Vísir - 29.08.1972, Blaðsíða 5

Vísir - 29.08.1972, Blaðsíða 5
Visir Þriðjudagur 2í». ágúst 1972 í MORGUN UTLÖNDI MORGUN UTLÖND I MORGUN UTLOND UMSJÓN: HAUKUR HELGASON Jack „skerari" var þá K a n n s k i h e i m s - frægastur allra morð- ingja, „Jack the Ripper” sem var skelfir Lundúna fyrir 84 árum, hefur hugsan- iega verið kona, segja menn nú. Þetta er keuning fyrrum yfir- manns i levnilögreglu Scotland Yard, Arthur Butlers. Hann er á eftirlaunum og hefur varið tima sinum um hrið til að rannsaka málið „Ripper” (skerarans). Butlervar ineöal beztu morð- rannsóknarmanna Scotland Yard. Hann telur, að kvenna- morðin sumarið 1888 hafi verið framin af ljósmóður, sem hafi lengizt við ólöglegar fóstureyð- ingar. Ilún hafi gert þetta til að villa um fyrir lögreglu, svo að hún kæmist ekki á snoðir um ólöglegt athæfi við fóstureyð- ingar. „Þaggað niður i Emmu” Butler fór á eftirlaun árið 1988. Hann skrifaði í blaðið Sun um reynslu sina og niðurstöður i ársleit að sporum „Ripper” i austurhverfum Lundúna. Hann ræddi við börn og barnabörn fólks, sem bjó þar, þegar kona! „Jack the Ripper” var ógnvald- urin n. Butler' telur, að fórnardýr morðingjans hafi vcrið sjö, en ekki fimm eins og talið hefur verið. Hiö fyrsta hafi verið 45 ára vændiskona, Emma Smith. „Það var þaggað niður i Eminu, af þvi að hún vissi of mikið um ólöglegt athæfi hinnar konunnar,” segir Butler. Mis þy r m t 1ik u m kvenna, sem létust við fóstureyðingar. Hann kveðst einnig hafa komizt að þvi, að fjórar af hinum sex konuin, sem dóu, hafi ekki verið myrtar. „Dauði þeirra var nærri tvimælalaust afleiðing misheppnaðrar til- raunar til fósturey ðingar,” segir hann. „Með þvi að misþyrma likinu og láta lita svo út, að um morð væri að ræöa, tókst fóstureyðar- anum að beina athygli lögreglu frá sér og forðast rannsókn, sem hefði getað afhjúpað glæpi hennar. Butler telur, að Ijósmóðirin hafi skorið lik íátinna við- skiptavina sinna eftir misheppn aðar fóstureyðingar, en karl maður, sem með henni hafi starfað, hafi myrt þá, sem „vissu of mikið”. Brennisteinsdíoxýð veidurröskun erfða Tveir lifefnafræðingar við New York háskóla sögðu i gær frá niður- stöðum rannsókna, sem gefa til kynna, að brennisteinsdioxýð helzti mengunarvaldur, geti valdið truflun á erfðaeigindum manns- likamans. Dr. Robert Shapiro og Barbara Braverman skýrðu frá þvi á árs- fundi efnafræðifélagsins banda- riska, að jafnan er brennisteins- dioxýði hafi verið blandað saman við kjarnasýru, aðaleiningu erfða, hafi orðið röskun á eðlilegri starfsemi. Þvi geti verið að erfða eiginleikar fólks, sem býr i borg- um, þar sem brennisteinsdioxýðs gætir mikið, raskist. Vansköpuð börn fæðist tiðar og varanlegir ágallar geti myndazt. Frekari rannsókna er þörf, og næsta skref yrði að rannsaka plöntur, sem vaxa i New York borg. Nefnd telur Puerto Rico vero bandaríska nýlendu Nefnd Sameinuðu Þjóðanna hafnaði mót- mælum Bandarikja- manna i gær og sam- þykkti, að Puerto Rico skyldi tekið með i rann- sóknir S.