Vísir - 02.01.1973, Page 8
8
Sœmundur Guðvinsson skrifar um kvikmyndir:
Brot úr sögu
Nýja Bíó: Patton
Aðalhlutverk:
George C. Scott
— Ég man alltaf eftir
þvi þegar Patton ók hér i
gegn. Hann var i
fremsta bilnum og við
hlupum á eftir honum og
hrópuðum og kölluðum.
Fyrir okkur var hann
eins og frelsandi engill.
Oh, hvað við elskuðum
Patton. Það eru margir
sem hafa það fyrir reglu
að koma að leiði hans
minnsta kosti einu sinni
á ári. —
Þetta sagði gengilbeina á öl-
stofu i Luxemborg við mig fyrir
nokkrum árum þegar ég spurði
hana um strlðið og Luxemborg.
Andlitið á henni var orðið slappt
og þrútið af óhóflegri hvitvins-
drykkju, en þegar hún talaði um
Patton ijómaði hún eins og tungl i
fyllingu og sýndi eitthvað af
fegurö sem einu sinni hafði verið
fyrir hendi.
George S. Patton hershöfðingi
gat sér mikið frægðarorð i heims
styrjöldinni siðari. Undirmenn
hans trúðu á hann i blindni.
Elskuðu hann og hötuðu i senn.
Hann var mátulega geðveikur til
að hafa yndi af striði og var her-
maður af lifi og sál. Að sjálfsögðu
hlaut aö koma að þvi aö gerð yrði
kvikmynd um manninn og
árangurinn er sýndur i Nýja Bió
þessa dagana.
Þar sem myndin hefur hlotið
hvorki meira né minna en 7
Oscarverðlaun, þá var það ekkert
smáræði sem maður bjóst við.
Vonbrigðin urðu mikil. Það sem
bjargar myndinni er frábær
tæknivinna og leikur George C.
Scott i hlutverki Pattons. Maður
er engu nær i hverju herstjórnar-
list Pattons var fólgin. Við fáum
smáinnsýn i hugarheim Pattons,
hrokafullur og stærilátur maður
sem á sér þá ósk heitasta að
skapa sér ódauðlega frægð á vig-
völlunum, sem honum og tókst.
Það lýsir honum kannski vel það
sem hann sagði eitt sinn er hann
ávarpaði herdeild sina. ,,Það er
ekki nóg að skjóta Þjóðverjana.
Þegar við erum búnir að þvi, þá
skerum við þá og notum iðrin til
VÖRUBÍLSTJÓRAR -
VERKTAKAR
BARUM hjólbarðar fyrir vörubíla og
vinnuvélar verða seldir á óbreyttu verði
meðan birgðir endast
600-16/(5_____
11,25-24/6 ..
11,2/10-28/6
12,4/11-28/6
16,9/14-28/8
16,9/14-30/10
13x24/6......
14x24/16....
.2.300.00
.8.970.00
.7.900.00
.8.970.00
15.900.00
20.800.00
11.450.00
23.950.00
Staðgreiðsluverð vörubilahjólbarða MEÐ
SLÖNGU, sölusk. innifalinn.
825-20/12 .
900-20/14 .
900-20/16 .
1000-20/14
1000-20/16
1100-20/14
1100-20/16
1200-20/18
.9.670.00
11.450.00
13.200.00
13.650.00
14.300.00
14.800.00
16.950.00
19.850.00
Kaupið BARUM hjólbarðana
á gamla verðinu núna. —
Það borgar sig.
TÉKKNESKA BIFREIÐAUMBOÐIf) A ÍSLANDI H.F.
SOLUSTAÐIR:
GARÐAHREPPI SlMI 50606
(áður Hjólbarðaverkstæði Garðohrepps
Sunnan við lækinn, gengl benzinstöð BP)
SHDOfí ©
BÚDIN
AUÐBREKKU 44-46,
KOPAVOGI — SlMI 4 2 606
herforingja
aö smyrja beltin á skriðdrekum
okkar”.
En sem sagt. Þetta er frábær-
lega vel unnin mynd i alla staði,
en ef hún á að gefa okkur mynd af
hershöfðingjanum Patton þá er
hún misheppnuö. Hún sýnir
okkur hörku mannsins, en slægð
hans sem herforingja sýnir hún
ekki. Patton lifði af allar sínar
orustur en fórst stuttu fyrir
striðslok i bilslysi og er grafinn i
Luxemborg. Leiði hans er fremst
i geysistórum herkirkjugarði þar
sem þúsundir fallinna hermanna
eru grafnir. Þá hefur verið reist
stórt minnismerki um hann i
sömu borg og enn þann dag i dag
rabba Luxemborgarbúar um
hann sín á milii þegar þeir koma
á krána á kvöldin og sötra vinið
sitt. Enn þann dag i dag eru til
Pattonar hér og þar. Menn sem
hafa yndi af striði, hvort sem það
er háð i Viet Nam eða á trlandi.
Það er ástæðulaust að dýrka slika
menn, en þar sem Patton barðist
fyrir „góðan” málstað hefur þótt
viðeigandi að sveipa um hann
nokkrum dýrðarljóma.
Skólinn tekur til starfa mánudaginn 8. janúar
Barnaflokkar - Unglingaflokkar - Flokkar fyrir fullorðna einstaklinga.
Flokkar fyrir hjón. Byrjendur og framhald.
Innritun og upplýsingar i eftirtöldum simum frá kl. 10-12 og 1-7 daglega
Reykjavík
Kópavogur
Seltjarnarnes
Garðahreppur
(4-6 óra)
Hafnarfjörður
(4-6 óra)
Innritun nýrra nemenda fer fram í símum 20345 og 25224.
'