Vísir - 06.10.1972, Blaðsíða 4

Vísir - 06.10.1972, Blaðsíða 4
4 Visir Föstudagur 6. október 1972. nú Umsjón: Þórarinn J. Magnússon Fyrrum hótelkóngurinn Eugene A. Gross lótinn: VILL FÁ ÖSKUNNI DREBFT A VEÐ- HLAUPABRAUTINA Einhver umsvifamesti hóteleigandi sem New York hefur átt er látinn. Eugene A. Gross var 78 ára gamall þegar hann lézt og langt frá því aö vera eins voldugur og fyrr á árum. Veðhlaupabraut- in haföi séö fyrir því. Siðast átti hann hótel á Miami, en seldi það fyrir tveim árum. Þeim 220 milljónum króna, sem hann fékk fyrir það ágæta hótel virðist hann hafa komiö öllum i lóg fyrir dauða sinn. Gefur það ljósa mynd af þvi fjárhættuspili, sem hann stundaði. „Himnariki föður mins var veðhlaupabrautin og hafði hann margoft minnt mig á, að þar vildi hann fá ösku sinni dreift, sem ég og geri eftir bálför hans um næstu helgi,” segir Gross, eftirlifandi sonur hans. ,,Faðir minn hélt sig við veð- hlaupabrautina hvern einasta dag allt fram til þess dags, sem hann fékk hjartaslagið, sem leiddi hann til dauða,” segir sonurinn. „Stundum bar hann gott úr býtum og oft um og yfir 700 þúsund krónur. En vinnings- upphæðunum varði hann jafnan i enn hærri veðmál — og tapaði summunni þá oftast jafnharðan. En hann var haminjusamur hvort sem hann hafði unnið eða tapað. Og það var fyrir öllu.” Gross yngri hefur aldrei veðj- að á hest og hyggst ekki leggja út á sömu braut og faðirinn. Það er Gross eldri hafði hvað mest umsvif i hótelviðskiptun- um var hann m.a. fram- kvæmdastjóri þeirra velþekktu hótela ,,The Taft” og ,,Ban- croft”. Þá var hann einnig um skeið formaður sambands hóteleigenda i New York. Auglýsing um skoðun bifreiðo í lögsagnor- umdœmi Reykjavíkur Aðalskoðun bifreiða i lögsagnarumdæmi Reykjavikur i október 1972. Mánudaginn 2. október R-22001 til R-22200 Þriðjudaginn .3. október It-22201 til R-22400 Miðvikudaginn 4. október R-22401 til R-22600 Fim intudaginn 5. október R-22601 til R-22800 Föstudaginn (!. október R-22801 til R-23000 Mánudaginn 9. október It-23001 til R-23200 Þriðjudaginn 10. októbcr R-23201 til R-23400 Miðvikudaginn 11. október R-23401 til R-23600 Fim mtudaginn 12. október It-23601 til R-23800 Föstudaginn 13. október R-23801 til R-24000 Mánudaginn 16. október R-24001 til R-24200 Þriðjudaginn 17. október R-24201 til R-24400 Miðvikudaginn 18. október R-24401 til R-24600 Fimmtudaginn 19. október R-24601 til R-24800 Föstudaginn 20. október R-24801 til R-25000 Mánudaginn 23. október R-25001 til R-25200 Þriðjudaginn 24. október R-25201 til R-25400 Miðvikudaginn 25. október R-25401 til R-26000 Fimmtudaginn 26. október R-26001 til R-26200 Föstudaginn 27. október R-26201 til R-26400 Mánudaginn 30. október R-26401 til R-26600 Þriðjudaginn 31. október R-26601 til R-26800 Bifreiðaeigendum ber að koma með bifreiðar sinar til bifreiðaeftirlitsins, Borgartúni 7, og verður skoðun framkvæmd þar alla virka daga kl. 8.45 til 16.30. Aðalskoðun verður ekki framkvæmd á laugardögum. Festivagnar, tengivagnar og farþegabyrgi skulu fylgja bifreiðunum til skoðunar. Við skoðun skulu ökumenn bif- reiðanna leggja fram fullgild ökuskirteini. Sýna ber skil- riki fyrir þvi, að bifreiðaskattur og vátryggingargjald ökumanns fyrir árið 1972 séu greidd og lögboðin vátrygg- ing fyrir hverja bifreið sé i gildi. Þeir bifreiðaeigendur, sem hafa viðtæki i bifreiðum sin- um, skulu sýna kvittun fyrir greiðslu afnotagjalda rikisút- varpsins fyrir árið 1972. Ennfremur