Þ. sem ,,ný- lenda, sem eigi rétt til sjálfstæðis”. Atkvæði féllu 12:0 og voru nokkursigur fyrir Kina, Sovétrik- in og Kúbu, sem vilja, að Banda- rikin lýsi þvi yfir, að Puerto Rico sé nýienda þeirra. Puerto Rico er i sambandi við Bandarikin eftir þjóðaratkvæði, sem leiddi i ljós, að sá var vilji meirihluta ibú- anna. Þeir ibúar, sem berjast fyrir sjálfstæði hafa jafnan verið minnihluti samkvæmt úrslitum þingkosninga. Loks er hópur, sem berst fyrir þvi, að Puerto Rico verði beinlinis fylki i Bandarikj- unum. Meirihlutinn hefur viljað halda núverandi sambandi milli iandanna. Hetja í valnum Blóðsjúkdómur, sem sir Francis Chichester hafði leynt fyrir um- heiminum, batt enda á kappsigl- ingu hans fyrir skömmu og siðan á lif hans. Lávarðurinn var 71s árs.kunnur siglingakappi og könnuður. Þessi mynd er nokkuð táknræn fyrir uppþotin, sem urðu við llokksþing repúblikana fyrir tekin. Fangar voru „afgrciddir á færibandi”. hclgina. I.ögregluþjónn heldur fanganúmeri frammi fyrir upp- þolsmanni, meðan Ijósmynd er Kúlurnar þutu um- hverfis sjúklingana Mesti skotbardaginn, sem hefur orðið á Norð- ur-írlandi, siðan Bretar tóku virki IRA-hreyfing- arinnar fyrir mánuði geisaði i gær umhverfis sjúkrahús. Sjúklingar voru skelfingu lostnir og húktu i skjóli, meðan leyniskyttur IRA skutu meira en þúsund skotum á varðstöð Breta, frá tiu felustöðum sinum. Allt tók þetta aðeins 90 mínútur. IRA hét þvi i gærkvöldi að berj- ast látlaust og af miskunnarleysi til sigurs. Allt að 16 IRA-menn munu hafa falliö fyrir skotum brezkra her- manna i átökunum. Skotbardaginn varð upp úr blóðugri helgi. Ellefu manna er nú sagt hafa beðið bana i átökum um helgina. Siðasta fórnardýrið var miðaldra maður, sem enn er ekki vitað, hver var. Hann sprakk i tætlur meðhundisinum, þar sem hann var á göngu skammt frá landamærum trska lýðveldisins. Bardagar urðu við Victoria Hospital, sem er talinn eitt bezta sjúkrahús i Evrópu fyrir meðferð hjartasjúklinga, skömmu fyrir miðnættið. Tvær varðstöðvar brezkra hermanna, önnur við bakinngang sjúkrahússins og hin 300 metrum nær borgarmörkun- um, urðu fyrir stöðugri skothrið. Sumar leyniskyttur tðku sér stöðu á þaki bústaðar hjúkrunar- kvenna, en aðrar földust i bila- stæði sjúkrahússins. Skotin þutu um deildir hjarta- sjúklinga, fæðingar- og barna- deildir. Þó var aðeins sagt, að lið- ið hefði yfir eina konu. Herinn segir, að IRA hafi engu skeytt um lif sjúklinganna. Hermenn segjast hafa hæft tvær leyniskyttur, svo að vitað sé með fullri vissu, en sennilega hafi þeir hæft sextán IRA-menn. IRA sagðist i gærkvöldi hafa drepiö niu brezka hermenn og tvo þjóðliðsmenn siðustu tvær vikur. Var sagt, að fimm IRA-menn hefðu fallið á þessu timabili, en brezki herinn telur þá tölu alltof lága. IRA krefst þess, að hafnað sé friðarviðræðum, sem Whitelaw ráðherra ráðgerir i næsta mán- uði. Mistök í ffugstjórn ollu dauða prinsins Bretar syrgðu í morgun lát vinsæls prins, William af Gloucester, þrítugs fjör- legs piparsveins, sem þótti gaman að stýra flugvélum sínum, af þvi að ,,það er svo dásamlegt að finna frelsið og vera eins og hver annar", einsog hann sagði. Prinsinn lézt i gær i logandi braki litillar flugvélar, sem hann flaug i flugkeppni i Wolver- hampton i ensku Miðlöndunum. Stjórnvöld rannsaka möguleika á, að mistök flugmanns hafi valdið slysinu. Prinsinn var niundi i röðinni að erfðum konungdæmis Bretlands. Hann og aðstoðarflugmaður fórust nokkrum sekúndum eftir flugtak i augsýn 50 þúsund skelfingu lostinna áhorfenda. Ahorfendur sáu eins hreyfils Piper Cherokeeflugvélina kastast til vihstri, smjúga yfir húsþak, rekast á stórt tré og steypast siðan um 20 metra til jarðar og brenna, að sögn AP-fréttastof- unnar. Sjónarvottar segja, að mistök hafi orðið i flugtakinu og hraðinn oröið háskalega litill á krappri beygju. Flugmaður virðist hafa sveigt of lágt og of krappt.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.