Vísir - 06.10.1972, Page 5

Vísir - 06.10.1972, Page 5
Visir Föstudagur (». október 1972. AP/NTB í MORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND I MORGUN ÚTLÖND í MORGU Nixon sogður hofa samið um leyni- frið í Vietnam The Times fullyrti þetta í morgun Bandarík jamenn og Noröur-Víetnamar hafa náð í grundvallaratriðum samkomulagi um stöðvun stríðsins í Vietnam, að því erhiðkunna Lundúnablað The Times sagði i morg- un. Blaðið hafði engan fyrirvara á fréttinni. Það sagði, að Henry Kissinger, ráðgjafi Nixons for- seta i öryggismálum, og emb- ættismenn frá Norður-Vietnam hefðu samið um þetta á fundum i Moskvu og Paris: Blaðið kvað enn ekki hafa verið gengið frá ýmsum smá- atriðum. Það sagði einnig, að upplýsingar um innihaldið mundu ekki verða gefnar fyrr en eftir forsetakosningarnar i» Bandarikjunum 7. nóvember n.k. Það bendir til þess, að um eftirgjafir sé að ræða af hálfu Bandarikjanna. Fyrirsögn blaðsins er: „Valdavon Hanoi byggist á samsteypustjórn i Saigon”. f textanum segir, að stjórnin i Hanói geti vel fallizt á myndun samsteypustjórnar i Suður- Vietnam. f slikri stjórn yrðu fulltrúar margra stjórnmála- afla, þar á meðal kommúnista og meðreiðarmanna þeirra. Stjórn Norður-Vietnam er sann- færð um, að þetta upphaf muni leiða til valdatöku kommúnista. i fréttinni segir ennfremur, að samkomulag þetta geri ráð fyr- ir, að bundinn verði endir á stjórn Thieus forseta, ei'ns og McGovern, forsetaframbjóð- andi demókrata hefur lagt til. Þess vegna vilji Nixon ekki gera uppskátt um samkomulagið fyrir kosningarnar. Meðan á þessu stendur er sprengjuregnið enn hert. í nótt voru gerðar þær mestu loftárás- ir frá þvi i vor. Bandarikjamenn vörpuðu úm 1000 tonnum af sprengjum i nágrenni Saigon. Vonlegt er, að þeir Nixon og Kissinger séu þungt hugsi, er mikilvægar ákvarðanir cru i uppsiglingu. Hér virðist fara vel á með þeim Amin Cgandaforseta (til vinstri) og Mobutu Zaireforseta. Mobutu fór til Kampala, höfuðborgar úganda til að fá Amin til að framlengja dvalarleyfi Asfumanna. Eftir ferðina sagði Mobutu, að Amin hefði sagt sér f einlægni og f viðurvist Kibedi utanrikisráðherra.að hann mundi framlengja frestinn. Skömmu eftir þessa yfirfýsingu Mobutu endurtók Amin, aö honum liefði aldrei dottið i hug að framlengja frestinn. Friður saminn milli Uganda og Tanzaníu Amin skrifar Waldheim bréf Enn finnast eiturlyf fyrir hundruð milljóna Afraksturinn á tveimur dögum orðinn um 5000 milljónir króna Tanzania og úganda hafa sett niður deilur sinar Svo segir i sameingnlegri yfirlýsingu, sem utanrikisráðherrar rikjanna gáfu út i nótt. Þar var einnig sagt, að nánari fréttir af innihaldi sam- knmulagsins yröu birtar siðar i dag. Deilur þessar hófust, þegar Amin Úgandaforseti sakaði Tanzaniumenn um innrás i land sitt. Kibedi. utanrikisráðherra Úganda, sagði i nótt, að sam- komulagið væri merkisviðburður i sögu Afriku. Forseti Sómaliu. Mohamed Siad Barre, sem skipulagði fund utanrikisráð- herranna tveggja, sagði að deilan hefði stafað frá samsæri heimsvaldasinna til að veikja ein- ingu Afriku. Amin Úgandaforseti sagði Waldheim, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, i dag, að Asiumenn þeir, sem reknir eru frá Úganda, fengju að taka eigur sinar með sér. Hins vegar minntist hann ekkert á, hvort brottfararfresturinn yrði fram- lengdur fram yfir 9. nóvember. Þetta kom fram i bréfi frá Amin til Waldheims. Hinn