Vísir - 02.01.1973, Side 4

Vísir - 02.01.1973, Side 4
4 Visir. Þriftjudagur 2 janúar 197:5 í MORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND AFHROÐ B-52 sprengjuflugvélar USA biftu mikift afhrof) i loftárása- hrotunni fyrir og eftir jólin, eins og þessi flugvéi, sem hrapaöi til jarftar um 70 mílur suóaustur af Bangkok einn sióustu dagana fyrir áramótin. — Noróur-Viet- namar fullyrða, að flugvéla- tapið, hafi neytt Bandarikin til að hætta loftárásunum. FYRSTA ÁRAMÓTARÆÐA DANADROTTNINGAR Margrét Danadrottning flutti sina fyrstu áramótaræðu i danska sjónvarpinu á gamlárs- kvöld og lét þar i ljós von um, að friður mætti verða i Vietnam. „Skömmu fyrir jólin bjuggust flestir við þvi, að hin blóðuga styrjöld i Vietnam væri senn á enda. En nýlega höfum við orðið vitni að þvi, að atburðirnir þar hafa tekiö sorgiega stefnu”, sagði drottningin, og bætti við: „En fréttir siðasta sólarhrings vekja hjá okkur vonir um, að friður megi að endingu verða með þessari óhamingjusömu þjóð”. Þetta var fyrsta áramótaávarp drottningar, sem tók við riki eftir andlát föður sins i janúar. Að venju föður hennar, endaði Margrét drottning ræðu sina með: „Drottinn verndi Dan- mörk”. Fórst á leið með hjálp- argögn til Nicaragua Flutningavél með 5 manns innanborðs hrapaði i Atlanzhafið á leiðinni með hjálpargögn til Nicaragua i fyrrinótt. Flugvélin fórst skömmu eftir flugtak af alþjóðaflugvelli San Juan i Puerto Rico og kom niður i sjóinn, aðeins eina og hálfa milu norður af flugvellinum. Puerto Ricanar höfðu sent með flugvélinni matvæli og lyf til að- stoðar bágstöddum i Nicaragua eftir jarðskjálftana þar og fimm manna hjálparsveit. Fyrir mönnum var einn vinsælasti iþróttamaður Puerto Rico, Roberto Clemente, baseball-- stjarna. ólgusjór hindraði björgunar- starf og fannst ekkert úr vélinni annað en brak. 1972 var mesta slysaár flugumferðar: YFIR 1700 MANNS FÓRUST í FARÞCGA FLUGI Á ÁRINU Flugslysið í Florida á íöstudag, þegar 156 mauus fórust, var annað stærsta flug- slysið á árinu 1972, sem er það mannskæðasta i sögu flugumferðar til þessa. Flugumferðarsér- fræðingar i London segja, að rúmlega 1700 manns hafi farizt í far- þegaflugi á árinu. En mesta slysaár flugum- lerðar til þessa hafði verið 1966, þegar nær 1000 manns fórust. Stærsta flugslysið, sem nokkurn tima hefur orðið, varð á þessu ári, 13.okt. þegar rússnesk Aeroflot Ilyushin-62- farþegavél hrapaði til jarðar skammt frá Moskvu og hundrað sjötiu og sex fórust. Stærsta flugslys til þess dags hafði orðið i Japan 30. júli 1971, þegar Boeing 727 japönsk far- þegaþota rakst á herþotu á flugi og 162 fórust. Flugmaður her- þotunnar komst lifs af. Þrjú önnur meiri háttar flug- slys urðu i Sovétrikjunum á árinu. 18. mai fórst risaflugvél af gerðinni Antonov 10 skammt frá Kharkov og með henni 108 manns. 