Vísir


Vísir - 02.01.1973, Qupperneq 2

Vísir - 02.01.1973, Qupperneq 2
2 Visir. Priftjudagur 2 jauúar l!lí:í vhmsm: Eru gerðar eldvarna - ráðstafanir heima hjá yður? Ólafur Hrólfssun, starfsmaður i Belgjagerðinni: Nei það er nú ekki gert, en ég álit að i gömlum húsum sé nauðsynlegt að hafa slikan útbúnað. Aðalatriðið er þó að fólk gæti að sér. Sigurður Þorkelsson, skrifstofu - maður: Nei það er ekki, það er ekki ástæða til að hafa það heima hjá mér. En það er sjálfsagt að gæta að sér og vera við öllu búinn og það ekki bara um áramót. Olgcir Kinarsson, starfsmaður á Keflavikurflugvelli: Nei, það er nú ekki þó skömm sé frá að segja. Þegar þetta er nefnt þá sé ég að það væri ekki svo vitlaust að gera slikar ráðstafanir, þó að maður búi i nýju steinhúsi þá getur kviknað i fyrir það. Ualldór Blöndal, verkamaður: Nei, ekki er nú það. Að visu er ég með kaðal inni i skáp til að geta komizt út ef kviknar i, en hjá okkur er ekkert til að kveikja i nema ef vera skyldi rafmagnið. lialldór Halldórsson, glcrslipari: Það er nú ekki hjá mér, enda er ég einhleypur maður. En þetta er þó alls staðar ráðlegt og ekki bara um áramót. Kristin Helgadóttir, húsmóðir: Nei, ég bý nú á neðstu hæð i góðu steinhúsi, það væri ráðlegt fyrir fólk, sem býr i gömlum timbur- húsum. það rólegasta í 29 ár". „Líki því við föstudagskvöld", segir einn vörður laganna. „Þetta er mitt 2!). ár i lögregl- unni, og ég vcrð að segja það, að gamlárskvöld hcfur ekki verið jafn rólegt og nú að minum dómi”, sagði einn þeirra lög- rcglumanna, sem Visir hafði samband við, eftir að nýja árið hafði gcngið i garð. Viðast hvar á landinu höfðu verðir laganna það sama aö segja, og þrátt fyrir það að nokkuð hafi verið um útköll, og þá aöallega vegna ölvunar og liutninga á fólki á milli staöa, voru óhöpp og slys fá. ,,Ég liki þessu gamlárskvöldi við venjulegt föstudagskvöld”, sagði lögreglumaður i Keflavik, þegar blaðið hafði samband við þá stöð. Enda var harla litiö um að vera á þeim staðnum. Aðeins tveir menn voru teknir úr umferð sökum ölvunar, en annað þurfti lögreglan litið að snúast. Lögreglan á Keflavikurflug- velli, sagði, að fjórir hefðu verið teknir úr umferð fyrir meinta ölv- un við akstur og sagði, að það væri öllu meira en um venjulega helgi. Annars var árinu fagnað með friði og ró þar sem annars staðar. Gifurlega mikið var að gera hjá lögreglunni við að flytja fólk á millistaða, enda var næstum lifs- ins ómögulegt að fá leigubifreið, eftir að liða fór á gamlárskvöld. Flestar bifreiðir virðast þó hafa verið við akstur, og hjá Hreyfli fengum við þær upplýsingar, að bilstjórar hafi flestir hafið keyrslu seinni part gamlársdags og ekið stanzlaust fram að hádegi á nýársdag. Löng bið varð hjá mörgum hverjum eftir leigubil og oftast var ákaflega erfitt að ná sam- bandi við stöðvar. Hjá þeim stöðvum, sem blaðið hafði sam- band við, var okkur þó tjáð, að svipað hefði verið að gera nú og undanfarin ár á sama tima. Hjá lögreglunni i Reykjavik voru fangageymslur fullar og við- ast hvar á landinu gistu einhverj- ir fangageymslurnar, þó að ekki væru þær fullar alls staðar. ölvun virðist aðalorsökin fyrir þessu, og lögreglan fékk nokkur útköll i heimahús, þar sem ein- hver ágreiningur kom upp rhilli fólks. Asókn i eigur annarra var litil þessar stundirnar, en þó var brot- izt inn á gæzluvöll i Vogunum og *“þar brotin rúða. Engu var þó stol- ið, enda litið verðmætt á boðstól- um. Eftir öllu að dæma eru það sönn orða hjá lögreglunni, að þróunin virðist vera sú, að fólk kunni orðið betur að haga sér en áður og kunni betur með vin og skemmt- anir að fara. — EA — segir Þóroddur ó Sandi, sem hlaut rithöfundaverðlaun ósamt Geir Kristjónssyni. hæð kr. 80 þúsund frá Rit- höfundasjóði útvarpsins. Þetta er i 17. sinn. sem þessi styrkur er veittur, og er hann veittur einu sinni á ári i Þjóð- minjasafninu að viðstöddum for- seta íslands og menntamálaráð- herra ásamt fleirum. „Ég hef aðallega samið smá- sögur og einnig leikrit i útvarp”, sagði Geirennfremur. ,,Ég samdi til dæmis leikritið Snjómokstur, sem leikið var hér i útvarpi fyrir tveimur eða þremur árum. Siðan hefur það verið leikið erlendis, i Vestur-Þýzkalandi, Finnlandi, Júgóslaviu og nú siðast i Belgiu”. Aðalstarf Geirs eru þýðingar og ritstörf, en sem áður segir var hann ekki viss um, hvað af styrknum verður. „Ég býst við, ef Guð og gæfan leyfa, þá haldi ég áfram með minn kola”, sagði Þóroddur Guð- mundsson, þegar blaðið hafði samband við hann. Þóroddur hefur aðallega fengizt við ljóða- gerð og ljóðaþýðingar. „Ég geri reyndar ráð fyrir utanferð, en með stofnun Rithöf- undasjóðsins i upphafi var áætl- að, að menn notuðu styrkinn til þess að vikka sjóndeildarhring- inn”. Þóroddur kvaðst ekki hafa verið verðlaunaður áður fyrir rit- störf sin, en hann fékk þó viður- kenningu áður, er honum var boð- ið til Danmerkur. — Er nokkur ný bók á döfinni? „Já, ég er meö ljóðabók á döf- inni og er reyndar búin að búa hana undir prentun. Það er 11 ára verk, sem i henni liggur, tóm- stundagaman, en ég gaf siðast út frumsamda ljóðabók 1962. Þetta er mitt eftirlætisviðfangsefni”. —EA //Styrkurinn kemur sér vel, og þaö er mjög gott að fá hann. Annarsveit maöur ekki fyrirfram, aö maöur fær hann, þannig aö ég veit ekki, hvernig ég mun verja honum", sagði Geir Kristjánsson, rithöfundur í viðtali viö blaöiö, en hann ásamt Þóroddi Guðmunds- syni fengu ' afhentan á gamlársdag styrk að upp- Þóroddur og Geir skála fyrir verðlaununum, sem þeir tóku við á gamlársdag við athöfnina i Þjóðminja safninu. (Ljósm. Vísis ÁM). „HELD ÁFRAM VIÐ MINN KOLA"

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.