Vísir - 02.01.1973, Síða 1
vísm
63.árg. — Þriðjudagur 2. janúar 1973 — l.tbl.
Ó, ÞVÍ-
LÍKT ÁR!
— sjá bls. 6
— friður til
umrœðu í París og
sprengjuárásum
hœtt. si® b,s* 5*
1700 fórust í
flugslysum
árið 1972
Rúmlega 1700 manns
fórust i flugslysum é
érinu 1972 sem er
mesta slysaár i sögu
flugumferðar.
Stærsta flugslysið
varð, þegar farþega-
þota fórst hjá Moskvu
og með henni 162
manns. Sjábls. 4
•
Ásutrúarmenn
fó „teikn"
„Goöin reiddust” svo að um
munaði, þegar fulltrúar
Ásatrúarmanna gengu á
fund Ólafs Jóhannessonar.
Sagt er, að þeir hafi heldur
fengið loðin svör, og þaö
hefur þrumuguðinum Þór
vist fundizt. Þegar erindinu
lauk, datt hin ferlegasta
þruma yfir miöborgina, og
varla hafa Ásatrúarmenn
veriö ivafa um merkinguna,
eftir aö Þór mundaði Mjölni.
SJA BLS. 2
•
Nú tekur ráð-
deildarsemi við!
Núna þegar lognmolla færist
yfir mannskapinn, verður
kannski timi afiögu til að
hugsa um kvenlegu hliðina
og sauma nýja kjólinn,
blússu eða annaö, og sniðin
höfum við á INNSÍÐU.
SJA BLS. 9
Afkastamesti
bygginga-
verkamaður —
82 sm á hœð
Sjá NÚ-síðu bls. 12
Vandalaust að
lengja líf sitt. . .
Engin vandræði að lengja líi
sitt með ærlegum hlátri á
nýbyrjuðu ári. Fló á skinni
er einhver hinn ærlegasti
hláturleikur, sem hér hefur
sést siðan Þjófar, lik og falar
konur var leikið um árið.
Sagt er, að f öfgaheimi þess
konar farsa veitist áhorfand-
anum færi á að lifa i mein-
lausri mynd sinar villtustu
óskir og dulda dag-
drauma..
Sjá menningarsíðu Bls:7.
STÓRSLASAÐIST ÞEGAR
D I V(P R B H — stýrimaður af Arnarfelli illa sœrður
DL ■ ) vl ó sjúkrahús á Akureyri á gamlárskvöld
Skipverji á Arnarfelli
slasaðist illa, þegar blys
sprakk í höndum skip-
verja á gamlárskvöld.
Skipið var þá statt á
Akureyri, og fögnuðu
skipsmenn nýja árinu
með flugeldum, sem skot-
ið var með linubyssu.
Höfðu skipsmenn skotið 3
blysum á loft, en áttu eitt eftir,
en þá fór svo, aö það sprakk i
höndum þeirra. Varð fyrsti vél-
stjóri fyrir mestum meiöslum
þeirra félaganna.
Var maðurinn þegar fluttur á
sjúkrahúsiö á Akureyri, en þar
varð hann að gangast undir
mikla aðgerð, þar eð auga hans
hafði skaddazt mjög og talið lik-
legt, að hann missti annaö aug-
að. Að auki haföi handleggur
mannsins skaddazt illa. Að sögn
yfirlæknis nyrðra var liöan
sjúklingsins talin eftir atvikum
góð i morgun.
Við rannsókn á linubyssunni,
sem skipverjar höföu notaö,
kom i ljós, að hún virtist óað-
linnanleg og virkaði eins og til
var ætlazt. Var viöstöddum hul-
in ráðgáta, hvernig slysið gat
borið að höndum.
—ÞJM—
„LOGGAN EÐA
HÁRLEYSI?"
,,Viljiði ekki fá ykkur i glas?”
spuröi húsráðandinn innbrots-
þjófana, þegar hann var búinn
aö draga þá inn um gluggann
aftur.
Húsráðandinn hafði setið
ásamt einum kunningja sinum
og spjölluðu þeir saman yfir
glasi i mestu makindum eitt
kvöldið. Þá heyra þeir allt I einu
að einhver er kominn inn til
þeirra en er i öðru herbergi.
Þegar húsráðandinn skilur
hvers kyns er biöur hann nokkra
stund og heyrir þá aö óboðnu
gestirnir eru tveir saman.
Þegar þeir eru inni i einu her-
berginu fer hann fram á gang og
gengur svo frá útidyrahurðinni
að ekki er hægt að komast út um
hana, siðan fer hann aftur til
félaga sins og biöur átekta.
Sennilega hafa innbrotsþjóf-
arnir tveir heyrt, þegar húsráð-
andinn var á feröinni, þvi að
næsta sem gerist er aö þeir eru
að reyna að komast út um
giugga.
Húsráðandi snarast nú fram á
gang og kemur i veg fyrir að
gestirnir komist út. Sér hann þá
um leið aö þetta eru pjakkar
ekki ýkja gamlir og með sitt hár
niðurábak. Maöurinn bað þá að
hræðast ekki og fór með þá inn
til kunningja sins setti fyrir
framan þá glös, bauð þeim að
dreypa á og spurði hvort þeir
vildu ekki ræða þetta i næði.
Þegar þessi félagsskapur er
nú seztur niður, kemur húsráð-
andinn með uppástungu: ,,Jæja
strákar nú ætla ég að leyfa
ykkur að velja um tvo kosti. I
fyrsta lagi get ég hringt á lög-
relguna, eins og vanalega er
gert, en hinsvegar hef ég fyrir
ykkur annan valkost. Hann er
sá aö ég megi klippa ykkur eftir
minum eigin smekk.”
Eftir nokkra um hugsun völdu
hinir hárprúðu seinni kostinn.
Þegar þeir höfðu fengið sina af-
greiðslu voru þeir ekki alveg
nýmóðins um hvirfilinn, heldur
voru tjutlur hér og þar, en ann-
ars staðar skalli.
Aö lokum urðu sveinarnir svo
að taka i hendina á gestgjafa
sinum og þakka honum.— Ló
„Okkur var
bannað að skjóta"
— segir varðskipsmaður á Óðni
„Okkur var bannað að legan til ásiglingar siðastliöinn
skjóta,” segir einn varðskips- fimmtudag. Þvi máli lauk með
manna á óöni, sem hringdi til þvi aö togarinn sigldi á Óðin,
hlaðsins. Hann kvartar mjög nokkuð að óvörum, eins og þvi
um, að varðskipsmenn fái ekki var lýst. Varöskipsmaöur segir,
að ganga jafn hart gegn brezk- aö Óöinn hafi beöiö leyfis að
um landhelgisbrjótum og þeir mega nota byssuna en þvi verið
viidu. neitað af yfirvöldum. óöinn hafi
Varðskipsmaöur vill að það hótaö áð skjóta, en gerði ekki.
komi fram, að skipshöfn Óðins Hann kveðst ekki vilja láta
hafi viljaö nota byssuna, þegar nafn sitt koma fram ,,að svo
togarinn Brucella gerði sig lík- stöddu” vegna starfs sins. HH
í STRIGASKÓNA OG
Á EFTIR ÞJÓFUM
— sjá baksíðu