2. október fórust áttatiu, þegar rússnesk IL-18 flugvél hrapaði við Sochi hjá Svarta- hafi. Og 28. nóvember fórust 61 maður með japanskri DC-8 þótu hjá Moskvu. Flugfélög i Austur-Þýzka- landi, ttaliu, Bretlandi, Dan- mörku og Spáni urðu fyrir sinum stærstu flugslysum ein- mitt á árinu 1972. Þriðja stærsta flugslysið, sem hingað til hefur orðið, var slysið 14. ágúst, þegar austur-þýzk IL- 62 þota fórst i flugtaki i Austur- Berlin og með henni 156 far- þegar. Spænsk Convair Coronoda- flugvél fórst á Kanarieyjum 3. des. og með henni 155 manns, mest Vestur-Þjóðverjar i orlofs- ferð. Japanir hafa loks sœtzt við flesta stríðsféndur sína Kakuei Tanaka, for- sætisráöherra Japans, sagði i áramótaræðu á nýársdag, að Japanir hefðu nú leyst flest utanrikisvandamál sin, sem flest hefðu átt rætur að rekja til seinni heims styrjaldarinnar. Og væru nú á timamótum, þar sem þeir stigju inn i andrúmsloft ,,rósemi” og ,,alþjóðahyggju” i samskiptum sinum við erlend riki. Tanaka sagði, að Japanir hefðu náð ótrúlegum árangri i sam- skiptum við önnur riki á siðasta aldarfjórðungi. — Og allt fram á siðasta ár, þegar loks voru tekin upp eðlileg samskipti við Kina, höfum við verið önnum kafnir við að leysa ýmis deilumál, sem rætur eiga að rekja til striðsár- anna. En hér eftir munum við geta einbeitt okkur að öðrum málum, eins og heimsfriðnum og fjarhagsaðstoð við hin vanþróaðri riki”. Varðandi tengsi Japans við Bandarikin, sagði Tanaka að enn um sinn yrði haldið við varna- sambandi þjóðanna beggja. „Sjálfra okkar vegna verðum við að halda þvi við, og vegna þeirrar nauðsynjar verðum við að láta Bandarikjunum i té landrými fyrir herstöðvar”. Hann sagði, að reynt yrði þó að fækka herstöðvum Bandarikja- manna, sem eru viðsvegar i Japan. 120 Bretar úr Uganda Þeir 120 Bretar, sem höfðu fengið fyrirmæli um að verða á brottu úr Uganda fyrir míðnætti á gamlárskvöld, voru allir farnir á sunnudag. Þeirra á meðal voru 40 kennarar, sex háskólalektorar og fjórir læknar. Eftir eru þó i landinu um 2.800 brezkir rikisborgarar, flestir kaupsýslumenn, trúboðar og fjöl- skyldur þeirra, en þó um 450 kennarar og brezkir ráðunautar. Gleðisnautt hótíðahald ibúum Managua var ekki gaman i bug uin áramótin, en þar er neyðin enn sú sama, og þrátt fyrir ógrynni hjálpar- gagna, sem. borizt hafa, er bjálparstarfið sömu crfið- leikunum báð og áður — skortur á flutningstækjum er dreifingu matvæla til trafala. Loftmyndin hér að ofan af búsarústum talar sinu máli um, bvernig jarðskjálftarnir léku þessa 300 þús. manna borg, en á neðri myndinni t.v. sést fólk reyna að bjarga einhverju af eigum sinum úr rústunum. Mörgum hefur verið komið fyrir i skólum i nærliggjandi sveita- þorpum. Að neðan t.h. sést her- maður standa vörð i borgar- rústunum með dulu fyrir and- litinu vegna nályktarinnar. MALTA VILL HÆKKA LEIGUNA — fyrir herstöðvar Breta á Möltu, en Bretar neita Brezka stjórnin fyrir- skipaði Englandsbanka að greiða Möltu 3,5 mill- jónir sterlingspunda (820 milljónir isl. kr.) i leigu fyrir herstöðvar Breta á Möltu, en það er þvert ofan i kröfur Dom Mintoffs, forsætisráð- herra Möltu. Hann hefur krafizt 10% hækkunar og sagðist ekki veita leigunni viðtöku nema henni fylgdi uppbót vegna lækkandi verðgildis sterlingspundsins, sið- an gengi þess var haft fljótandi. Leigan, sem brezka stjórnin ætlar að greiða, er fyrirfram- greiðsla fyrir fyrstu þrjá mánuði þessa árs, en ársleigan öll er 14 milljónir sterlingspunda. Eftir miklar deilur i fyrra gekk Bret- land að kröfum Möltu um hækkun á leigunni. En þegar Mintoff bar fram kröfur urn frekari hækkun i sið- ustu viku, þá þverneituðu Bretar að greiða meira en þeir höfðu samið um eftir deilurnar i fyrra.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.