siðarnefndi hefur lýst yfir ánægju með þetta ,þréf sem skýrir nokkuð hinar ruglingslegu yfirlýsingar, sem til þessa hafa verið gefnar um málið. Hvcr citurlyfjafundurinn rekur nú annan i hverju heimshorninu á fætur öðru. I gær fannst I.HOO miyjón króna virði af hassi i Afganistan og 20 milljón króna virði af heróini i Hong Kong. Þessir lundir koma beint i kjölfar þess, að i fyrradag fannst 2.700 milljón króna virði af heróíni um borð i skipi við Rio de Janeiro I Brasiliu. Afganska lögreglan handtók fjóra alvopnaða smyglara við landamæri Irans. Þeir reyndust hafa meðferðis 46 poka, sem höfðu að geyma 344 kíló af hassi. Þetta er mesti eiturlyfjafundur i Afganistan, siðan farið var að reyna að hafa hemil á útbreiðslu eiturlyfja. Tilviljun réði þvi, að lögreglan i Hong Kong komst á snoðir um, hvar stærsta pökkunarstöð heróins i borginni væri. Hún gerði þar húsleit og fann 26 kiló af heró- ini. Þar handtók hún sex konur og þrjá karla. f kjölfarið aflaði lög- reglan sér upplýsinga, sem leiddu til þess, að 25 kiló við viðbótar fundust á öðrum stað i borginni. Eiturlyfjafundurinn um borð i Mormacaltair við Rio de Janeiro, sem sagt var frá hér i blaðinu i gær, er sá langmesti i sögu Suður- Ameriku. Talið er, að heróin- magnið, sem fannst, hefði nægt rúmri milljón eiturlyfjaneytenda i einn dag. Fimm karlar og ein Bandariskur auðmaður hefur gcrt árangurslausa tilraun til aö kaupa hið sögufræga Colosseum i Itóm, sem liggur undir svo miklum skemmdum, að þvi hef- ur verið lokað fyrir feröamönn- um. Hann sendi lögfræðing sinn með 10.000 dollara ávisun, eða sem svarar 900.000 krónum. oe kona hafa þegar verið handtekin i samhandi við fundinn. Bögreglan segir, að heróinið hafi komið frá Spáni til Argentinu á leið sinni til Bandarikjanna. Bandariskir leynilögreglumenn i Evrópu munu hafa komizt á snoðir um þetta með aðstoð Inter- pol. aðgang að þeim og láta Róm hafa helminginn af aðgangs- eyrinum. Engin leið er að ihuga þetta boð, sagði Carettoni, þjóðminja- vörður Rómar, sármóðgaður i gær. Það verður aldrei seldur aðgangur að Colosseum, sagði hann. Annar embættismaður kvað Merrick vera stór- Colosseum er að falli komið var það hugsað sem fyrirfram- greiðsla. f gærkvöldi fór lög- fræðingurinn til baka eftir óblið- ar viðtökur yfirvalda i Róm. Margir hafa hent gaman að þessu tilboði. En sum blöðin, þar á meðal kommúnistablaðið Paese Sera, segja, að þakka beri auðmanninum fyrir að hafa bent á vanrækslu yfirvalda i Róm. Colosseum hefur verið i mikilli niðurniðslu. Auðmaðurinn heitir Thomas Merrick. Hann vill kaupa hinar 1900 ára gömlu rústir á 900 milljónir króna og verja þar á ofan 1.800 milljónum króna til viðhalds og endurbóta á þeim. Að þvi búnu hyggst hann selja mennskubrjálaðan. Colosseum væri virði hundraða þúsunda milljóna króna. „Það finnst mér nokkuð hátt verð”, sagði Merrick hinn ró- legasti á heimili sinu i Kali- forniu. Hann er ævintýramaður hinn mesti og hefur grætt fé á þvi að taka mikla áhættu. Hann hefur áður boðizt til að kaupa hið fræga Alcatraz-fangelsi, sem er eyja, svo og allan Squaw-dal, þar sem skiðalandið fræga er. „Ef þeir vilja ekki selja mér Colosseum, þá kaupi ég bara skakka turninn i Pisa”, sagði Merrick hlæjandi og strauk grátt skeggið. Amerískur sérvitríngur víll kaupa Colosseum ítölsk blöð fagna því, en embœttismenn móðgast

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.