400m, 1500m, 4x400m, boðhlaup, kringlukast og langstökk. Spenna um úrslitin í Piérre Robert-keppninni fram á síðustu holuna

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.