ber að framvisa vott- orði frá viðurkenndu viðgerðarverkstæði um að ljós bif- reiðarinnar hafi verið stillt. Athygli skal vakin á þvi, að skráningarnúmer skulu vera vel læsileg. Vanræki einhver að koma bifreið sinni til skoðunar á auglýstum tima, verður hann látinn sæta sektum samkvæmt umferðar- lögum og bifreiðin tekin úr umferð, hvar sem til hennar næst. Þetta tilkynnist öllum, sem hlut eiga að m áli. Lögreglustjórinn i Reykjavik, 4. október 1972. Fjögur ór að gera „nafnlausa" verkið Fjórða hverl ár er haldin i Kassel i Þýzkalandi samsýning listamanna viðsvegar að úr heiminum. Sú fimmta af þvi taginu var opnuð ekki alls fyrir löngu og mun hún standa yfir í 100 daga. „Realisminn” er i hávegum hafður á sýningu þessari, en hans gætir i öllum hinum inargvislegu lista- verkum, sem sýnd eru. „Nafnlaus” heitir það ein- faldlega, sem myndin hér að ofan sýnir. Fólkið, sem frammi fyrir þvi situr, gæti allt eins til- heyrt þvi. Raunveruleikinn leynir sér ekki i þessu verki bandariska listamannsins Paul Sarkisian. Hann vann að þvi i fjögur ár, en lengd þess er átta metrar, — svo óvist er hvort það gengur út sem hýbýlaskreyting. Tattovering verður ei fró manni tekin Hinar svokölluðu ,,tattóveringar" færast stöðugt í vöxt og þá ekki aðeins i hafnarborgum þar sem harðgerðir sjóarar fá dregnar í húð sína myndir af skútum og skonnortum, hjörtum, og strípuðum stelpum, heldur eru æ fleiri ,,tattoveringa"-stofur að opna í borgum og bæjum með tattóveringar á kvenfólk að sérgrein. Viðskiptavinirnir eru ekki lengur sjóarar einvörðungu, stúlkur á öllum aldri hafa fengið sérstakt dálæti á tattóveringu. John Lennon vinsœlastur Brezk hljómlistarblöð efna venjulega til vinsælcjakosninga ár hvert. Einhverjar þær athyglis- verðustu sem fram hafa farið á þessu ári, eru án efa kosningar blaðsins NEW MUSICAL EXPRESS en i þeim taka þátt einungis þekktustu söngvarar pop-heimsins. Völdu þeir sér skemmtilegasta söngvarann og fara nöfn þeirra efstu hér á eftir: 1. Jolin Lennon 2. Payl Rogers 3. Bob Dylan 4. -5. Maggie Bell / Mick Jagger 6,- 7. Ray Charles / Joni Mitchell 8. Stevie Wonder 9. Joe Cocer 10. Rod Stewart. 11. Steve Stills 12 - 13 Billie Holliday / Aretha Franklin 14. Elton John Vestan hafs má bókstaflega tala um tizkuæði. Og á meðan sjóarar fá tottóveraðar á sig sinar hefðbundnu myndir sem fyrr er getið, velja stijlkurnar gjarnan íitið fiðrildi, blóm og annað slikt. En i flestum tilvikum eru það pinulitlar myndir, sem dömurnar velja sér. Fæstar fá liklega tattoveraðar á sig svart blómabúnt eins og Ijóskan, sem við heyrðum nýverið af. „Ég hafði beðið þann sem tattoveraði að rita á maga mér nafn unnusta mins, en það misritaðist svo illilega að pára þurfti yfir það með einhverjum ráðum. En eftirleiðis hugsa ég nú að sundbolur hæfi mér betur en bikini,” bætir hún við — döpur i bragði. Þeir sem vinna við tattoveringar útskýra hinn aukan áhuga kvenfólks á þessum „myndskreytingum” með þvi að visa til allra Rauð- sokkuhreyfinganna, sem eru að risa upp. „Tattoveringar kven- fólks má skilja sem fullyrðingu um að þeirra likamar séu rétt éins góðir og okkar” segja þeir. Gene Lorenze, sem tattoveraður er um allan skrokkinn hefur einfalda skýringu á þvi, hvað hans áhuga veldur: „Þetta pár er jú það einasta, sem manni verður fært að taka með sér i gröfina. Tattovering er nokkuð, sem ekki verður af manni tekið,” segir hann.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.